Þjóðviljinn - 01.09.1987, Blaðsíða 11
ÖRFRÉTTIR
Frans Jósef Strauss
hinn mjög svo hægri sinnaði for-
sætisráðherra Bæjaralands, gaf í
gær út yfirlýsingu þar sem veist
er harkalega að Helmut Kohl
kanslara fyrir að bjóðast til að
fórna 72 Pershing-1A flaugum
Vestur-Þjóðverja í þágu afvoþn-
unarsamnings risaveldanna.
Hann sagði kanslarann hafa gert
sig sekan um brot á sáttmála
ríkisstjórnarflokkanna þriggja
með framferði sínu og tefla auk
þess öryggi landsins í hættu með
einhliða afvopnun.
Sjö ár
voru í gær liðin frá því frjálsu
verkalýðssamtökin Samstaða
voru stofnuð í Póllandi og var af
því tilefni efnt til fundar í miðborg
Wroclaw í trássi við bann
stjórnvalda. 5 þúsund manns
voru þar samankomin en ekki
leið á löngu áður en lögreglu-
sveitir hleyptu upp samkomunni.
Á sama tíma lagði leiðtogi sam-
takanna, Lech Walesa, blóm-
sveig að minnisvarða verka-
manna sem féllu fyrir kúlum her-
manna í Gdansk áriö 1970. Þar
bólaði ekki á lögregluþjónum og
viðstaddir héldu hver til síns
heima eftir að hafa sungið pólska
þjóðsönginn.
Landsfundur
breska Jafnaðarmannaflokksins
var haldinn um helgina og í gær
og þar tóku fulltrúar endanlega
ákvörðun um að leggja hann nið-
ur og blanda geði við frjálslynda í
nýjum flokki. Andstæðingar
Sameiningar, með David Owen í
broddi fylkingar, gerðu úrslitatil-
raun til að hnekkja þeirri ákvörð-
un félaga að binda enda á sex
ára tilvist flokksins og lögðu fram
tillögu þar að lútandi. Eftir heitar
umræður sem einkenndust af
köpuryrðum og hnútukasti var
gengið til atkvæða. Tillagan var
kolfelld, 228 voru á móti en 151
með.
Töffarinn
Lee Marvin er látinn, 63 ára gam-
all. Marvin fór gjarna með hlut-
verk harðjaxla í hasarmyndum
Hollywood og margir muna eftir
honum í filmum á borð við „Tólf
ruddar" og „Helvíti á Kyrrahafi."
Það var hinsvegar ekki á allra vit-
orði að hann var mjög fjölhæfur
listamaður. Honum voru veitt
Óskarsverðlaun árið 1965 fyrir
hlutverk fyllibyttu og mislukkaðs
byssubófa í gamanmyndinni
„Cat Ballou" og sá er þetta skrifar
minnist frábærrar frammistöðu
hans í hádramatísku leikverki
eftir Eugene 0‘Neill, „The lcem-
an Cometh", sem sýnt var í ís-
lenska sjónvarpinu fyrir nokkrum
árum.
ERLENDAR FRÉTTIR
Persaflói
Viðsjár
aukast
s
Iraskar þotur gerðu ígœr enn eina
loftárás á íranskt olíuflutningaskip og
íranskir byltingarverðir á hraðbátum
réðust á vöruflutningafley frá Kúwait
Spenna færist nú í vöxt á Pers- eyjum sem olíuflutningaskip.
aflóa eftir að írakar hófu að íranir sögðust strax aetla að
nýju árásir á olíuflutningaskip og gjalda líku líkt. Yfirmaður ír-
olíuvinnslustöðvar írana. Þar anska flotans kvaðst ætla að gefa
með lauk þöglu samkomulagi mönnum sínum fyrirskipun um
stríðsaðila um að gera ekki árásir að leggja til atlögu við nökkva
á skotmörk í hafi og er nú mikil óvina sinna. Hann lét ekki standa
hætta á því að allt fari úr böndum við orðin tóm því skömmu fyrir
á flóanum. dögun í gærmorgun gerðu bylt-
Það var á laugardag að ráða- ingarverðir um borð í hraðbátum
menn í Bagdað sögðust ekki hafa árás á gámaskipið Jebel Ali, sem
þolinmæði til að bíða lengur svars siglir undir fána Kuwaits, banda-
kolleganna í Teheran við tilmæl- lagsríkis íraka, skammt undan
um Öryggisráðs Sameinuðu ströndum Sameinuðu arabísku
þjóðanna um að friðmælast. furstadæmanna.
Hófu írakar þvínæst loftárásir að Árásarbátarnir voru þrír og
nýju á skotmörk undan strönd sigldu hringinn í kringum gáma-
írans, jafnt olíuvinnslustöðvar á dallinn meðan vélbyssuskotum
Það voru þrír hraðbátar einsog þessi sem íranskir byltingarverðir notuðu til
árásar á gámaskip í gærmorgun.
og smásprengjum var látið rigna
yfir hann. Ekki sökk fleyið en 35
gámar skemmdust.
Fáeinum klukkustundum síðar
hófu íraskar þotur sig til flugs og
var ferðinni heitið til Larak eyju
þar sem Persar vinna olíu. í loft-
árásinni skemmdist risaolíuflutn-
ingaskipið Shoush nokkuð en
ekki er vitað hvort menn féllu.
Stjórnmálaskýrendur eru á
einu máli um að bráðlæti íraka
hafi vakið lítinn fögnuð banda-
manna þeirra á Persaflóasvæð-
inu. Kúwaitmenn og Saudiarabar
eru sérlega uggandi um að nú hafi
verið loku fyrir það skotið að
samningar takist um frið. Þeir
óttast um afdrif skipa sinna á
flóanum en meira en 330 flutn-
ingaskip hafa orðið fyrir árás á
Persaflóa frá því „skipastríðið“
hófst árið 1981.
-ks.
Suður-Kórea
Ný og betri stjómskipunarlög
Nefnd skipuð fulltrúum tveggja helstu stjórnmálaflokka landsins hef-
ur sett saman drög að nýrri stjórnarskrá
Fulltrúar tveggja helstu
stjórnmálaflokka Suður-
Kóreu, Lýðræðislegs réttlætis-
flokks valdhafa og Sameinaðs
lýðræðisflokks stjórnarandstæð-
inga, hafa sett saman drög að
nýrri stjórnarskrá fyrir landið.
Samning plaggsins þykir hafa
gengið vonum framar þar eð
leysa þurfti að minnsta kosti
eitthundrað alvarleg ágreinings-
mál.
Leiðtogar beggja flokkanna
hrósuðu höfundum í hástert í gær
en þeim hafði verið gert að ljúka
sínu verki í snarheitum.
Drögin verða nú rædd á þingi
landsins og þar gengið frá samn-
ingu stjórnarskrár sem síðan
verður lögð í dóm kjósenda í okt-
óber næstkomandi.
í plagginu er gert ráð fyrir að
teknar verði upp beinar forseta-
kosningar að nýju en þær voru
afnumdar árið 1971 af þáverandi
forseta, Park Chun-Hee, sem ótt-
aðist að bíða ósigur fyrir stjórnar-
andstæðingnum Kim Dae-Jung.
Þetta er staðfesting á ákvörðun
sem Chun Doo Hwan forseti varð
nauðugur viljugur að taka í júlí-
byrjun eftir gífurlegar óeirðir í
Suður-Kóreu. „Kjörtímabil“
hans rennur út í febrúar á næsta
Umhverfisverndarmál og at-
vinnuleysi valda frændum
vorum Dönum mun meiri áhyggj-
um en skuldir ríkisins ef marka
má skoðanakönnun sem gerð var
heyrinkunn í gær.
502 Danir voru spurðir að því
hvaða vanda þeir teldu brýnast
að leysa í þjóðfélaginu og hafa
ætti forgang fram yfir aðra slíka.
ári en í desember fer fram for-
setakjör.
í drögunum er einnig gert ráð
fyrir að dregið verði úr valdi fors-
etans. Til dæmis verður honum
óheimilt að rjúfa þing. Hinsvegar
munu áhrif löggjafarsamkund-
unnar aukast að sama skapi.
26 af hundraði svöruðu því til að
það væru mengunarmálin. 21 af
hundraði kváðu atvinnuleysið
helsta vandamálið en 20 prósent
spurðra nefndu hinar miklu er-
lendu skuldir ríkisins.
Fyrr á þessu ári kvaðst minni-
hlutastjórn Pauls Schluters ætla
að ráðstafa 13,5 miljörðum dan-
skra króna til mengunarvarna í
Hvað varðar almenn mannrétt-
indi kennir ýmissa grasa í plagg-
inu. Til að mynda verður lagt
blátt bann við því að lögreglan
handtaki menn og haldi þeim
langtímum saman í gæsluvarð-
haldi án þess að mál þeirra komi
til kasta dómstóla. -ks.
lofti, láði og legi. Ennfremur er
gert ráð fyrir því í fjárlagadrögum
fyrir árið 1988 að greiða stóran
hluta skulda ríkisins en þær eru
nú um 7 þúsund krónur á mann í
Danaveldi. Hinsvegar er útlitið
dökkt hvað varðar atvinnuleysið
því samkvæmt áætlun stjórnar-
innar mun það aukast úr átta í tíu
prósent á næsta ári. -ks.
Filippseyjar
Loft er lævi blandið
Skœruliðar kommúnista hyggjast notfœra sér óeiningu hersins og sá orðrómur er á kreiki að leiðtogi
uppreisnarmanna hafisettá laggirnar „bráðabirgðastjórnu
Leiðtogar skæruherja komm-
únista á Filippseyjum eru í sjö-
unda himni vegna upp-
reisnartilraunar hluta hers lands-
ins á föstudag og þess djúpstæða
ágreinings sem ríkir í röðum
hans. Hafa þeir látið í veðri vaka
að þeir muni notfæra sér til hins
ýtrasta klofninginn í herbúðum
óvinarins og stórauka umsvif sín.
Hópur vopnaðra manna réðist
á eina helstu eldsneytisbirgða-
stöð Manilu aðfararnótt sunnu-
dags og sprengdi hana í loft upp.
Þetta gerðist aðeins örfáum
klukkustundum eftir að drottin-
hollar hersveitir höfðu brotið á
bak aftur leifar uppreisnarherja í
höfuðborginni. Fullvíst er talið
að hér hafi kommúnistar verið að
verki.
Uppreisnin á föstudag sýnir
svo ekki verður um villst að her-
inn, sem skipaður er 150 þúsund
manns, er klofinn í afstöðu sinni
til stjórnar Aquinos forseta.
Þetta var í fimmta sinn á átján
mánuðum að dátar reyna að
steypa henni af stóli en aldrei fyrr
hafa jafnmargir fallið í valinn. Áð
minnsta kosti 40 menn létu lífið
og 270 slösuðust í bardögunum í
Manilu á föstudag sem kváðu
ekki eiga sinn líka í borginni frá
því Bandaríkjamenn og Japanir
bárust á banaspjót í síðari
heimsstyrjöid. Þorri hinna föllnu
voru almennir borgarar sem voru
svo ógæfusamir að lenda í eldlínu
stríðandi fylkinga.
Frá fjallaborginni Baguio flaug
í gær sú fiskisaga að forsprakki
uppreisnarmanna, Gregorio
„Gringo“ Honasan höfuðsmað-
ur, hefði sett á laggirnar „bráða-
birgðastjórn“ einhversstaðar í
nágrenninu. Honasan þessi
komst undan í þyrlu á föstudag
þegar stjórnarhermenn réðust
inní Aguinaldo búðirnar þar sem
uppreisnarmenn höfðu hreiðrað
um sig.
Sá fótur var fyrir fréttinni að í
Baguio hafði verið dreift plaggi
þar sem því er lýst yfir að „bráða-
birgðastjórnin“ fari með völd á
Filippseyjum uns nýjar forseta-
kosningar hafa farið fram.
í því er Aquino forseti sökuð
um „landráð“ sem séu í því fólgin
að hafa horn í síðu hersins og
sýna skæruliðum kommúnista og
múslima alltof mikla linkind.
Stjórnarandstöðuforinginn
Juan Ponce Enrile er mikill vinur
Honasans uppreisnarmanns.
Hann sagði í fyrradag að Aquino
gæti sjálfri sér um kennt að kom
til uppreisnarinnar á föstudag.
Stjórnin hefði æ ofaní æ þver-
skallast við að verða við til-
mælum herforingja um að endur-
nýja vígbúnað og bæta kjör ó-
breyttra dáta. En hann tók það
skýrt fram að hann hefði enga
hlutdeild átt í valdaránstil-
rauninni og að hann væri hlutlaus
í átökum stríðandi fylkinga.
Talsmaður stjórnarhersins
sagði í gær að vegartálmum hefði
verið komið upp á nokkrum stöð-
um utan höfuðborgarinnar til að
tryggja að óboðnir dátar kæmust
ekki inní hana. Hann kvað um
800 uppreisnarmenn vera í haldi
um borð í tveim herskipum sem
lægju við akkeri á Manilaflóa.
Hvarvetna f landinu væri nú verið
að skipa nýja foringja í stöður
þeirra sem þátt hefðu tekið í upp-
reisninni.
-ks.
Þriðjudagur 1. september 1987 pjÓÐVILJINN - SÍÐA 15