Þjóðviljinn - 19.09.1987, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 19.09.1987, Blaðsíða 4
LEIÐARI Skrítin tilætlunarsemi Þaö voru eölileg viðbrögö hjá forystumönnum Al- þýðusambandsins að hafna svokölluðu tilboði VSÍ- manna nú í vikunni. Tilboðið verður að skoða í tvennskonar Ijósi. Ann- arsvegar var það sett fram til að reyna að ná frum- kvæði í þeim kjarasamningum sem framundan eru í samfélaginu. I samtökum launafólks eru menn enn að hugsa þessi mál, og víða hefur gengið erfiðlega að ná samstöðu, til dæmis í Verkamannasamband- inu sem enn sleikir sárin frá formannafundinum um daginn. Þessa biðstöðu í verkalýðshreyfingunni voru skrif- stofumennirnirá Garðastrætinu að reyna að notfæra sér. Þeir voru að freista þess að auka á sundrungu innan verkalýðshreyfingarinnar, og skapa sér betri stöðu í því áróðursstríði sem nú sem fyrr fylgir átökum stéttanna við kjarasamninga. Hinsvegar var tilboð VSÍ-manna sett fram í því skyni að reyna að stöðva þá hækkun sem guð og menn sjá að hlýtur að koma í hlut launafólks næstu mánaðamót vegna almennrar verðhækkunar langt framúr áætlunum. Það var verið að bjóða forystu- mönnum launamanna uppá að versla með þá hækk- un, - en þó bauð VSÍ ekkert fyrir hana! Þessi kauptilraun VSÍ var greinilega skipulögð í nánu samráði við handhafa ríkisvaldsins, sem sést best á þeim fréttum að í tillögum sínum um fjárlög inní ríkisstjórninni gerði fjármálaráðherra og formað- ur Alþýðuflokksins ekki ráð fyrir neinni launahækkun umfram rauða strikið nú 1. október. „Það er enginn í verkalýðshreyfingunni tilbúinn að versla með hækkunina," sagði Björn Grétar Sveins- son formaður Jökuls á Höfn í samtali við Þjóðviljann í gær. „Þetta er hækkun sem við eigum.“ Og Björn Þórhallsson varaforseti ASÍ vakti í Þjóðviljasamtali athygli á þeim undarlegu rökum VSÍ-manna að þeir gætu því miður ekki greitt þeim lægstlaunuðu meira þarsem þegar væri búið að yfirborga aðra. Það var athyglisvert að forseti Alþýðusambands- ins, Ásmundur Stefánsson, sagði í tilefni af þessu tilboði að í rauninni hefði verkalýðshreyfingin ein staðið við sinn hlut í því þríhliða samkomulagi við VSÍ Kvikmyndahátíð Það er skammt stórra högga á milli í menningar- efnum hér í Reykjavík þetta haustið. í vikunni stóð hér bókmenntahátíð með blóma miklum, og ungir tónlistarmenn norrænir frömdu sinn seið af kappi, þótt lægrafæri. í dag hefstsíðan áttunda kvikmynda- hátíð Listahátíðar með úrvali kvikmynda frá sautján löndum. Það er því miður hætt við að þegar menningar- veislur eru haldnar af þvílíkum snarpleik komist færri að en vilja, og þarf ekki annað en að hugsa til þess helmings fslendinga sem ekki á daglega leið í höfu- ðborgina. En það verður víst ekki við öllu séð. Á kvikmyndahátíðinni í Laugarásbíói verða sýndar og ríkið sem tíðkast hefur undanfarin ár. Atvinnurek- endur hafa teygt sundur launastigann með miklum yfirborgunum á hálaun í svokölluðu launaskriði með- an láglaunamenn hafa flestir setið eftir, ríkisvaldið hefur ekki haft neina stjórn á verðlagi og nú síðast meira að segja gengið í berhögg við skuldbindingar sínar með sérstökum sköttum á almenna neyslu- vöru. Þessi orð Ásmundar ríma við þau ummæli Þrastar Ólafssonar framkvæmdastjóra Dagsbrúnar í nýrri Vinnu að hann sjái engar forsendur fyrir „þjóðarsáttar“-samningum að þessu sinni. í Laugarasbíó myndir sem eiga erindi við miklu fleiri en fámennan hóp áhugamanna. Fyrirfram er til dæmis óhætt að benda á meistaraverk Kurosawa og Fellinis, hina rómuðu sovésku stríðsmynd „Komið og sjáið" og þriggja mynda framlag fóstbræðra okkar frá Finn- landi. Það er full ástæða til að þakka aðstandendum Listahátíðar fyrir að opna okkur þessa sýn í sjón- heimi sem hérlendis mótast fyrst og fremst af engil- saxneskri iðnaðarvöru. Þær þakkir bera menn best- ar fram með þvf að leyfa sér að eiga skilið að njóta kvikmyndalistarinnar í Laugarásbíói af fordóma- lausum áhuga. -m | LJÖSQPÍÐ Mynd: E.ÓI. þlÓÐVILIINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Utgefandl: Útgáfufólag Þjóðviljans. RiUtjórar: Ámi Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur Skarphéðinsson. Fréttastjórf : Lúðvík Geirsson. Blaðamenn.-GarðarGuðjónsson, GuðmundurRúnarHeiðarsson, Hrafn Jökulsson, Hjörleifur Sveinbjömsson, Ingunn Ásdísardóttir, Kristín Ólafsdóttir, Kristófer Svavarsson, Logi Bergmann Eiðsson (íþróttir), Magnús H. Gíslason, Mörður Ámason, OlafurGíslason Ragnar Karlsson, Sigurður Á. Friðþjófsson, Stefán Ásgrímsson Vil- borg Davíðsdóttir, Yngvi Kjartansson (Akureyri). Handrlta- og prófarkaleatur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir Ljóamyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson Útlltatelknarar: Sævar Guðbjömsson, GarðarSigvaldason. Margrót Magnúsdóttir Framkvæmdaatjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrlfatofuatjórl: Jóhannes Harðarson. Skrifatofa: Guörún Guðvarðardóttir, Kristín Pótursdóttir. Auglýalngaatjórl: Siaríður Hanna Sigurbjörnsdóttir. Auglýaingar: Unnur Ágústsdóttir, Olga Clausen, Guðmunda Krist- insdóttir. Símvarsla: Hanna Ólafsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir. Bflatjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Útbreiðslu- og afgrelðslustjóri: HörðurOddfríðarson. Afgreiðala: Bára Sigurðardóttir, Hrefna Magnúsdóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, OlafurBjörnsson. Útkeyrala, afgreiðslo, rltatjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sfmi 681333. Auglýsingar: Sfðumúla 6, sfmar 681331 og 681310. Umbrot og ætning: Prentsmiðja Pjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð f lausaaölu: 55 kr. Helgarblöð: 65 kr. Áakrlftarverð á mónuöi: 600 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. aeptember 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.