Þjóðviljinn - 01.09.1987, Blaðsíða 3
____________________ FRETTIR____________________
Dagvistarmál
Byrjað að loka deildum
100 börn send heim vegna lokana deilda. Um 100 stöður lausar. Þjónustan
skorin niður við trog. Bergur Felixson: Vonandi tímabundið ástand.
Vegna manneklu á dagvistun-
arstofnunum borgarinnar
hefur þurft að draga úr starfsem-
inni og það hefur komið til þess að
við höfum neyðst til að loka
deildum vegna þessa, sem von-
andi verður þó aðeins til skamms
tíma, sagði Bergur Felixson, hjá
Dagvist barna í Reykjavík. Um
100 börn hafa verið send heim
vegna lokana deilda og daglegur
verutími annarra barna á dag-
vistarstofnunum hefur verið
skertur.
Útvegsbankinn
Leitað eftir
sáttatilboði
Viðskiptaráðherra
kastar málinufrá sér.
Biður tilboðsgjafa að
reyna að ná sáttum
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra óskaði eftir því á fundi
með tilboðsgjöfum og fulltrúum
starfsfólks og viðskiptamanna Út-
vegsbankans, sem haldinn var í
gær, að þcssir aðilar reyndu að
ná sín í milli samkomulagi um
kaupin og skiptingu hlutaijár
bankans.
Fulltrúar útvegsmanna og
kaupmanna tóku beiðni ráðherra
alls ekki illa, sögðust fagna
dreifðri eignaraðild. Svipað hljóð
var í fulltrúm viðskiptamanna og
starfsmanna bankans að loknum
fundi með ráðherra.
Valur Arnþórsson stjórnarfor-
maður SÍS sagði hins vegar að
staðan væri óbreytt. Það hefði
ekkert verið gefið eftir og það
yrðu engin samtöl um sameigin-
lega eignaraðild nema menn
vildu tala saman.
-Jg-
Afrekssjóður
í skákinni
Skáksambandið hefur nú stofn-
að afrekssjóð til styrktar ung-
um og efnilegum skákmönnum í
hinum harða alþjóðaskóla og
hefst söfnun í hann með skák-
keppni á Lækjartorgi á föstudag-
inn.
Þar teflir Jóhann Hjartarson
klukkufjöltefli við unga meist-
ara, Héðin Steingrímsson heims-
meistara barna, Hannes Hlífar
Stefánsson heimsmeistara
sveina, Þröst Þórhallsson og Da-
víð Ólafsson sem báðir hafa stigið
fyrsta skref að alþjóðlegum
meistaratitli, Guðfríði Lilju
Grétarsdóttur íslandsmeistara
kvenna og við skáksveit Selja-
skóla sem nýlega vann Norður-
landamótið í skólaskák.
Stjarnan og Tomma-hamborg-
arar standa fyrir Lækjartorgs-
skákinni með Skáksambandinu,
og verður ýmis önnur skemmtan
höfð uppi.
Ætlunin er að fyrsti styrkþegi
afrekssjóðsins verði einmitt Jó-
hann Hjartarson sem eftir ára-
mót keppir í áskorendaeinvígi í
Kanada.
- m
Samkvæmt áætlunum Dagvist-
ar barna eru hátt á 100 stöðugildi
ómönnuð á dagvistarstofnunum,
leikskólum og dagheimilum
borgarinnar og hefur vegna þessa
þurft að fresta inntöku nýrra
barna, sem beðið hafa eftir
plássi. Um síðustu áramót voru
voru rúmlega 1000 börn á biðlista
eftir leikskólaplássi og 570 börn
biðu eftir plássi á dagheimilum
borgarinnar.
Sökum manneklunnar hefur
deildum þegar verið lokað á Val-
höll, Foldaborg og Árborg. Þær
upplýsingar fengust hjá Dagvist
barna að bráðlega yrði að loka
deildum á Ægisborg, Hraunborg
og Múlaborg eða að draga veru-
lega úr þjónustunni með öðru
móti, rættist ekki úr með starfs-
fólk. Jafnframt er viðbúið að
skerða verði þjónustuna í Steina-
hlíð sökum mannfæðar.
Bergur Felixson sagði að það
væri árvisst að illa gengi að fá
mannskap á haustin. - Það hefur
sýnt sig að það er alltaf los á fólki
um þetta leyti og fólk að skipta
um vinnu. Starfsfólkið á dagvist-
arstofnununum vinnur mjög
óeigingjarnt starf og leggur sig í
líma við að halda starfseminni á
fullum dampi, sagði Bergur.
Byrjunarlaun fóstra eru nú um
39.000 krónur á mánuði, en ófag-
lært starfsfólk fær heilar 27.000
krónur í laun á mánuði.
-rk
Innri Njarðvík
Stunginn
til bana
Banamaður
úrskurðaður í 90
daga gæsluvarðhald
Um kvöldmatarlcytið síð-
astliðið laugardagskvöld var
ungur Hafnfirðingur, Ingólfur
Ómar Þorsteinsson, stunginn til
bana með flökunarhnífi af félaga
sínum eftir að átök áttu sér stað
milli þeirra, í verbúð Brynjólfs í
Innri Njarðvík. Ingólfur Ómar
var 26 ára gamall, fæddur í des-
ember 1961.
Ódæðismaðurinn var handtek-
inn á staðnum og hefur hann ját-
að á sig verknaðinn. Hann hefur
verið úrskurðaður í 90 daga gæsl-
uvarðhald og til að sæta geðrann-
sókn.
Að sögn Braga Nilssonar,
rannsóknarlögreglustjóra miðar
rannsókn málsins vel.
grh
Dalvík
Stunginn
tvívegis
í brjóstið
Ungur Dalvíkingur var tvívegis
stunginn með hnífi í brjóstið
vinstra megin af portúgölskum
manni um þrítugt, sem hefur ver-
ið búsettur á Dalvík frá ára-
mótum. Atburðurinn átti sér stað
síðastliðið föstudagskvöld eftir
dansleik í Víkurröst.
Dalvíkingurinn var fluttur á
Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri þar sem gert var að meiðslum
hans og er líðan hans eftir atvik-
um, en hann er ekki í lífshættu.
Árásarmaðurinn var handtekinn
og hefur verið úrskurðaður í
gæsluvarðhald í 14 daga.
Málið er til rannsóknar hjá
Rannsóknarlögreglunni á Akur-
eyri.
grh
Reykjavík
Skorinn
á háls
ára gamall Reykvíkingur
varð fyrir þeirri óskemmti-
legu reynslu síðastliðið föstudags-
kvöld að ráðist var aftan að hon-
um í miðborg Reykjavíkur og
hann skorinn tvívegis með hníf
eða rakvélarblaði á hálsinn. Fékk
hann tvo 10 cm djúpa skurði á
hálsinn en hálsæðarnar sluppu.
Málið er til rannsóknar hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Síðast þegar vitað var hafði ekki
hafst uppá árásarmanninum og
engin vitni komið fram um at-
burðinn.
Að sögn Gísla Björnssonar,
hjá Rannsóknarlögreglunni í
Reykjavík hefur ekki borið meira
á því en venjulega að menn hafi
undir höndum hnífa eða önnur
eggvopn þegar lögreglan hefur
þurft að hafa afskipti af fólki.
grh
Skúli Ólafs fulltrúi starfsmanna Útvegsbankans og Garðar Garðarson hrl. fulltrúi viðskiptamanna koma af fundi ráðherra
í gær. Ekkert tilboð ennþá en áhugi fyrir viðræðum. Mynd-Sig.
Kvosarskipulag
Nýr „köttur“ í salt
Skipulagsstjórn: Engarfrekari byggingarframkvœmdirfyrr
en deiliskipulag Kvosarinnar liggurfyrir
Eg get ekki svarað því á þessari
stundu hvort hér sé um tilmæli
að ræða, eða hvort Skipulags-
stjórn ríkisins hefur vald til að
fyrirskipa okkur þetta, sagði
Hilmar Guðlaugsson, formaður
byggingarnefndar, er Þjóðviljinn
bar undir hann þá samþykkt
Skipulagsstjórnar að um frekari
byggingarframkvæmdir verði
ckki að ræða á lóðinni nr. 8 við
Aðalstræti þar sem Fjalaköttur-
inn stóð, þar til deiliskipulag
Kvosarinnar hcfur verið staðfest.
„Ég sé ekki að gengið verði frá
neinu þarna fyrr en skipulagið
liggur fyrir,“ sagði Þorvaldur S.
Þorvaldsson af sama tilefni.
Engin samþykkt liggur fyrir
um byggingar á þessum stað, en
byggingarnefnd Reykjavíkur
hefur veitt svokallað graftarleyfi
að uppfylltum ákveðnum skilyrð-
um. Skilyrði þess beinast fyrst og
fremst að því að sögn Hilmars að
aðkeyrsla verði greið að húsun-
um við Bröttugötu.
Samþykkt Skipulagsstjórnar
var gerð á fundi 19. ágúst. A
fundinum var fjallað um þá
beiðni Reykjavíkurborgar að
framlengja frest til 1. desember
til að skila inn umsögnum um at-
hugasemdir sem bárust vegna
deiliskipulagstillögu að Kvos-
inni. Skipulagsstjórnin sam-
þykkti að veita umbeðinn frest,
„enda verði ekki um frekari
byggingarframkvæmdir að ræða
á svæðinu, þar til deiliskipulag
Kvosarinnar hefur verið sam-
þykkt.“
HS
Þriðjudagur 1. september 1987IÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3