Þjóðviljinn - 19.09.1987, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 19.09.1987, Blaðsíða 2
FRÉTTIR —SPURNINGIN- Ertu ánægð(ur) með þá ákvörðun meirihluta borgarstjórnar að heim- ila lengri opnunartíma verslana í Reykjavík? (Spurl meðal afgreiðslufólks í Glæsibæ) Anna Pálmarsdóttir: Nei, mér finnst það ekki sniðugt. Vinnutíminn er nógu langur eins og er. Sigríður Sigurbjörnsdóttir: Nei, ég er náttúrlega á móti þessu, en við fáum engu að ráða. Sonja Kristinsdóttir: Mér finnst þetta hlægilegt. Það er bara verið að auka við okkur vinnuna, og verður til þess að fólk mætir seinna til að versla en nú er. Björg Bjarnadóttir: Nei, ég er ekki nógu ánægð með þetta. Mér finnst alveg nóg að vinna frá níu til sex. Sigrún B. Ingvadóttir: Þetta er sjálfsagt ágætt ef maður er að fara að versla, en ekki ef maður vinnur sjálfur í búð. Fiskiðnsýningin ’87 Opnar í dag Sýningin stenduryfir frá 19.-23. september.Opin daglegafrá 10.-18. Stœrsta sinnar tegundar í heiminum í ár. Gríðarlegur áhugi fyrir henni í sjávarplássum landsins í dag klukkan 10 opnar stærsta sýning sinnar tegundar sem haldin hefur verið í heiminum í ár á sviði sjávarútvegs. Sjávarú- tvegssýningin í Laugardaf verður opin frá klukkan 10 til 18 til og með næstkomandi miðvikudegi 23. september. Aðgangseyrir er krónur 300. heildarfjöldi starfsfólks verði á bilinu 1440-2160 manns, fyrir utan allan fjöldann sem kemur til að sjá, skoða og kaupa. Búist er við miklu fjölmenni á sýninguna og er þegar allt hótel- rými á höfuðborgarsvæðinu og næsta nágrenni yfirfullt. Vitað er um mikinn áhuga víðs vegar um land fyrir sýningunni og sem dæmi má nefna að í Grímsey verður fátt manna um helgina vegna gríðarmikils áhuga eyjar- skeggja sem fjölmenna suður. Gera má ráð fyrir að svipaða sögu megi segja frá öðrum sjávarpláss- um úti um allt land. grh Alls eru það 460 aðilar sem sýna á sýningunni framleiðslu- vörur sínar á sviði sjávarútvegs. Þar af eru innlendir framleiðend- ur um 125 að tölu. Á sýningunni verður að finna allt það nýjasta á sviði sjávarútvegs frá 22 löndurn víðs vegar að úr heiminum. Frá Evrópu, Asíu, Afríku og Amer- íku. Nettósýningarsvæðið er á sjötta þúsund fermetrar og þar af eru um fimm þúsund fermetrar í sérstökum tjöldum sem sett hafa verið upp við hliðina á Laugar- dalshöllinni. Sjálf rúmar höllin ekki nema um V3 af allri sýning- unni, sem sýnir hversu stór hún er miðað við aðrar sýningar sem haldnar hafa verið hér á landi. Á sýningunni eru um 360 sýn- ingarbásar og við hvern bás vinna 4-6 manns við kynningu og aðra starfsemi. Búast má við að Huga þarf að mörgum smáatriðum svo allt verði í lagi þegar Laugardalshöllin opnar fyrir almenninq klukkan 10 í dag. (Mynd: E.OI.) Auðveldar markaðsöflun Kristján Guðmundsson hjá Félagi dráttarbrauta ogskipa- smiðja: Fluttum út tæp 700 tonn afvélum og tœkjum til sjávarútvegs á síðasta ári. Aukningin íútflutningi á árunum 1985-1986 um 80-90% Alls eru það 125 íslensk fyrirtæki sjávarútvegssýningunni í Laugar- sem sýna framleiðsluvörur sínar á dal. grh Mikiðlagt í sölumar Heildarupphœð viðskipta á sýningunni gífurleg Sjávarútvegssýning sem þessi hefur geysilega þýðingu fyrir innlenda framleiðendur á sviði sjávarútvegsvara til útflutnings. Sérstaklega fyrir þau fyrirtæki sem eru að hasla sér völl í fyrsta sinn á erlendum mörkuðum. Því hingað koma fulltrúar frá öllum heimshornum til að sjá og skoða það nýjasta sem boðið er uppá á þessu sviði, segir Þráinn Þorvalds- son framkvæmdastjóri Útflutn- ingsráðs íslands. Að sögn Kristjáns Guðmunds- sonar frá Félagi dráttarbrauta og skipasmiðja, hefur útflutningur íslenskra fyrirtækja á vélum og tækjum til sjávarútvegs marg- faldast á undanförnum árum. Árið 1981 voru flutt út 18 tonn af vélum og tækjum ýmiss konar, en í fyrra var útflutningurinn kom- inn upp í tæp 700 tonn. Aukning- in á milli áranna 1985-1986 var á bilinu 80-90%. Þetta sýnir vel gróskuna sem verið hefur í inn- lendri framleiðslu á vélum og tækjum til sjávarútvegsins. Því má búast við að sjávarútvegssýn- ingin í Laugardal verði mörgum fyrirtækjum mikil hvatning til frekari dáða á sviði útflutnings. Umfang sjávarútvegssýningar- innar í Reykjavík sýnir vel að íslendingar eru viðkennt stór- veldi í fiskveiðum og vinnslu. Ekki hefur verið upplýst hvað sýning á borð við þessa kostar en (jóst er að þar er ekki verið að velta fyrir sér smáaurum. Hvers vegna leggja þeir, sem framleiða og selja tæki til veiða og vinnslu, svo mikið fé orku í sýningar? Sýningin vekur mikla athygli erlendis eins og sjá má á því að alþjóðlegt blað, „Fishing News International", gefur út sérstakt 96 síðna aukablað í tilefni hennar og auk þess fylgir því 32 síðna blaðauki þar sem eingöngu er gerð grein fyrir þeim dönsku fyrirtækjum sem kynnt eru á sýn- ingunni. Reikna má með því að sýning- argestir, útgerðarmenn og stjórn- endur fiskvinnslufyrirtækja í ýmsum löndum, kaupi varning fyrir hundruð miljóna, jafnvel miljarða. Ljóst er að sýningar sem þessar borga sig því að þegar er farið að auglýsa þær næstu: í Noregi og Frakklandi á næsta ári og Danmörku 1989. Ef til vill má svo búast við nýrri Reykjavíkursýningu 1991 en síð- ast var hér haldin sýning 1984. -óp Marel hf Tölvustýrð flokkunarbönd Þola velting um borð í fiskiskipi Tölvuvogir, trollhlerar, bobb- ingar, bátar, flokkunarvéiar og færavindur. Þetta er lítið brot af því sem 125 íslensk fyrirtæki sýna á sjávarútvegssýningunni sem hefst í dag í Reykjavík. Á sumum sviðum er um endurbætur að ræða en í öðrum tilfellum er gam- alrcyndur varningur kynntur. Ekki er vitað hvort íslendingar koma fram með einhverjar bylt- ingarkenndar nýjungar á sýning- unni en á örtölvutímum má búast við miklum breytingum. Heyrst hefur að íslenska fyrir- tækið Marel hf muni sýna tölvu- stýrt flokkunarband sem hentar til notkunar í veltingi úti á rúm- sjó. Slíkt flokkunarband mun ekki vera til á markaðnum en eftirspurnin gæti orðið veruleg. Um borð í frystitogara má með slíku flokkunarbandi t.d. velja saman flök í neytendapakkningar af ákveð-inni þyngd. Lækkun á yfirvigt í slíkum pakkningum getur sparað við- komandi útgerð stórfé. -óp .2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. september 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.