Þjóðviljinn - 20.10.1987, Qupperneq 1
Evrópukeppni
Jafntefli
í Sviss
Ítalír faerðu sig nær toppnum í
2. riðli Evrópukeppninnar með
jafntefli gegn Sviss á útivelli, 0-0.
Þrátt fyrir að ekki hafi verið
skorað var leikurinn nokkuð op-
inn og skemmtilegur. Martin
Brunner, markvörður Svisslend-
inga varði mjög vel og einnig
starfsbróðir hans, Walter Zenga.
ftalir eru nú einu stigi á eftir
Svíum, en eiga leik til góða. Þjóð-
irnar eiga eftir að leika, á Ítalíu.
Staöan í 2. riðli:
Svíþjóö.........7 4 2 1 11-3 10
Ítalía..........6 4 1 1 11-3 9
Sviss...........6 1 3 2 8-8 5
Portúgal........5 13 15-5 5
Maita...........6 0 1 5 3-19 1
-Ibe/Reuter
Handbolti
Auðvelt
hjá ÍBV
ÍBV vann auðveldan sigur yfir
Ármenningum í 2. deild karla.
Vestmannaeyingarnir sigruðu,
28-16.
Leikurinn var nokkuð jafn
framan af og í hálfleik var staðan
7-12, ÍBV í vil. Vestmannaeying-
arnir tóku svo við sér í síðari hálf-
leik og gerðu út um leikinn með
góðum kafla.
Sigurbjörn Óskarsson, Páll
Scheving og Elías Bjarnhéðins-
son voru markahæstir í liði ÍBV
með 6 mörk hver. Björn Jóhann-
esson skoraði flest mörk Ár-
menninga, 8 og Björgvin Barðdal
4. -lbe
Staðan í 2. deild:
HK....................3 3 0 0 72-52 6
IBV...................2 2 1 0 80-62 5
Grótta................3 2 1 0 94-77 5
Seltoss...............3 2 0 1 62-76 4
Haukar................3 1 1 1 71-61 3
Ármann................3 1 1 1 60-68 3
UMFA..................3 1 0 2 62-70 2
Reynir................3 1 0 2 62-71 2
UMFN..................3 0 0 3 71-76 0
Fylkir................3 0 0 3 49-72 0
Blak
Þróttur
sigraði
Þróttarar sigruðu í Haustmóti
BLÍ sem haldið var að Laugar-
vatni. Breiðablik sigraði í
kvennaflokki.
Það voru Þróttur og ÍS sem
mættust í úrslitaleik. Stúdentar
sigruðu í fyrstu hrinu, 15-6, en
Þróttarar sigruðu í tveimur síð-
ustu, 16-14 og 15-6. Það voru að-
eins leiknar tvær hrinur.
HK hafnaði í 3. sæti, sigraði
HSK 15-3 og 15-3.
Breiðablik sigraði Víking í úr-
slitaleik kvenna, 15-9 og 15-5.
Þróttur hafnaði í 3. sæti, sigraði
HSK 15-13 og 15-3.
Deildarkeppnin í blaki hefst
svo um næstu helgi.
-Ibe
Staðan
í 1. deild karla:
FH..............5 5 0 0 165-109 10
Valur...........5 4 1 0 109-77 9
Víkingur........5 4 0 1 135-116 8
Stjarnan.......5 3 0 2 119-127 6
UBK.............5 3 0 2 96-102 6
KR..............5 2 0 3 115-117 4
ÍR..............5 2 0 3 102-115 4
KA..............5 1 0 4 97-116 2
Fram............5 0 1 4 110-133 1
Þór.............5 0 0 5 99-135 0
íslandsmótlð í karate var haldið um helgina. Árni Einarsson vann tvöfalt. Hér er hann einbeittur á svip í úrslitaviðureigninni í - 65 kg þyngdar
flokki. Mynd: E.ÓI. Sjá bls. 10.
Landslið
Mörg verkefni framundan
Haldið á sterkt mót íSviss. Handboltabrauð á markaðinn.
Piltalandslið í keppnisferð
Það er ýmislegt á seyði hjá
landsliðsmönnunum í handknatt-
leik. Þeir eru nú á leið til Sviss þar
sem þeir taka þátt í sterku móti
ásamt Austur-Þjóðverjum,
Austurríki og Sviss. Áður en þeir
lögðu af stað brögðuðu þeir á
nýju „handboltabrauði“.
Landssamband bakaram-
eistara hélt samkeppni um bestu
uppskriftina að hollu og góðu
brauði og í gær brögðuðu lands-
liðsmennirnir á brauðunum.
Besta brauðið verður svo sett á
markað sem „handboltabrauð".
Verðið á brauðinu verður hið
sama og á hliðstæðum brauðum,
en HSÍ fær þrjár krónur af hverju
seldu brauði.
Það verður þó ekki fyrr en um
miðjan nóvember að kemur í ljós
hvaða brauð verður valið.
Jón Hjaltalín Magnússon, for-
maður HSf sagðist vonast til að
þessi styrkur myndi ná 1-2
milljónum króna fram að Ol-
ympíuleikunum á næsta ári.
Um miðjan nóvember verður
gert hlé á keppni í 1. deild og
þann tíma mun landsliðið nota til
keppni og æfinga. Farið verður á
mót í Danmörku og Noregi og
leikið gegn Póllandi, Júgóslavíu,
S-Kóreu, Portúgal og fsrael hér
heima.
Piltalandsliðið lagði í dag af
stað í keppnisferð til Vestur-
Þýskalands og mun mæta Norð-
mönnum, Tékkum og V-
Þjóðverjum. _ibe
Drengjalandslið
Skellur í
Svíþjóð
Islenska drengjalandsliðið
fékk slæman skell gegn Svíum í
landsleik þjóðanna í undan-
keppni Evrópukeppninnar. Svíar
sigruðu, 5-0.
Fyrri leik liðanna lauk með
jafntefli, 3-3 og fsland þurfti því
að sigra í síðari leiknum til að
komast áfram. Svíar gerðu hins-
vegar út um leikinn með tveimur
mörkum í fyrri hálfleik.
Staðan var því hálf vonlaus og
liðið náði sér ekki á strik í síðari
hálfleik, en Svíarnir bættu þrem-
ur mörkum við.
Það verða því Svíar sem halda
áfram í lokakeppnina, en hún er á
Spáni næsta vor. Þeir verða þar í
riðli með Sovétmönnum, Júgósl-
övum og Búlgörum.
-4be
V-Þýskaland
Stórleikur Kristjáns
Sigurður skoraði 11 mörk.
Gummersbach með fullt hús
England
Enn kaupir Uveipool
Keypti Ray Houghton frá Oxford fyrir
825.000pund
Frá Jóni H. Garðarssyni, fréttamani
Þjóðviljans í V-Þýskalandi:
Kristján Arason átti enn einn
stórleikinn þegar Gummersbach
sigraði Milbertshofen, 22-20.
Kristján Arason var tekinn úr
umferð, en var engu að síður
besti leikmaður vallarins og
markahæstur með sjö mörk.
Sigurður Sveinsson var einnig í
miklu stuði. Hann skoraði 11
mörk fyrir Lemgo gegn Núrn-
berg, en það nægði ekki. Núrn-
berg sigraði 19-18 í mjög spenn-
andi leik.
Lið Essen átti sinn besta leik er
það sigraði Hofweier, 31-15. Það
er greinilegt að hornamaðurinn
sterki Fraatz hefur góð áhrif á lið-
ið. Quarti var markahæstur í liði
Essen með 9 mörk, Alfreð Gísla-
son skoraði 8 og Fraatz 4 mörk.
Essen lék einnig í vikunni, en tap-
aði þá fyrir Kiel, 21-22.
Páll Ólafsson lék vel með
Dússeldorf og skoraði tvö mörk.
Dsseldorf sigraði, 19-16 og er nú
óvænt komið í 3. sæti.
Wallau-Massenheim kom á
óvart og sigraði Grosswallstadt,
23-20, Swabing sigraði Dort-
mund, 26-18 og Göppingen og
Kiel gerðu jafntefli, 23-23.
Gummersbach er í efsta sæti
með fullt hús, 14 stig, Grosswall-
stadt og Dússeldorf eru með 10
stig, Swabing 8, Kiel og Essen 7
stig, Wallau-Massenheim og
Dortmund með 6 stig. Númberg,
Milbertshofen, Lemgo , Hofwei-
er og Göppingen hafa hlotið
fimm stig og á botninum situr
Dormagen, með þrjú stig.
Liverpool keypti í gær Ray Ho-
ughton frá Oxford fyrir 825.000
pund. Houghton hafði neitað til-
boðum frá mörgum liðum.
Houghton neitaði fyrir helgina
tilboði frá Nottingham Forest og
sagði að hann hefði aðeins áhuga
á að leika með Tottenham eða
Liverpool og honum varð að ósk
sinni. Houghton hafði áður neit-
að tilboðum frá Rangers, Celtic,
Arsenal og Derby.
„Ég veit satt að segja ekki hvað
ég get gert til að bæta Liverpool
liðið,“ sagði Houghton í gær.
„Það verður allavega mjög erfitt
að komast í liðið.“
Kenny Dalglish sagði:„Góðir
leikmenn eru ekki á hverju strái
og þegar þeir losna er um að gera
að reyna að krækja í þá. Það eru
ekki 11 einstaklingar sem skipta
máli, heldur allur hópurinn.“
-Ibe/Reuter
Umsjón: Logi B. Eiðsson
Þriðjudagur 20. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 9