Þjóðviljinn - 30.12.1987, Blaðsíða 15
Ogþetta
tíka......
Tele Santana
sem þjálfaði landslið Brasilíu í knatt-
spyrnu í heimsmeistarakeppnunum
1982 og 1986 hefur skrifað undir nýj-
an eins árs samning við Atletico Min-
ero í 2. deildinni á Spáni. Samkvæmt
dagblöðum í Brasilíu var Santana bú-
inn að fá tilboð frá Barcelona, Paris
St. Germain og Evrópumeisturunum
Porto.
Júgóslavar
sigruðu í Israel í úslitaleik á fjögurra
þjóða móti í körfuknattleik, 115-88.
Frakkar höfnuðu í þriðja sæti eftir að
hafa sigrað Ástralíumenn 78-75.
Brasilíumenn
hafa ákveðið að halda mjög sterkt
mót í tilefni af 75 ára afmæli brasilíska
knattspyrnusambandsins árið 1989.
Auk gestgjafanna verða það Spán-
verjar, Italir og Portúgal sem taka þátt
í þessu sterka móti sem mun taka
viku.
Dynamo Kiev
hafnaði í 6. sæti í deildakeppninni í
vetur og til að bæta úr því hefur liðið
fengi til liðs við sig tvo af bestu leik-
mönnum Dnepr Dnepropetrovsk.
Það eru Oleg Protasov og Gennady
Litovchenko, en þeir eru báðir í so-
véska landsliðinu. Félagararnir
neituðu að skrifa undir þriggja ára
samning við Dnepr og gengu til liðs
við Dynamo Kiev sem sigraði í Evr-
ópukeppninni 1986.
Austurríkismenn
hafa ráðið nýjan landsliðsþjálfara í
knattspyrnu. Hann heitir Josef Hick-
enberger og lék 39 landsleiki fyrir
Austurríki. Hann tekur við af Júgósla-
vanum Branko Elsner, en Hickenber-
ger var aðstoðarmaður Elsner í rúmt
ár.
Velski
landsliðsmaðurinn lan Rush verður
að sæta þungri sekt eftir að hafa
komið of seint til vinnu sinnar í þriðja
skiptið á tímabilinu. Forráðamenn Ju-
ventus sögðu að Rush, sem hefur
aðeins skorað þrjú mörk á þessu
tímabili, hafi ekki komið til baka úr
jólafríi sínu á þeim tíma sem um var
samið og ekki látið vita að honum
myndi seinka. “I þetta skiptið verður
Rush að svara fyrir gjörðir sínar“
sagði forseti Juventus. T alið er líklegt
að Rush verði sektaður um fimm
milljónir líra sem samsvarar um 126
þúsundum íslenskra króna.
Magnús Ver Magnússon
var kjörinn kraftlyftingamaður ársins
af Kraftlyftingasambandi íslands í
gær. Ástæðan fyrir því að Magnús
var ekki kjörinn um leið og aðrir
íþróttamenn er sú að Kraftlyftinga-
menn eiga í deilum við ÍSÍ og
Lyftingasambandið. Magnús hefur
bætt árangur sinn mjög mikið á árinu.
f upphafi árs lyfti hann samanlagt 825
kg. en á nú 940 kg. í samanlögðu.
ítalski
langstökkvarinn Giovanni Evange-
listi ákvað á laugardaginna að skila
aftur bronsverðlaunapeningi sem
hann hlaut á síðasta heimsmeistara-
móti. Ástæðan er sú að sýnt hefur
verið fram á að stökkið sem færði
honum bronsið var um hálfum metra
styttra en áður var talið. Það var ekki
fyrr en myndbönd af stökkinu voru
skoðuð að hið rétta kom í Ijós. “Þau
átta ár sem ég hef verið í landsliðinu
hef ég alltaf verið sannur íþróttamað-
ur“ sagði Evangelisti. Alþjóða frjálsí-
þróttasambandið hefur úrskurðað að
lengd stökksins hafi verið rétt mæld i
upphafi og vilja ekki taka við verð-
launapeningnum aftur.
Vestur-þýski
knattspyrnumaðurinn Manfred
Burgsmueller hélt uppá 38 ára af-
mælisdag sinn með því að skrifa
undir samning sem ætti að geta séð
til þess að hann skori mörk fram til
fertugs. Burgsmueller sem nú kemur
oftast inná sem varamaður hefur enn
talsverðan metnað. “Það pirrar mig
mjög að vera alltaf varamaður. Hinir
strákarnir eru ekkert betri en ég, þeir
eru bara yngri" sagði Burgsmueller.
Búið er
að draga í úrslit Evrópukeppni U-21
árs í knattspyrnu. Átta lið eru eftir og
leikið er með útsláttarfyrirkomulagi.
Frakkar leika gegn ítölum, Spánverj-
ar gegn Hollendingum, Skotar gegn
Englendingum og Grikkir gegn Tékk-
óslóvakíu. Liðin sem sigra í þessum
leikjum komast (undanúrslit.
Kópavogur
Svanhildur
sú besta
Á sunnudaginn fór fram í
íþróttahúsinu Digranesi kjör af-
reksmanns Kópavogs 1987. Þá
voru einnig heiðraðir allir ís-
landsmeistarar í Kópavogi alls
um 130 manns. Svanhildur Krist-
jónsdóttir, frjálsíþróttakona úr
UBK var kjörinn Afreksmaður
ársins 1987 í Kópavogi.
Kjörnir voru íþróttamenn árs-
ins í þremur aldursflokkum. í
flokki 12 ára og yngri var Aron
Haraldsson kjörinn en hann er
mikill langhlaupari, fótbolta og
handboltakappi. í flokki 13-16
ára var kjörin Hlín Bjarnadóttir
en hún æfir fimleika. í flokki 17
ára og eldri varð Svanhildur
Kristjónsdóttir hlutskörpust.
Knattspyrna
Tveir til
Þýskalands
Guðni Bergsson, Val og Ragn-
ar Margeirsson, ÍBK hafa skrifað
undir leigusamning við v-þýska
liðið Múnchen 1860. Leigu-
samningurinn gildir frá ára-
mótum og út keppnistímabilið.
Múnchen 1860 leikur I Oberslig-
unni í Bæjaralandi og er þar nú í
öðru sæti. Liðið á því mikla
möguleika á að komast í úrslita-
keppnina um sæti í 2.deild.
Að öllum líkindum munu
Guðni og Ragnar koma heim
eftir að tímabilinu lýkur í Þýska-
landi. Þá munu þeir sennilega
snúa aftur til sinna gömlu félaga
Vals og ÍBK, en missa af fyrstu
leikjum sumarsins.
Knattspyrna
Sigur yfir Sviss
Útlitið þó dökkt vegna meiðsla
íslenska drengjalandlsiðið
náði sér loks á strik í gær og sigr-
aði Sviss, 3-2 á stóru móti sem
fram fer í ísrael. Það er þó ekki
bjart útlit því fimm af sautján
leikmönnum liðsins eru mciddir
og aðeins tólf eftir. Þaraf tveir
markverðir!
Leikurinn í gær var ágætur, en
byrjaði heldur illa. Svisslending-
ar náðu forystunni á 15. mínútu,
en Bjarni Benediktsson jafnaði
skömmu síðar. Steinar Guðgeirs-
son náði forystunni fyrir fslend-
inga á 30. minútu og Haraldur
Ingólfsson gulltryggði sigur ís-
lendinga með marki þegar fimm
mínútur voru til leiksloka. Sviss-
lendingar náðu þó að klóra í
bakkann með marki á síðustu
mínútunni.
íslendingar hafa þá leikið þrjá
leiki. Þeir töpuðu fyrir ísrael 0-1
og Póllandi 0-3. -ibe
Knattspyrna
Handknattleikur
Oheppni gegn Dönum
Eins marks tap. Jafntefli hefði nœgt til sigurs
Það er vart hægt að segja ann-
að en að íslendingar hafa verið
óheppnir í síðasta leiknum gegn
Dönum. íslendingum nægði jafn-
tefli, en óheppni á lokamínútun-
um og augljóst vítakast sem dóm-
ararnir slepptu kom í veg fyrir
það og Danir fögnuðu sigri, 24-25
og þarmeð sigri í mótinu.
Danirnir byrjuðu leikinn af
krafti og komust strax yfir. Þeir
leiddu allan fyrri hálfleik og var
staðan í leikhlé 15-12 Dönum í
vil.
í síðari hálfleik héldu heima-
menn forystunni áfram og kom-
ust á tímabili 5 mörk yfir. En þeg-
ar 10 mínútur voru til leiksloka
tóku íslendingar við sér og náðu
að minnka muninn í eitt mark,
24-23. Voru íslendingar þá með
boltann og stutt til leiksloka. Þá
komst Sigurður Sveinsson inn
fyrir vörn Dananna og í gott færi.
Brotið illa á honum að mati fjöl-
margra en ekkert dæmt. Danirnir
fengu boltann og náðu að auka
forskot sitt í tvö mörk. íslending-
ar minnkuðu þó muninn niður í
eitt mark aftur en Danir léku sér
með boltann úti á velli þar til
leikurinn var búinn. Þetta voru
mikil vonbrigði fyrir alla þá ís-
lendinga sem höfðu fjölmennt á
þennan leik og látið allvel í sér
heyra. Fylgdarmenn íslenska
landliðsins voru mjög ánægðir
með þann stuðning, og virtist sem
íslendingar væru í meirihluta á
staðnum miðað við hvatningar-
hróp og fagnaðarlæti.
Þorgiis Óttar góöur
Af leikmönnum íslands stóð
Þorgils Óttar Mathiesen sig sér-
lega vel, skoraði 10 mörk. Júlíus
Jónason kom inná í seinni hálf-
leik og átti góðan leik. Sigurður
Gunnarson sem hefur ekki enn
náð sér almennilega eftir
meiðslin í fyrri leikjunum kom
inná til að taka vítin. Hafnaði
boltinn í netinu þrjú skipti en eitt
vítaskotið var varið. Valdimar
Grímsson stóð sig að vanda vel og
Geir Sveinsson stjórnaði vörn-
inni og stóð sig ágætlega. Einar
Þorvarðarson var í markinu
mestallan leiktímann og varði 14
skot.
Dómararnir, sem komu frá
Vestur-Þýskalandi voru alveg
þokkalegir þó þeir hefðu sleppt
því að dæma þegar brotið var á
Sigurði Sveinssyni á mikilvægum
tíma í seinni hálfleik. Að mati
viðstaddra var brotið frekar
augljóst.
Mörk íslands: Þorgils Óttar Mathiesen
10, Július Jónasson 4, Sigurður Gunnars-
son 3(3v), Sigurður Sveinsson 3, Guð-
mundur Guömundsson 2 og Valdimar
Grímsson 2.
-stef
Lokastaðan
Danmörk..............3 2 1 0 69-66 5
Island...............3 1 1 1 71-67 3
Sviss................3 0 2 1 58-60 2
Frakkland............3 0 2 1 60-65 2
Þróttarar
Reykjavíkurmótið í innanhúss-
knattspyrnu er nú í fullum gangi. Á
mánudagskvöld var leikið í
meistaraflokki karla. Ohætt er að
segja að liðin i neðri deildunum
utanhúss hafi komið skemmtilega á
óvart fyrir mikla og góða tilburði
gegn Reykjavíkur-risunum.
3.deildar liðið Víkverji kom þó
hvað mest á óvart er það gerði verð-
skuldað jafntefli við íslands-
meistara Vals, 6-6.
Það voru Þróttur og Fylkir, sem
bæði léku í annari deild í sumar,
sem léku til úrslita á mánudags-
kvöldið. Og úrslitaleikurinn var
eins og þeir gerast bestir. Jafnt var
á öllum tölum þar til tvær mínútur
voru til leiksloka, þá leiddu Þrótt-
arar með tveimur mörkum, 5-3.
meistarar
Brugðu Fylkismenn þá á það ráð að
“pressa stíft" og uppskáru tvö mörk
á innan við mínútu. Fleiri mörk
voru ekki skoruð í venjulegum
leiktíma og því varð að framlengja
leikinn. Bæði lið skoruðu tvö mörk
í framlengingunni. Fylkir fékk þó
kjörið tækifæri til að gera út um
leikinn en þeir misnotuðu víta-
spyrnu er 9 sekúndur voru til leiks-
loka.
Vítaspyrnukeppni þurfti því til
að knýja fram úrslit. Þau fengust þó
ekki fyrr en í síðustu spyrnunni en
þá skoruðu Þróttarar 11. mark sitt
en Fylkismenn skoruðu 10 mörk.
Önnur úrslit í Reykjavíkurmót-
inu eru að í ó.flokki sigraði lið Fylk-
is og í 2.flokki kvenna sigraði lið
KR. Reykjavíkurmótinu lýkur í
kvöld. -ih
Ævar Þorstelnsson, íþróttamaður ársins í Kópavogi 1987.
Karate
Ævar íþróttamaður
ársins í Kópavogi
Ævar Þorsteinsson, 25 ára kar-
atemaður í Breiðabliki var valinn
íþróttamaður ársins í Kópavogi
1987.
Ævar bar höfuð og herðar yfir
aðra keppendur í 80 kg flokki.
Hann var íslandsmeistari í Ku-
mite í sínum flokki og í opnum
flokki. Auk þess er hann núver-
andi UMSK-meistari og
Shotokan-meistari í Kumite með
sveit UBK.
Ævar hefur sigrað þr j ú ár í röð í
80 kg flokki, eða frá upphafi og
tvívegis sigrað í opnum flokki.
Ævar hefur verið fastur maður
í íslenska landsliðinu í karate frá
upphafi. Hann hefur sjö sinnum
tekið þátt í landskeppnum unnið
4 viðureignir, en tapað þremur.
Það var Rotaryklúbbur Kópa-
vogs sem stóð að valinu. -stef
Mlðvlkudagur 30. desember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15