Þjóðviljinn - 17.11.1987, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTHR
Handbolti
hjá Víkingum
búnir að jafna sig er þeir mættu
Þór, en léku ekki sérlega vel.
Þórsara virðist skorta úthald.
Þeir standa sig vel framan af, en
þegar líða tekur á leikinn er eins og
þeir gefist upp.
Ömggt
Eftir þrjú töp í röð kom að því að
íslandsmeistarar Víkings unnu
sigur. Þeir sigruðu Þórsara á Akur-
eyri með yfirburðum, 19-27.
Víkingar byrjuðu vel, en Þórsar-
ar voru ekki langt undan. Þórsarar
náðu forystunni um tíma, en þá
tóku Víkingar við sér og leiddu í
hálfleik, 9-12.
f síðari hálfleik juku gestirnir for-
skotið smám saman og sigur þeirra
öruggur.
Víkingum hefur gengið mjög illa
í síðustu leikjum, enda ekki auðvelt
að leika fimm leiki gegn toppliðum
á 14 dögum. Þeir virtust þó vera
Akureyri 14. nóvember
Þór-Víkingur 19-27 (9-12)
0-3,1 -4, 5-4, 7-7, 8-11,9-12,11 -13,
12-15, 13-17, 118, 15-22, 17-23, 19-
27.
Mörk Þórs: Árni Stefánsson 6, Sig-
urpáll Árni Aðalsteinsson 5 (3v), Sig-
urður Pálsson 3, Jóhann Samúelsson
2, Gunnar Gunnarsson 2 og Ólafur
Hilmarsson 1.
Mörk Víkings: Guðmundur Guð-
mundsson 7, Bjarki Sigurðsson 6, Sig-
urður Gunnarsson 5(3v), Karl Þráins-
son 5(2v), Hilmar Sigurgislason 3 og
Árni Friðleifsson 1.
Dómarar: Ólafur Haraldsson og
Stefán Arnaldsson - þokkalegir.
Maður leikslns: Kristján Sig-
mundsson, Víkingi.
Kristján Sigmundsson var bestur
í liði Víkings, varði 18 skot. Bjarki
Sigurðsson og Guðmundur Guð-
mundsson voru sterkir í hornunum
og Einar Jóhannesson var sterkur í
vöminni.
Hjá Þór var Árni Stefánsson
besti maður og Axel Stefánsson
varði ágætlega.
-GG/Akureyri
V-Þýskaland
Ásgeir átti stórleik
Frá Jóni H. Garðarssyni, frótta-
manni Þjóðviljans í V-Þýskalandi:
Ásgeir Sigurvinsson átti frábæ-
aran leik í sínum fyrsta leik eftir
langvarandi meiðsli. Hann fór á
kostum þegar Stuttgart sigraði
Framarar hafa tekið við sér eftir
slæmt gengi í fyrstu leikjum sínum.
Þeir hafa endurheimt lykilmenn og
greinilegt að það skilar sér í mun
betri leik. Þeir unnu sanngjarnan
sigur yfir Stjörnnuni, 21-25 í ágæt-
um leik.
Framarar byrjuðu mjög vel og
Digranes 14. nóvember
Stjarnan-Fram 21 -25 (8-11)
0-3, 3-4, 4-7, 7-8, 8-11, 12-16, 15-
17,15-19,16-20,18-21,20-25,21-25.
Mörk Stjörnunnar: Gylfi Birgisson
6, Sigurjón Guðmundsson 4(3v), Sig-
urður Bjarnason 4(2v), Skúli Gunn-
steinsson 3, Einar Einarsson 2og Her-
mundur Sigmundsson 2(2v).
Mörk Fram: Júlíus Gunnarsson
7(3v), Birgir Sigursson 5, Atli Hilmars-
son 5, Pálmi Jónsson 4, Egill Jóhann-
esson 3(2v) og Hermann Björnsson 1.
Dómarar: Hákon Sigurjónsson og
Guðjón Sigurðsson - góðir.
Maður lelkslns: Guðmundur A.
Jónsson, Fram.
Bayern, 3-0 og átti stærstan hlut í
mörkum Stuttgart.
Stuttgart tók völdin strax í upp-
hafi og það var Ásgeir sem réð á
miðjunni. Hann átti frábærar
sendingar og ein þeirra gaf fyrsta
markið. Hann sendi yfir þveran
náðu strax undirtökunum. Þeir
voru 2-3 mörk yfir lengst af í fyrri
hálfleik, en Stjaman náði að
minnka muninn í eitt mark. Þá kom
góður kafli hjá Fram og að sama
skapi slæmur hjá Stjörnunnni.
Framarar þéttu vömina og Stjarn-
an skoraði ekki mark í tíu mínútur.
f hálfleik var staðan 8-11, Fram í
vil.
Stjarnan náði ekki að vinna upp
forskot Framara í síðari hálfleik.
Framarar léku af skynsemi og
héldu Stjörnunni ávallt í öruggri
fjarlægð.
Guðmundur Arnar Jónsson
varði mjög vel í marki Fram og þeir
Atli Hilmarsson og Birgir Sigurðs-
son léku vel, einkum í síðari hálf-
' leik.
I Hjá Stjömunni var Sigmar
j Þröstur Óskarsson besti maður,
varði mjög vel og Gylfi átti góðan
leik. -GG
völlinn, beint á Scháfer og hann
gaf viðstöðulaust á Klinsmann
sem skoraði með glæsilegri hjól-
hestaspyrnu. Ótrúlegt mark og
70.000 áhorfendur á heimavelli
Stuttgart bókstaflega trylltust.
Fritz Walter bætti öðm marki
við á 71. mínútu og Hartmann
innsiglaði sigurinn á síðustu mín-
útunni, 3-0.
Þetta var fyrsti sigur Stuttgart
yfir Bayem á heimavelli í fjögur
ár og greinilegt að endurkoma
Ásgeirs hafði góða áhrif á liðið.
Það gekk ekki jafnvel hjá hin-
um íslendingaliðunum. Uerding-
en gerði jafntefli við Mannheim,
1-1. Kirschoff náði forystunni
fyrir Uerdingen, en Lippmann
jafnaði fyrir Mannheim.
Kaiserslautern sýndi einn sinn
besta leik, en tapaði samt fyrir
Numberg, 1-2. Allevie kom Ka-
iserslautern yfir, en Stenzel og
Eckstein skomðu fyrir Nurn-
berg. Láms og Atli léku ekki með
liðum sínum og vom ekki á vara-
mannabekkj unum.
Úrslit í Bundesligunni:
Stuttgart-Bayern Munchen..........3-0
Kaiserslautern-Nurnberg...........1-2
Uerdingen-Mannheim...............1-1
Schalke-Köln......................2-2
Karlsruhe-Gladbach................2-2
Hanover-Frankfurt.................1-2
HamburgSV-WerderBremen............0-0
Leverkusen-Dortmund...............2-2
Handbolti
Framarar á batavegi
Kvennahandbolti
Fram heldur toppsætinu
Framarar áttu í mesta basli
með sprækar Víkingsstúlkur.
Þær höfðu þó sigur í lokin 16-14
og halda toppsætinu.
Það var þó Víkingur sem hafði
undirtökin lengst af og hafði þrig-
gja marka forskot um tíma í fyrri
hálfleik.
Framarar tóku við sér í hálfleik
og leiddu með 1-2 mörkum. Vík-
ingum tókst að jafna 14-14, en
Framarar skoruðu tvö síðustu
mörkin.
Mörk Víkings: Inga Lára Þórisdóttir
8(2v), Svava Baldvinsdóttir 3, Eiríka
Ásgrímsdóttir 1, Valdís Birgisdóttir 1
og Sigurrós Björnsdóttir 1.
Mörk Fram: Guðríður Guðjónsdótt-
ir 7(5v), Arna Steinsen 3, Oddný Sig-
steinsdóttir 2, Jóhanna Halldórsdóttir
1, Ingunn Bernódusdóttir 1, Ósk Víð-
isdóttir 1 og Hafdís Guðjónsdóttir 1.
Stjörnustúlkur gefa ekkert
eftir þrátt fyrir að hafa misst Erlu
Rafnsdóttir. Þær sigruðu KR um
helgina, 23-21.
Leikurinn var jafn framan af,
en Stjaman hafði þó fmm-
kvæðið. í hálfleik var staðan 10-
10.
Síðari hálfleikurinn var jafn og
spennandi, en Stjörnustúlkur
vom sterkari á endasprettinum.
Herdís Sigurbergsdóttir og
Ragnheiður Stephensen voru
bestar í liði Stjörnunnar, en Sig-
urbjörg Sigþórsdóttir var allt í
öllu hjá KR.
Mörk Stjörnunnar: Ragnheiður
Stephensen 10(8v), Herdís Sigur-
bergsdóttir 5, Hrund Grétarsdóttir 5,
Anna Guðjónsdóttir 2, Ingibjörg Ant-
onsdóttir 2, Guðný Gunnsteinsdóttir
1 og Drífa Gunnarsdóttir 1.
Mörk KR: Sigurbjörg Sigþórsdóttir
9(2v), Karólína Jónsdóttir 5, Birthe
Jensen 4, Bryndís Harðardóttir 2 og
Nellý Pálsdóttir 1.
Naumt hjá FH
FH vann nauman sigur yfir ná-
grönnumsínum, Haukum, 14-11.
Leikurinn var jafn, en sveiflu-
kenndur.
Leikurinn fór rólega af stað og
bæði lið gerðu mikið af mistökum
í fyrri hálfleik. í leikhléi var stað-
an 6-5, FH í vil.
FH náði yfirhöndinni í síðari
hálfleik og sigraði nokkuð sann-
gjarnt, en naumt.
Mörk FH: Rut Baldursdóttir 6(3v),
Inga Einarsdóttir 3, Eva Baldursdóttir
2, Kristín Pétursdóttir 1, Heiða Ein-
arsdóttir 1 og Sigurborg Einarsdóttir
1.
Mörk Hauka: Hrafnhildur Pálsdóttir
3, Margrét Theodórsdóttir 3(3v),
Ragnhildur Gunnarsdóttir 2, Elva
Guðmundsdóttir 2 og Björg Beni-
diktsdóttir 1.
-MHM
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Vinningstölurnar 14. nóvember 1987.
Heildarvinningsupphæð:
Kr. 5.755.129.-
1. vinningur var kr. 2.883.072.-
og skiptist hann á milli 8 vinningshafa, kr. 360.384,- á mann.
2. vlnningur var kr. 864.675.- og skiptist hann á 675 vinningshafa,
kr. 1.281.- á mann.
3. vlnningur var kr. 2.007.382.- og skiptist á 11.878 vinningshafa,
sem fá 169 krónur hver.
Upplýsingasími:
685111.
W532
Háöinn Gilsson og Geir Sveinsson háðu marga hildi í leik FH og Vals. Hér tekst Geir að stöðva Héðinn, en það gekk ekki of vel. Mynd:E.OI.
Hafnarfjörður 15. nóvember
FH-Valur 19-19 (12-12)
0-1, 1-5, 4-5, 6-7, 7-9, 8-10,10-
12, 12-12, 13-13, 15-14, 15-17,
19-17, 19-19.
Mörk FH: Héðinn Gilsson 9,
Óskar Ármannsson 5(2v), Einar
Hjaltason 3, Þorgils Óttar Mathie-
sen 1 og Gunnar Beinteinsson 1.
Mörk Vals: Jón Kristjánsson 6,
Valdimar Grímsson 6(2v), Júlíus
Jónasson 3, Geir Sveinsson 2 og
Jakob Sigurðsson 1.
Dómarar: Rögnvald Erlingsson
og Gunnar Kjartansson - komust
þokkalega frá mjög erfiðum leik.
Maður leiksins: Héðinn Gils-
son, FH.
Handbolti
Stórmeistarajafntefli
Risarnir FH og Valur skilUu jafnir íhörkuleik í Firðinum:Héðinn fórá kostum og skoraði níu
Það er ekkert vafamál hvaða tvö lið
eru þau bestu á íslandi í dag. FH og
Valur tóku af ailan vafa í spennandi og
skemmtilegum leik í Hafnarfirði á
sunnudag. Rúmlega þúsund áhorfend-
ur fylgdust með viðureign þessara
stórliða, sem endaði með jafntefli, 19-
19.
Það var allt útlit fyrir FH-sigur á
lokamínútunum. Þegar rúmar fjórar
mínútur voru til leiksloka var staðan
19-17, FH-ingum í vil. Valsmenn
jöfnuðu þegar ein og hálf mínúta var
til leiksloka.
FH-ingar héldu boltanum og þegar
níu sekúndur voru til Ieiksloka braust
Héðinn Gilsson í gegn og fékk dæmt
vítakast. Það var Guðjón Arnason
sem fékk það erfiða hlutverk að taka
vítakastið, en hann skaut í stöng og
janftefli staðreynd. Óskar Ármanns-
son hafði reyndar tekið tvö vítaköst
fyrir FH og skorað úr báðum, en hann
meiddist í auga og gat ekki tekið það
síðasta.
Það voru reyndar Valsmenn sem
höfðu undirtökin framan af og byrj-
uðu af miklum krafti. Þegar tíu mínút-
ur voru liðnar af leiknum var staðan
1-5, Valsmönnum í vil. Forskot Vals-
manna var 1-2 mörk allt þartil á síð-
ustu mínútu fyrri hálfleiks. Þá
skoruðu FH-ingar tvö mörk og í hálf-
leik var staðan jöfn, 12-12.
FH-ingar seinir í gang
FH-ingar byrjuðu frekar illa og það
var ekki fyrr en nokkuð var liðið á
leikinn að þeir komust á skrið. Þeim
gekk illa að komast í gegnum sterka
vörn Vals og þegar það tókst sá Einar
Þorðvarðarson yfirleitt við þeim.
Valsmenn léku hinsvegar á als oddi
fyrstu mínúturnar og vörn þeirra var
gífurlega traust. í sókninni gekk allt
upp og þeir virtust ætla að gera út um
leikinn strax á fyrstu mínútunum.
FH-ingar lifnuðu þó við og þéttu
vömina. Sóknarleikur þeima tók
stakkaskiptum og forskot Valsmanna
hvarf.
Síðari hálfleikurinn var jafn framan
jaf, en þegar staðan var 15-14, FH-
ingum i vil, komu þrjú mörk frá Val í
röð. FH-ingar svömðu með fjóram
mörkum í röð, en Valsmenn náðu svo
að jafna á lokamínútunum.
Sanngjörn úrslit
Jafntefli hljóta að teljast sanngjörn
; úrslit í leik sem þessum. Bæði lið léku
mjög vel og þrátt fýrir að töluvert hafi
verið gert af mistöícum, er þetta án efa
besti leikur íslandsmótsins.
FH hefur hingað til verið talið sókn-
[ arlið fyrst og fremst, en Valur varnar-
I lið. Það var ekki að sjá í þessum leik.
Varnir beggja liða voru mjög sterkar
og sóknarleikurinn góður.
Segja má að liðin hafi bætt sig þar
sem þau vora veikari fyrir og þessi
leikur var tvímæalalaust sá besti sem
liðin hafa átt.
Valsmenn voru utan vallar í 12 mín-
útur, en FH-ingar í sex mínútur.
Valsmenn fengu fjögur vítaköst og
skoruðu úr tveimur, en FH-ingar
fengu þrjú vítaköst og skoruðu einnig
úr tveimur.
Stórleikur Héðins
Héðinn Gilsson átti stórleik og
skoraði 9 af 19 mörkum FH-inga.
Hann hefur sjaldan leikið betur, ef
nokkrun tímann og það virtist sama
hvað hann gerði, allt gekk upp. Hann
var FH-ingum mjög mikilvægur, eink-
um þó í síðari hálfleik, en þá skoraði
hann fimm af sjö mörkum FH-inga
m.a. tvö síðustu mörkin.
Þorgils Óttar Mathiesen átti einnig
mjög góðan leik. Hann var sterkur í
vöminni og í sókninni opnaði hann vel
fyrir Héðni. Óskar Ármannsson lék
einnig vel og sama má segja um FH-
iiðið heild. Einar Hjaltason kom á
óvart í fyrri hálfleik. Skoraði þrjú góð
mörk og fiskaði vítakast.
Markverðirnir Bergsveinn Berg-
sveinsson og Magnús Árnason vörðu
vel, samtals 13 skot í leiknum.
Frábær markvarsla
Einar Þorvarðarson var besti maður
Valsmanna. Hann varði mjög vel, alls
um 20 skot. Júlíus Jónasson, helsta
skytta Valsmanna var tekinn úr um-
ferð lengst af, og þá losnaði um Jón
Kristjánsson og hann stóð sig mjög
vel.
Valdimar Grímsson var sterkur í
hominni og eldfljótur í hraðaupp-
hlaup. Geir Sveinsson átti góðan leik.
Batt vörnina saman og var sterkur á
línunni.
Mótið hálfnað
íslandsmótið ef hálfnað og nú verð-
ur gert tæplega tveggja mánaða hlé.
Þessi síðasti leikur fyrri umferðarinn-
ar var tvímæalalaust hápunkturinn og
þessi lið leika einnig síðasta leik fs-
landsmótsins. Þá verður leikið í Vals-
heimilinu eða Laugardalshöll og sá
leikur kemur líklega til með að ráða
úrslitum. -ibe
Viggó Sigurðsson, þjálfari FH:
„Ég held að þetta hafi fyrst og
fremst verið góður leikur sem bauð
uppá allt sem góður handknattleikur
getur boðið uppá. Bæði lið léku vel og
úrslitin voru að mínu mati sanngjörn.
Ég hélt við myndum hafa þetta á
síðustu mínútunum, en okkur vantaði
herslumuninn. Það er þó ótrúlegt hve
18 ára strákar komu vel út gegn
þrautreyndum landsliðsmönnum.
Héðinn átti stórleik, þann besta sem
ég hef séð.
Ég var ekki ánægður með dómar-
ana. Þeir gerðu byrjendamistök og
mér fannst þaö'bitna á okkur.
Við áttum að vinna þetta, en ég er
engu að síður ánægður með mína
menn. Þetta var erfiðasti leikur sem
við höfum leikið og strákamir stóðu
sig vel.
Síðari umferðin verður erfiðari. Lið
eins og Fram, Breiðablik og KR fá
góðan tima til að bæta sig og verða
sterkari. Ég held þó að úrslitin ráðist í
síðasta leiknum gegn Val.“
Stanislav Modrowoki, þjálfari Vals:
„Þetta var góður leikur og úrslitin
fannst mér frekar sanngjörn. Ég hefði
ekki viljað tapa þessum leik, en er
mjög ánægður með stigið sem við
fengum.
Það er ekkert vafamál að þetta eru
tvö sterkustu liðin í dag. Við lékum vel
og FH-ingarnir líka. Einkum þó Héð-
inn og það var erfitt að stöðva hann.
Ég trúi ekki öðru en að áhorfendur
hafi skemmt sér vel og mér fannst
þetta stórskemmtilegur leikur."
Þorgils Óttar Mathiesen, fyrirliði FH:
„Maður er aldrei sáttur við annað
en sigur, en þetta voru sanngjörn úr-
slit.
Héðinn átti stórleik, var í
heimsklassa og menn spila sjaldan svo
vel. Ég hef aldrei séð hann eins góðan,
en það vantaði meira frá öðrum.
Vömin var þó mjög góð.
Mér líst vel á síðari umferðina. Hin
liðin fá að vísu góðan tíma til að undir-
búa sig fyrir síðari umferðina og ég
held það sé ekki rétt að afskrifa Vík-
inga. En hvernig sem fer þá held ég að
úrslitin ráðist ekki fyrr en í síðustu
umferðunum."
Geir Sveinsson, fyrirliði Vals:
„Á heildina litið er ég ánægður. Það
er ekki auðvelt að ná í stig hérna.
Við byrjuðum vel, svo kom slæmur
kafli og Héðinn fór að raða á okkur.
Við fáum á okkur tólf mörk í fyrri
hálfleik sem er of mikið miðað við
fyrri leiki okkar.
Bæði liðin bættu sig, FH í vörn og
við í sókn og leikurinn var skemmti-
legur.
Lið eins og KA, Fram og Víkingur
verða án efa mun sterkari í síðari um-
ferðinni og það kæmi mér ekki á óvart
þó Valur og FH myndu tapa stigum í
síðari umferðinni. En ég held að úr-
slitin ráðist ekki fyrr en í síðustu um-
ferðinni."
Héðinn Gilsson:
„Það var slæmt að missa niður
tveggj a marka forskot og okkur virðist
ekki ganga vel að halda hraðanum.
Þetta var lang erfiðasti leikur okkar og
ég held að úrslitin séu sanngjörn.
Við áttum von á að Valsmenn spil-
uðu flata vöra og vörn þeirra er mjög
sterk. Okkur gekk illa framan af og
það var eins og við værum hræddir, en
svo kom þetta.
Síðari umferðin verður erfið og ég
held að lið eins og Fram, Stjarnan og
ÍR komi til með að stela stigum. En
mótið verður ábyggilega spennandi.“
Handbolti
Gísli stal stiginu
Skoraði af línunni á lokasekúndunum
Það er ekki á hverjum degi sem
markverðir skora og þegar það
gerist þá er það venjulega yfir
þveran völlinn. Gísli Felix
Bjarnason, markvörður KR, er á
annarri skoðun og hann skoraði
jöfnunarmark KR gegn KA, 24-
24. Hann stökk inn af línunni og
skoraði þegar nokkrar sekúndur
voru til leiksloka og tryggði KR
annað stigið.
KA hafði undirtökin framan
af, en munurinn var 2-4 mörk. í
hálfleik var staðan 9-12.
Síðari hálfleikurinn var mjög
jafn og jafnt á flestum tölum.
Lokamínúturnar voru spennandi
og endirinn dramatískur.
KR-ingar voru slakir framan
af, en smátt og smátt skánaði
leikur þeirra. Þeir mega þó teljast
heppnir að ná öðru stiginu. Gísli
Felix Bjarnason varði vel og þeir
Konráð Olavsson og Þorsteinn
Guðjónsson léku vel.
Sóknarleikur KA var góður
framan af, en inná milli komu
slæmir kaflar. Erlingur Kristjáns-
son og Axel Björnsson voru
bestu menn KA og Friðjón Jóns-
son átti einnig góðan leik.
-ÁV
Körfubolti
■ ■ ------------ r
Oruggur
ÍR-ingar sigruðu crkfjendurna
frá því í fyrra, Þórsara, í baráttu-
leik í Seljaskóianum, 97-87. Sigur
ÍK var nokkuð öruggur þrátt fyrir
mjög slæman kafla undir lok
leiksins.
sigur IR
son. Þá átti Björn Steffensen einnig
góðan leik.
Hjá Þór voru Guðmundur
Björnsson og Eiríkur Sigurðsson
bestu menn og Jón Már Héðinsson
lék einnig vel undir lokin. _ibe
LaugardalshöH 14. nóvamber
KR-KA 24-24 (9-12)
1-3, 4-4, 6-8, 6-10, 9-12,11-13, 14-
14,16-16,16-18,19-18,20-19, 20-21,
21-21.
Mörk KR: Guðmundur Albertsson
5, Konráð Olavsson 5, Stefán Krist-
jánsson 4(2v), Þorsteinn Guðjónsson
3, Sigurður Sveinsson 1, Ólatur Lárus-
son 1, Gísli Felix Bjarnason 1 og Jó-
hannes Stefánsson 1 (1 v).
Mörk KA: Friðjón Jónsson 6, Axel
Björnsson 4, Erlingur Kristjánsson
4(1 v), Eggert Tryggvason 3, Guð-
mundur Guðmundsson 2 og Pétur
Bjarnason 2.
Ðómarar: Gunnar Kjartansson og
Rögnvald Erlingsson - sæmilegir.
Maður lelkslns: Gísli Felix Bjarna-
son, KR.
Leikurinn var jafn framan af, en
ÍR-ingar náðu smám saman undir-
tökunum. í hálfleik var staðan 47-
37.
ÍR-ingar juku forskot sitt smám
saman og munurinn varð mestur 23
stig, 90-67. Þá var eins og fR-ingum
finndist nóg komið og í góða stund
"skoruðu þeir ekki stig. Þórsarar
bættu sig hinsvegar og náðu að
minnka muninn í sjö stig, 90-83.
Það var ekki fyrr en þá að ÍR-
ingar vöknuðu upp við vondan
draum og tókst að gera út um
leikinn með góðum kafla á síðustu
mínútunum.
ÍR-ingar léku lengst af ágætlega.
Tveir menn báru af, Karl Guð-
laugsson og Jón Örn Guðmunds-
Seljaskóli 14. nóvember
ÍR-Þór 97-87 (47-37)
8-8,15-10,16-17, 35-25, 42-29,47-
37,59-42,73-52,79-63,90-67,90-83,
97-87.
Stlg ÍR: Karl Guðlaugsson 30, Jón
Örn Guðmundsson 23, Björn Stef-
fensen 21, Vignir Hilmarsson 8, Krist-
inn Jörundsson 5, Björn Leósson 4,
Jóhannes Sveinsson 2, Bragi Reynis-
son 2 og Halldór Hreinsson 2.
Stig Þórs: Guðmundur Bjömsson
19, Eirlkur Sigurðsson 17, Hrafnkell
Tulinius 11, Jón Már Héðinsson 10,
Björn Sveinsson 9, Jóhann Sigurðs-
son 7, Ágúst Guðmundsson 6, Bjami
össurarson 4, Einar Karlsson 2 og
Konráð Óskarsson 2.
Dómarar: Ómar Scheving og Berg-
ur Steingrimsson - ágætir.
Maður lelksins: Karl Guðlaugsson,
IR.
Jón Þórlr Jónsson átti góðan leik með Breiðbliki. Hér er hann kominn framhjá Frosta Guðlaugssyni og skorar.
Mynd:E.OI.
Handbolti
Óheppnir ÍR-ingar!
Töpuðu fyrir Breiðbliki í spennandi leik
Eftir að hafa fengið þrjú stig í
síðustu þremur leikjum á lokasek-
úndunuin kom að því að ÍR-ingar
fengju að kynnst óheppni! Þeir
töpuðu fyrir Breiðbliki í hörkuleik,
24-25, og vantaði aðeins herslu-
muninn uppá að jafna.
í upphafi síðari hálfleiks leit
reyndar allt út fyrir að Breiðablik
myndi vinna öraggan sigur. Staðan
þá 13-19. En ÍR-ingar gáfust ekki
upp og jöfnuðu 24-24 þegar rúm
mínúta var til leiksloka. Hans Guð-
mundsson skoraði 25. mark
Breiðabliks þegar 50 sekúndur
voru eftir. ÍR-ingar héldu boltan-
um og þegar sex sekúndur voru til
leiksloka reyndi Ólafur Gylfason
skot, en Guðmundur Hrafnkelsson
varði vel. ÍR-ingar fengu aukakast
þegar tíminn var útrunninn, en
Guðmundi Þórðarsyni tókst ekki
að leika sama Ieikinn og gegn
Stjömunni.
Fyrri hálfleikurinn var jafn og,
spennandi og ótrúleg stemmning í'
íþróttahúsi Seljaskólans. í hálfleik
var staðan 13-15, Blikum í vil.
Breiðablik virtist hafa leikinn í
hendi sér, en ÍR-ingar gáfust ekki
Seljaskóli 15. nóvember
ÍR-UBK 24-25 (13-15)
f5 1-2, 5-5, 8-9, 8-12, 11-
14, 13-15, 13-19, 17-21,18-
22, 21-24, 24-24, 24-25.
Mörk ÍR: Ólafur Gylfason 6,
Guðmundur Þórðarson 6(6v),
Bjarni Bessason 5, Frosti Guð-
laugsson 2, Finnur Jóhannsson
2, Magnús Ólafsson 2 og Orri
Bollason 1.
Mörk UBK: Hans Guðmunds-
son 7(3v), Björn Jónsson 6, Jón
Þórir Jónsson 4, Aðasteinn Jóns-
son 4, Kristján Halldórsson 2 og
Þórður Davíðsson 1.
Dómarar: Björn Jóhannesson
og Sigurður Baldursson - slakir.
Maður leiksins: Ólafur Gylfa-
son, ÍR.
upp og með þrautseigju náðu þeir
að jafna, en voru óheppnir á loka-
sekúndunum.
Það er ekkert vafamál að ÍR er
„spútniklið" 1. deildar. Fæstir áttu
von á miklu frá nýliðunum, en ann-
að hefur komið á daginn. Liðið er
sterkt og getur staðið í hvaða liði
sem er.
Ólafur Gylfason átti mjög góðan
leik. Sterkur í vöminni og skoraði
góð mörk. Guðmundur Þórðarson
var einnig sterkur í vörninni og
Frosti Guðlaugsson lék vel.
Blikarnir hættu of snemma og
það hafði næstum því kostað þá sig-
urinn. Þeir léku þó ágætlega. Jón
Þórir Jónsson átti góðan leik og stal
boltanum hvað eftir annað. Hans
Guðmundsson og Björn Jónsson
voru drjúgir í sókninni.
IR-ingar geta vel við unað eftir
fyrri umferðina. Þeir eru um miðja
deild og hafa staðið sig vonum
framar.
-Ibe
Þrlðjudagur 17. nóvember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11