Þjóðviljinn - 20.10.1987, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTTIR
Jónfna Olsen sigraöi tvöfalt og gengur hér frá andstæðingi sínum. Mynd: E.ÓI.
y Karate
Ami og Jónína í sérflokki
Á íslandsmótinu í karate. Ævar sigraði í opnum flokki
Árni Einarsson og Jónína Olsen voru í
sérflokki á íslandsmótinu í karate sem
haldið var í Laugardalshöll. Þau hlutu
bæði tvenn gullverðlaun og einnig Ævar
Þorsteinsson.
Mótið gekk vel, en úrslitin komu ekki
ýkja mikið á óvart. Margir góðir keppn-
ismenn tóku ekki þátt í mótinu, s.s. Atli
Einarsson og Kristín Einarsdóttir.
Jónína og Arni sigruðu með yfirburð-
um í kata og í sínum þyngdarflokkum.
Ævar sigraði í sínum þyngdarflokki og í
opnum flokki.
Jónína vann öruggan sigur í kumite
kvenna. Sigurvegarinn frá því í fyrra,
Kristín Einarsdóttir keppti ekki.
Arni Einarsson vann mjög öruggan
sigur í -65 kg flokki karla, 6-0. Þetta er
þriðja árið í röð sem Árni sigrar í þess-
um flokki. Halldór Svavarsson kom á
óvart og sigraði Matthías Friðriksson í
keppni um 3. sætið.
Sigurjón Gunnsteinsson sigraði Einar
Þorsteinsson í úrslitum í -73 kg flokki,
2-1.
Konráð Stefánsson vann auðveldan
sigur í -80 kg flokki. Þorsteinn Másson
gaf úrslitaviðureignina. Grétar Hall-
dórsson sigraði Finnboga Karlsson ör-
ugglega, 6-0 í viðureign þeirra um 3.
sætið.
Ævar Þorsteinsson vann öruggan
sigur yfir Hannesi Hilmarssyni í úrs-
litum +80 kg flokki. Þriðja árið í röð
sem Ævar sigrar í þessum flokki. Guð-
laugur Davíðsson gaf viöureign sína
gegn Einari Karlssyni í úrslitum um 3.
sætið.
Ævar Þorsteinsson sigraði Einar
Karlsson í úrslitum í opnum flokki, 2-1.
Árni Einarsson féll úr keppni, vegna
meiðsla og sigurvegarinn frá því í fyrra,
Atli Erlendsson tók ekki þátt í mótinu.
Úrslit á
íslandsmótinu í karate:
Kata karla:
1. Árni Einarsson, KFR..................25.8
2. Svanur Eyþórsson, Þórshamri..........24.4
3. Sigurjón Gunnsteinsson, KFR..........23.9
4. Helgi Jóhannesson, UBK...............23.6
4. HalldórSvavarsson, KFR..............23.6
Kata kvenna:
1. Jónína Olsen, KFR....................25.5
2. Ingibjörg Júlíusdóttir, Þórshamri....23.8
3. HildurSvavarsdóttir, KFR.............23.6
4. ÁslaugJónsdóttir, KFR................23.6
Kumite kvenna:
1. Jónína Olsen, KFR
2. Elín Eva Grímsdóttir, Þórshamri
3. Anna Carlsdóttir, KFR
4. Ingibjörg Júlíusdóttir, Þórshamri.
- 65 kg flokkur karla:
1. Árni Einarssonar, KFR
2. Ágúst Österby, Selfossi
3. Halldór Svavarsson, KFR
4. Matthías Friðriksson, UBK
- 73 kg flokkur:
1. Sigurjón Gunnsteinsson, KFR
2. Einar Þorsteinsson, KFR
3. Gísli Pálsson, UBK
4. Helgi Jóhannesson, UBK
- 80 kg flokkur:
1. Konráö Stefánsson, KFR
2. Þorsteinn Másson, Selfossi
3. Grétar Halldórssón, KFR
4. Finnbogi Karlsson, UBK
+ 80 kg flokkur karla:
1. Ævar Þorsteinsson, UBK
2. Hannes Hilmarsson, Stjörnunni
3. Einar Karlsson, UBK
4. Guðlaugur Davíösson, KFR
Opinn flokkur karla:
1. Ævar Þorsteinsson, UBK
2. Einar Karlsson, UBK
3. Sigurjón Gunnsteinsson, KFR
4. Konráð Stefánsson, KFR
Alls tóku sjö félög þátt í mótinu. Flestir kepp-
endur voru frá Karatefélagi Reykjavíkur, 14, 9
frá UBK, 6 frá Þórshamri, 4 frá Selfossi, 2 frá
Baldri og einn frá Stjörnunni og Gerplu.
Skipting verölauna g s b
KFR...................................6 1 6
UBK...................................2 1 2
Þórshamar.............................0 3 0
Selfoss...............................0 2 0
Stjarnan .............................0 1 0
Gerpla................................0 0 0
Baldur................................0 0 0
-Ibe
V-Pýskaland
Bremen stal toppsætinu
Frá Jóni H. Garðarssyni, fréttamanni Þjóðviljans í
V-Þýskalandi:
Werder Bremen komst í efsta sæti
Bundesligunnar um helgina með sigri
yfir Gladbach, 2-1. Á sama tíma gerði
Köln jafntefli gegn Frankfurt, 1-1.
Það var reyndar Gladbach sem náði
forystunni og var þar að verki Bakalorz.
Ordenewitz jafnaði skömmu síðar og
það var svo Sauer sem skoraði sigur-
markið.
Frankfurt og Köln skildu jöfn í
skemmtilegum leik. Það byrjaði ekki vel
hjá Köln því Morten Olsen skoraði
sjálfsmark. Görtz jafnaði svo í síðari
hálfleik. Köln fékk reyndar gullið tæki-
færi til að skora strax í upphafi leiksins.
Köln fékk vítaspyru og Littbarski stillti
boltanum upp á vítaspunktinum. Stefan
Engels skaust fram og skoraði úr spyrn-
unni, öllum að óvörum. En samkvæmt
reglum Þjóðverja verða dómari og
markvörður að vita hver tekur spyrnuna
og því var hún tekin aftur, en þá varði
Gundelach.
Lið HSV er óútreiknanlegt og leikur
ýmist vel eða illa. Stuttgart hitti á einn af
betri leikjum þeirra og tapaði, 0-3.
Kroth, Von Heesen og Okonski
skoruðu mörk HSV.
Bayern Múnchen vann auðveldan
sigur yfir Kaiserslautern, 4-2. Wegmann
skoraði tvö marka Bayern, Wolfarth eitt
og Dorfner eitt. Ölll mörk Bayern komu
í fyrri hálfleik, en Kohr skoraði tvö
mörk fyrir Kaiserslautern í síðari hálf-
leik. Lárus Guðmundsson sat á vara-
mannabekknum.
Bayer-risarnir Leverkusen og Uer-
dingen gerðu markalaust jafntefli í frek-
ar leiðinlegum leik.
Úrslit í Bundesligunni:
Bayer Leverkusen-Bayer Uerdingen........0-0
Eintracht Frankfurt-Köln................1-1
Borrusia Mönchengladbach-Werder Bremen... 1-2
Núrnberg-Schalke........................1-1
Homburg-Hanover.........................1-1
Waldof Mannheim-Karlsruhe...............4-1
Bayewrn Múnchen-Kaiserslautern..........4-2
Hamburg-Stuttgart.......................3-0
Vinningstölurnar 17. október 1987
Heildarvinningsupphæð 5.066.643,-
1. vinningur var kr. 2.542.189,-. Aðeins einn þátttakandi var með 5
réttar tölur.
2. vinningur var kr. 757.704,- og skiptist hann á 262 vinningshafa,
kr. 2.892,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.766,750,- og skiptist á 9.550 vinningshafa,
sem fá 185 krónur hver.
Upplýsingasími:
685111.
Köln..
. 13 9 3 1 25-8 21
. 13 8 5 0 22-7 21
. 13 10 0 3 33-17 20
. 13 8 1 4 27-22 17
. 13 6 3 4 29-20 15
. 13 5 4 4 29-34 14
13 5 3 5 19-20 13
. 13 3 6 4 16-12 12
13 3 6 4 14-16 12
.‘2 4 3 6 22-23 11
13 4 3 6 20-25 11
13 3 4 6 14-21 10
13 4 2 7 21-30 10
•2 4 2 7 20-29 10
12 3 3 6 16-20 9
12 3 3 6 13-19 9
13 4 1 8 17-21 9
13 2 4 7 12-25 8
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 20. október 1987
Handbolti
Stjaman í basli með Þór
Stjarnan átti í mestu vand-
ræðum með nýliðana, Þór á Ak-
ureyri. Stjarnan sigraði þó í
spennandi leik, 22-23.
Leikurinn var mjög jafn fram-
an af og í hálfleik var staðan 11-
12.
Síðari hálfleikurinn var svipað-
ur, en Stjarnan þó yfirleitt fyrri til
að skora. Það var þó ekki fyrr en
rétt undir leikslok að þeir gerðu
út um leikinn. Þá lifnaði Gylfi
Birgisson við og skoraði þrjú
mörk og staðan þá 18-22. Eftir
það voru úrslitin ráðin, þrátt fyrir
að Þórsurum tækist að minnka
muninn í eitt mark.
Sigmar Þröstur var bestur í
frekar slöku liði Stjörnunnar.
Hann varði 22 skot, þaraf tvö
vítaköst. Þeir Hermundur og
Gylfi áttu einnig ágætan leik.
Hjá Þór bar mest á þeim Axel
Stefánssyni, sem varði vel og
Árna Stefánssyni, en hann var
mjög sterkur í vörninni. Þá átti
Ingólfur Samúelsson góða
spretti.
Það vantaði ekki mikið uppá
fyrsta sigur Þórs, en segja má að
reynslan hafi ráðið úrslitum.
-HK
Akureyri 17. október
Þór-Stjarnan 22-23 (11-12)
1-0, 3-3,6-6, 6-8, 9-9,11-12,13-13,
13-15,15-15,16-16,17-20,18-22, 22-
23.
Mörk Þórs: Sigurpáll Aðalsteinsson
7(6v), Árni Stefánsson 5, Ólafur Hilm-
arsson 4, Ingólfur Samúelsson 4 og
Jóhann Samúelsson 2.
Mörk Stjörnunnar: Hermundur
Sigmundsson 8(6v), Sigurjón Guð-
mundsson 6, Gylfi Birgisson 3, Haf-
steinn Bragason 3, Skúli Gunnsteins-
son 2 og Einar Einarsson 1.
Dómarar: Einar Sveinsson og
Gunnar Viðarsson - ágætir.
Maður leiksins: Sigmar Þröstur
Óskarsson, Stjörnunni.
Handbolti
Enn stórsigur hjá FH
Settu á fulla ferð í síðari hálfleik og sigruðu Framara
FH-ingar eru óstöðvandi og aú
voru það Framarar sem fengu að
kenna á því í Firðinum. Leikur-
inn var jafn framan af, en í síðari
hálfleik settu FH-ingar á fulla
ferð og unnu öruggan sigur, 36-
26.
Fyrri hálfleikurinn var jafn, en
smám saman náðu FH-ingar
undirtökunum. Þeir komust svo á
skrið í upphafi síðari hálfleiks og
eftir það var sigurinn öruggur.
Þar munaði mestu um hraða-
upphlaupin, en þau voru vel út-
færð hjá FH-ingum.
FH-ingar hafa leikið mjög vel í
síðustu leikjum og þessi leikur
var engin undantekning. Liðið
var þó seint í gang og það var ekki
tyrr en í síðari hálfleik að leikur-
inn small saman.
Framarar sýndu að þeir geta
leikið þokkalega þó að stjörnurn-
ar séu ekki með. Þá skortir þó
úthald og á köflum var leikur liðs-
ins nokkuð klúðurslegur.
Þorgils Óttar Mathiesen átti
enn einn stórleikinn, sterkur í
vörninni og mjög öruggur á lín-
unni. Héðinn Gilsson var mjög
góður í sókninni og Pétur Peter-
sen lék mjög vel í síðari hálfleik.
Það var Júlíus Gunnarsson sem
var allt i öllu hjá Frömurum.
Hann skoraði 10 af fyrstu 13
mörku þeirra og lék mjög vel.
Guðmundur Arnar Jónsson varði
vel og Ólafur Vilhjálmsson átti
góða spretti.
FH-ingar hafa leikið mjög vel
að undanförnu og þrátt fyrir að
þessi leikur hafi ekki komist í
hálfkvisti við leikinn gegn Stjörn-
unni var hann mjög góður.
-ÁV
Körfubolti
Hafnarfjörftur 18. október
FH-Fram 36-26 (14-12)
1-0, 3-3, 8-7, 13-10, 14-12, 16-13,
23-16, 25-21, 32-23, 36-26.
Mörk FH: Þorgils Óttar Mathiesen
12, Héöinn Gilsson 9, Gunnar
Beinteinsson 4, Óskar Árnason 4(2v),
Pétur Petersen 3, Óskar Helgason 2,
Guöjón Árnason 1 og Einar Hjaltason
1.
Mörk Fram: Júlíus Gunnarsson 13
(6v), Ólafur Vilhjálmsson 5, Pálmi
Jónssn 3, Hinrik Ólafsson 2, Agnar
Sigurösson 1, Hermann Björnsson 1
og Brynjar Stefánsson 1.
Dómarar: Óli Ólsen og Gunnlaugur
Hjálmarsson - góðir.
Maður leiksins: Þorgils Óttar
Mathiesen, FH.
Naumt hjá KR-ingum
Unnu nauman siguryfir Grindavík í
hörkuleik
KR-ingar mega þakka fyrir tvö
stig gegn nýliðunum Grindavík.
Leikur liðanna var hnífjafn og
það var ekki fyrr en á lokamínút-
unni að úrslitin réðust. KR-ingar
náðu þá góðum endaspretti og
sigruðu , 70-77.
Grindvíkingar byrjuðu af
krafti, dyggilega studdir af 250
áhorfendum. Greinilega komin
önnur „ljónagryfja" á Suðurnesj-
um. Leikurinn var þó í jafnvægi,
Handbolti
Dauft hjá Víkingum
Sigruðu KA í slökum leik
Það var ekki mikill glæsibrag-
ur yfir sigri Víkinga yfir KA, 28-
23. Bæði liðin léku illa og leikur-
inn einkenndist öðru fremur af
mistökum beggja liða, en Víking-
ar gerðu færri mistök og sigruðu.
Leikurinn var jafn framan af
og liðin skiptust á að hafa foryst-
una. Víkingar náðu svo fjögura
Laugardalshöll 17. október
Víkingur-KA 28-23 (16-12)
1-0, 3-2, 5-6, 8-6, 11-10,14-10,16-
12,19-17, 23-17,24-21,26-23,28-23.
Mörk Víklngs: Karl Þráinsson
6(1 v), Sigurður Gunnarsson 5(1v),
Árni Friðleifsson 4, Bjarki Sigurðsson
4, Siggeir Magnússon 3, Guðmundur
Guðmundsson 3og HilmarSigurgísla-
son 3.
Mörk KA: Pétur Bjarnason 9(1 v),
Guðmundur Guðmundsson 3, Er-
lingur Kristjánsson 3, Friðjón Jónsson
3(1 v), Eggert Tryggvason 3, Axel
Björnsson 1 og Hafþór Heimisson 1.
Dómarar: Guðmundur Kolbeinsson
og Þorgeir Pálsson - slakir.
Maður leiksins: Karl Þráinsson,
Víking.
marka forskoti fyrir leikhlé með
ágætum kafla.
Víkingar leiddu allán síðari
hálfleikinn, en KA-ménn voru
ekki langt undan. Þegar staðan
var 19-17 Víkingum í vil fékk KA
hraðaupphlaup, en sendu bolt-
ann beint í hendur Víkinga sem
skoruðu. Munurinn varð því þrjú
mörk í stað eins, og eftir það var
sigur Víkinga í höfn. Síðustu sek-
úndurnar voru fjórir leikmenn
KA reknir útaf og því aðeins tveir
útileikmenn eftir gegn full-
skipuðu liði Víkinga.
Það væri stór synd að segja að
liðin hafi leikið vel. Sóknarleikur
beggja liða var fálmkenndur og
barátta lítil sem engin.
Karl Þráinsson átti þokkalegan
leik og þeir Bjarki Sigurðsson og
Árni Friðleifsson léku á köflum
ágætlega.
Pétur Bjarnason var mest
áberandi hjá KA og skoraði góð
mörk. Þá átti ErlingurKristjáns-
son ágæta spretti. -Ibe
en Grindvíkingar höfðu yfir-
höndina í leikhléi, 36-35.
KR-ingar voru heldur hressari
í síðari hálfleik og náðu að rétt
hlut sinn með góðum kafla. En
Grindvíkingar voru ekki af baki
dottnir og þegar ein mínúta var til
leiksloka var staðan 70-70. Þá
kom reynsla KR-inga þeim vel.
Þeir léku af skynsemi og skoruðu
sjö síðustu stigin.
Það er greinilegt að lið Grinda-
víkur er gífurlega efnilegt. Leik-
menn þess eru ungir, en leika þó
á köflum mjög vel. Þó má búast
við að róðurinn verði þeim erfið-
ur á þeirra fyrsta ári í úrvals-
deildinni.
Guðmundur Bragason lék
mjög vel og einnig þeir Eyjólfur
Guðlaugsson og Steinþór Helga-
son.
KR-ingum gekk illa að komast
af stað, en náðu góðum köflum
inná milli. Lokamínúturnar léku
þeir vel og leikur þeirra var agað-
ur. Birgir Mikaelsson átti mjög
góðan leik og einnig Símon Ól-
afsson og Ástþór Ingason.
-SÓM/Suðurnesj um
Grindavík 18. október
UMFG-KR 70-77 (36-35)
Stlg UMFG: Guðmundur Bragason
16, Eyjólfur Guðlaugsson 12, Steinþór
Helgason 12, Rúnar Arnarson 10,
Hjálmar Hallgrímsson 7, Ólafur Þór Jó-
hannsson 4, Sveinbjörn Sigurðsson 4,
Gunnlaugur Jónsson 3 og Jón Páll
Haraldsson 2.
Stig KR: Birgir Mikaelsson 16, Ást-
þór Ingason 16, Guðni Guðnason 14,
Símon Ólafsson 13, Matthías Einars-
son 9, Þorsteinn Gunnarsson 5, Árni
Blöndal 2 og Guðmundur Jóhannsson
2.
Dómarar: Sigurður Valgeirsson og
Jóhann Dagur - slakir.
Maður leiksins: Bigir Mikaelsson,
KR.
Valdlmar Grímsson var mjög öruggur í hraðaupphlaupunum. Hér skorar hann eitt af átta mörkum sínum. Guðmundur á
ekki möguleika á að verja, þrátt fyrir góða tilburði. Mynd: E.ÓI.
Handbolti
Martröð hjá Blikum
Körfubolti
Yfirburðir
Valsmanna
Það var ekki mjög gaman að
leik Vals og Breiðabliks í úrvals-
deildinni. Valsmenn unnu yflr-
burðasigur, 88-40, og segja töl-
urnar líklega það sem segja þarf
um muninn milli liðanna.
Það var ljóst strax á fyrstu mín-
útum hvernig leikurinn færi.
Þrátt fyrir að Valsmenn hafi ekki
leikið sérlega vel var sigur þeirra
mjög öruggur.
Það var greinilegt að Vals-
menn notuðu þennan leik sem
æfingu. Hinn nýi þjálfari þeirra,
Steve Bergman skipti leik-
mönnum inná í tíma og ótíma.
Liðið lék þó á köflum þokkalega.
Tómas Holton og Einar Ólafs-
son áttu báðir góðan leik og sama
má segja um Leif Gústafsson.
Hlutskipti Breiðabliks er ekki
auðvelt. Liðið hafnaði í 4. sæti og
kom síðast inn í úrvalsdeildina.
Það var því kannske ekki við
miklu að búast.
Kristján Rafnsson lék þokka-
lega og sama má segja um Sigurð
Bjarnason. -lbe
Hlíöarendi 18. október.
Töpuðu með tíu marka mun fyrir Valsmönnum
Þegar fyrri hálfleikur í leik
Breiðabliks og Vals var hálfnaður
má segja að úrslitin hafi verið
ráðin. Staðan þá, 0-7, Vals-
mönnum í vil. Þrátt fyrir frábæra
markvörslu Guðmundar Hrafn-
kelssonar í síðari hálfleik tókst
Blikum ekki að vinna þennan
mun upp og Valsmenn sigruðu
örugglega, 24-14.
Valsmenn byrjuðu af miklum
krafti og eftir þrettán mínútur var
staðan 0-7. Þá skoruðu Blikarnir
13, en þá tóku Valsmenn við sér.
Þeir breytu stöðunni í 11-21 og
sigurinn í höfn.
Valsmenn þurftu ekki að hafa
mikið fyrir þessum sigri. Liðið
lék vel, vörnin góð og sóknar-
'ikurinn fumlaus. Mörg mark-
anna komu úr hraðaupphlaupum
þar sem þeir Jakob Sigurðsson og
Valdimar Grímsson voru eld-
fljótir fram. Júlíus Jónasson og
Þorbjörn Guðmundsson mynd-
uðu sterka hávörn að hætti blak-
Jónasson.
Blikarnir voru með slakasta
móti í þessum leik. Þeir eiga þó
hrós skilið fyrir að gefast ekki
upp eftir hræðilega byrjun. En
þegar þeir virtust vera komnir
inní leikinn að nýju var eins og
þeir gæfust upp.
Guðmundur Hrafnkelsson var
sá eini í liði Breiðabliks sem lék
eftir getu. Hann varði mjög vel í
síðari hálfleik, 18 skot, þaraf eitt
vítakast. Aðrir voru slakir. Ó.St
Valur-UBK 88-40 (41-20)
4-0, 11-2, 17-3, 21-16, 29-16, 41-
20, 56-22, 67-28, 79-34, 88-40.
Stig Vals: Tómas Holton 18, Leifur
Gústafsson 17, Einar Ólafsson 14,
Svali Björgvinsson 9, Torfi Magnús-
son 8, Páll Arnar 8, Björn Zoega 4,
Jóhann Bjarnason 4, Bárður Eyþórs-
son 4 og Þorvaldur Geirsson 2.
Stig UBK: Kristján Rafnsson 14,
Guðbrandur Stefánsson 10, Sigurður
Bjarnason 8, Kristinn Albertsson 6 og
Björn Hjörleifsson 2.
Dómarar: Gunnar Valgeirsson og
Ómr Scheving - ágætir.
Maður leiksins: Tómas Holton,
Val.
sitt fyrsta mark, en annað mark
þeirra kom á 18. mínútu. Þess má
geta að þegar 26 mínútur voru
liðnar af leiknum var staðan 4-12
og Magnús Magnússon hafði þá
gert öll mörk Breiðabliks!
Fyrri hálfleikurinn var hræði-
legur hjá Blikunum. Björn Jóns-
son lék ekki með liðinu og enginn
virtist getað stjórnað sóknarleik
liðsins. Þeir komust ekkert áfram
gegn firnasterkri vörn Vals og
ekki bætti úr skák að vörn
Breiðabliks var nánast eins og
vængjahurð sem að Valsmenn
gengu auðveldlega í gegnum.
Blikarnir vöknuðu til lifsins og
léku vel í lok fyrri hálfleiks og
upphafi þess síðari. Þeim tókst að
minnka muninn í þrjú mörk, 10-
manna og ótrúlega oft reyndu
Blikarnir að koma boltanum þar
yfir, en án árangurs.
Valdimar og Jakob léku mjög
vel og sama má segja um Júlíus
Digranes 18. október
UBK-Valur 14-24 (7-13)
0-7, 3-8, 4-12, 7-12, 7-13, 10-13,
11-21, 14-24.
Mörk UBK: Hans Guðmundsson
6(1 v), Magnús Magnússon 5, Aðal-
steinn Jónsson 1, T ryggvi T ryggvason
1 og Þórður Daviðsson 1.
Mörk Vals: Valdimar Grímsson 8,
Júlíus Jónasson 5(3v), Jón Kristjáns-
son 4, Jakob Sigurðsson 3, Geir
Sveinsson 2, Theodór Guðfinnsson 1
og Þorbjörn Guðmundsson 1.
Dómarar: Björn Jóhannesson og
Sigurður Baldursson - slakir.
Maður leiksins: Valdimar Gríms-
son, Valur.
Handbolti
Dýrmætur sigur ÍR
Lögðu KR-inga í hörkuleik
Tryggvl Jónsson lék vel með Haukum og hér skorar hann þrátt fyrir nýstár-
lega varnartilburði Þórsara. Mynd: E.ÓI.
Körfubolti
Ömggt hiá Haukum
ÍR-ingar fengu dýrmæt stig
með sigri yfir KR-ingum á sunnu-
dag. Nýliðarnir sigruðu í hörku-
Icik, 20-18.
„Ég er mjög ánægður með
þennan sigur og hann er mjög
mikilvægur, “ sagði Guðmundur
Þórðarson þjálfari við ÍR í sam-
tali við Þjóðviljann eftir leikinn.
-»Ég vona að framhald verði á
þessu hjá okkur. Okkur hefur
gengið illa í fyrstu leikjunum,
vegna reynsluleysis, en ég held að
þetta sé að koma.“
ÍR-ingar byrjuðu vel og fimm
mörk í röð um miðjan fyrri hálf-
leik færðu þeim forskot sem þeir
héldu fram í síðari hálfleik, en í
leikhléi var staðan 9-7.
KR-ingar mættu ákveðnir til
leiks í síðari hálfleik og náðu for-
ystunni. Þá skoruðu ÍR-ingar
þrjú mörk í röð og staðan þá 18-
16. KR-ingar minnkuðu muninn í
eitt mark, en ÍR-ingar, sem voru
þá einum færri, skoruðu tvö
mörk og sigurinn í höfn.
ÍR-ingar léku nokkuð vel í
þessum leik. Sóknarleikurinn
skipulagður, vörnin góð og Hrafn
Margeirsson varði mjög vel. Þá
átti Guðmundur Þórðarson góð-
an leik og einnig Ólafur Gylfa-
son.
KR-ingar áttu góða kafla, en
duttu niður þess á milli. Gísli Fel-
ix Bjarnason varði mjög vel og
Ólafur Lárusson átti góðan leik.
-GG
Seljaskóli 18. október
ÍR-KR 20-18(9-7)
1-0, 2-3, 7-3, 9-5, 9-7, 9-9, 14-12,
15-16, 18-16, 20-17, 20-18.
Mörk ÍR: Frosti Guðlaugsson 4,
Guðmundur Þórðarson 4, Ólafur
Gylfason 4(2v), Orri Bollason 3, Bjarni
Bessason 2, Matthías Matthíasson 2
og Magnús Ólafsson 1.
Mörk KR: Ólafur Lárusson 6, Jó-
hannes Stefánsson 5(2v), Konráð Ol-
avsson 3, Þorsteinn Guðjónsson 1,
Stefán Kristjánsson 1, Guðmundur Al-
bertsson 1 og Sigurður Sveinsson 1.
Dómarar: Hákon Sigurjónsson og
Guðjón Sigurðsson - slakir.
Maður leiksins: Hrafn Margeirs-
son, (R.
Haukar áttu ekki í nokkrum
vandræðum með nýliðana frá
Akureyri, Þórsara. Hafnarfjarð-
ardrengirnir unnu yfirburða-
sigur, 86-59 og hefði sá munur
getað verið mun stærri.
Þórsarar byrjuðu vel og höfðu
forystuna fyrstu mínúturnar, en
svo tóku Haukarnir við sér,
jöfnuðu og tryggðu sér sigur á
stuttum kafla.
Þegar líða tók á leikinn batnaði
leikur Haukanna og að sama
skapi versnaði leikur Þórsara.
Munurinn jókst og snemma útséð
hvorum megin sigurinn hafnaði.
Konráð Óskarsson var besti
maður Þórsara, og Jón Héðins-
son átti góða spretti.
Henning Henningsson lék
mjög vel í liði Hauka, var á fullri
ferð allan tíma. lvar Ásgrímsson
lék einnig mjög vel, einkum þó í
síðari hálfleik. -Ó.St
Hafnarfjörður 17. október
Haukar-Þór 86-59 (44-29)
4-8,14-14,21-14,38-21,44-29,53-
31,61-42, 77-51, 86-59.
Stig Hauka: Ivar Ásgrimsson 19,
Tryggvi Jónsson 12, Henning Henn-
ingsson 12, Reynir Kristjánsson 8,
Ólafur Rafnsson 8, Pálmar Sigurðs-
son 7, Ingimar Jónsson 7, Sveinn
Steinsson 7, Skarphéðinn Eiríksson 4
og Bogi Hjálmtýsson 2.
Stig Þórs: Jón Héðinsson 15, Kon-
ráð Óskarsson 10, Eirikur Sigurðsson
10, Bjarni Össurarson 9, Ingvar Jó-
hansson 5, Guðmundur Björnsson 4,
Jóhann Sigurðsson 4 og Hrafnkell Tul-
iníus 2.
Domarar: Jón Otti Jónsson og Jón
Bender - góðir.
Maður leiksins: Henning Henn-
ingsson, Haukum.
Þriðjudagur 20. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11