Þjóðviljinn - 01.12.1987, Side 10
* >
IÞROTTIR
V-Þýskaland
Frá Jóni H. Garðarssyni, fréttamanni
Þjóðviljans í V-Þýskalandi:
Stuttgart gaf Homburg annað
stigið í leik liðanna í Bundesligunni.
Stuttgart hafði mikla yfirburðí með
Asgeir Sigurvinsson með besta
mann, en þegar staðan var 2-1 lagð-
ist liðið í vörn og Homburg náði að
jafna í 87. mínútu.
Homburg náði forystunni með
marki frá Stickroth á 30. mínútu,
en Fritz Walter jafnaði fyrir Stutt-
gart skömmu síðar. Mauritz
Gaudino náði forystunni fyrir
Stuttgart um miðjan síðari hálfleik
og eftir það lagði Stuttgart höfuð
áherslu á vörnina. Það dugði ekki
því Michael Bláttel jafnaði fyrir
Homburg á 87. mínútu.
Bremen missti af toppsætinu til
Kölnar en sigraði Hanover, 1-0.
Leikmenn Bremen voru greinilega
þreyttir, en það var Karl Heinz Ri-
edle sem tryggði Bremen sigur á 84.
mínútu.
Bayern Munchen fékk skell á
heimavelli, 1-3, gegn Dortmund
sem virðist hafa tak á meisturun-
um. Daniel Simmes og Ander-
brugge náðu forystunni fyrir Dort-
mund, en Klaus Augenthaler jafn-
aði fyrir Bayern á síðustu mínútu
fyrri hálfleiks. Flestir voru á því að
Bayern myndi sigra eins og venju-
lega, 3-2, en Simmes gerði þær von-
ir að engu með þriðja marki Dort-
mund í síðari hálfleik.
Kaiserslautern kom heldur betur
á óvart með sigri yfir Frankfurt á
útivelli. Nýi þjálfarinn Stabel virð-
ist hafa meira álit á Lárusi Guðm-
undssyni en Borgartz sem var rek-
inn fyrir skömmu. Lárus kom inná
þegar tíu mínútur voru til leiksloka,
en náði ekki að setja marki sitt á
leikinn. Það voru Frank Hartmann
og Jurgen Lutz sem skoruðu fyrir
Kaiserslautern.
Þetta var fyrsti sigur iiðsins á úti-
velli, en liðið hafði leikið níu leiki
án þess að fá eitt einasta stig.
Annar útisigur sem kom á óvart
var stórsigur Leverkusen yfir
Mannheim, 1-4. Það var Brasilíu-
maðurinn Tita sem var besti maður
vallarins. Christian Schreier náði
forystunni fyrir Leverkusen, en
Buhrer jafnaði fyrir Mannheim. Þá
tók Tita við sér og skoraði þrennu í
síðari hálfleik. Leverkusen lék án
sex fastamanna.
Morten Olsen skoraði fyrsta
mark sitt fyrir Köln er liðið sigraði
Karlsruhe, 4-0. Þetta var jafnframt
1.000 mark Kölnar á heimavelli frá
því liðið hóf keppni. Armin Görtz,
Mathias Baranowski og Pierre Litt-
barski skoruðu hin mörk Kölnar.
Núrnberg fór illa með Uerdingen
og sigraði 3-1. Stefan Kuntz náði
forystunni fyrir Uerdingen. Hann
sá að markvörðurinn var of framar-
lega og skoraði að löngu færi, yfir
markvörðinn. Það hrökk þó
skammt því Dieter Eckstein
skoraði þrennu fyrir Núrnberg.
Úrslit i Bundesligunni:
2-2
Bayern Munchen-Dortmund 1-3
Mannheím-Leverkusen... 1-4
3-1
Gladbach-Bochum.. 3-0
Frankfurt-Kaiserslautern 0-2
Werder Bremen-Hanover.... 1-0
1-0
Köln Karlsruhe. 4-0
Köln . 18 11 6 1 32-11 28
Bremen . 17 12 4 1 30-9 28
Bayern . 18 13 0 5 42-25 26
Gladbach . 18 11 2 5 37-26 24
Nurnberg . 18 8 6 4 29-16 22
Stuttgart . 18 8 5 5 41-27 21
Frankfurt . 18 7 3 8 30-28 17
Leverkusen . 18 5 7 6 25-26 17
HamburgSV... . 18 6 5 7 32-40 17
Karlsruhe . 18 6 4 8 23-35 16
Mannheim . 18 4 7 7 21-30 15
Dortmund . 17 4 5 8 23-29 13
Uerdingen . 18 5 3 10 23-31 13
Hanover . 18 5 3 10 24-33 13
Kaiserslaut . 18 5 3 10 27-37 13
Schalke . 17 5 3 9 24-37 13
Homburg . 18 3 7 8 24-37 13
Bochum . 17 3 5 9 22-32 11
Brasilíumaöurinn Tita kom sá og sigraði í leik Lverkusen gegn Mannheim.
Hann skoraði þrennu fyrir Leverkusen, sem lék án sex fastamanna. Hér reynir
hann skot úr heldur þröngu færi.
Vinningstölurnar 28. nóvember 1987.
Heildarvinningsupphæð: Kr. 5.293.995.-
1. vinningur var kr. 2.650.794.- og skiptist hann á milli 3ja
vinningshafa, kr. 883.598.- á mann.
2. vinningur var kr. 793.102.- og skiptist hann á 257 vinn-
ingshafa, kr. 3.086,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.850.099.- og skiptist á 7.741 vinn-
ingshafa, sem fá 239 krónur hver.
Upplýsingasími:
685111.
ÞeirsamherjarnirfvarWebsterogTryggviJónssoneruekkisérlegasamtakaá þessari mynd. Þeir höfðu þó sigur yfir
ÍR-ingum. MyndrE.ÓI. Körfubolti
Lítið fjör í Haukasigri
Haukar sigruðu IR íslökum leik
Það var sama uppá teningnum í
leik IR og Hauka og svo mörgum
úrvalsdeildarleikjum að undan-
förnu. Hraðinn var mikill, en
hittni fyrir neðan allar hellur.
Haukar sigruðu 67-73.
Leikurinn var jafn framan af,
en Haukar höfðu þó lengst af
undirtökin. f hálfleik var staðan
32-31, ÍR-ingum í vil.
Haukar byrjuðu mjög vel í
síðari hálfleik og náðu strax yfir-
höndinni. Munurinn varð mestu
tólf stig, en ÍR-ingar gáfust ekki
upp að náðu að minnka muninn í
tvö stig, 59-61. Haukar tóku líf-
inu með ró síðustu mínúturnar og
léku af skynsemi. ÍR-ingar fóru
hinsvegar illa með sóknir sínar og
sigur Hauka nokkuð öruggur.
Þetta var slakur leikur hjá báð-
um liðum. Haukar voru þó
ákveðnari og það réð úrslitum.
Nafnarnir ívar Ásgrímsson og
ívar Webster voru bestu menn
Seljaskóli 28. nóvember
ÍR-Haukar 67-73 (32-31)
7-7, 9-16, 22-22, 30-26, 32-31,36-
45,41-51,45-57,49-59, 55-59,59-61
64-67, 64-73, 67-73.
Stig ÍR : Jón Örn Guðmundsson 21,
Karl Guðlaugsson 17, Björn Steffen-
sen 11, Björn Leósson 10, Jóhannes
Sveinsson 4 og Halldór Hreinsson 4.
Stig Hauka: Ivar Ásgrímsson 19,
Tryggvi Jómsson 16, Ivar Webster 16.
Henning Henningsson 9, Ingimar
Jónsson 4, Sveinn Steinsson 4 og
Pálmar Sigurðsson 3.
Dómarar: Kristinn Albertsson og
Bergur Steingrímsson - þokkalegir.
Maður leiksins: ívar Ásgrímsson,
Haukum.
Hauka. fvar Ásgrímsson hefur
tekið miklum framförum og
skemmtilegur leikmaður og ívar
Webster er sem tröll í vörn
Hauka. Tryggvi Jónsson lék
einnig vel, en Pálmar Sigurðsson
var lítið með vegna meiðsla.
Þeir Jón Örn Guðmundsson og
Karl Guðlaugsson voru sem fyrr
atkvæðamestir í liði ÍR. Björn
Steffensen átti einnig ágætan
leik. _ibe
Spánn
Real eykur forskotið
Barcelona sigraði ogAtletico gerði jafn-
tefli
Real Madrid jók forskot sitt að
nýju í 1. deildinni á Spáni. Liðið
virðist vera búið að ná sér eftir
skell gegn Atletico Madrid, 0-4 og
sigraði nú Real Mallorca, 3-1.
Sigur Real Madrid hefði getað
verið mun stærri, en Eduardo
Delza, landsliðsmarkvörður Ur-
uguay hélt Mallorca á floti með
frábærri markvörslu.
Það var Manuel Sanchis sem
náði forystunni fyrir Madrid og
Hugo Sanchez bætti öðru marki
við skömmu síðar. Martin Vazq-
uez skoraði svo síðasta mark
Real og sigurinn öruggur, þrátt
fyrir að Faddi Hassan næði að
minnka muninn fyrir Mallorca á
síðustu mínútunni.
Barcelona, sem var í næst
neðsta sæti framan af, er nú kom-
ið í 8. sæti og vann góðan sigur
yfir Cadiz, 3-1. Það var vestur-
þýski landsliðsmaðurinn Berns
Schuster sem var maðurinn á
bakvið sigur Barcelona.
Cristobal Parralo náði foryst-
unni fyrir Barcelona og Ramon
Caldere bætti öðru marki við eftir
langa sendingu frá Schuster. Fra-
ncisco Carrasco gulltryggði sigur
Barcelona, en Andres Fernandes
svaraði fyrir Cadiz rétt fyrir leiks-
lok.
Atletico Madrid mátti þakka
fyrir jafntefli gegn Real Zarag-
oza. Juan Senor náði forystunni
fyrir Zaragoza, en Julio Salinas
svaraði með tveimur mörkum
fyrir Atletico. Annað þeirra var
þó sjálfsmark og Roberto Lopez
bjargaði öðru stiginu fyrir Atlet-
ico.
Úrsllt I 1. deild:
Barcelona-Cadiz...................3-1
Real Murcia-Real Betis.............2-0
Real Sociedad-Celta................3-2
Real Vallodolid-Logrones...........1-0
Real Madrid-Real Mallorca.........3-1
Sporting-Sabadell..................3-0
RealZaragoza-AtleticoMadrid.......2-2
Osasuna-AthleticBilbao............3-1
Sevilla-Espanol....................2-2
Las Palmas-Valencia...............2-1
Real Madrid.... 12 10 1 1 37-7 21
Atl.Madrid..... 12 7 3 2 19-7 17
RealSociedad.. 12 6 3 3 20-9 15
Celta.......... 12 5 4 3 16-11 14
Osasuna........ 12 5 4 3 13-9 14
Real Vallod.... 12 5 4 3 8-9 14
J 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Sviss
St.Gallen-Young Boys Neuchatel Xamax-Lausanne 2-0 3-0 2-2
0-4
Bellinzona-Grasshopper 0-1
Sion-Aarau 1-1
Xamax 20 11 5 4 49-27 27
Grasshopper.... 20 10 6 4 25-15 26
Aarau 20 9 7 4 27-18 25
Young Boys 20 5 12 3 32-27 22
Lausanne 20 7 7 6 35-35 21
Servette 20 7 7 6 29-29 21
St.Gallen 20 8 5 7 23-23 21
Sion 20 7 6 7 37-32 20
Luzern 20 5 9 6 25-29 19
Holland
PecZwolle-FortunaSittard.. Willem-Volendam DS 79-Den Bosch Sparta-PSV Eindhoven RodaJC-Twente 0-0 3-0 1-4 0-2 0-1
AZAIkmaar-Utrecht 3-1
Groningen-Den Haag.... 2-1
Haarlem-Ajax 0-0
PSV 14 14 0 0 57-12 28
Ajax 15 10 2 3 40-24 22
Feyenoord 14 8 3 3 31-22 19
Fortuna 16 7 5 4 30-23 198
Willem 16 7 3 6 28-23 17
Portúgal
Porto-Chaves..................3-1
Boavista-Panafiel.............0-0
Setubal-Sporting..............2-1
Guimares-Rio Ave..............4-1
Belenenses-Espinho............0-0
Varzim-Salgueiros.............1-0
Cocilha-Elvas.................1-2
Academica-Braga...............2-1
Portimonense-Maritimo.........1-1
Benfica-Farense...............2-2
Porto........
Benfica......
Boavista.....
Maritimo.....
Setubal............12 6 3 3 21-17 15
Stuttgart gaf
annað stigið