Þjóðviljinn - 25.08.1987, Side 2
FRÉTTIR
Kringluumferð
—SPURNINGIN—i
Hvað telurðu að Akur-
eyringar eigi að gefa sjátf-
um sér í afmælisgjöf á 125
ára afmælinu?
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir
húsmóðir:
Aö koma upp nýrri sundlaug sem
fyrst. Ennfremur að hlúa vel að
æskulýð bæjarins því í honum býr
okkar framtíð.
Leifur Eiríksson
bókbindari:
Áframhaldandi góðæri og frekari
uppbyggingu atvinnulífsins í bænum.
Einnig óska ég bænum að bæjarbúar
haldi áfram að ganga vel um hann.
Svanhildur Jónasdóttir
húsmóðir:
Ég held að þeir ættu að gefa sjálf-
um sér nýtt svæði handa unglingun-
um til að skemmta sér og nýjan rúnt.
Einnig að atvinnulífið í bænum megi
halda áfram að blómstra.
gullsmiður:
Öflugt atvinnulíf er besta afmælis-
gjöfin sem hægt er að hugsa sér.
Ennfremur að víkka sjóndeildarhring
sinn og auka fjölbreytni í ferða-
mannaþjónustu og fjölga bæjarbú-
um, sem er forsenda öflugs og sterks
bæjarfélags.
Sólveig Guðmundsdóttir
afgreiðslustúlka:
Jafngott atvinnulíf og verið hefur. Og
halda áfram að fegra umhverfið
þannig að Akureyri haldi áfram að
vera fegursti bærínn á landinu.
Tryggjum öryggi bama
Guðrún Eyjólfsdóttirformaður íbúasamtaka Nýja miðbæjarins: Leggjum áherslu á örugga
gönguleið ískólann ogsem minnsta umferð um íbúðahlutann í hverfinu
Við leggjum áherslu á örugga
gönguleið í skólann áður en
hann byrjar í haust. Þá viljum við
sem minnsta umferð um íbúðar-
hluta hverfísins og að henni verði
sem mest beint út á Miklubraut og
Kringiumýrarbraut, sagði Guð-
rún Eyjólfsdóttir formaður íbúa-
samtaka Nýja miðbæjarins, en
umferð um hverfið hefur verið
mjög í brennidepli eftir að nýja
verslanasamstæðan var opnuð í
Kringlunni.
„Mikil umferð var í sjálfu sér
séð fyrir. Við sem þarna búum
gerðum okkur grein fyrir þvf. En
þó að við flytjum í hverfi þar sem
umferðin er mikil þá breytir það
ekki því að íbúarnir krefjast ör-
yggis á gönguleiðum rétt eins og
annars staðar. Þá viljum við líka
að sá metnaður sé fyrir hendi í
umferðarskipulagningunni að
íbúðabyggðin njóti sín vel við
hliðina á versluninni,” sagði
Guðrún.
Fyrirhuguð gönguleið í
Hvassaleitisskólann liggur yfir
Listabraut. Að sögn Guðrúnar
hafa íbúarnir orð borgaryfirvalda
fyrir því að þar verði gangbraut-
arvörður og jafnvel gönguljós. Þá
sagði Guðrún að hún vonaðist til
að umferðin til Verslunarskólans
og nýja hótelsins sem reist verður
fari ekki inn í íbúðarhluta hverfis-
ins.
Aðspurð um umferðarþung-
ann sagði Guðrún að hann væri
nokkuð mismunandi eftir stöð-
um. Sjálf byggi hún við Neðsta-
leitið og yrði ekki svo mjög vör
við hann. „Þeir sem búa við
Listabraut og Kringlu hafa sjálf-
sagt aðra sögu að segja.
Fólk veit að það er að fara inn í
blandað hverfi og að vonum eru
ýmis sjónarmið í gangi,” sagði
Guðrún. „Eldra fólkið er ánægt
með að vera nálægt verslunar-
miðstöðinni og barnafólkið vill
ekki þurfa að fara langan veg
heim til sín. Umferðin er mikil
núna eftir að Kringlan var opnuð
en á væntanlega eftir að verða
eitthvað minni.”
íbúasamtök Nýja miðbæjarins
voru stofnuð í vor, en vegna
sumarleyfa hefur stjórnin ekki
komið saman til fundar í sex vik-
ur. Úr því verður bætt í kvöld og
verður sá fundur jafnframt fyrsti
stjórnarfundurinn síðan Kri"''ý^s
var opnuð.
Þær Díana Rafnsdóttir, 9 ára, Thelma Gunnarsdóttir, 10 ára og Björk Rafnsdóttir, 11 ára, ákváðu að leggja sitt af mörkum
til að styðja samtökin Vímulausa æsku. Þær héldu tombólu í Karfavogi sl. föstudag og tokst þeim að safna 600 krónum.
Hlutunum sem voru til sölu á tombólunni söfnuðu stúlkurnar í nágrenninu. Þær báðu Þjóðviljann að koma söfnunarpen-
ingunum til réttra aðila og urðum við góðfúslega við því. Mynd E.ÓI.
BYKO
Slegist um spóninn
BYKO hefurfest kaup á afkastamikillispónapressu. Pétur Andrésson: Spörum
okkur akstur á haugana og verðum okkur úti um söluvöru. Hœnsnabœndur og
hestamenn missa spón úr aski sínum
Hugmyndin er að spara okkur
akstur með spæni á haugana
og að auki verðum við okkur úti
um söluvöru á þennan hátt, sagði
Pétur Andrésson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri í timbursölu hjá
BYKO hf., en fyrirtækið keypti
afkastamikla spónapressu síð-
astliðinn vetur. I henni er spónn-
inn pressaður í drumba sem síðan
eru seldir til arineldanotkunar.
Þetta framtak BYKOmanna er
nýlegt dæmi um fullnýtingu í tré-
iðnaðinum hér á landi, en oft er
rætt um að fullnýta eigi hráefni,
en minna talað um það hráefni
sem þegar er vel nýtt.
Drumbarnir eru settir í
plastpoka og seldir á bensín-
stöðvum. Að sögn Péturs er
spónninn svo harðpressaður að
hann er lengi að brenna og þvf
góður á eldinn. Pokarnir eru
álíka stórir og áburðarpokar, en
að vonum allmiklu léttari.
„Hænsnabændur og hesta-
menn hafa fengið spæni hjá okk-
ur og fá enn, en það er ekki
ákveðið hvert framhaidið verður
á því,” sagði Pétur. „.Það er viss
þörf fyrir svona spæni, en á móti
kemur að það er tafsamt fyrir
okkur að losna við hann.”
Umtalsverðar fjárhæðir spar-
ast sem áður fóru í akstur með
spæninn á haugana. Hins vegar
hefur spónapressan ekki nýst sem
skyldi enn sem komið er þar sem
þeir sem áður nýttu spóninn að
hluta, svína-, kjúklinga- og hesta-
bændur, vilja nú borga það sem
upp er sett, en áður greiddu þeir
aðeins fyrir akstur.
HS
KRON
Kaupstaður
færist
í aukana
Verið er nú að koma fyrir stór-
glæsilegri sérvöruverslun á ann-
arri hæð Kaupstaðar. Mun þar
kenna margra grasa þegar allt
hefur verið „gangsett”.
Meðal þess sem þarna verður á
boðstólum eru heimilistæki,
sportvörur, hljómplötur og
hljómtæki, snyrtivörur, bækur,
ritföng, leikföng og svo alls konar
fatnaður á yngri sem eldri.
Mjög verður vandað til þessara
verslunardeilda. Innréttingar af
austurrískri gerð og allt í senn:
glæsilegar, smekklegar og hent-
ugar.
A þriðju hæð byggingarinnar
verða síðan skrifstofur KRON.
-mhg
Vinnuvernd
Þingað um
vinnuslys
Samnorrænt þing um vinnu-
umhverfismál hefst í Reykjavík í
dag og munu um 250 manns sitja
þingið. Það er nú haldið hér á
landi í annað sinn; hið fyrra var
árið 1982.
Fjölmörg mál verða reifuð á
þinginu og má nefna að nú verður
fjallað um vinnuslys, en áður
hafa þau ekki fengið sérstaka um-
fjöllum á þessum þingum. Þá má
nefna iðjufræði, faraldsfræði-
rannsóknir og atvinnugreinar-
annsóknir.
Um 180 erlendir gestir munu
sitja þingið. Flestir koma frá Sví-
þjóð, en að öðru leyti dreifist
þátttakan nokkuð jafnt á Norð-
urlöndin. Þetta er í annað skipti
sem Færeyingar taka þátt í þess-
um þingum.
HS
2 SÍÐA - ÞJÓÐVtUMMN Þriftjudagur 26. ágúst 1987