Þjóðviljinn - 07.08.1987, Page 6
VIÐHORF
B-3 vítamín og áfengisfíkn
Athugasemd við ummæli Óttars Guðmundssonar læknis
Ævar Jóhannesson skrifar
Föstudaginn 31. júlí s.l. var á
baksíðu Þjóðviljans stutt grein
með nafninu „B-3 vítamín. Lyf
við áfengislöngun.” Greinin var
undirrituð af blaðamanni Þjóð-
viljans g.r.h.
Þar sem efni þessarar greinar
er þeim er þetta ritar nokkuð við-
komandi finnst honum óhjá-
kvæmilegt að gera athugasemd
við ummæli Óttars Guðmunds-
sonar læknis um B-3 vítamín og
áfengisfíkn.
Forsaga málsins er sú að á síð-
asta ári kom löng grein í kanad-
íska vísindatímaritinu „Journal
of Orthomolecular Medicine”
eftir lækninn John P. Cleary um
rannsóknir vísindamanna víða
um heim á orsökum áfengisfíknar
og líffræðilegar ástæður þess að
sumir einstaklingar virðast ánetj-
ast áfengi en aðrir ekki.
Niðurstöður þessara rann-
sókna og nokkurra læknisfræði-
legra tilrauna sem á eftir fylgdu
var sú að sumir einstaklingar
virðast af einhverjum ástæðum
þarfnast miklum mun meira B-3
vítamíns í fæðu en eðlilegt er talið
ef þeim á að líða vel. Þessir sömu
einstaklingar leiðast gjarnan út í
ofnotkun áfengis því efnasam-
bönd sem myndast við niðurbrot
áfengis tengjast taugastöðvum í
heila þeirra á Iíkan hátt og efna-
sambönd sem myndast úr B-3 vít-
amíni og koma í stað þeirra.
Undirritaður þýddi og endur-
sagði hluta umræddrar vísinda-
greinar og var sú grein birt í tíma-
ritinu „Hollefni og heilsurækt”,
3.-4. tbl. 1986.
Greinin er of löng til að birta
hana hér en þeim sem áhuga
hefðu á að kynna sér efni hennar
er bent á að þetta blað er ennþá
fáanlegt hjá Heilsuhringnum sem
gefur blaðið út, sími 44499 og
sennilega einnig í einhverjum
heilsufæðubúðum.
Prófanir á áfengissjúklingum
sýndu að með því að gefa þeim
stóra skammta af B-3 vítamíni
hvarf áfengisfi'kn þeirra að mestu
og fráhvaifseinkenna gætti lítið
sem ekkert.
Blaðamaður Þjóðviljans átti
stutt viðtal í síma við undirritað-
an um efni þessarar greinar og
geri ég ekki neinar athugasemdir
við það sem eftir mér er haft í
greininni í Þjóðviljanum.
Einnig átti blaðamaður viðtal
við Óttar Guðmundsson lækni á
Vogi um sama efni en hann sagði
m.a. í viðtalinu: að þetta væri
ein af þessum bólum sem annað
slagið kæmu upp hér á landi—”
og einnig: „Áfengissýkin er fiók-
ið samspil margra samverkandi
þátta og við henni er ekki til nein
allsherjarlausn. Ef hún væri til þá
væri heimurinn annar en hann er í
dag hvað áfengisvandamálið
varðar, en þetta með B-vítamínið
er ekkert nýtt. Það er talað um að
ef maður tekur inn C-vítamín fái
maður ekki kvef og ef karlmaður
tekur inn E-vítamín þá geti hann
haldið getnaðarlim sínum stinn-
um svo og svo lengi.” Tilvitnun
lýkur.
Hvað þessir meintu eiginleikar
C- og E-vítamína koma áfengis-
fíkn við er ekki nánar útskýrt.
Mig langar þó til að gera at-
hugasemdir við nokkur atriði í
þessum ummælum læknisins.
Hann segir að þetta sé ekkert
nýtt, sem er ekki rétt. Áður-
nefndar rannsóknir eru glænýjar
og voru niðurstöður þeirra fyrst
birtar opinberlega fyrir tæpu ári.
Ég legg vitanlega ekkert per-
sónulegt mat á áreiðanleik þess-
ara rannsókna né dóm á gildi
meðferðarinnar gegn drykkjuf-
íkn en það getur Óttar Guð-
mundsson heldur ekki gert fyrr
en hann hefur kynnt sér
rannsóknirnar og helst prófað
meðferðina á eigin sjúklingum.
Að vísu hafa nokkrir áfengis-
sjúklingar sem reynt hafa með-
ferðina haft símasamband við
mig og talið hana áhrifaríka en
þeir eru ennþá of fáir til að hægt
sé að draga ákveðnar ályktanir af
því einu.
Ég vona bara að afstaða Óttars
Guðmundssonar endurspegli
ekki líkt hugarfar og hjá þeim
fræðimönnum fortíðarinnar
neituðu að horfa í sjónauka Gal-
ileo Galileis og sannfærast um að
tungl gengju umhverfis plánet-
una Júpiter, en þeir „vissu” sam-
kvæmt fræðum þess tíma að Júp-
iter hafði engin tungl og því á-
stæðulaust að ómaka sig við að
horfa í sjónaukann.
Lík afstaða kom fram hjá lækn-
um á öldinni sem leið þegar Sam-
melweiss læknir uppgötvaði að
barnsfararsótt stafaði af sótt-
kveikjum sem læknar og hjúkr-
unarfólk báru milli sængur-
kvenna. Aðrir læknar „vissu” að
barnsfararsóttin stafaði ekki af
sóttkveikjum og dr. Sammelw-
eiss hrökklaðist frá sjúkrahúsinu
með háðung. Hið sanna kom þó
um síðir í Ijós en þá höfðu tugþús-
undir kvenna látist vegna tregðu
læknanna að meðtaka augljós
sannindi.
Hugmyndir um að nota C-
vítamín til að lækna kvef eru ekki
upprunnar á íslandi en eru þekkt-
ar og notaðar um víða veröld.
Lesendabréf
Umferð og
ökuhraði
við Njáls-
götuna
í lesendabréfsdálki blaðs yðar
þ. 1. ágúst sl. er bréf „íbúa við
Njálsgötu” þar sem ákveðnum
tilmælum er meðal annars beint
til embættis lögreglustjórans í
Reykjavík, um aukið eftirlit hvað
varðar ökuhraða og bifreiðastöð-
ur á gangstéttum.
Af þessu tilefni óskast eftirfar-
andi birt. Fyrstu 20 daga júlímán-
aðar sektaði lögreglan 75 öku-
menn fyrir að hafa lagt bifreiðum
sínum ólöglega á Njálsgötu. Auk
þessa voru nokkrar bifreiðar fjar-
lægðar með kranabifreið.
Fylgst hefur verið með hraða
ökutækja á Njálsgötu og 23. júlí
sl. kl. 22-22.30 var gerð sérstök
hraðakönnun með ratsjártæki.
Þá var mældur hraði 227 öku-
tækja og reyndist hraðinn vera
frá 14 til 51 km pr. klst., meðal-
hraði 20 km pr. klst.
Á Njálsgötu er 30 km hámarks-
hraði og af þessum 227 ökutækj-
um sem mæld voru reyndust 22
vera yfir 30 km þar af 7 yfir 40 og 1
yfir 50 km.
Þá má geta þess að Iögreglu-
þjónar verða varir við ökumenn
aka hraðar þegar umferð er
minni.
Þá hefur gangandi lögreglu-
þjónn farið við og við að um
Njálsgötu í almennu eftirliti, en
eftirlitsferðum á lögreglubifhjól-
um og bifreiðum haldið
óbreyttum.
Vísindamaðurinn dr. Linus Pau-
ling, sem tvisvar sinnum hefur
hlotið Nobelsverðlaun, kom með
hana fyrir nokkrum áratugum.
Dr. Pauling er einn þekktasti vís-
indamaður sem nú er uppi og
uppgötvun hans á því hvernig
erfðaefni frumanna vefst upp í
gormlaga þráð er af sumum taiin
ein snjallasta uppgötvun sem
gerð hefur verið í líffræði frá upp-
hafi.
Hann skrifaði heila bók um
áhrif C-vítamíns á kvef og aðra
um inflúensu og C-vítamín. Síðar
hafa ýmsir aðrir tekið þráðinn
upp sem ekki verður rakið hér.
Mín eigin reynsla og fjölda
annarra bendir eindregið til að
dr. Pauling hafi rétt fyrir sér.
Vitanlega hefur Óttar Guð-
mundsson fullt leyfi til að vera á
annarri skoðun en þá verður að
koma fram að það sé hans per-
sónulega álit en ekki samdóma
skoðun vísindamanna almennt.
Þetta með getnaðarliminn. Ég
verð að játa að það hef ég aldrei
fyrr heyrt og enginn sem ég hef
spurt. Að vísu var talið fyrir
nokkrum áratugum að E-vítamín
tengdist frjósemi vegna þess að
skortur þess veldur fósturláti hjá
sumum dýrum og e.t.v. konum.
Annað nafn á E-vítamíni „tocof-
erol” þýðir raunar barnsburður
og á sennilega að höfða til þess að
það hindri fósturlát. En að það
hafi eitthvað með getu eða getu-
leysi að gera held ég að hljóti að
vera óskhyggja. Ekki er að furða
þó að þeir sem litla trú hafa á
lækningum með vítamínum haldi
fast í þá skoðun hafi þeir ein-
hverntíman reynt að auka getu
sína með E-vítamíni einu saman.
Eigi að síður er E-vítamín
mjög mikilvægt næringarefni en
um það ætla ég ekki að ræða hér.
Ég vona að Óttar Guðmunds-
son taki það ekki illa upp þó að ég
geri þessar athugasemdir við um-
mæli hans.
Ég vildi nefnilega gjarna að
hann tæki grein mína í Hollefni
og heilsurækt alvarlega og gerði
marktæka tilraun á Vogi til að
kanna áhrif B-3 vítamíns á of-
drykkjusjúklinga. Þá þætti mér
gaman að fylgjast með árangrin-
um og vildi því eiga vinsamleg
samskipti við Óttar og aðra lækna
þar.
Árangur þeirrar tilraunar yrði
síðan birtur í Hollefni og heilsu-
rækt á ekki minna áberandi stað
en fyrri greinin.
STOKKSEYRI
Kennarar óskast
Við Grunnskóla Stokkseyrarhrepps eru tvær
kennarastöður lausar til umsóknar. Kennslu-
greinar: enska og kennsla yngri barna. Ódýrt
húsnæði. Upplýsingar veita skólastjóri í símum
99-6300, 99-3263 eða sveitarstjóri í síma 99-
3267.
Skólanefnd
SÍNE félagar athugið!
Sumarráðstefna.
Sumarráðstefna SÍNE verður haldin í Félags-
stofnun stúdenta v/Hringbraut laugardaginn 8.
ágúst kl. 14.00.
MÆTUM ÖLL
Stjórnin
Lögreglustjórinn í Reykjavík
Böðvar Bragason
Fiskeldi
Bændaskólinn á Hólum óskar eftir sérfræðingi í
fiskeldi.
Verkefni: Kennsla - rannsóknir - leiðbeiningar.
Umsóknir sendist til landbúnaðarráðuneytisins f.
1. september n.k.
Landbúnaðarráðuneytið
5. ágúst 1987
Hrossarækt - tamningar
- reiðkennsla
Kennari óskast að Bændaskólanum á Hólum.
Aðalkennslugreinar: hrossarækt, tamningar og
reiðmennska, ásamt umsjá með hrossarækt
kynbótabúsins á Hólum.
Umsóknir sendist til landbúnaðarráðuneytisins f.
1. september n.k.
Landbúnaðarráðuneytið
5. ágúst 1987
tf) Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
Hitaveitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í stálp-
ípur fyrir Nesjavallaæð.
Um er að ræða:
Q 800 mm 23,1 km
Q 900 mm 4.5 km
Alls um 4700 tonn.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Fríkir-
kjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudag-
inn 30. september kl. 11
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
yyAð vísu hafa nokkrir áfengissjúk-
lingar, sem reynt hafa meðferðina, haft
símasamband við mig og talið hana á-
hrifaríka, en þeir eru ennþá offáir til að
hægt sé að draga of ákveðnar ályktanir
af því einu. “
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN