Þjóðviljinn - 25.08.1987, Side 11
■■■ ÖRFRÉTTIR wmmm
Danska stjórnin
mun halda velli í þingkjörinu 8. sept-
ember ef marka má þrjár skoðana-
kannanir sem birtar voru frændum
vorum um helgina. En sá böggull
fylgir skammrifi að í tveim þeirra kem-
ur fram að minnihlutastjórn Pauls
Schluters þarf að reiða sig á vinsemd
og velvilja Framfaraflokksins vilji hún
lífi halda. Það þykir honum að vonum
ákaflega súrt í broti því það var ein-
mitt Framfaraflokkurinn sem átti þátt í
falli stjórnar hans árið 1983. Sagði
Schluter í gær að mikil hætta væri á
upplausnarástandi í danskri pólitík ef
Framfaraflokkurinn kæmist í lykilað-
stöðu.
Franskir sósíalistar
funduðu stíft í fyrri viku og lögðu línur
fyrir forsetakosningarnar sem haldn-
ar verða í heimalandi þeirra að ári.
Það var aðeins eitt sem á skorti: eng-
inn sósíalisti hefur enn lýst yfir fram-
boði til embættisins. Það hefur verið
samkomulag um það í Sósíalista-
flokknum að bíða og sjá hvað Mitter-
rand hefur í hyggju en hann fer sér að
engu óðslega og hefur gert því skóna
að hugsanlega láti hann ekki uppi um
áform sín fyrr en skömmu fyrir kosn-
ingar. Þetta hefur valdið gremju ým-
issa og í fyrri viku gagnrýndi einn leið-
togaflokksins, Michel Rocard, sósíal-
istastjórnina sálugu opinberlega en
það þykir ekki góð latína á þeim bæ.
Breska
umferðarlöggan
Kevin Keen er maður framúrskarandi
samviskusamur en ekki að sama
skapi vinsæll af kollegum. Hann hef-
ur nefnilega staðið í ströngu að und-
anförnu við að hafa hendur i hári ann-
arra umferðarlögga sem aka hraðar
en lög gera ráð fyrir og hremmt fimm
fram að þessu. Þeir eru að vonum
bæði súrir og gramir. Einn segir: „Nú
er svo komið að enginn fæst til að
vera með honum á vakt og því er
hann oft og iðulega einn í bíl sínum
við störf."
Andrei Sakharof
hrósaði nýverið í hástert sovéskri
leikuppfærslu á smásögu eftir landa
sinn, Mikael heitinn Bulgakof. Það
væri í sjálfu sér ekki í frásögur fær-
andi ef ummælin væru ekki hluti af
viðtali sem birt var í mánaðarritinu
Leikhús. Það mun vera fyrsta viðtal
sovésks blaðs við Sakharof sem birt
er frá því áður en hann og kona hans,
Élena Bonner, voru send í útlegð til
borgarinnar Gorky árið 1980. Hann
kvaðst vera ánægður með þær
breytingar sem nú eiga sér stað í sov-
ésku samfélagi en bætti því við að
enn bæri mikið á „stöðluðum hugs-
unarhætti, lýðskrumi, leti og lygum.“
Fyrrum varamaður
Adolfs Hitlers og fóstbróðir, Rúdolf
Hess, var borinn til grafar í gær. Útför-
in fór fram í kyrrþey og ekki var látið
uppi hvar Hess var grafinn. Ekki hafði
verið reiknað með jarðsetningu hans
fyrr en á morgun en fjölskyldan kvað
hafa óttast að nýnasistar myndu
snúa útförinni uppí allsherjarhátíð
nasimanum til dýrðar og því flýtt at-
höfninni.
I
ERLENDAR FRÉTTIR
Suður-Afríka
Þrír blakkir verkamenn biðu bana um helgina og Ensk-ameríska
námafélagið ákvað aðfresta brottrekstri 16þúsund verkfallsmanna
Snemma í gærmorgun var
verkfallsmaður skotinn til
bana af öryggisvörðum við gull-
námu „Steyns forseta“ nærri
Welkom í Suður-Afríku.
Sjónarvottar sögðu að öryggis-
verðir hefðu gefið verkfalls-
mönnum sem dvelja á náma-
svæðinu fyrirskipun um að halda
til vinnu en þeir virt þau boð að
vettugi. Þá hafi þeir misst stjórn á
skapsmunum sínu og skotið
gúmmíkúlum á hóp námamanna
af stuttu færi með þeim afleiðing-
um að einn beið bana en fjöl-
margir slösuðust. Leiðtogar
Landssambands námamanna
fordæmdu atburðinn harðlega og
kváðu þetta vera grófasta of-
beldisverk í verkfallinu til þessa.
Um helgina kom til átaka verk-
fallsmanna og verkfallsbrjóta við
námu vestan Jóhannesarborgar
með þeim afleiðingum að tveir
létu lífið, einn úr hvorum hópi,
og fjölmargir meiddust.
Forráðamenn Ensk-amerísku
námasamsteypunnar heyktust í
gær á því að segja 16 þúsund
verkfallsmönnum upp störfum.
Báru þeir því við að verkfallið
væri í rénun og þess ekki langt að
bíða að það leystist upp. Því
hefðu þeir ákveðið að framlengja
frest þann sem námamönnunum
var gefinn til að snúa á ný til
Verkfall 300 þúsund blakkra
námamanna hefur nú staðið í
tvær vikur. Þeir krefjast sem
kunnugt er 30 prósent launa-
hækkunar auk áhættuþóknunar
og bætts aðbúnaðar á vinnustað.
11 þúsund verkfallsmenn hafa
verið reknir fyrir að hlýða ekki
kalli námaeigenda um að halda til
vinnu.
Gull og kolaútflutningur er
helsta tekjulind Suður-Afríku og
hefur verkfallið valdið náma-
eigendum miklum fjárskaða. Að
sögn þeirra sem gerst þekkja tap-
ar rfldð um 30 miljónum randa á
dag eða um 400 miljónum ís-
lenskra króna. Það mun vera
gangverðið á einni smálest af
gulli! -ks.
Blakkir námamenn í verkfalli. Ensk-ameríska námafélagið heyktist á að segja 16 þúsund verkfallsmönnum upp störfum í
gær.
Verkfallsmaður skotinn
Sovétríkin
Ókyrrð við Eystrasalt
ÍEistlandi, Lettlandi og Litháen efndu menn til mótmœla á sunnudag enþá
voru liðin 39 árfrá innlimun þessara landa íSovétríkin
Um helgina streymdu mörg
hundruð Eistlendinga, Letta
og Litháenmanna út á götur höf-
Að minnsta kosti tíu verkfalls-
menn slösuðust í gær þegar
800 verkamenn vopnaðir grjóti
og kylfum réðust á 300 kollega
sína í verkfalli í vélaverksmiðju í
borginni Changow í suðvestri.
Atökin stóðu í rúmar tvær
klukkustundir uns árásarmenn-
irnir voru hraktir á flótta. Að
sögn sjónarvotta voru fjölmargir
slagsmálalögreglumenn nær-
staddir þegar atburðurinn átti sér
stað en þeir höfðust ekki að.
Á laugardag beið verkamaður
bana í átökum við lögreglumenn
og fullyrða félagar hans að hann
hafi fengið táragassprengju í
brjóstið en lögregluyfirvöld neita
því. í gær var hann krufinn og
kváðu læknar hann hafa látist af
völdum innvortis blæðinga sem
uðborga landa sinna, Tallin, Rígu
og Vilnius, og minntust þess að 39
ár eru liðin frá því að Stalín og
orsakast hafi af fjórum málmflís-
um í lungum. Þetta rennir stoð-
um undir fullyrðingar félaga
mannsins.
Hinn fallni verður borinn til
grafar á morgun og hafa verka-
lýðsleiðtogar og foringjar stjórn-
arandstöðuflokka lýst því yfir að
efnt verði til funda og mótmæla-
gangna af því tilefni.
Ráðamenn í Suður-Kóreu
komu saman til neyðarfundar í
gær en þeir óttast mjög að vinnu-
deilumar verði kveikja að sams-
konar andófsöldu í borgum
landsins og þeirri er neyddi Chun
forseta til að fallast á lýðræðisum-
bætur. Hafa þeir skipað lögreglu-
mönnum að sitja á strák sínum á
morgun.
-ks.
Hitler sömdu um að ríkin skyldu
innlimuð í Sovétríkin.
Að sögn sovéskra yfirvalda
vom um 250 manns samankomin
í miðborg Vilnius en vestrænir
fréttamenn segja helmingi fleiri
hafa tekið þátt í mótmælaaðgerð-
unum. Segja þeir fólkið hafa
hrópað „frelsi, frelsi" og aðgerð-
irnar hafa staðið yfir í tvær
klukkustundir. Aðgerðirnar í
Tallin og Rígu hafi verið með
svipuðu sniði.
Fólkið var látið óáreitt og segja
yfirvöld að mótmæli þess hafi
beinst að kerfinu en ekki sovésk-
um yfirráðum sem slíkum. Hafi
mótmælendur viljað umbætur og
nýsköpun í stöðnuðu samfélagi.
Þótt mótmæli þessi hafi verið
umborin nú í valdatíð Gorbat-
sjofs má fullvíst telja að slíkt og
þvflíkt sé þyrnir í augum
Kremlverja. f „opinni umræðu"
eru menn hvattir til að segja hug
sinn og þeir gera það en allt í einu
verður orð að aðgerð og menn
fara hópum saman í mótmæla-
göngur.
Svo er að sjá sem þjóðernis-
minnihlutar vítt og breitt um Sov-
étríkin hugsi sér til hreyfings nú
eftir að slakað var á klónni. I höf-
uðborg Kazakhstan, Alma Ata,
kom til uppþota í desember síð-
astliðnum og fyrir skemmstu
efndu Krím-Tatarar til mótmæla í
Moskvu og kröfðust þess að fá að
snúa aftur til fornra heimahaga.
Sovésk blöð hafa ennfremur
greint frá þjóðernisuppþotum í
Mið-Asíulýðveldunum Tadzhik-
istan og Kirgiziu og í Moldavíu
sem liggur að rúmensku landa-
mærunum.
-ks.
Neytendur athugið
Stjórnvöld hafa ákveðið aukna niðurgreiðslu á
framhlutum dilkakjöts í gæðaflokknum Dl. Sam-
kvæmt því lækkar verð þess um kr. 24 kg.
Verðlækkunin gildir til ágústloka.
Framleiðsluráð landbúnaðarins.
Suður-Kórea
Ráðist á verkfalls-
menn
Á morgun verður jarðsunginn verkamaður sem
lögreglumenn vógu á laugardag
Þrlðjudagur 25. ágúst 1987 | ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 15