Þjóðviljinn - 25.08.1987, Síða 1
Lögfrœðingar Sambandsins kannalagalegan^^r rétt SÍS. Deildar meiningar lögfræðinga. Verðurlausn viðskipta-Jóns sú að
vísamálinu tildómstóla? Þýðiróbreyttástandíbankamálum Hugmyndum aðBúnaðarbankinn kaupi Útvegsbankann
Sambandið íhugar að fara í mál
við ríkið ef gengið verður
andvígt því að efnt verði til slíks
útboðs.
Ríkisstjórnin kemur saman til
fundar kl. 10 nú árdegis en ekki
er búist við að máiið verði leitt til
lykta á þeim fundi. Þá kemur
stjórn Sambandsins saman til
fundar í dag. _Sýf
framhjá tilboði þess í hlutabréf
rfldssjóðs í Útvegsbankanum.
Þeir óttast nú að Jón Sigurðsson
renni á rassinn og gangi ekki að.
tilboði þeirra.
Undanfarna daga hafa lög-
fræðingar Sambandsins kannað
lagalegan rétt SÍS í þessu máli og
hallast að þvi' að með því að
ganga framhjá kaupum Sam-
bandsins á bréfunum brjóti við-
skiptaráðherra ekki bara óskráðj
siðferðileg lög viðskiptalífsins!
heldur einnig skráð lög. Að
þeirra mati er Sambandið því lög-
legur eigandi að hlutabréfunum
og því ekki hægt að selja öðrum
aðila þau.
Lögfræðinga greinir vissulega
á um þetta atriði og er mögulegt
að Jón Sigurðsson eygi þar leið út
úr ógöngunum. Að hann grípi til
þess kosts að vísa málinu til dóm-
stóla til að fá úr því skorið hvort
Sambandið sé löglegur eigandi að
Útvegsbankanum. Slíkt myndi
taka langan tíma í kerfinu og þýð-
ir í raun óbreytt ástand í banka-
málum þjóðarinnar næstu árin.
Jón Sigurðsson mun einnig
hafa velt þeirri hugmynd fyrir sér
að selja hvorugum aðilanum
bankann, en láta þess í stað Bún-
aðarbankann kaupa hlutabréfin
og láta síðan á það reyna hvort
Alþingi væri tilbúið að breyta
Búnaðarbankanum í hlutafélag.
Sú hugmynd mun þó hafa fengið
lítinn hljómgrunn.
„Jón er að koma með allskonar
hugmyndir, enda leitar hann með
logandi ljósi að útgönguleið,"
sagði áhrifamaður í Alþýðu-
flokknum. „t>að kæmi mér því
ekki á óvart að bankinn yrði ekki
seldur í þessari umferð.“
Þá virðist hugmyndin um að
nota Búnaðarbankann sem
skiptimynt úr sögunni þar sem
ekki er talinn meirihluti fyrir því
á Alþingi.
Ein af hugmyndum Jóns er að
efna til lokaðs útboðs en sú hug-
mynd stenst vart lagalega, sé
tekið mið af lögum Matthíasar
Bjamasonar, fyrrverandi við-
skiptaráðherra, um stofnun
.hlutafélags um Útvegsbankann.
Samkvæmt þeim lögum var
hlutur ríkissjóðs til sölu þeim sem
áhuga höfðu á að eignast þau.
Einnig er ljóst að Sambandið er
Orðsending: „Vemdum græna svæðið - stoppum fyrirhugaðar byggingar á Steinar og Asgeir: Látum því ekki ósvarað að það eigi að taka útivistarsvæðið
flötinni" stendur málað skýrum stöfum í grænu á bílskúrana við Safamýri. af hverfinu. Mynd E.ÓI.
Vígreifir mótmælendur: Elín, Sigurgeir, Eiríkur, Sigurlaug, Brjánn, Jóna, Bjarni
íbúar við Safamýri
Andóf gegn byggingarafoimum
Mótmœli við ákvörðun meirihluta borgarráðs að leyfa byggingu milli Safamýrar
og Miklubrautar. Mótmœli á bílskúrsvegg og undirskriftalistar. íbúar við
Safamýri: Kom okkur í opna skjöldu að ráðgert væri að byggja á útivistarsvœði.
Aukin umferð skapar hœttufyrir börn oggangandi
Við sáum það í blöðunum að
það væri búið að úthluta
græna svæðinu á milli Safamýr-
ar, Miklubrautar og Háaleitis-
brautar undir nýbyggingu fyrir
Iðnaðarbankann. Meirihluti
borgarráðs gerði þetta án þess að
samráð væri við okkur haft og því
höfum við gripið til þess ráðs að
vekja athygii á málinu með þess-
um hætti, sögðu nokkrir íbúar
við Safamýrina, en i mótmæla-
skyni hafa þeir málað mótmæli á
bflskúrsvegg, sem veit út að lóð-
inni.
Hátt í hundrað íbúar við Safa-
mýri og í nærliggjandi götum hafa
skrifað undir áskorun til borgarr-
áðs, þar sem þess er farið á leit við
ráðið að það endurskoði ákvörð-
un um fyrirhugaða byggingu á
lóðinni og hafa fæstir skorast
undan að skrifa undir. ,
- Við höfum mikið dálæti á
þessu græna svæði og það væri
mikil synd ef það yrði gert að
byggingarlóð. Bygging á þessu
svæði myndi óhjákvæmilega
auka mjög á umferðarþunga og
auka slysahættu fyrir börnin, en
við Safamýrina eru tvö barnahei-
mili, skóli og íþróttasvæði, sögðu
íbúar við Safamýrina.
í undirskriftaskjali íbúanna
segir að með byggingu á lóðinni
yrði komið í veg fyrir að það ný-
ttist sem útivistarsvæði fyrir íbúa
nærliggjandi gatna eins og ráð var
fyrir gert í upphafi.
-rk
r Hafnarfjörður
Atta ára landshomaflakkarí
Það kemur kona að taka við mér og hún borgar
Atta ára pjakkur úr Hafnar-
firði hefur gert víðreist upp á
eigin spýtur i sumar. Hann hefur
komist allra sinna ferða á einni
setningu: „Það kemur kona að
taka við mér og hún borgar.“
Þannig ferðaðist drengur þessi
m.a. frá Hafnarfirði til Vest-
mannaeyja, fyrst með strætó til
Reykjavíkur; frá Umferðar-
miðstöðinni til Þorlákshafnar og
þaðan með Herjólfi til Eyja.
Alltaf var viðkvæðið þegar hann
var rukkaður um fargjald: „Það
kemur kona að taka við mér og
hún borgar.“
Þegar til Eyja var komið vand-
aðist hinsvegar málið því á flug-
vellinum var sú greiðsla ekki
tekin gild, þegar stráksi ætlaði
um borð í flugvélina til Reykja-
víkur og sagði hann þá alla sólar-
söguna.
Að sögn lögreglunnar í
Vestmannaeyjum var haft sam-
band við lögregluna í Hafnarfirði
og kom þá upp úr dúrnum að
þetta er ekki í fyrsta skipti sem
drengurinn leggur land undir fót
upp á eigin spýtur.
„Það er rétt, það er piltur
hérna í Hafnarfirði sem hefur far-
ið í ýmsar svona ferðir. Það er
einhver flakkari í piltinum,“
sagði lögreglan í Hafnarfirði.
Mun pilturinn m.a. hafa skroppið
austur fyrir fjall, til Hveragerðis,
til Keflavíkur og einnig til Akur-
eyrar. Hér er því um
sannkallaðan landshornaflakk-
ara að ræða.
-Sáf
BÚ’87
50 þúsund
Landbúnaðarsýningunni, sem
hófst í Víðidalnum þann 14.
þ.m., lauk s.l. sunnudagskvöld.
Hún var stærst og fjölbreyttust
þeirra landbúnaðarsýninga, sem
haldnar hafa verið hérlendis til
þessa.
Aðsókn að sýningunni var góð,
á að giska 50-55 þúsund manns,
en nákvæm tala lá ekki fyrir í gær.
Ekki varð annars vart en að
almenn ánægja ríki með sýning-
una, jafnt meðal þeirra, sem að
henni stóðu og hennar nutu. Má
þá ekki segja að tilganginum sé