Þjóðviljinn - 02.06.1987, Side 2
ÍÞRÓTHR
3. deild
Ömggt hjá Stjömunni
/ •• s
Sigraði Aftureldingu. Sjö mörk í Árbœnum. Oruggt hjá IK
Stjarnan hefur aldeilis byrjað
af krafti í A-riðli 3.deildar. Þeir
sigruðu ÍK í fyrsta leik og lögðu
nú Aftureldingu að velli á útivelli,
1-3.
Það var þó Óskar Óskarsson
sem náði forystunni fyrir Aftur-
eldingu snemma í leiknum. En
Stjarnan sótti í sig veðrið og tvö
mörk frá Valdimar Kristóferssyni
og eitt frá Bjarna Benediktgssyni
færðu þeim sanngjarnan sigur.
ÍK, sem tapaði fyrir Stjörnunm
um síðustu helgi, átti stórleik
þegar þeir sigruðu Reynismenn,
4-1. Kópavogsbúarnir fengu ósk-
abyrjun er Steindór Elísson
skoraði eftir aðeins tvær mínútur.
ívar Guðmundsson jafnaði fyrir
Reyni úr vítaspyrnu um miðjan
fyrri hálfleik en rétt fyrir leikhlé
náði Jón Hersir Elíasson foryst-
unni fyrir ÍK á nýjan leik.
ÍK-ingar gerðu svo útum
leikinn með tveimur mörkum á
síðustu fimm mínútunum. Hörð-
ur Sigurðarson skoraði beint úr
hornspyrnu! Reynir Björnsson
innsiglaði svo sigurinn með marki
með skalla eftir hornspymu.
Fylkir vann stórsigur gegn
Skallagrími, 7-0. Gunnar Orra-
son skoraði tvö marka Fylkis og
Ólafur Magnússon, Rúnar Vil-
hjálmsson, Baldur Bjarnason,
Orri Hlöðversson og Guðjón
Reynisson eitt hver.
Njarðvík og Leiknir skildu jöfn
í baráttuleik. Jóhann Viðarsson
náði forystunni fyrir Njarðvík, sá
hinn sami og skoraði fjögur mörk
gegn Létti. Albert Eðvaldsson
jafnaði svo fyrir Njarðvík. Það
vakti athygli að línuvörður fannst
ekki þegar hefja átti leikinn og
tafðist hann því um tæpan hálf-
tíma.
Haukar náðu forystunni gegn
Grindavík með marki frá Arnari
Hilmarssyni, en Grindavík sig-
raði þó 3-1. Símon Alfreðsson,
Hjálmar Hallgrímsson og Ólafur
Ingólfsson skomðu mörk Grind-
avíkur. Tveir leikmenn fengu að
berja rauða spjaldið augum, Sig-
urjón Dagfinnsson hjá Haukum
og Helgi Bogason hjá Grindavík,
báðir fyrir gróf brot.
Staðan í A-riðli er þá þannig:
Fylkir.....
Stjarnan....
Grindavík..
Reynir.....
ÍK.........
Afturelding
Njarövík. ..
Leiknir....
Haukar.....
Skallagríniur...
...2 2
...2 2
...2 1
...2 1
...2 1
...2 1
...2 0
...2 0
..2 C
...2 0
0 8-0
0 6-2
0 3-1
1 7-4
1 5-4
1 3-4
0 1-1
1 2-3
2 1-4
2 0-13
Einn leikur var í B-riðli og var
það jafnfram fyrsti leikurinn í
riðlinum. Tindastóll sigraði Þrótt
Neskaupstað 1-0. Það var Eyjólf-
ur Sverrisson sem skoraði sigur-
markið.
Sex leikmenn hafa skorað tvö
mörk í 3.deild. Ólafur Magnús-
son og Gunnar Orrason Fylki,
Steindór Elísson ÍK, ívar Guð-
mundsson Reyni, Óskar Óskars-
son Aftureldingu og Valdimar
Kristófersson Stjörnunni.
-Ibe
Vestmannaeyjar
Tómas skoraði tvö
ÍBV-UBK 3-1 (1-0) * *
Tómas Pálsson er kominn aftur
í lið Eyjamanna og ekki hægt að
segja annað en hann hafi góð
áhrif. Hann skoraði tvö mörk í
sigri Vestmannaeyingar gegn
Breiðabliki.
Hann var þó ekki sérlega
skemmtilegur leikurinn. Mikið
rok á vellinum sem gerði leik-
mönnum erfitt fyrir. Fyrri hálf-
leikurinn var mjög daufur og að-
l.deild kvenna
Valur
byrjar
Sigraði Stjörnuna
vel
Valur hóf titilvörn sína í l.deild
kvenna með sigri gegn Stjörn-
unni, 3-0. Sigurinn var þó fullstór
miðað við gang leiksins.
Guðrún Sæmundsdóttir náði
forystunni fyrir Val á 19. mínútu
með marki úr aukaspyrnu. Hún
endurtók þennan gjörning í síðari
hálfleik er hún skoraði aftur beint
úr aukaspyrnu, 2-0.
Stjarnan átti einnig hættuleg
færi og Margrét Sigurðardóttir
átti skot í stöng úr aukaspyrnu.
En á 73. mínútu skoraði
Bryndís Valsdóttir þriðja mark
Vals. Hún lék upp kantinn og
skoraði af öryggi með föstu skoti.
Leikurinn var nokkuð góður.
Guðrún Sæmundsdóttir og Ragn-
heiður Víkingsdóttir áttu góðan
leik fyrir Val. Hjá Stjörnunni
voru Erla Rafnsdóttir og Magnea
Matthíasdóttir mest áberandi.
Magnea varð þó að yfirgefa
leikvöllinn í síðari hálfleik eftir
að hafa fengið krampa.
PÁ léku einnig ÍBK og KR og
sigruðu KR-ingar, 2-0.
Helena Ólafsdóttir náði foryst-
unni á 10. mínútu og Kristín
Hreinsdóttir bætti öðru marki við
á75. mínútu. KR-ingar voru mun
sterkari og Keflvíkingar komust
ekki í hættuleg færi. Það munar
miklu að Katrín Eiríksdóttir
leikur ekki með Keflavík og mun
ekki leika með í sumar sökum
meiðsla. -Ibe
ÍÞRÓTTIR
eins hægt að tala um eitt færi. Það
kom um miðjan hálfleikinn og úr
því fyrsta mark ÍBV. Bergur Ág-
ústsson lék upp kantinn og gaf
fyrir á Tómas sem skoraði af
stuttu færi.
Vestmannaeyingar sóttu held-
ur meira í síðari hálfleik, en ekki
gekk þeim vel að koma sér í færi.
Á 55.mínútu kom svo annað
marki. Bergur fékk þá boltann
við vítateig og skoraði með
þrumuskoti í hliðarnetið. Laglegt
mark og vindurinn hjálpaði til.
Ekki batnaði útlitið hjá Blik-
um á 80.mínútu. Eftir þvögu við
mark þeirra náði Tómas Pálsson
boltanum og skoraði auðveld-
lega.
En Rögnvaldur Rögnvaldsson
minnkaði muninn fyrir Breiða-
blik þegar fjórar mínútur voru til
ieiksloka með marki á stuttu færi.
Ingi Sigurðsson og Bergur Ág-
ústsson voru bestu menn í liði
ÍBV og gamla kempan Tómas
Pálsson átti einnig góðan leik.
Ólafur Björnsson var sá eini
sem stóð uppúr slöku liði
Breiðabliks.
Maður leiksins: Ingi- Sigurðs-
son, ÍBV.
Jón Grétar Jónsson skorar fyrsta mark Vals gegn Keflavík. Á innfelldu myndinni skorar Sigurjón Kristjánsson þriðja mark Vals, snemma í síðari hálfleik. Mynd:E.OI.
l.deild
Sýning á Hlíðarenda
Ótrúlegir yfirburðir Valsmanna. Fimm mörk á tólfmínútum
í
Valsmenn sýndu hvers þeir eru
megnugir er þeir tóku Kefivíkinga í
kennslustund á Hlíðarenda. Leiknum
lauk með sigri Vals, 7-1! Ótrúlegar
tölur, en vart hægt að segja annað en
það sé verðskuldað.
Valsmenn sýndu hreint ótrúlega
yfirburði og á köflum þurfti nokkurt
ímyndurnarafl til að sjá, að tvö lið
væru á vellinum. Valsmenn fóru á
kostum og Keflvíkingar, sem þó eru
með gott lið, áttu í vök að verjast allan
leikinn.
Það var ljóst strax í byrjun að Vals-
menn ætluðu sér stóra hluti. Þeir léku
mjög vel og sóttu stanslaust. Á 6. mín-
útu skoruðu þeir laglegt mark sem var
dæmt af sökum rangstæðu. Stuttu síð-
ar fengu þeir dauðafæri og a.m.k.
fimm Valsmenn reyndu skot á mark-
ið, en inn vildi boltinn ekki.
Það var ekki fyrr en seint í síðari
hálfleik að fyrsta markið kom. Hilmar
Sighvatsson lék þá í gegnum vörn ÍBK
og gaf fyrir á Jón Grétar Jónsson sem
skoraði með föstu skoti.
Þremur mínútum síðar bætti Guðni
Bergsson öðru marki við með skalla,
eftir hornspyrnu frá Ámunda Sig-
mundssyni.
hálfleik var staðan 2-0 Vals-
mönnum í vil, en með smá heppni |
hefðu mörkin getað orðið mun fleiri.
Valsmenn hófu síðari hálfleikinn ,
rétt eins og þeir enduðu þann fyrri, í |
sókn. Jón Grétar komst einn í gegn,
en Þorsteinn Bjarnason varði skot
hans mjög vel.
Á 57. mínútu bættu Valsmenn
þriðja markinu við. Valur Valsson tók ,
hornspyrnu og þaðan barst boltinn til '
Sigurjóns Kristjánssonar sem skoraði
með skalla.
Um miðjan síðari hálfleik fengu
Keflvíkingar sitt besta færi. Eftir
hornspyrnu barst boltinn út til Sigur-
jóns Sveinssonar, en Guðmundur
Hreiðarsson sá við skoti hans og varði
með fætinum og þaðan fór boltinn í ,
þverslá og yfir. i
Magni Pétursson átti þrumuskot af
25 metra færi sem Þorsteinn varði
mjög vel, sló boltann í slá.
Síðustu tólf mínúturnar komu fimm ,
mörk. Jón Grétar óð upp vinstri kant- |
inn og gaf boltann fyrir. Hann fór í
Ægi Kárason, Keflvíking, og þaðan í i
netið, 4-0.
Fimm mínútum síðar kom fimmta
markið. Boltinn barst til Vals Vals-
sonar, eftir hornspyrnu, og hann
þrumaði honum í netið, 5-0.
Næsta mark kom tveimur mínútum
síðar. Valur gaf fyrir og Keflvíkingum
mistókst að hreinsa frá. Sigurjón beið
rólegur eftir boltanum og skoraði svo
með föstu skoti, 6-0.
En á 87. mínútu minnkuðu
Keflvíkingar muninn. Peter Farrel
braust í gegnum vörn Vals og gaf fyrir
á Frey Bragason sem skoraði af stuttu
færi, 6-1.
Valur Valsson innsiglaði svo sigur-
inn á lokamínútunum með marki af
stuttu færi eftir sendingu frá Jóni
Grétari.
Valsmenn bókstaflega fóru á kost-
um í þessum leik. Þeir réðu lögum og
lofum á vellinum og aldrei spurning
um hvorum megin sigurinn hafnaði.
Liðið náði vel saman og sóknirnar
hættulegar.
Jón Grétar Jónsson og Valur Vals-
son áttu báðir einstaklega góðan leik.
Jón Grétar á fullri ferð allan tímann og
Valur mjög útsjónarsamur og átti þátt
í flestum mörkunum. Guðni Bergsson
og Sævar Jónsson voru sterkir í vörn-
inni auk Þorgríms Þráinssonar. Þá átti
Ingvar Guðmundsson einnig góðan'
leik.
Hjá Keflavík mæddi mest á Þor-
steini Bjarnasyni og stóð hann sig vel
og Sigurjón Sveinsson átti ágæta
spretti. Aðrir leikmenn náðu sér ekki
á strik, en Keflavíkurliðið getur gert
betur en þetta.
-Ibe
Valur-ÍBK 7-1 (2-0) ★ ★ ★ ★
Valsvöllur 31. mal
Dómari: Bragi Bergmann ★
Áhorfendur 1050
1-0 Jón Grétar Jónsson (35.min), 2-0
Guöni Bergsson (38.min), 3-0 Sigur-
jón Kristjánsson (57.min), 4-0 Ægir
Kárason sjálfsm. (78.mín), 5-0 Valur
Valsson (82.mín), 6-0 Sigurjón Krist-
jánsson (84.min), 6-1 Freyr Bjarnason
(88.mín), 7-1 Valur Valsson (89.mín).
Stjörnur Vals:
Jón Grétar Jónsson ★ ★
Valur Valsson ★ ★
Guöni Bergsson ★
Ingvar Guömundsson ★
Sævar Jónsson ★
Stjörnur ÍBK:
Þorsteinn Bjarnason ★
Mikið skorað í 4.deild
Níu mörk á Bolungarvík. Grótta sigraði nágrannana. Sjö mörkKeynis. Hvöt heldur hreinu. Jóhannmeðfjögur
Vinningstölurnar
30. maí 1987
Heildarvinningsupphæö: 4.943.246,-
1. vinningur var kr. 2.476.368,- og skiptist hann á milli
3ja vinningshafa, kr. 825.456,- á mann.
2. vinningur var kr. 742.298,- og skiptist hann á 422
vinningshafa, kr. 1.759,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.724.580,- og skiptist á 10452
vinningshafa, sem fá 165 krónur hver.
Upplýsingasfmi:
685111.
532
veiyu, en nest lið léku aðra umferð nú
um helgina.
Ármenningar sigruðu Stokkseyri í
A-riðli 2-0. Leikurinn var allur hinn
rólegasti og Gylfi Orrason og Arnar
Unnarsson skoruðu mörk Ármanns.
Þá gerðu Grundarfjörður og Ár-
vakur jafntefli 1-1 í jöfnum leik.
Gunnar Ragnarsson skoraði mark
Grundarfjarðar en Ólafur Ólafsson
skoraði mark Árvakurs, en þeir áttu
m.a. skot í stöng.
Árvakur er því í efsta sæti í A-riðli
með 4 stig og Stokkseyri og Ármann í
2.-3. sæti með þrjú stig.
Grótta lagði nágrannana
Grótta sigraði Hvatbera í leik nág-
ranna á Seltjarnarnesi. Grótta var
heldur sterkari og komst í 3-0. Hvat-
berar gáfust þó ekki upp og minnkuðu
_______n í 3-2, en Grótta bætti svo við
4. markinu seint í síðari hálfleik.
Bernharð Petersen, sem skoraði bæði
mörk Gróttu í 1. umferð Mjólkurbik-
arsins, skoraði tvö mörk og Arnþór
Gylfi Árnason og Kjartan Steinsson
eitt hvor. Mörk Hvatbera skoraði Þór
Ómar Jónsson.
Skotfélag Reykjavíkur vann stór-
sigur gegn Víking, Ólafsvík, 4-0 á úti-
velli. Agnar Hansson, Snorri Már
Skúlason, Þorfinnur Ómarsson og
Arnar Sigurbjartsson skoruðu mörk
Skotfélagsins.
Grótta er í efsta sæti í B-riðli með 6
stig úr tveimur leikjum, í 2.-3. sæti
Hvatberar og Skotfélag Reykjavíkur
með 3 stig úr tveimur leikjum.
Rafn Rafnsson skoraði þrjú mörk í
stórsigri Snæfells gegn Höfnum, 5-1.
Hin mörk Snæfells gerðu þeir Bárður
Eyþórsson og Lárus Jónsson. Mark
Hafna gerði Halldór Halldórsson.
Hveragerði sigraði Víkverja í bar-
áttuleik. Það var Ólafur Jósefsson sem
skoraði sigurmark Hveragerðis
snemma í leiknum.
Hveragerði hefur hlotið 6 stig úr
tveimur leikjum, en í 2.-3. sæti eru
Víkverji og Snæfell með 3 stig.
Bolungarvík vann stórsigur á Bíldu-
dal, 9-0. Jóhann Ævarsson gerði sér
lítið fyrir og skoraði fjögur mörk. Her-
mann Jónsson skoraði tvö mörk og
þeir Jóhann Hákonarson, Svavar
Ævarsson, og Jón Kristjánsson eitt
hver.
Reynismenn unnu einnig stórsigur
gegn Höfrungum, 7-0. Jóhannes Ól-
afsson og Vilhjálmur Matthíasson
skoruðu tvö mörk hvor og þeir Ólafur
Birgisson og Hálfdán Óskarsson eitt
hvor, auk sjálfsmarks heimamanna. i
Badmintonfélag ísafjarðar lék tvo
leiki í vikunni og gerði jafntefli í þeim
báðum. Gegn Geislanum 1-1 og Gegn
Bíldudal 2-2. Það voru Egill Fjeldsted
og Viðar Ástvaldsson sem skoraðu
mörk Bfldudals.
Reynir er í efsta sæti í D-riðli með 6
stig úr tveimur leikjum og Bolungar-
vík í 2. sæti með 3 stig.
Hvöt frá Blönduósi vakti mikla at-
hygli fyrir að fá ekki á sig mark í unda-
nkeppninni í fyrra. Þeir halda uppt-
eknum hætti og hafa ekki fengið á sig
mark í tveimur fyrstu leikjunum. Þeir
sigruðu Svarfdæli 2-0 með mörkum frá
Páli Jónssyni og Ásgeiri Valgeirssyni.
Þá gerðu Kormákur og Neisti jafn-
tefli, 0-0.
Höttur sigraði Súluna 6-0. Hilmar
Gunnlaugsson skoraði tvö mörk og
þeir Jóhann Sigurðsson, Heimir Þor-
steinsson, Kjartan Guðmundsson og
Ámi Jónsson eitt hver.
Þórir Ólafsson skoraði tvö mörk
þegar Huginn sigraði Hrafnkel, 5-1.
Birgir Guðmundsson og Sveinbjörn
Jóhannsson skoruðu sitt markið hvor
og gestirnir læddu inn einu sjálfs-
marki.
Leiknir sigraði Val Reyðarfirði, 4-2
á útivelli. Árni Gíslason, Frosti
Magnússon, Jóhann Jóhannsson og
Kristmann Larsson skoruðu mörk
Leiknis, en Aðalsteinn Þorvaldsson
og Aðalsteinn Böðvarsson skoraðu
mörk Vals.
Markahæstu menn í 4.deild:
Jóhann Ævarsson, Bolungarvík....5
Páll J ónsson, Hvöt.............4
Ólafur Birgisson, Reynir Hnífsdal... 4
ÞórÓmarJónsson,Hvatberum........3
Ólafur Jósefsson, Hveragerði....3
Rafn Rafnsson, Snæfelli.........3
Jón Kristjánsson, Bolungarvík...3
-Ibe
l.deild
Storleikur Framara
Fóru á kostum gegn Skagamönnum
Framarar virðast loksins vera
komnir í gang. Eftir tap í síðustu
leikjum náðu þeir loks saman og
sigruðu Skagamenn
sannfærandi, 3-1 á Akranesi.
Það var aðeins fyrstu mínút-
urnar sem Skagamenn áttu
möguleika. Og reyndar byrjuðu
þeir vel. Friðrik Friðriksson,
markvörður Fram hrinti frá sér í
vítateignum og Skagamenn fengu
vítaspyrnu. Heimir Guðmunds-
son skoraði af öryggi.
Staðan
i 1-deild i knattspyrnu
KR 2 2 0 0 4-0 6
Valur 2 1 1 0 8-2 4
Þór 2 1 0 1 3-2 3
Fram 2 1 0 1 4-4 3
KA 2 1 0 1 1-1 3
2 1 0 1 3-4 3
IA 9 2 1 0 1 2-3 3
IBK 2 1 0 1 5-9 3
Víðir 2 0 1 1 1-2 1
FH 2 0 0 2 0-4 0
Eftir markið komu Framarar
meira inní leikinn og smátt og
smátt náðu þeir undirtökunum.
Jöfnunarmarkið kom á
29.mínútu. Viðar Þorkelsson
skoraði með skalla eftir góða
aukaspyrnu frá Pétri Ormslev.
Laglega gert.
Það sem eftir var leiksins sóttu
Framarar. Birkir Kristinsson
varði vel skot frá Pétri Arn-
þórssyni og skömmu síðar náði
Fram forystunni. Arnljótur Dav-
íðsson fékk sendingu innfyrir
vörn ÍA og skoraði af öryggi.
Stuttu síðar átti Pétur Ormslev
gott skot yfir.
Framarar voru einnig sterkari
aðilinn í síðari hálfleik. Pétur
Arnþórsson óð í færum, átti m.a.
skot í slá og Janus Guðlaugsson
átti þrumuskot sem Birkir varði
vel.
Það var svo um miðjan síðari hálf-
leik að þriðja markið kom. Pétur
Ormslev skoraði með skalla eftir
góða sendingu frá Ormari Ör-
lygssyni. Rétt fyrir leikslok átti Orm-
arr gott færi en Birkir varði vel frá
honum.
Framarar náu loks að sýna sitt rétta
andlit. þeir léku mjög vel og munaði
miklu að þeir fóru loks að skora. Pét-
ur Ormslev og Pétur Arnþórsson áttu
báðir mjög góðan leik og Janus Guð-
laugsson var sterkur á miðjunni auk
Viðars Þorkelssonar.
Hjá Skagamönnum var Birkir í
markinu besti maður, en aðrir langt
frá sínu besta. Vart hægt að sjá að
þetta væri sama lið og sigraði Fram í
meistarakeppninni.
ÍA-Fram 1-3 (1-2) * * *
Akranesvöllur 30. maí
Dómari:Eyjólfur Ólafsson * *
Áhorfendur 916
1 -0 Heimir Guðmundsson (8.mín), 1-1
Viðar Þorkelsson (29.mín), 1 -2 Arnljót-
ur Davíðsson (38.mín), 1-3 Pétur
Ormslev (65.mín)
Stjörnur ÍA:
Birkir Kristinsson *
Stjörnur Fram:
Pétur Ormslev * *
Pétur Arnþórsson *
Janus Guðlaugsson *
Viðar Þorkelsson *
Gunnar Beintelnsson svífur inn af línunni og skorar eitt fimm marka sinna. Mynd:E.ÓI.
Handbolti
Með tvö mörk til Noregs
Sigruðu Norðmenn í baráttuleik með tveggja marka mun
ísland sigraði Noreg 21-19 í
sveifiukenndum baráttulcik í
Hafnarfirði á sunnudag. Þessi
leikur var hinn fyrri um sæti í
Heimsmeistarakeppni U-21 árs
landsliða, en sá síðari verður í
Noregi um helgina.
Það er ekki mikið veganesti tvö
mörk og róðurinn verður því án
efa þungur fyrir íslenska lands-
liðið U-21 árs í Noregi.
ísland byrjaði vel og náði góðu
forskoti, 4-1. Þá komu fjögur
mörk í röð frá Norðmönnum, 4-
5. Þá small íslenska liðið saman
og Bergsveinn Bergsveinsson
bókstaflega lokaði íslenska
markinu.
Þetta var mjög góður kafli hjá
íslenska liðinu og tókst þeim að
halda fimm marka forskotinu
fram að leikhléi.
í síðari hálfleik náðu Norð-
menn að minnka muninn í þrjú
mörk, 15-12. íslendingar tóku þá
við sér á nýjan leik og skoruðu
tvö mörk í röð.
Þegar tæpar tvær mínútur voru
til leiksloka var staðan 21-17, fs-
lendingum í vil. En Norðmenn
skoraðu tvö síðustu mörkin og
skáru allverulega niður veganesti
íslendinga.
íslenska liðið lék nokkuð vel,
en vantaði tilfinnanlega stöðug-
leika. Þrátt fyrir gott forskot
tókst þeim ekki að sigra með
nema tveggja marka mun. Þá
settu dönsku dómararnir strik í
reikninginn á lokamínútunum
með undarlegum dómum og end-
uðu á því að gefa Viggó Sigurðs-
syni rautt spjald fyrir að mót-
mæla.
Bergsveinn Bergsveinsson átti
stórleik í markinu og varði mjög
vel, þ.á m. þrjú vítaköst. Þeir
Bjarki Sigurðsson og Einar Ein-
arsson áttu einnig góðan leik auk
Gunnars Beinteinssonar.
Hjá Norðmönnum var það
Rune Erland sem var mest áber-
andi. Hann lék með U-18 ára
landsliðinu á Norðurlandamót-
inu og var þó kosinnn besti sókn-
arleikmaður mótsins. Vel að
þeim titli kominn.
Mörk íslands:Einar Einarsson 6,
Gunnar Beinteinsson 5, Héðinn Gils-
son 3, Bjarki Sigurðsson 3, Árni Frið-
leifsson 1, Pétur Petersen 1 og Stefán
Kristjánsson 1.
Schönfeldt og Erland skoruðu flest
mörk Norðmanna, fjögur hvor.
10 SfDA — ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 2. júní 1987
Þrlðjudagur 2. júní 1987 pJÓÐVILJINN - SÍÐA 11