Þjóðviljinn - 25.09.1987, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTHR
Júdó
Bjami keppir
á nýjan leik
Bjarni Friðriksson, mesti af-
reksmaður íslands i júdó fyrr og
síðar, keppir á morgun í fyrsta
skipti frá því hann meiddist illa í
keppni í aprfl sl. Hann tekur þátt í
opna sænska meistaramótinu sem
fram fer í Lundi en þar keppa
einnig Halldór Hafsteinsson og
hinn efnilegi 17 ára piltur Eiríkur
Ingi Kristinsson.
Bjarni sleit liðbönd í hné í apríl
og var í gipsi í nokkrar vikur.
Hann er nú að byggja upp kraft á
nýjan leik og mótið í Lundi er
nokkur prófsteinn á hve vel á veg
hann er kominn. Ef allt gengur að
óskum má reikna með honum í
fullu fjöri á heimsmeistaramót-
inu sem fram fer í nóvember.
-VS
Ólympíukeppnin
Siriar skelttu
Spánverjum
Svíar, Tékkar og Vestur-
Þjóðverjar styrktu stöðu sína í
undanriðlum knattspyrnukeppni
ólympíuleikanna með sigrum á
þriðjudag og miðvikudag.
Svíar sigruðu Spánverja 2-0 í
Skellefta með mörkum frá Jonasi
Thern og Jan Hellström. Staðan í
C-riðli er þessi:
Svíþjóð...........7 5 1 1 11-5 11
Ungverjaland......5 4 0 1 8-4 8
Sviss
Spánn.................4 0 2 2 4-7 2
Irland................5 0 2 3 4-7 2
Frakkland.............3 0 1 2 3-7 1
Tékkar unnu Finna 2-0 á
heimavelli í Dunajska Streda.
Moravcik og Drulak skoruðu
mörkin. Staðan í E-riðli:
Júgóslavía...............3 3 0 0 8-1 6
Tókkoslóvakía............4 3 0 1 6-2 6
Austurríki...............5 2 0 3 7-7 4
Belgía...................3 1 0 2 4-5 2
Finniand.................5 1 0 4 2-12 2
Loks vann
Luzem
Luzern, lið Sigurðar Grétarssonar,
vann sinn fyrsta leik í svissnesku 1.
deildinni á þessu keppnistímabili í
fyrrakvöld. Það var 1-0 á heimavelli
gegn Ziirich en liðin voru jöfn í 9.-10.
sæti af 12 liðum fyrir leikinn. Luzern
hefur nú 8 stig að loknum 11 umferð-
um og er í 9. sæti dcildarinnar.
-VS/Reuter
Vestur-Þjóðverjar sigruðu
Grikki 3-0 í Offenbach. Frank
Mill skoraði 2 markanna og Wol-
fram Wuttke eitt. Staðan í A-
riðli:
Danmörk............3 3 0 0 15-1 6
Rúmenía............4 1 1 2 2-10 3
V.Þýskaland........2 10 1 3-1 2
Pólland............1 0 10 0-0 1
Grikkland..........2 0 0 2 0-8 0
Sigurliðið úr hverjum riðli
kemst á sjálfa Ólympíuleikana í
Seoul næsta haust.
-VS/Reuter
Anne Johanson sýnir ungum ÍK-ingum réttu handtökin.
Sænskur tennisþjálfari
Sænskur tennisþjálfari, Anne Johanson, sem hefur leikið I landsliði
Svíþjóðar, kom við hér á landi fyrir skömmu og hélt námskeið fyrir
þjálfara ÍK og nokkra yngri leikmenn. Þar kynnti hún m.a. „mini-tennis"
fyrir börn og byrjendur sem hefur náð mikilli útbreiðslu víða erlendis.
Anne Johanson stundar íþróttanám í Bandaríkjunum og þjálfar þar
tennisfólk. Hún fékk styrk frá Flugleiðum til að geta komið við hér á leið
sinni vestur yfir haf. Fyrirhugað er að hún komi aftur hingað næsta
sumar á vegum ÍK og haldi þá námskeið, m.a. fyrir íþróttakennara.
/
Noregur-Island
Ragnarök
á Ullevaal!
Verra en það versta
Erum allavega betri í skíðastökki!
Lífvörðurinn betri en landsliðið
Frá Baldri Pálssyni fréttamanni
Þjóðviljans I Noregi:
„Ragnarök á UIlevaal!“ var
fyrirsögnin hjá Verdens Gang,
stærsta blaði Noregs, þegar það
fjallaði í gær um landsleik Noregs
og Islands í knattspyrnu sem háð-
ur var á miðvikudagskvöldið.
íþróttafréttamennirnir á Dag-
bladet tóku líka djúpt í árinni og
notuðu fyrirsögnina „Verra en
það versta!“
Þetta sýnir vel hversu mikið
áfall það var fyrir Norðmenn að
tapa leiknum gegn íslendingum á
Ullevaal-leikvanginum í Osló í
fyrrakvöld. Stolt þeirra var sært
svo um munaði, þeir töldu sig
aldrei hafa haft betra landsliði á
að skipa en einmitt nú og kölluðu
Noregur
Biyne
tapaði
Frá Baldri Pálssyni fréttamanni Þjóð-
viljans í Noregi:
Bryne tapaði dýrmætum stigum í
toppbaráttu norsku 1. deildarinnar í
knattspyrnu í fyrrakvöld - beið þá
lægri hlut gegn Tromsö, 0-1. Þegar
leiknar hafa verið 19 umferðir af 22
eru Gunnar Gíslason og félagar í Moss
efstir sem fyrr með 38 stig, Molde hef-
ur sömuleiðis 38 en Bryne er í þriðja
sæti með 34, og hefði náð 37 stigum
með sigri á Tromsö.
Atii E&valdsson hélt íslenska lið-
inu saman, segir norska Dagbladet.
heim tíu atvinnumenn til leiksins,
marga hverja hátt skrifaða í evr-
ópsku knattspyrnunni.
Verdens Gang skrifaði meðal
annars: „Lífvörður konungsins
sýndi fyrir leikinn og í hálfleik að
hann spilar þjóðsönginn betur en
norska landsliðið leikur knatt-
spyrnu....Það ætti að stofna sér-
stakan riðil þar sem Norðmenn,
Grænlendingar, Færeyingar og
Luxemburgarar leika eingöngu
og aðrir fá ekki aðgang!....Það er
einn Ijós punktur, bráðum kemur
snjórinn og Norðmenn eru alla-
vega betri en Islendingar í skíða-
stökki!“
Þá segir blaðið að það verði að
viðurkennast að heimavöllur og
heimadómari hafi ekki nýst gegn
íslensku liði sem vantaði fimm af
sínum lykilmönnum. Norðmenn
séu greinilega ekki betri en þetta.
Ekki megi eingöngu skella skuld-
inni á sænska þjálfarann Tord
Grip, leikmenn norska liðsins
beri líka mikla ábyrgð á hvernig
fór. Nú sjáist engin ljósglæta í ná-
inni framtíð, eftir séu útileikir
gegn Frökkum og Austur-
Þjóðverjum og ekki sé hægt að
gera sér vonir um góða útkomu
þar. Verdens Gang gefur norsku
leikmönnunum einkunnir á bil-
inu 1-10 og þeir hæstu fá 5 sem
þýðir að þeir hafi rétt verið í
meðallagi, og sumir fá 2 sem er
afspyrnuslakt.
Dagbladet segir að íslenska lið-
ið hafi leikið mjög skynsamlega,
kalt og rólega. Það hafi haft öll
tök á leiknum og spilað í sam-
ræmi við það. Liðið hafi verið
jafnt og gott en Atli Eðvaldsson
þó nefndur sem sá lykilmaður
sem hélt því saman.
Sem sagt, heildartónninn er sá
að ekki sé hægt að komast neðar í
alþjóðlegri knattsmyrnu en að
tapa tvívegis fyrir Islandi. Það er
gaman að vera fslendingur í Nor-
egi þessa dagana, skólafélagarnir
læðast með veggjum til að forðast
að ræða leikinn og það er greini-
legt að norska þjóðin verður
lengi að jafna sig eftir þetta áfall.
Frjálsar
Kastnám-
skeið ÍR
Neskaupstaður
Nýr grasvöllur
Fyrir skömmu tóku knatt-
spyrnumenn í Neskaupstað í
notkun nýjan grasvöll en fram til
þessa hefur einungis malarvöllur
verið í Neskaupstað og er nýi
völlurinn því knattspyrnu-
mönnum staðarins afar kærkom-
inn. Nýi völlurinn er í eigu bæjar-
ins en félagar í íþróttafélaginu
Þrótti tyrfðu völlinn í sjálfboða-
vinnu sl. sumar.
dór Þorbergsson og Þórður Þórð-
arson tóku upphafsspyrnuna.
Leikurinn var skemmtilegur á að
horfa og stóðu heimamenn lengi
vel í 1. deildarliðinu, en undir
lokin skorti úthald og KR-ingar
sigruðu með tveimur mörkum
gegn engu. Að loknum leiknum
þáðu gestirnir svo veitingar í boði
bæjarstjórnar.
-hb
Frjálsíþróttadeild ÍR gengst
fyrir kastnámskeiði sem hefst á
morgun, laugardaginn 26. sept-
ember, á kastvellinum í Laugar-
dal kl. 15. Námskciðið stendur í
fjórar vikur og æft verður tvisvar
til þrisvar i viku en þátttökugjalds
er ekki krafist. Erlendur Valdi-
marsson, Islandsmethafi í
sleggjukasti og fyrrum methafí í
kringlukasti, stjórnar náms-
keiðinu. Nánari upplýsingar fást
hjá formanni deildarinnar, Sig-
urði Erlingssyni, í sima 671890
eða Jóhanni Björgvinssyni í síma
71023.
Vígsluleikurinn var föstudag-
inn 28. ágúst sl. og áttust þá við 3.
deildar lið Þróttar og 1. deildar
lið KR. Fyrir leikinn fluttu ávörp
þeir Guðmundur Ingvason, for-
maður knattspyrnudeildar Þrótt-
ar, Ásgeir Magnússon, bæjar-
stjóri og Ellert B. Schram for-
maður KSÍ en við þetta tækifæri
afhenti hann Þórði Þórðarsyni,
skrifstofustjóra og bæjarfulltrúa í
Neskaupstað gullmerki KSÍ.
Þórður hefur um langan tíma ver-
ið í forystu fyrir knattspyrnu-
íþróttina í bænum og á 40 ára af-
mæli KSÍ fyrir skömmu sam-
þykkti stjórn sambandsins að
veita honum gullmerki KSÍ.
Að lokinni afhendingunni
hófst leikurinn með því að Hall-
ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
1X2...1X2...1X2... 1X2... 1X2...
5. vika > *- C\| ^ «0 —' j-- Ö)*0 m o £ > E coO >,:o ■§' n.SQh-QírcQCOCO
1. Arsenal-West Ham 2. Derby County-Oxford 3. Everton-Coventry 4. Manch.Utd-Tottenham 5. Newcastle-Southampton 111111112 1 2 1 x 1 1 x 1 x 111111111 2 1 1 1 x 2 1 1 x . 21 1 ? ? 1 P 1 Y
6. Norwich-Nottm.Forest.. 7. Portsmouth-Wimbledon.. x 2 1 x 2 2 2 1 2
8. Q.P.R.-LutonTown 9. Sheffield Wed.-Charlton 10. Watford-Chelsea 11. Crystal Palace-lpswich 12. Leeds-Manchester City 1 1 1 1 1 X x 1 1 111x11111
Hæsti getraunavinningurinn til þessa kom í 4. viku. Árbæingur var einn með 12 rétta og fékk rúma miljón, eða 1,222.745 krónur, á gulan 16 raða seðil Með 11 rétta voru 37 raðir og hlaut hver um sig 5,520 krónur.