Þjóðviljinn - 07.08.1987, Blaðsíða 10
ísrael:
HEIMURINN
Aröbum
fjölgar mun
hraðar en
gyðingum
Og þeir sem lengst eru til hœgri vilja
bregðast við meðþvíaðflœma Araba úr
landi
Arabísk fjölskylda í Israel : “líffræðileg tímasprengja", sagði Arafat.
egar ráðamenn f ísrael neita
að ræða þann möguleika að
stofnað verði „ríki tveggja þjóða“
í landinu bera þeir það fyrir sig
að þar með yrði ekki lengur til
gyðinglegt þjóðríki sem risi undir
nafni. En sjálfar þær breytingar
sem eru að verða á hiutföllum
miili araba og gyðinga í Israel og á
hernumdu svæðunum hafa þegar
gert það að tímaspursmáli hve-
nær Gyðingar verða komnir í
minnhluta á því landi sem þeir nú
stjórna í krafti hernaðarsigra.
inngangi lýkur
Jassir Arafat, hinn marghrjáði
leiðtogi PLO, hefur einhverju
sinni komist svo að orði, að Pal-
estínuarabar muni sigra ísrael án
þess að til enn einnar styrjaldar-
innar komi. Hann setti traust sitt
á það sem hann kallaði “líffræði-
lega tímasprengju“ - og átti við
það að arabakonur eiga miklu
fleiri börn en gyðingakonur. Því
mætti gera ráð fyrir því að um
næstu aldamót yrðu fleiri arabar
en gyðingar í Palestínu.
Barneignir og pólitík
Það eru fleiri en Arafat sem
gefa þessari þróun gaum. Margir
ísraelskir atkvæðamenn hafa tal-
að um þessa „tímasprengju". Og
það er ekkert líklegra en að hún
springi með margskonar pólitísk-
um afleiðingum, ef svo fer sem
horfir, að ísrael reyni að halda í
öll þau svæði sem hernumin voru
í stríðinu 1967, að ekki sé talað
um þann möguleika að þau verði
beinlínis innlimuð, eins og Gol-
anhæðir. Að vísu hafa um sextíu
þúsund gyðingar sest að á þessum
svæðum eftir að þau voru her-
tekin, en á sama tíma hafa fæðst
þar 7o þúsund arabísk börn.
Á öllu þessu svæði, sem stund-
um er kallað „Stór-ísrael“ í fjöl-
miðlum, búa nú 3,5 miljónir gyð-
inga og2,l miljóniraraba. Mann-
fjöldafræðingar telja líklegt að
um næstu aldamót hafi þessi hlut-
föll breyst þannig, að á móti 4,3
miljónum gyðinga verði þá 3,7
miljónir araba.
Landið milli Jórdanar og Mið-
jarðarhafs væri þá, að því er próf-
essor Arnon Sofer frá háskólan-
um í Haifa segir, „í reynd orðið
ríki tveggja þjóða, sem lægju í
innbyrðis fjandskap líkt og því
sem gerist á Norður-írlandi, Sri
Lanka, Kýpur og í Baskalandi.“
Og til eru þeir sem bæta því við,
að ef til lengri tíma er litið mundi
þetta leiða til „þjóðarsjálfs-
morðs“ fyrir gyðinga ísraels.
Aðstreymi og
brottflutningar
Palestínuarabar á þessu landi
væru reyndar mun fleiri nú en
raun ber vitni hefði ekki komið til
mikillar þenslu í atvinnulífi olíu-
auðugra arabaríkja á sjöunda
áratugnum. Á þeim tíma leituðu
arabar tugþúsundum saman til
starfa í ríkjunum við Persaflóa og
víðar. Haft er fyrir satt að í Kúw-
ait séu heimamenn allir á fram-
færslu hjá ríkinu ævilangt, en það
séu Palestínumenn sem vinni þau
verk sem þurfa þykir. Af pólitísk-
um og öðrum ástæðum hafa olíu-
ríkin hinsvegar alltaf neitað að
veita Palestínumönnum ríkis-
borgararétt. Og þegar samdrátt-
ur herjar á þessi lönd með lækk-
andi olíuverði og styrjaldaróáran
við Persaflóa, þá neyðast margir
þessara útflytjenda til að snúa
aftur til heimaþorpa sinna í Pal-
estínu.
Landflótti Gyðinga
Á sama tíma gerist það að mjög
margir Gyðingar snúa baki við
sínu fyrirheitna landi - og leita þá
fyrst og fremst til Bandaríkjanna.
Tölur um þann landflóttta eru
hálfgert feimnismál í ísrael, en
talið er víst að á hverju ári leiti um
fimmtán þúsundir ísraela at-
hvarfs við erlenda kjötkatla.
Flestir eru vel menntaðir menn úr
millistétt. Til dæmis að taka er
talið að um 350 þúsundir „jor-
dim“ (ísraelskra útflytjanda) séu
nú í Bandaríkjunum og í þeim
hópi er að finna 40 þúsundir há-
skólaborgara - þar af tíu þúsund
verkfræðinga. Má nærri geta að
ísrael munar mikið um þennan
„spekileka“.
Og þessi flótti, sem litinn er
mjög hornauga í ísrael eins og
gefur að skilja, mun að líkindum
fara vaxandi. Ástæðurnar eru
margar - margir kvarta um að
hugsjónaglóð frumherjanna sé
kulnuð, að það jákvæða í ísra-
elskum hefðum veðrist upp í ei-
lífum fjandskap við hina arabísku
sambýlismenn í landinu, að víg-
búnaðurinn haldi niðri lífskjör-
um. Og síðan eiga menn von á
tímasprengjum eða stríði hvenær
sem er. Allt leiðir þetta til þess að
fimmti hver ísraeli á aldrinum 10-
28 ára veltir fýrir sér möguleikum
á að komast úr landi.
Margir ungir Palestínumenn
eru og langþreyttir á ástandinu
heima fyrir og vildu gjarna kom-
ast á brott - en eiga ekki hægt um
vik nú þegar „gistiverkamenn“
virðast hvergi velkomnir lengur.
Hvort sem þeir hafa meiri eða
minni menntun ( en Palestínu-
menn munu nú best menntaðir
allra arabaþjóða).
Gyðingar heimsins
Það eykur á áhyggjur þeirra
ísraela sem velta þessum málum
fyrir sér, að gyðingum í heimin-
um er að fækka - ekki síst með því
að í blönduðum hjónaböndum
gerist það sjaldan að börnin séu
alin upp í gyðinglegum sið. í
löndum eins og Bretlandi, Frakk-
landi og víðar hefur sú þróun orð-
ið á undanförnum árum, að mjög
hefur fækkað þeim „hálfvolgu“
meðal gyðinga. Annaðhvort hafa
menn af gyðingaættum sagt skilið
við gyðinglegar stofnanir og hefð
og samlagast meirihlutanum, eða
þá að þeir gerast mjög rétttrúaðir
og strangir framfylgjendur lög-
málsins. En þeir eru jafnan í
minnihluta í hverju gyðinga-
samfélagi.
Nú um stundir eru gyðingar í
heiminum taldir 9,5 miljónir, en
ýmsir mannfjöldaspámenn gera
ráð fyrir því að þeir verði ekki
nema átta miljónir um næstu
aldamót ( þess má geta að fyrir
gyðingamorð nasista voru gyð-
ingar taldir amk 15 miljónir í
heiminum). Meðal annars af
þessum ástæðum er það ekki lík-
legt, að hvatningarorð um “síon-
istasvar“ við mannfjöldaþróun -
t.d. með auknum innflutningi
gyðinga frá öðrum löndum, muni
eftir ganga. Aðflutningur fólks
var mikill og ör á fyrstu árunum
eftir að ísraelsríki var stofnað, en
nú um langt skeið hafa nýir innf-
lytjendur ekki verið nema um tíu
þúsundir á ári. Og meðan gyðing-
afjölskylda eignast nú að meðalt-
ali 2,5 böm eignast arabísk fjöl-
skylda sex börn eða fleiri.
Vinstri og hœgrisvör
ísraelskir vinstrimenn af ýms-
um gerðum vilja bregðast við
þessu með því að láta af hendi
hernumdu svæðin (og eru þó fáir
sem vilja láta þau öll). Áðeins
með því móti gæti ísrael verið
gyðingaríki og lýðræðisríki um
leið - segir meðal annarra Simon
Peres núverandi utanríkisráð-
herra. En ef haldið verður fast í
„Stór-ísrael“ verður úr því ríki
tveggja þjóða, sem fær æ sterkari
svip af „apartheid", aðskilnaði
þeirra - og misrétti um leið.
Á hægri væng ísraelskra stjórn-
mála eru uppi aðrar ráðagerðir.
Flokkurinn Tehia hefur þegar
lagt til að hálf miljón Palestínu-
manna, sem nú búa í flóttamann-
abúðum á hernumdu svæðunum,
verði fluttir nauðugir til ýmissa
arabaríkja. Fleiri hafa talað í
þessa veru. Rekhavaam Seevi,
fyrrum hershöfðingi, hefur til
dæmis mælt fyrir þeirri hugmynd
að arabarnir á hinum hernumda
Vesturbakka Jórdanar verði
fluttir til Jórdaníu. Hann vill ekki
kalla þetta nauðungarflutninga
og leggur til að aröbum verði
greiddar drjúgar skaðabætur.
Þessi hugmynd er mjög í anda
kenningar áhrifamanns eins Ari-
els Sharons, fyrrum hermálaráð-
herra, sem heldur því fram að
Jórdanía sé hið eina sanna ríki
Palestínumanna. Og málið kemst
á nýtt og alvarlegra stig þegar
einn af aðstoðarráðherrum
þeirrar samsteypustjórnar
stærstu flokka landsins, sem nú
situr, tekur undir þessar hug-
myndir. Hér er átt við Mikael
Dekel aðstoðarvarnarmálaráð-
herra, sem er í hinni hægrisinn-
uðu Likúdblökk. Dekel segir að
eina lausn Palestínumála sé sú að
senda Palestínuaraba austur yfir
Jórdan með alþjóðlegu
samkomulagi eins og hann kallar
það. Og gerir þá ráð fyrir því að
Bandaríkjamenn hafi frumkvæði
í því máli og beri af því verulegan
kostnað - enda væru þeir með því
móti að sjá hagmsunum sínum
fyrir botni Miðjarðarhafs borgið í
bráð og lengd.
Talsmenn Verkamannaflokks-
ins hafa brugðist ókvæða við
þessu rausi í Mikael Dekel.
Sumir tala um að Likúd sé að
„kahaniserast“ og er þá átt við
Meir Kahane og flokk hans,
Koch, sem berst fyrir brottrekstri
araba og er reiðubúinn að fylgja
þeirri stefnu eftir með hverskyns
ofbeldi og yfirgangi. Og Jair Za-
ban þingmaður vinstriflokksins
Mapam hefur fordæmt það sem
hann kallar “ opinbera kynþátt-
akúgunarstefnu“.
En Dekel getur skákað í því
skjóli að margir hugsi eins og
hann. Skoðanakannanirbenda til
þess, að um helmingur gyðinga í
Israel hefðu ekkert á móti því að
„lausn“ hans yrði reynd - en að
vísu dettur ekki nema 14% það í
hug, að slíkt sé yfir höfuð fram-
kvæmanlegt.
Og á meðan halda bamsfæð-
ingar áfram að breyta sögunni...
áb tók saman.
Auglýsið í Þjóðviljanum
Umsóknir um framlög
úr Framkvæmdasjóði
aldraðra 1988
Sjóðstjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir
eftir umsóknum um framlög úr sjóðnum 1988.
í umsókn skal vera nákvæm lýsing á húsnæði,
fjölda vistrýma, sameiginlegu rými, bygginga-
kostnaði, fjármögnun og verkstöðu. Eldri um-
sóknir óskast endurnýjaðar.
Sérstök umsóknareyðublöð liggja frammi í heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu.
Umsóknir skulu hafa borist sjóðstjórninni fyrir 20.
september n.k., Laugavegi 116, 105 Reykjavík.
6. ágúst 1987
Stjórn
Framkvæmdasjóðs aldraðra
Eiginmaður minn
Hermann Österby
Hrísholti 17, Selfossi
andaðist á Borgarspítalanum aðfaranótt 1. ágúst. Jarðarför-
in ferfram frá Selfosskirkju laugardaginn 8. ágúst kl. 13.30.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna
Ólöf Österby
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 7. ágúst 1987