Þjóðviljinn - 25.08.1987, Blaðsíða 16
Loðnuverð
Mikið ber
í milli
Það er boðaður fundur á morg-
un í Verðlagsráði um loðnuverð-
ið og þá má gera ráð fyrir að það
skýrist hvort reynt verður áfram
að semja um verðið eða málinu
skotið til yfirnefndar Verðlags-
ráðs sem ákveður þá verðið,
sagði Sveinn Finnsson hjá Verð-
lagsráði sjávarútvegsins í gær.
Að sögn Sveins ber mikið í
milli í Verðlagsráði um verð fyrir
loðnu til bræðslu og í mjöl.
Loðnukaupendur hafa boðið um
1200 krónur fyrir tonnið, sem sjó-
menn telja sig ekki geta gengið
að. Á síðustu vertíð var jafnaðar-
verðið um 1900 krónur, en þá var
loðnuverðið frjálst.
Verðlagsráð sjávarútvegsins er
skipað átta mönnum, fjórum
fulltrúum Félags fiskimjölsfram-
leiðenda, tveimur fulltrúum út-
vegsmanna og sitt hvorum full-
trúanum frá Sjómannasamband-
inu og Farmanna- og fiskimanna-
sambandinu.
Þrátt fyrir að enn sé ósamið um
loðnuverð eru tveir loðnubátar
farnir á miðin. - Það er ekkert
óvanalegt að einhverjir haldi á
miðin þó enn sé ósamið um verð.
Menn taka þá því verði sem býðst
meðan ósamið er, sagði Sveinn
Finnsson.
-rk
Hestaverslun
Dágott hestverð
ófeigur frá Grófárgili fór á 250 þús. kr.
að hafa einhverjir getað farið
þokkalega ríðandi heim af
landbúnaðarsýningunni á sunnu-
dagskvöldið. Að minnsta kosti sá
sem hreppti 250 þús. kr. hestinn,
hann Ófeig frá Grófárgili.
Meðal þess fjölmarga sem
fram fór á landbúnaðarsýning-
unni var hestamarkaður.
Tilhögunin var þannig að
hverri deild Félags hrossabænda
var heimilt að senda tvö hross á
markaðinn. Þar voru þau sýnd
nokkrum sinnum og gerð í þau
lokuð tilboð, sem síðan voru opn-
uð í sýningarlok. Voru eigendur
skuldbundnir til að taka einu af
þremur hæstu tilboðunum en alls
voru hrossin 14.
Tilboð komu í öll hrossin en
hæst var boðið í sex vetra gamlan
hest, Ófeig frá Grófárgili í Skaga-
firði, 250 þús. kr. Ekkert tilboð
mun hafa verið undir 100 þús. kr.
Hugmynd félags hrossabænda
er sú að eftirleiðis verði slíkur
markaðu haldinn í Reiðhöllinni
nokkrum sinnum á ári hverju.
-mhg
Valdimar Brynjólfsson heilbrigðisfulltrúi: „Verðum að halda vöku okkar gegn sérhverri mengun sem getur verið hér í
bænum, bæði á landi og í sjó.” Mynd: Ari
Akureyri
Mikið af saurgerlum í Pollinum
Heilbrigðisfulltrúi A kueyrar: Þessar mœlingar okkar í dag eru til samanburðar
við mœlingar sem gerðar voru í Pollinum fyrir einum áratug
Við fyrstu mælingar sem gcrðar
voru nú fyrir skemmstu mæld-
ust hvorki meira né minna en
9200 saur-kóligerlar í sjónum við
Höepfnersbryggjuna hérna í Poll-
inum á Akureyri, segir Valdimar
Brynjólfsson heilbrigðisfulltrúi
Akureyrar f samtali við Þjóðvilj-
ann.
Að sögn Valdimars eru þessar
rannsóknir sem gerðar eru á
mengun í Pollinum samanburð-
arrannsóknir, en á árunum 1970-
1980 voru gerðar umfangsmiklar
rannsóknir á mengun í Pollinum
og kom þá í ljós að mikið af
saurgerlum var að finna í yfir-
borðsvatni í Pollinum, án þess þó
að hafa mikil áhrif á lífríki hans.
Sagði Valdimar að þrátt fyrir
að svona mikið magn hefði fund-
ist í þessari tilteknu mælingu væri
ekki hægt að álykta sem svo að
mengunin hefði stóraukist. En
vitað væri að á þessum slóðum er
að finna útrásarop skolpræsa sem
ekki ná út fyrir stórstraumsfjöru.
Þá ættu menn eftir að meta hugs-
anleg áhrif uppfyllingarinnar sem
gerð var þegar Drottningar-
brautin var byggð en þá var vest-
urströndinni breytt og hún lengd
fram.
„Viðmiðunin í þessum mæling-
um okkar er 100 gerlar í hverjum
100 millilítrum. Og í þessum mæ-
lingum okkar höfum við mælt allt
frá 0-9200 saurgerlum þannig að
við þurfum að halda þessum mæ-
lingum enn frekar áfram til þess
að geta ályktað eitthvað út frá
þeim. En þar er jafnframt ljóst að
við þurfum að halda vel vöku
okkar fyrir allri mengun sem
kann að fyrirfinnast bæði í Pollin-
um sem og annars staðar á Akur-
eyri,” sagði Valdimar Brynjólfs-
son heilbrigðisfulltrúi. grh
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Munið
Hvalfjarðarferðina
sunnudaginn 30. ágúst nk.
Félagar fjölmennið
Skráning á skrifstofu ABR ísíma 17500
NEFNDIN
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
1ÓÐVIUINN
Laugardagur 22. ágúst 1987 183. tölublað 52. árgangur
Mávastandur fyrir utan Hvaleyri.
Erlent verkafólk
Hótel en ekki verbúðir
Hótelhaldarar takafálega íhugmyndir iðnrekenda um að erlent verkafólk gisti hótelin í vetur.
Við erum að leita fyrir okkur
með starfsfólk erlendis frá til
þess að vinna, - okkur vantar fólk
í vinnu, en ekki til að gista, sagði
Konráð Guðmundsson, hótel-
stjóri á Sögu, er hann var inntur
álits á þeim hugmyndum Félags
íslenskra iðnrekenda að unnt
væri að útvega erlendu vinnuafli,
sem iðnrekendur hafa hug á að
flytja inn, húsaskjól í hótelher-
bergjum, sem annars stæðu auð
yfir vetrartímann.
- Ég vonast til þess að nýtingin
verði það góð í vetur að það þurfi
ekki að koma til þess að hótelin
fari að leigja út herbergi fýrir
slikk. Þannig að ég held að það
verði erfiðleikum bundið að fá
hótelherbergi til leigu fyrir erlent
verkafólk. Það væri helst ef gisti-
heimilin og heimagisting yrði
starfrækt í vetur, að hægt væri að
koma þessu fólki fyrir. Annars
hafa iðnrekendur ekki spurst
fyrir um hótelherbergi hjá okkur,
sagði Konráð Guðmundsson.
Konráð sagði að undanfama
vetur hefði verið svo til fullbókað
hjá þeim um helgar, þannig að
hann sæi margvíslega annmarka á
því að teppa hótelherbergi undir
erlent verkafólk.
í svipaðan streng tók
Rögnvaldur Ólafsson, hótelstjóri
á Hótel Borg. - Ég reikna ekki
með því hótelunum sé umhugað
um að gegna einskonar verbúða-
hlutverki. í fljótu bragði finnst
mér það ekki mjög fýsilegur kost-
ur, sagði Rögnvaldur Ólafsson.
- Ég er ekkert svartsýnn á nýt-
inguna í vetur. Flugfélögin verða
með ferðir á sérstökum kjörum
utan af landi til Reykjavíkur,
bæði um helgar og í miðri viku,
þannig að við megum eiga von á
því að það verði svotil fullbókað
hjá okkur um helgar í vetur, sagði
Rögnvaldur Ólafsson. -rk
SKOLAVELTA
LEEWSI
AÐ FARSÆLLI
SKÓLACÖNGU
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.