Þjóðviljinn - 30.12.1987, Qupperneq 11
ERLENDAR FRETTIR
Israel og hernumdu svæðin
Palestínumönnum
hótaö útlegð
Valdsmenn íJerúsalem hyggjast reka þá Palestínumenn burtfrá hernumdu
svœðunum sem þeir telja vera sér andsnúna
Israelskir ráðamenn fullyrtu í
gær að þeir myndu reka Palest-
ínumcnn burt frá yfirráðasvæð-
um sínum ef þeim þætti þurfa „af
öryggisástæðum.“ Dómari við
ísraelskan herrétt sagði þó að
ekki væri í bígerð að hrekja mik-
inn fjöida manna á braut.
Yfirlýsing valdhafanna kom
ekki á óvart þar eð ýmsir undir-
manna þeirra höfðu sterklega
gefið í skyn að til slíkra aðgerða
yrði gripið. Orðrómurinn hafði
kvisast til Washington og um
svipað leyti og ráðamenn gerðu
fyrirætlanir sínar opinskáar létu
Kína
Myrtur útaf einkunum
Kona nokkur í hinu afskekkta
Qinghai héraði i Kína barði níu
ára gamlan son sinn til bana fyrir
nokkru þegar hún komst á snoðir
um að hann hefði ekki náð aðal-
einkunninni níu í skólaprófum.
Dagblað alþýðunnar greindi
frá þessum hörmulega atburði í
gær. í blaðinu kom fram að móð-
irin hefði krafist þess af piltinum
að hann næði þessari einkunn
áður en prófin hófust. Hann
hefði verið afburðanámsmaður
og ekki munað miklu að hann
næði að svala metnaðarfýsn móð-
ur sinnar. Drengnum varð það
síðan á að greina rangt frá niður-
stöðum prófanna en þegar móð-
irin komst að hinu sanna gekk
hún í skrokk á honum og mis-
þyrmdi honum látlaust í fjórar
klukkustundir. Skömmu síðar
lést hann á sjúkrahúsi.
Að undanförnu hafa kínversk-
ir fjölmiðlar gagnrýnt þá foreldra
harðlega sem krefjast of mikils
námsárangurs af börnum sínum
en skeyta minna um sálarheill
þeirra.
-ks.
bandarískir kollegar þeirra í ljós
áhyggjur út af þeim. ísraelsk
hernaðaryfirvöld telja þetta
þjóðráð til að koma í veg fyrir
frekari mótmæli Palestínumanna
á Gazasvæðinu og vesturbakka
Jórdanár en þar urðu dátar þeirra
að minnsta kosti 22 ungmennum
að bana á hálfs mánaðar tímabili
nú í desember sem kunnugt er.
Ónafngreindir heimildamenn
skýrðu frá því að Yitzhak Rabín
varnarmálaráðherra úr Verka-
mannaflokki hefði skýrt utan-
ríkismálanefnd ísraelska þingsins
frá því að stjórnin myndi halda
sínu striki hvað sem Bandaríkja-
menn segðu. „Við munum greina
Bandaríkjamönnum frá því að
við höfum þegar rekið, erum að
reka og munum halda áfram að
reka uppreisnarseggi burt frá
(hernumdu) svæðunum.“
Að minnsta kosti eitt þúsund
Palestínumenn eru í haldi ísra-
elska hersins á herteknu svæðun-
um. Þeim er ýmist gefið að sök að
hafa skipulagt mótmælin fyrr í
mánuðinum eða að hafa undirbú-
ið andófsaðgerðir þann fyrsta
janúar en þá verða liðin 23 ár frá
Moskva
Strauss
biður
griða
Hinn raminíhaldssami forsætis-
ráðherra Bæjaralands, Franz
Jósef Strauss, gekk á fund Mikha-
els Gorbatsjovs í Kreml í gær og
skoraði á hann að stytta refsivist
flugkappans Mattíasar Rusts.
Sem kunnugt er flaug Rust lítilli
Cessnavél ólöglega inní Sovétrík-
in í vor og lenti henni á Rauða
torginu í Moskvu. í haust var
hann dæmdur til fjögurra ára
vistar í þrælakistu fyrir tiltækið.
Að sögn vesturþýska sendi-
herrans í Moskvu, Alexanders
Allardts, stóð fundur þeirra
Strauss og Gorbatsjovs í tvær og
hálfa klukkustund. Diplómatinn
var ekki viðstaddur mótið og gat
því ekki greint frá viðbrögðum
gestgjafans.
Franz Jósef Strauss við stjórnvölinn heima í Bæjaralandi. Flaug sjálfur
Cessnavél sinni til Moskvu.
Strauss fló sjálfur átta sæta
Cessnavél sinni frá Bæjaralandi
til Sovétríkjanna á mánudaginn
en þar hyggst hann dvelja í þrjá
daga og eiga orðaskipti við
Kremlverja. För hans hefur vak-
ið athygli sökum þeirrar ætlunar
hans að tala máli hins unga landa
síns. Rust er enn í haldi í Leforto-
vo fangelsinu í Moskvu og bíður
þess að vera fluttur í vinnubúðir.
Fyrir hálfum mánuði sótti hann
um náðun en Æðsta ráð Sovét-
ríkjanna sagði nei. -ks.
Sovétríkin
ísraelskir dátar standa vörð um palestínskan fanga á Gazasvæðinu. Óttast er
að réttarhöldin i máli palestínskra mótmælenda verði ekki í samræmi við
vestrænar venjur um hlutlægni.
því Fatah skæruliðasamtökin
voru stofnuð.
Nú er réttað í málum þorra
þessa fólks, sem flest er korn-
ungt, fyrir herdómstólum á her-
teknu svæðunum. Heimilda-
menn í ísraelsher greindu frá því í
gær að málflutningur væri hafinn
í sautján málum fyrir herréttinum
í Hebron. Allir ákærðu hefðu
sagstsýknirafsök. Herréttarhöld
væru í uppsiglingu í Ramallah,
Tulkarm og Nablus.
Þeir kváðu ennfremur 30
manns sitja á sakborningsbekk í
Gazaborg en sjónarvottar
hermdu að 50 manns hefðu verið
fluttir í dómhúsið. Af þeim væru
sjö barnungir og væru þeir sakað-
ir um að hafa gengið um með
spýtuprik en þau teljast vopn í
ísraelskri afbrotafræði. Fjöl-
margir jafnt utan ísraels sem
innan hafa látið í ljós ótta um að
palestínsku sakborningarnir
muni ekki fá réttláta málsmeð-
ferð fyrir ísraelskum herrétti.
-ks.
PLO
ÚUagastjóm
mynduð?
Nefnd á vegum samtakanna hefurgert víðreist og
kannað viðbrögð ríkisstjórna í Evrópu og
arabalöndum
Að sögn háttsetts yfirmanns í
Frelsissamtökum Palestínu-
manna (PLO) íhuga leiðtogar
þeirra nú möguleikann á því að
setja á stofn útlegðarstjórn Pal-
estínumanna. Hafa erindrekar
samtakanna að undanförnu gert
víðreist og rætt við fulltrúa fjöl-
margra ríkisstjórna um hugsan-
lega viðurkenningu á slíkri
stjórn.
Þetta kom fram í viðtali sem
blaðið A1 Ittihad átti við helsta
stjórnmálaráðgjafa Jassírs Araf-
ats, Hani Al-Hassani, í Kairo á
mánudaginn.
Hann sagði: „Það sem mestu
máli skiptir nú eru viðbrögð
þjóða heims, hvortheldur í Evr-
ópu, Rómönsku Ameríku, Kan-
ada eða í arabískum, íslömskum
ellegar afrískum löndum.
Hassan sagði að sérstök nefnd
hefði verið skipuð af æðstu stjórn
PLO til þess að fara ofaní
saumana á öllum hliðum málsins
og hefði hún nýlokið níu daga
ferð um nokkur Evrópuríki þar
sem nefndarmenn hefðu komið
að máli við fulltrúa ríkisstjórna.
Hann gat þess hinsvegar ekki
hver hefðu verið viðbrögð
gestgjafanna við hugmyndinni né
nefndi hann ríkin.
„Við Iwfum fast undir fótum“
Júrí Romanenko dvaldi samfellt í 326 daga í geimnum sem er glœsilegt met
Sovéski geimfarinn Júrí Rom-
anenko og félagar lentu Soyuz
TM-3 geimhylki sínu í lýðveldinu
Kazakhstan í gær. Þar með var
endi bundinn á metdvöl Roman-
enkos úti í geimi en þar dvaldi
hann samfellt í 326 daga um borð
í geimstöðinni MIR.
Lendingin var sýnd beint í so-
vésku sjónvarpi um hádegisbilið í
gær. „Við höfum fast undir fó-
tum,“ heyrðu Sovétmenn kam-
pakátan Romanenko tilkynna
hæstráðendum sovésks geimstúss
í talstöð þegar hylkið var lent á
snævi þakinni sléttu um 80 kíló-
metrum norðaustan bæjarins
Arkalyk. Romanenko er 43
ára gamall og dvaldist hann nærri
,þrem mánuðum lengur fjarri
móður jörð en fyrri methafar.
Þrír sovéskir geimfarar höfðu 237
daga viðdvöl í geimnum árið
1984. Sovéska fréttastofan Tass
greindi frá því að Romanenko og
tveir kollega hans, Alexander Al-
exandrov og Anatólí Levchenko,
væru við hestaheilsu.
Sérfræðingar um geimmál
segja að langdvöl sem þessi uppí
himni hafi þann þýðingarmikla
tilgang að reyna þrek og úthald
geimfara en uppúr aldamótum
hyggjast Sovétmenn gera út
leiðangur til grannplánetunnar
Mars sem taka mun 30 mánuði.
Tass fréttastofan hermdi enn-
fremur að geimfararnir kæmu
færandi hendi, meðferðis hefðu
þeir upplýsingar um niðurstöður
ógrynni tilrauna og rannsókna
auk ljósmynda, kvikmynda og
hljóðsnældna.
-ks.
Arafat ákvað að skipa nefnd-
ina skömmu eftir að allt fór í bál
og brand á herteknu svæðunum
við fsrael, Gaza og vesturbakka
Jóradanár, um miðjan mánuð-
inn. Þá urðu skotmenn fsraels-
hers að minnsta kosti 22 palest-
ínskum unglingum að bana.
„Við erum fullvissir um að nú
sé rétti tíminn til að setja á fót
útlagastjórn," sagði Hassan.
„Við erum bjartsýn. Allir þættir
málsins hafa verið ígrundaðir,
þar á meðal möguleikinn á því að
ýmsar ríkisstjórnir virði okkur að
vettugi. Við gerum okkur fylli-
lega grein fyrir því að margar
munu skorast úr leik, til að
mynda sú bandaríska. Við bind-
um engar vonir við Bandaríkja-
menn.“
Hassan gat þess ennfremur að
hann hefði rætt þetta mál við
sendiherra arabaríkja í Kairo og
egypska embættismenn. „Egypt-
arsýndu mjög jákvæð viðbrögð.“
-ks.
Bangladesh
Sextánda verkfallið
Mikil þátttaka var í allsherjar-
vcrkfalli því sem 21 stjórnarand-
stöðufiokkur efndi til í stærstu
borgum Bangladesh í gær í þvi
augnamiði að gera Hossain Mo-
hammad Ershad forseta skráveifu.
Þetta var sextánda verkfallið til
höfuðs forsetanum frá því andófs-
flokkar einsettu sér þann tíunda
nóvember síðastliðinn að hrinda af
stað herferð til að hrekja hann frá
völdum.
Að sögn sjónarvotta var allt
mannlíf á lágu nótunum í höfuð-
borginni Dhaka í gær, aðeins
stöku herflutninga og lögreglubíll
skrölti um götur. Flestar skrifstof-
ur og opinberar stofnanir voru lok-
aðar en þó var unnið í nokkrum
verkssmiðjum, sögðu vitnin.
-ks.
Miðvikudagur 30. desember 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 11