Þjóðviljinn - 25.08.1987, Qupperneq 6
FLÓAMARKAÐURINN
Tilsölu
rafmagnsorgel með einu borði.
Gott verð. Upplýsingar í síma
29819.
íbúð
Auglýsingateiknari óskar eftir að
taka á leigu 2ja herb. íbúð í miðbæ
eða vesturbæ. Lofað góðri um-
gengni og skilvísum greiðslum.
Upplýsingar í síma 22887 á kvöldin,
Svala.
Tilsölu
Pentax ME spegilreflex myndavél
með 35 mm linsu. Upplýsingar í
síma 13144.
Skipti
Bókahilla fæst í skiptum fyrir lítið
skrifborð- góður gripur. Upplýsing-
ar í símum 622093 eða 25318.
Bama- og unglingahúsgögn
Til sölu Dominic II skrifborð og kom-
móða með hillum yfir hvoru tveggja.
Upplýsingar í síma 41311.
Fæst gefins
Brún handlaug á fæti fæst gefins.
Upplýsingar í síma 11810 á kvöldin.
Veiðileyfi
Veiðleyfi í Langavatni. Góð að-
staða í húsum og traustir bátar.
Einnig er hægt að fá aðstöðulaus
veiðileyfi. Nánari upplýsingar gefur
Halldór Brynjólfsson í síma 93-
7355.
Gefins
skrifborð sem þarf að mála. Gott
fyrir skólakrakka eða ungling. Sími
25010.
Mjög vandaður
AEG bökunarofn með snúnings-
grilli. Stendur einn sér. Verð kr.
4.500. Sími 25010.
Barnapössun
Er einhver í vesturbæ sem vill taka
að sór að gæta 7 mánaða drengs
frá 1. október? Um er að ræða 4
daga vikunnar, rúmlega hálfan
daginn. Upplýsingar í síma 20772.
Óskast keypt
Barnarimlarúm og barnaleikgrind
óskast. Upplýsingar í síma 20772.
Fornfáleg
Rafha eldavél í góðu lagi fæst gef-
ins. Upplýsingar í síma 621991.
Dagmamma í Smáíbúða-,
Bústaða- eða Fossvogs-
hverfi
Okkur bráðvantar áhugasama og
góða dagmömmu til að sækja 3 ára
stúlku í leikskólann og annast hana
síðari hluta dags. Upplýsingar í
síma 34212 eftir kl. 19.00.
Örugguraðili
óskar eftir að taka á leigu hús í
nokkur ár í Reykjavík eða nágrenni
(raðhús kæmi til greina). Góð um-
gengni og öruggar greiðslur. Tilboð
sendist inn á auglýsingadeild Þjóð-
viljans merkt „Hús nr. 1”.
Hjónarúm til sölu
frá IKEA (Bæsuð fura), 6-7 ára
gamalt, með 2 náttborðum og dýn-
um. Upplýsingar í síma 20045.
Starfsmann Þjóðviljans
vantar litla íbúð. Skilvísum
greiðslum og mjög góðri umgengni
heitið. Upplýsingar í síma 35236.
Nýtt BMX torfæruhjól
til sölu á kr. 9000.- Á sama stað eru
4 vetrardekk á Citroén GS til sölu á
kr. 500.- stk. Upplýsingar í síma
26069, Ragnar.
Takiðeftir!
Til sölu hjónarúm úr antikeik, með
náttborðum, snyrtiborði, skammeli
og útvarpsklukku. Verð ca. kr.
30.000.- Upplýsingar í síma 14973
eftir kl. 19.
Saxófónn
Hef til sölu saxófón, ágætisgrip á
góðu verði. Upplýsingar í síma
75913 eftir kl. 19.
Tjaldvagn óskast
Óskum eftir að kaupa tjaldvagn.
Upplýsingar í síma 99-1365 eftir kl.
18.
Sinclair Spectrum 48K
Interface, stýripinni, tölvublöð og
tölvuleikirtil sölu ódýrt. Upplýsingar
í síma 15734.
Vistunarheimili -
Öskjuhlíðarskóli
Vistunarheimili óskast fyrir unaa pilta utan af
landi, sem verða nemendur í öskjuhlíðarskóla
skólaárið 1987-1988.
Upplýsingar um greiðslur og fyrirkomulag hjá fé-
lagsráðgjafa í síma 689740.
Flensborgarskólinn i Hafnarfirði
Frá Flensborgarskóla
Stundatöflur fyrir haustönn 1987 verða afhentar í
skólanum mánudaginn 31. ágúst og um leið
verða innheimt nemendagjöld kr. 2.000.-.
Nýir nemendur skulu koma í skólann kl. 10.00
árdegis en eldri nemendur kl. 13.00
Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu þriðjudag-
inn 1. september, bæði í dagskólanum og öld-
ungadeild.
Kennarafundur verður í skólanum föstudaginn
28. ágúst kl. 10.
Skólameistari
Starfsfólk
Við óskum eftir starfsfólki til vinnu á dagheimilinu
Steinahlíð sem er 26 barna heimili. Við erum í
fallegu gömlu húsi með stórum garði.
Upplýsingar í síma 33280.
_____________VIÐHORF___________
Vasapeningar og fleira
Óskar L. Arnfinnsson skrifar
Hvernig er því varið, þegar
fólk dvelur langdvölum á vist-
heimilum, eiliheimilum eða öðr-
um svipuðum stofnunum. Fólk,
sem er á örorkubótum eða elli-
launum fær aðeins vasapeninga
þegar það hefir dvalið á slíkum
stöðum í 3 mánuði eða lengur.
Nú eru vasapeningar aðeins kr.
3928 á mánuði. Af þessum aurum
þarf fólk að skaffa sér föt, skó og
fleira. Þeir, sem nota tóbak þurfa
að skaffa sér það af þessum fáu
krónum.
í blöðum hefur verið marg-
tuggið, að tryggingabætur hækk-
uðu um kr. 2000 frá 1. júní. Ekki
verður vart við þá hækkun enn-
þá, svo ég viti. Ekki hafa dagpen-
ingar til elli- eða örorkuþega
hækkað.
Nú er það svo, að kr. 3928 duga
engan veginn fyrir þeim hlutum
sem fólk kemst ekki hjá að veita
sér. Ég gæti talið upp mýmargt,
sem fólk þarfnast nauðsynlega en
verður að vera án.
Ef sæmilega ætti að standa að
þessum málum, þá þyrfti alla
vega að hækka vasapeninga hjá
öryrkjum og ellilífeyrisþegum
uppí 10 þúsund á mánuði.
Manni virðist einsog þeir, sem
„Efsœmilega ætti að
standa að þessum
málum, þá þyrfti alla
vega að hœkka
vasapeninga hjá
öryrkjum og
ellilífeyrisþegum upp
ílö þúsund krónur á
mánuði“
stjórna þessum málum hafi enga
innsýn í hvað fólk þarfnast, ef því
á að líða sæmilega vel.
Mér er því spurn: Hvert fara
þær hækkanir, sem orðið hafa á
örorku- og ellilífeyri? Hækka
daggjöld ávallt um leið og bóta-
greiðslur hækka? Eða hvert fara
þessar hækkanir, fyrst þær fara
ekki í vasa þeirra, sem þeirra eiga
að njóta?
Það er skömm að því, að fólk
sem lokið hefir sínum störfum í
þágu þjóðfélagsins og þeir sem
vegna veikinda geta ekki unnið,
þurfi að lifa af nábjörgum frá öðr-
um. Þurfi jafnvel að hlaupa á
milli stofnana til að fá styrki til að
geta framfleytt sér.
Þjóðfélagið á að sjá sóma sinn í
því að hlúa svo að þessu fólki, að
það geti lifað áhyggjulausu lífi en
þurfi ekki að neita sér um sjálf-
sagða hluti. Þjóðfélagið á að sjá
sóma sinn í því að hlúa vel að
þegnum sínum, ekki síst þeim
sem lokið hafa sínu dagsverki og
skilað þjóðarbúinu ómældum
auði.
Lesendabréf
Andvaipið
Hesturinn og fanginn
AHir, sem komið hafa til Fen-
eyja við Adríahaf og á Markús-
artorgið þar hafa augum litið hin-
ar frægu byggingar umhverfis
torgið.
Að frátaldri Markúsarkirkj-
unni er sú bygging tignarlegust,
sem heitir Hertogahöllin. Nafnið
er að sjálfsögðu komið frá fyrri
tíð, þá hertogar ríkisins sátu þar á
veldisstóli.í þessari byggingu er
sagt að sakamenn hafi verið
dæmdir áður fyrr, og alveg sér-
staklega þeir, sem reyndust
morðingjar, eða aðrir álíka.
Þarna fengu þeirsinn dóm, kann-
ski til aftöku fljótlega eða til fang-
avistar ævilangt. Önnur bygging,
rétt hjá Hertogahöllinni er eða
var fangelsi, rammgert mjög, svo
þaðan var ógerningur að sleppa.
Sjósund ea síki, skildi þessar
byggingar að. Og til þess að þurfa
ekki að fara með þessa dæmdu
menn út undir bert Ioft, sem gat
verið allhættulegt, var farið með
þá eftir loftbrú, sem var á milli
bygginga. Á Ioftbrú þessari voru
gluggar til beggja handa en fang-
Áf ávöxtunum
fréttnæm og þess virði fyrir blað
með einhvern metnað að skoða
það nánar. En Þjóðviljinn er
auðvitað í stökustu vandræðum. í
fyrsta lagi er fréttin ekki runnin
undan rifjum Alþýðubandalags-
ins heldur úr ranni Kvennalist-
ans. f öðru lagi var Þjóðviljinn
búinn að taka afstöðu gegn Hita-
veitunni og hitaveitustjóra í máli
þessu á fyrirframgefnum forsend-
um og vill væntanlega ekkert
hrófla við þeim. Það gæti kannski
ruglað lesendur í því hver sé hin
eina rétta afstaða í málinu.
Eins og ég sagði hér áðan þá
var tilefni þessara skrifa ekki
mjög stórvægilegt en það er samt
lýsandi fyrir bróðurpartinn af
fréttaskrifum Þjóðviljans. Samt
hefur manni skilist að lýðræðis-
kynslóðin sé ráðandi á blaðinu.
En kannski hún skrifi bara lýðr-
æðislega um sjálfa sig?
Reykjavík 21. ágúst
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarfulltrúi Kvennalistans
elsið var gluggalaust. Því var það,
að ef farið var með dæmdan
mann á milli þessara bygginga þá
vissi hann á hverju var von. Sagt
var að fangaverðirnir hafi gert þá
undantekningu á leiðinni yfir
brúna, að lofa föngunum að líta
gegnum glugga á brúnni. Þaðan
sáu þeir himin og haf og hluta af
borginni, ásamt landræmu og
eyju. Þessum heillum horfnu
mönnum var það eitt sameigin-
legt að þeir andvörpuðu þegar
þeir litu ættjörðina í síðasta sinn.
Af því hlaut brú þessi nafni And-
varpabrú.
í dagblaði einu hér í borg gat að
líta fyrir nokkru mynd, tekna
suður á Keflavíkurflugvelli, af
stórri flugvél, með stórar opnar
hleðsludyr og við hlið vélarinnar
var einhverskonar gámur, opinn
að ofan. Yfir hliðar þessa gáms
sást í fjóra hestshausa og þeir rétt
náðu að sjá annað eins upp í him-
ininn. Blaðið sagði þetta úrvals-
gripi, sem væru að fara í keppni
út í lönd. Við þessa myndsýn kom
mér í hug Andvarpabrúin. Hest-
arnir voru, eins og fangarnir, að
horfa í síðasta sinn á það land,
sem ól þá og draga andann í síð-
asta sinn í ómenguðu loftslagi.
Svipbrigðin gáfu það til kynna,
að þeir óttuðust hið ókunna án
þess að vera hræddir. Hvað hugs-
ar hestur, sem stendur í opnum
gámi við flugvélarhlið eða hugsar
hann yfirleitt nokkurn skapaðan
hlut? Getur það verið að fanginn
á brúnni og hesturinn í gámnum
hugsi og skynji það sama? Hver
er kominn til að segja að svo sé
ekki? Vita menn ekki að húsdýr
okkar eru vel skyni gædd og
stundum í meira mæli en maður-
inn og taki jafnvel við þar sem
manninn þrýtur? Fanginn á
brúnni hugsar að þetta fái hann
aldrei að sjá aftur, þau veraldar-
gæði, sem hann naut hér á jörð.
Hann fær aldrei framar dagsbirtu
eða sól að sjá né nokkuð það,
sem minnir hann á lífið, aðeins
ljóstýru, annars myrkur.
Hesturinn í gámnum og fang-
inn á brúnni eru báðir ófrjálsir
þótt með ólíkum hætti sé.
Hestsins bíður ekki myrkur.
Sama sól, sem yljaði honum ung-
um, skín á hann í nýju landi en
bara frá öðru sjónarhorni - og því
fylgja viss óþægindi. Á þessu
augnabliki er það söknuðurinn
eftir heima- og æskuslóðum í
frjálsum fjallasal, með fjöl-
breyttan gróður, víðáttu, hreint
loft og heilnæmt vatn úr íslensk-
um fjallalæk. Örvæntingin í
augum beggja, sem líta ættjörð-
ina í síðasta sinn, er augljós. Og
hún brýst fram í magnþrungnu
andvarpi hjá fanganum en stunu
hjá hestinum. S.
Atvinna erlendis
Hér er upplýsingabókin fyrir þig sem ert að leita að vinnu
erlendis til lengri eða skemmri tíma.
Hún inniheldur upplýsingar um störf í málm- og olíuiðnaði,
við kennslu, garðvinnu, akstur, á hótelum og veitingastöð-
um, au-pair, fararstjórn, ávaxtatínslu í Frakklandi og Banda-
ríkjunum, tískusýninga- og Ijósmyndafyrirsætustörf og störf
á búgörðum, samyrkjubúum eða skemmtiferðaskipum.
Bókinni fylgja umsóknareyðublöð. Þetta er bókin fyrir þá
sem hafa hug á að fá sér starf erlendis. Þú færð upplýsingar
um loftslag, aðbúnað í húsnæði, vinnutíma o.fl. Þar að auki
færðu heimilisföng u.þ.b. 1000 staða og atvinnumiðlana.
Bókin kostar aðeins 98,- s.kr. (póstburðargjald innifalið). 10
daga skilafrestur. Skrifaðu til
CENTRALHUS
Box 48, 142 00 Stockholm
Sími: 08 744 10 50
P.S. Við útvegum ekki vinnu!
6 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN