Þjóðviljinn - 22.11.1987, Blaðsíða 14
Tónleikasnarl í Casablanca
og alvörusnarl á kassettu 2. des.
Um leið og ég greini hérfrá
útkomu Snarlsins hins síðara,
vil ég notatækifærið og
benda fólki á tónleika með
þremur þeirra sveita er á því
(Snarlinu sumsé) spila. En á
fimmtudaginn kemur mæta
Mosi frændi, Daisy Hill Puppy
Farm og S.H. Draumur í
Casablanca, og skilstmérað
þeir ætli allt að æra. Ég þykist
viss um að Reykvíkingarog
nærsveitarmenn fjölmenni á
þessa samkundu, en allur er
varinn góður og því hvet ég
landsmenn alla til að mæta og
hvetja sína menn. Ég vona
baraaðHerjólfurverðiílagi...
En, og þetta átti nú að vera aðal-
efni þessa pistils, safnspólan
Snarl 2: Veröldin er veimiltíta,
mun koma út annan desember ef
áætlun stenst. Fimmtán hljóm-
sveitir eiga þar tvö lög hver, og
eru það því ekki færri en þrjátíu
lög sem þessa kassettu heiðra
með áveru sinni, ef mér hefur
verið kennt að reikna rétt. En um
slíkt er auðvitað aldrei hægt að
fullyrða á þessum síðustu og
verstu tímum. Á hlið eitt verða
Sogblettir, E-X, Sextán eyrna-
hlífabúðir, Daisy Hill Puppy
Farm, Yesminis Pestis, Óþekkt
andlit, Múzzólíní og Sykurmol-
arnir. Á hlið tvö er það Blátt
áfram sem hefur leik en á eftir
fylgja Bleiku Bastarnir, QTZJÍ
QT2TÍ QTZJÍ, Balli og Blómálf-
arnir, Gult að innan, Mosi frændi
og S.H. Draumur.
Og þessi fimmtán nöfn segja
ekki alla söguna, því færri kom-
ust að en vildu. Það gæti því orðið
um Snarl 3 að ræða, en skv. áreið-
anlegum upplýsingum yrði þar
um LP-plötu að ræða ef að líkum
lætur ... Semsagt, snarl á Ieiðinni
- fáið ykkur endilega að
smakka ...
upphafi
ÞegarDóra
fóraðslóra
ogeydditíma
íaðglíma
viðaðríma
ígegnum síma
þá ég vildi
aðhúnskyldi
hættaþessu
faraímessu
berjaíklessu
Ijóta skessu
semaðvildi
aðégskyldi
giftastsér
en ekkiþér
ómínkæra
kærustmæra
égvileifara
fráþérbara
elskubesta
ástin mesta
sem kannt að ríma
ígegnumsíma
ígegnum tíma
múrinn
bakvið... hesthúsið
Bjartmar skoðar heiminn og glottir við tönn.
Bjartmar Guðlaugsson:
í fylgd með fullorðnum
Bjartmar hefur á undanförnum
árum veriö aö hasla sér völl sem
einn af okkar albestu eitur-
spaugurum og textasmiðum. í
þessari nýju plötu sinni sýnir
hann landsmönnum rækilega
fram á að hann er á réttri leið, og
meira að segja langt kominn. Það
er sama hvar gripið er niður, alls
staðar er hann jafn meinfyndinn
og vandaður í framreiðslu sinni á
þessari fyndni sinni. Húmorinn
liggur svona misjafnlega Ijós
fyrir, en skín þó alls staðar í gegn,
Týnda kynslóðin 1 og 2 og
Járnkallinn, hljóta að teljast púra
grín með illa duldum meiningum,
á meðan titillagið og Sánd of
mjúsík eru dæmi um púra ádeilu
með illa duldum húmor. Hitt er
svo alls staðar þarna á milli. Það
virðist nokkuð sama hvar
Bjartmar leitar fanga, aflinn er
alltaf góður og vel frá honum
gengið í neytendapakkningarn-
ar. Þetta á við um textana. Söng-
urinn er svo annað mál og lítið
leiðinlegra. Hann syngur alveg
hreint stórskemmtilega strákur-
inn. Kallinn. Hmmm. Jæja. En
syo eru það lögin. Þar hefur hon-
um ekki farið ýkja mikið fram frá
því síðast. En þetta er svo sem
ágætt til síns brúks, sem er að
koma hinum stórgóðu textum til
þjóðarinnar. Textum sem jafnvel
gætu fengið löngu látna spindil-
kúlunasista til að brosa, svo ég
steli nú aðeinsfrá B.G. (ekki með
Ingibjörgu). En það sakaði þó
ekki að leita í smiðju annarra,
eins og dæmið með hinum
tveimur BéGéum sannaði. í fylgd
með fullorðnum er bara - ja -
svona - bara alveg helv...
skemmtileg ...
Stingur
stóri
Nothing Like The Sun heitir
annað sólóafkvæmi söngvarans
góðkunna úr söngsveitinni Pol-
ice, sem gerði garðinn frægan í
Dölunum hér um árið. Það er
skemmst frá því að segja að
þetta er hinn ágætasti gripur í alla
staði. Falleg mynd af stráknum á
umslaginu, sögukorn um hvert
lag á bakhlið umslagsins, allir
textar fylgja á vönduðu textablaði
með fleiri myndum af Sting, og
svo má ekki gleyma lögunum tólf
en þau eru semsé líka ágæt.
Þessum tólf lögum er dreift á
tvær plötur og er það vel. Sumir
hefðu sjálfsagt sparað sér aurinn
og þrykkt þessu öllu á eitt og
sama plastið, en þar sem flest
lögin eru nokkuð löng (frá 41/2
uppí 7 mín.) hlyti það að hafa
komið niður á tóngæðum. Og
slíkt er náttúrlega óhæft þegar
um vandaða vöru er að ræða.
Platan eröll í rólegri kantinum, þó
stundum komi smásprettir inná
milli, til að vekja þá dottgjörnustu
meðal hlustenda. Spileríið er
eins og best verður á kosið, hvort
sem það er hjá fastagenginu eða
gestaspilurunum. Á meðal hinna
síðarnefndu eru þeir kollegarnir
Clapton og Knopfler, en þeir
leiða saman strengi sína i einu
sterkasta lagi plötunnar, They
dance alone, sem fjallar um sam-
viskufanga og konur þeirra,
mæður og dætur, í myrkviðum
Pinochet-stjórnarinnar.
Honum (Sting) liggur greini-
lega ýmislegt á hjarta, en það of-
keyrir þó hvergi tónlistina, hún er
númer eitt og þrjú á gripnum,
boðskapurinn kemur svo þar á
milli. Hún fer í sparihilluna þessi.
Sting: Vönduð vara.
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 22. nóvember 1987 .
UndraheimurAusturlanda
fyrir aðeins 345 þúsund 934
krónurog 50 aura! Einhvern
veginn finnst mér þessi setn-
ing viðeigandi byrjun á þess-
arigrein. Eðaviðtali. Eigin-
lega er þessi grein, þetta við-
tal, hvorki fugl né fiskur, enda
ekki til þess stofnað. En
meiningin með þessu ersem-
sagt að fræða lesendur örlítið
um hljómsveit eina, eigi óá-
gæta, sem af einhverjum or-
sökum nefnist mamma var
rússi. Af hverju?
Jú, sjáðu til, við erum á mála
hjá Rússum. Þessi hljómsveit er
upphafið að byltingunni á ís-
landi, okkar hlutverk er að grafa
undan ríkjandi hefðum í íslensku
þjóðfélagi, skapa ringulreið og
óvissu og undirbúa þannig jarð-
veginn fyrir það sem koma skal.
Þabblaþa. En þessa sveit skipa
sjö misfríð ungmenni, fimm af
hinu svokallaða sterkara kyni og
tvær yngismeyjar, svona til and-
litslyftingar og dægrastyttingar.
Þær eru sérstaklega nauðsynlegar
á tónleikum að mati blaðamanns,
því ekki get ég ímyndað mér að
nokkur vilji horfa á strákana,
jafn ljótir og þeir eru (sjá mynd).
Annars eru þetta svo sem engin
unglömb. Ekkert nema gamlir
seppar. Fjórir Fræbblar og einn
úr Q4U. Og svo auðvitað kven-
fólkið. Þær eru alsaklausar af því
að hafa nokkuð komið nálægt
svona vitleysu fyrr og telst þetta
því fyrsta brot, en eins og lands-
menn vita er jafnan tekið vægar á
fólki við þær kringumstæður. Og
hvað kemur til? Að þeir eru
Af rússneskum mæðrum
komnir af stað aftur? Þrá eftir
fomri frægð? Eitthvað svoleiðis.
Allir svakalegir exhibisjónistar
inn við beinið (slíka menn kallaði
Flosi Qlafsson sýnifíkla hér einu
sinni). Annars eru þetta mest
hugmyndir sem hafa verið að
gerjast með okkur allan tímann
síðan við lögðumst í dvala. Allt
troðfullt af hugmyndum, af
hverju bara 7 lög? Spyr ég. Of-
boðslega grimmur. Negia þá. Af
hverju? Spyrja þeir. Undrandi.
Saklausir. Það bara hefur ekki
unnist tími til að vinna úr þeim
öllum. Og það er dýrt að gera
plötu. Þú verður að athuga það
væni minn (föðurlegur um-
hyggjutónn) að við erum vinn-
andi menn og ábyrgðarfullir fjöl-
skyldufeður. Svona flestir alla-
vega. Stebbi glottir og skálar við
aðra meðlimi sveitarinnar. Og
hvemig tónlist skyldi þetta svo
vera? Góð. Alveg rosalega góð.
Það besta á markaðnum í dag,
hiklaust. Eitthvað annað en allt
hitt. Við erum að gera skurk í
tónlistarlífi íslendinga. Er ekki
nóg að gera það einu sinni? Nei!
Það þarf að hreinsa til. Þetta er
bylting maður. Það má segja að
við séum í svipaðri aðstöðu nú og
hér áður fyrr. Það vantar eitthvað
nýtt ög ferskt. Það vantar- okk-
ur! Og við ætlum að yfirtaka tón-
listarstefnu borgarinnar. Svar við
Qla Laufdal. Það verður engum
vært nema með okkar samþykki.
Og það þarf svona menn eins og
okkur til að opna augun á liðinu.
Ef þetta væri almennileg Davíðs-
laus borg, þá væri ástandið kann-
ski skárra. Það vantar alla að-
stöðu fyrir bönd að æfa sig, einn
góðan skúr með 10-20 lókölum.
Og tónleikastað í miðbæinn. Það
þýðir ekki að halda tónleika uppá
fjöllum svo að enginn kemst
heim. Við ætlum að leysa þetta
mál. Það er ofarlega á dagskránni
að hefja rekstur á tónleikahöll og
leggja þangað járnbrautarteina.
Flytja liðið bara með lest og hafa
rimla í gluggunum. Þá þarf ekki
að brjóta fleiri strætóa. Einfald-
ast væri auðvitað að hafa þetta í
miðbænum. Reiðhöll á Austur-
völl! Það er okkar mottó. En
þrátt fyrir þessar stóryrtu yfirlýs-
ingar virðast þetta hinir vænstu
piltar. Mér tókst að tína til þetta
sem birtist hér að ofan svona til
að þeir falli inní myndina sem ég
gerði mér af þeim fyrirfram. Ég
meina, þetta voru nú pönkarar
hér í den. Þeir alverstu. Eða
bestu. En núna eru þetta bara
fjölskyldumenn með skyldur
sínar á hreinu. Nema náttúrlega
Stebbi. Hann sagði svo sem ýmis-
legt krassandi. En ég má því mið-
ur ekki hafa það eftir. Off the
record, skiljiði. Og svo yrði ég
ábyggilega rekinn ef ég gerði til-
raun til að birta það. En þeir
sögðu þó þetta sem á undan er
gengið. En þeir hafa stillst. Það
hefur tónlist þeirra líka. Ekki svo
að skilja að hér sé eitthvert auð-
melt froðupopp á ferðinni. En
áferðin er mýkri en áður. Þeir eru
líka orðnir eitthvað mýkri. Kann-
ski við séum bara að verða gaml-
ir. Segja þeir. Kannski, hugsa ég,
efins. En þeir hafa þá elst vel.
Platan kom út á föstudaginn.
Vonandi. Tónleikahald byrjar í
desember. Vonandi. mamma var
rússi. Ja hver andsk ... Kinda-
kjötið á lága verðinu. Kaupfé-
lögin.
Clannad:
Sirius
írska sveitin Clannad hefur átt
á brattann að sækja meðal ís-
lenskra plötukaupenda af ein-
hverjum ástæðum. Kannski hef-
ur hún bara ekki verið nógu vel
auglýst. Þessi staðreynd er ill-
skiljanleg þar sem hér er um af-
bragðssveit að ræða. Á þessari
plötu virðast þjóðlagaáhrifin
eitthvað hafa minnkað, þó enn sé
hin gamla írska þjóðlagahefð ríkj-
andi að mestu. Þau hafa þó
poppast eitthvað, til dæmis ber
nú mun meira á hljómborðum en
áður. Þetta virðist þó ekki koma
að sök og falla nokkuð vel inn í
heildarmyndina. Þó finnst mér
Clannad alltaf standa sig best í
allra rólegustu lögunum (sbr. In A
Lifetime sem einhverjir ættu að
kannast við frá því f fyrra), og er
lagið Skellig kannski bestadæm-
ið um það. Nokkrir aukamenn
koma við sögu á þessari plötu, og
nægir þar að nefna þá Steve
Perry og Bruce Hornsby, sem
báðir skila hlutverkum sínum
með sóma. Gæðagripur.
Rúnar Þór: Upp og ofan.
Rúnar Þór: Gísli
Ég settist niður í hrúgu af for-
dómum, sem ég hafði komið mér
upp í tilefni þess að nú ætlaði ég
að fara að hlusta á þessa tilteknu
skífu. Þeir hrundu sem betur fer
flestir undan mínum svínslega
þunga, þannig að eftir stóð, vona
ég, nokkurn veginn fordómalaus
gagnrýni. Það er skemmst frá því
að segja að fæstir textarnir þola
að mikið sé í þá rýnt. Bragfræði-
legar villur, smekkleysur og
málmisnotkun eru ekki sjaldséðir
hlutir á þeim bænum. Þó eru
sæmilegustu hlutir inná milli svo-
sem textinn Ertu í takt. Jónas
Friðgeir á tvo texta á plötunni og
er annar þeirra; Qkomin, þolan-
legur, en Astin, hinn texti Jónasar
er hin mesta hrákasmíð og
reyndar er sú meðferö sem hinn
gamli Stones slagari fær þar hin
mesta hneisa fyrir alla viðkom-
andi. Textinn er aö vísu ritaður
skv. kúnstarinnar reglum, stuðl-
ar, höfuðstafir og rím "er allt á sín-
um stað, en innihaldið... jæja,
þar er best að fjölyrða ekki um
það. Útsetningin er svo algert
morð. Og lagið er ekki eftir Rol-
ling Stones svo sem sagt er á
textablaði, heldur Arthur Alex-
ander. Stones gerðu þaö frægt,
en það er allt önnur Ella. En þrátt
fyrir hina ýmsustu misbresti í
textagerðinni er Rúnar alls ekki
afleitt tónskáld, svona á réttan
mælikvarða. Lögin eru flest hin
ágætustu, og flutningur þeirra
einnig, enda góðir menn að verki.
Annað sem er upp og ofan er
söngur Rúnars. Hann hefur dim-
ma og dulítið seiðandi rödd, sem
oftast virkar ágætlega, en það er
eins og hann ætli stundum að
verða meira seiðandi en hann
ræður við, dregur seimin og eyði-
leggur áhrifin. Vantar smá stjórn
og aga... Hmmm. Ekkert spes,
en alltí lagi - nema textar...
Fjárlaga- og hagsýslu-
stofnun óskar að
ráða starfsmann til
rekstrar- og stjórn-
unarráðgjafar
Starfiö felst í vinnu aö umbótum í ríkisrekstri,
einkum með ráðgjöf og aðstoð við stjórnendur
ríkisstofnana.
Starfið krefst háskólamenntunar og reynslu á
sviði stjórnunar og reksturs. Æskilegt er að um-
sækjendur hafi þekkingu á opinberum rekstri.
Umsækjendur þurfa að geta starfað sjálfstætt,
eiga gott með samskipti og sýna frumkvæði í
starfi.
Starfið býður upp á fjölþætta reyslu af ríkisrekstri
og tækifæri til að kynnast nýjungum í stjórnun og
rekstri.
Umsóknarfresturertil 15. des. nk. Nánari upplýs-
ingar ásamt starfslýsingu fást hjá deildarstjóra
hagsýsludeildar fjárlaga- og hagsýslustofnunar,
Arnarhvoli. Þangað skal skila umsóknum ásamt
helstu persónulegum upplýsingum.
Fjárlaga- og hagsýslustofnun er ætlað að vinna
að alhliða hagræðingu í ríkiskerfinu. Sérstök
áhersla er lögð á að aðstoða stjórnendur og
starfsmenn ríkisstofnana við að gera reksturinn
árangursríkan og hagkvæman. í tengslum við
stofnunina er starfrækt Stjórnsýslufræðsla ríkis-
ins sem stendur fyrir fjölbreyttum námskeiðum
um stjórnun og rekstur ríkisstofnana.
Barnabílstóll
- bílpúði - belti!
Notar barnið þitt
öryggisbúnað í bílnum?
yUMFERÐAR
RÁÐ
Sunnudagur 22. nóvember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 15