Þjóðviljinn - 01.12.1987, Síða 14
hSRARIK
^ RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftir-
farandi:
RARIK-87010: Innlend stálsmíði. Háspennulín-
ur.
Opnunardagur: Mánudagur 14. desember 1987,
kl. 14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyriropn-
unartíma og verða þau opnuð a sama stað að
viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns-
veitnaríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, frá
og með mánudegi 29. nóvember 1987 og kosta
kr. 300,- hvert eintak.
Reykjavík 25. nóvember 1987.
Rafmagnsveitur ríkisins.
IÐNSKÓUNN í REYKJAVÍK
Innritun á vorönn 1988
Innritun stendur nú yfir og henni lýkur 5. desemb-
er.
Þetta nám er í boði:
I. Dagnám:
1. Samningabundið iðnnám.
2. Grunndeild málmiðna
3. Grunndeild tréiðna
4. Grunndeild rafiðna
5. Framhaldsdeild rafvirkja/rafvélvirkja
6. Framhaldsdeild rafeindavirkja
7. Framhaldsdeild bifvélavirkja
8. Framhaldsdeild hárgreiðslu
9. Framhaldsdeild húsasmíði
10. Fornám
11. Almennt nám
12. Tækniteiknun
13. Rafsuða
14. Tölvubraut
15. Tæknibraut (lýkur með stúdentsprófi)
II. Kvöldnám:
1. Meistaranám (húsasmíði, múraraiðn og pipu-
lögn).
2. Öldungadeild
a) Grunndeild rafiðna
b.) Framhaldsdeild í rafeindavirkjun
Fyrri umsóknir, sem ekki hafa verið staðfestar
með skólagjöidum, þarf að endurnýja.
Framhaldsdeildanemendur sem hyggja á nám á
vorönn verða að staðfesta það með skólagjöld-
um fyrir 5. des. nk.
Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu
skólans og hjá námsráðgjöfum. Innritun í ein-
stakar deildir er með fyrirvara um næga þátttöku.
Skrifstofa skólans er opin virka daga kl. 9.30-
15.00.
Dagheimili við
Suðurlandsbraut
í Steinahlíð bráðvantar okkur fóstrur til starfa,
þ.e. yfirfóstru, deildarfóstru og í stuðningsstöðu.
Upplýsingar hjá Lonu eða Guðrúnu í síma 33280.
##■----7------7-------------------
FELAGSMALASTOFNUN
\ 1f\ REYKJAVÍKURBORGAR
Auglýsing
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar, ellimála-
deild, Tjarnargötu 11.
Heimilisaðstoð við
Sambýli aldraðra.
Heimilisaðstoð óskast strax 4-6 tíma á dag við
nýstofnað sambýli fyrir 3 ellilífeyrisþega í vestur-
bæ.
Nánari upplýsingar gefnar í síma 621595.
Anna eða Björn.
ERLENDAR FRÉTTIR
Rómanska Ameríka
Dregið úr áhrifum
Bandaríkjasfjómar
Fundi forseta átta ríkja Róm-
önsku Ameríku lauk í bænum
Acapulco í Mexíkó á sunnudag.
Öll störf fundarins báru það með
sér að leiðtogarnir eru áfram um
að hrista af sér slyðruorðið og
taka afstöðu til mála án tillits til
viðhorfa ráðamanna í Washing-
ton hverju sinni.
í lokaályktun fundarins var
hvergi minnst á Bandaríkin. En
þar var þeim mun meira rætt um
nauðsyn þess að ríkin sunnan
landamæra þeirra stórykju efna-
hagslega og pólitíska samvinnu
sína. Engum blandast þó hugur
um að einmitt sú stefna sé banda-
rískum stjórnvöldum mikill þyrn-
ir í augum þar eð hún myndi
draga stórlega úr áhrifavaldi
þeirra í álfunni ef leiðtogarnir
láta verða alvöru úr því að hrinda
henni í framkvæmd.
Þetta var í fyrsta skipti í sög-
unni að leiðtogafundur ríkja
Rómönsku Ameríku er haldinn
án þess að Bandaríkjastjórn eigi
þar fulltrúa og af umræðum á
honum má marka að ráðamenn í
suðri eru mjög óánægðir með
stefnuna sem Reagan og félagar
reka í málefnum Nicaragua og
Kúbu.
Það hefur verið hornsteinn
stefnu Bandaríkjamanna í mál-
um Rómönsku Ameríku að troða
illsakir við Kúbani allar götur frá
því Fidel Castro og félagar unnu
hernaðarsigur á einræðisstjórn
Battistas árið 1959. Þeim tókst að
fá fulltrúa á þingi Samtaka Amer-
íkuríkja til að fallast á brottvikn-
ingu Kúbu úr samtökunum árið
1962.
í Acapulco var það á allra
vörum að ekki væri eingöngu
löngu orðið tímabært að veita
Kúbönum aðild að Samtökum
Ameríkuríkja á ný heldur þyrfti
að taka alla stefnumótun og
starfshætti samtakanna til ræki-
legrar endurskoðunar. Það er
kunnara en frá þurfi að segja að
fram til þessa dags hafa Samtök
Ameríkuríkja lítið aðhafst annað
en að leggja blessun sína yfir það
sem Bandaríkjastjórn brallar
hverju sinni.
Það þarf enginn að fara í graf-
götur um það að þessar umræður
hafa komið illilega við kaunin á
bandarískum ráðamönnum.
Heimildamenn á leiðtogafundin-
um segja að utanríkisráðherrar
ríkjanna sem tóku þátt í Aca-
pulcofundinum muni eiga með
sér fund í kólombíska sjávarbæn-
um Cartagena og taka þar
ákvörðun um þessi mál. Hinsveg-
ar sé óráðið hvenær þeir hói sér
saman.
Haft er eftir fulltrúum í Acap-
ulco að tveir forsetar hið minnsta
hafi krafist þess að aðalstöðvar
Samtaka Ameríkuríkja yrðu
fluttar frá Washington til ein-
hverrar höfuðborgar í Rómönsku
Ameríku. Þetta væru þeir Alan
Garcia, forseti Perú, og José
Sarney, forseti Brasilíu.
í Acapulco voru samankomnir
leiðtogar Mexíkó, Argentínu,
Brasilíu, Kólombíu, Panama,
Perú, Venezuelu og Uruguay. I
þessum löndum búa um 80 af
hundraði íbúa Rómönsku Amer-
íku eða um 320 miljónir manna.
Þeir ákváðu að undirbúa stofnun
einskonar efnahagsbandalags í
líkingu við hið vesturevrópska og
taka í sameiningu ákvarðanir um
endurgreiðslu gífurlegra erlendra
skulda ríkjanna. -ks.
Haiti
Kosningum slegið
á frest
Vopnaðir óaldarseggir drápu27 manns á sunnudag
og komu í vegfyrir aðforsetakosningarfœrufram
Hópar vopnaðra manna drápu
að minnsta kosti 27 manns á
Haiti á sunnudag. Vargöldin var
slík að kjörráð landsins sá sig
nauðbeygt til að slá forsetakosn-
ingunum á frest og Bandaríkja-
menn gáfu í gær út yfirlýsingu um
að þeir væru búnir að „fá sig
fullsadda“ á dáðleysi ríkisstjórn-
ar Henris Namphys hershöfð-
ingja og hygðust hætta að veita
henni hernaðar- og efnahagss-
tuðning.
Hópar manna vopnaðir vél-
byssum og sveðjum óku eftir göt-
um höfuðborgarinnar Port-au-
Prince um þriggja klukkustunda
skeið árla á sunnudagsmorgun og
réðust á alla er á vegi þeirra urðu.
Versta ofbeldisverkið frömdu
þeir við skóla nokkurn er þeir
hófu skothríð á hóp blaðamanna
og fólks er beið eftir því að röðin
kæmi að því að greiða atkvæði.
Tugir manna féllu í valinn og lét-
ust 15 samstundis.
Skálmöldin neyddi bráða-
birgðakjörráð landsins til að slá
kosningunum á frest en síðla á
sunnudag var það leyst upp af
stjórn landsins.
í kosningunum átti að kjósa
forseta, 27 öldungadeildarþing-
menn og 77 fulltrúadeildarþing-
menn sem sverja áttu embættis-
eiða þann 7. febrúar næstkom-
andi. Þetta var í fyrsta sinni frá
því Duvalierfeðgar fóru með völd
(1957-1986) að landsmönnum
átti að gefast kostur á því að velja
sér landsfeður.
Það var Namphy er tók á-
kvörðunina um að leysa bráða-
birgðakjörráðið upp en síðdegis á
sunnudag lýsti hann því yfir í
sjónvarpsávarpi að kosningar
myndu þrátt fyrir allt fara fram
einhverntíma fyrir 7. febrúar.
Mörg vitna fullyrða að herinn
hafi lítið sem ekkert haft sig í
frammi til að stemma stigu við
ofbeldisaðgerðunum á sunnu-
Henri Namphy hershöfðingi. Sakað-
ur um að láta hópa ofbeldismanna
vaða uppi.
dag. Einn frambjóðenda til setu í
öldungadeild væntanlegs þings
staðhæfði að herinn bæri ábyrgð
á blóðbaðinu og frestun kosning-
anna.
Þegar fréttir bárust til um-
heimsins um óöldina og ákvörð-
un ráðamanna Haiti um að láta
kosningarnar bíða betri tíma
sendi utanríkisráðuneyti Banda-
ríkjanna frá sér yfirlýsingu um að
stjórnvöld í Washington hygðust
hætta öllum hernaðarstuðningi
við Haiti og mestallri efnahags-
aðstoð.
Bandaríkjastjórn hefur veitt
ráðamönnum í Port-au-Prince
1,2 miljónir dala í hernaðarað-
stoð það sem af er þessu ári og um
100 miljónir dala í annars konar
aðstoð.
-ks.
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 1. desember 1987