Þjóðviljinn - 19.04.1988, Síða 1
IÞROTTIR
Fótbolti
KSÍ semur við SL
Pýskaland
með sér samning og mun íslands-
mót 1. deildar í sumar heita „ís-
landsmót SL-deild“.
Par sem Samvinnuferöir-
Landsýn eiga 10 ára afmæli á
þessu ári hefur fyrirtækið ákveð-
ið að sýna í verki vilja sinn og
veita nú á 5. miljón til þessa sam-
starfs sem mun fara í kynninga á
íslandsmóti SL-deildar, verð-
launaveitingu, SL-leik fyrir
áhorfendur og í Bráðabana SL-
deildar 1988. SL mun leggja fram
25.000 krónur í hvern leik í
l.deild og hlýtur það lið sem
vinnur upphæðina en vinningur
fellur niður ef jafntefli verður.
Einnig leggur SL undir 12.000
krónur, sem renna til þess félags
er skorar 4 mörk eða fleiri í leik.
Tvær nýjungar líta einnig dags-
ins ljós: önnur er sú að haldnir
verða SL- leikir og geta áhorf-
endur keypt seðla og getið sér til
um úrslitin. Þeir sem hafa rétt
fyrir sér geta síðan vitjað vinn-
inga strax eftir leikinn en helm-
ingur upphæðarinnar fer í vinn-
inga og hinn til félaganna. Seðl-
arnir gilda einnig sem happd-
rættismiðar og verður dregið við
lok mótsins. Hin nýjungin er sú
að í leikhléi 1. deildar keppir 6.
flokkur í bráðabana og eru tveir
leikmenn í hvoru liði en SL mun
veita sigurvegurum verðlaun við
lok mótsins.
Helgi Jóhannson hjá
Samvinnuferðum-Landsýn segir
að vegna kvartana yfir nafngift
íslandsmótsins í fyrra hafi verið
ákveðið að breyta til og skíra nú
l.deildina SL-deild. Fordæmi eru
fyrir slíku víða erlendis. Einnig
var ákveðið að veita peninga í
hvern leik sem þykir sanngjarn-
ara fyrirkomulag en í fyrra.
Besta handknattleiksfólk á Islandi í dag, Þorgils Óttar Mathiesen og Kolbrún Jóhannsdóttir hampa verð-
launum sínum i lokahófi handknattleiksmanna um helgina.
Handbolti
Þorgils og Kolbnín best
í lokahófi handknattleiks-
manna á föstudagskvöldið voru
veitt fjölmörg verðlaun. Þorgils
Óttar Mathiesen FH var kosinn
handboltamaður ársins og Kol-
brún Jóhannsdóttir handknatt-
leikskona ársins en hún var einn-
ig kosin markvörður ársins í
kvennaflokki. Efnilegust voru:
Héðinn Gilsson FH og Ragn-
heiður Stephensen Stjörnunni,
bestu markverðir Einar Þorvarð-
arson Val og Kolbrún Jóhanns-
dóttir Fram, bestu varnarleik-
menn Geir Sveinsson Val og
Erna Lúðvíksdóttir Val, bestu
sóknarleikmenn Sigurður Guni
arsson Víkingi og Guðríður Gui
jónsdóttir Fram. Kosið voi
besta dómarapar ársins og koi
engum á óvart að félagarnir £
norðan, Ólafur Haraldsson c
Stefán Arnaldsson, skyldu verc
fyrir valinu.
Kristján nálgast
titilinn
Lemko-Milbertshofen 22-
22 (13-11)
Þetta var bullandi fallbaráttu-
leikur og ef Lemko hefði tapað
væri liðið í fallhættu. Sigurður
Sveinsson var markahæstur og
skoraði 7 mörk. f Kicker er grein
um Sigurð þar sem segir að hann
sé á heimleið og hversu slæmt sé
fyrir Lemko að missa hann.
Gummersbach-Hofweier
20-16 (7-9)
Kristján stóð sig vel í leiknum,
skoraði 4 mörk og var næst mark-
ahæstur. Það skal einnig bent á
að 3 leikmanna Gummersbach
skoraði 5 mörk hver, svo að
Kristján var einnig næst
markalægstur. Þeir færðust nær
titlinum og eru nú í efsta sæti
deildarinnar.
Grosswaldstadt-
Göppingen 20-24 (12-11)
Það var ekki fyrr en Klempel
gamli setti allt á fullt í síðari hálf-
leik að hlutirnir fóru að ganga.
Hann skoraði 10 mörk sem dugði
Göppingen til sigurs.
Kiel-Dormagen 20-22 (8-
10)
Þjálfari Dormagen var búinn
að lofa Gummersbach því að
hann skyldi hjálpa þeim að ná
titlinum með því að stöðva Kiel
og hann stóð svo sannarlega við
það.
Schwabing-Dusseldorf 17-
18 (7-12)
Lið Páls vann þarna nauman
sigur yfir einu af botnliðum
deildarinnar og heldur sér því í
næst efsta sætinu.
Essen-Wallaum Massen-
heim 19-26 (10-14)
Dortmund-Niirnberg 17-22
(3-11)
Þar með var Dortmund slegið
niður í 2. deild. Sigurinn hefði
getað orðið miklu stærri, en leik-
menn Nurnberg slökuðu of mikið
á í síðari hálfleik eftir að hafa
kennt leikmönnum Dortmund
handbolta í fyrri háifleik.
Haukar fagna innilega eftir aö hafa unnið Njarðvíkingana á sunnudagskvöldið.
Það tryggði þeim 3. leik sem verður í Njarðvík í kvöld.
Sjá nánar um leikinn á bls.10
England
Réttarhöld að lokum
í kvöld
Nú standa yfir í Belgíu réttar-
höld vegna Heysel slyssins 1985.
Þar eru á sakborningabekk 26
Bretar ákærðir fyrir manndráp,
en lögmenn þeirra hafa reynt að
fá réttarhöldunum frestað til að
kynna sér dómskjölin betur en
þau munu vera um 30.000 blað-
síður. Að auki eru á sakborninga-
bekknum 3 belgískir lögreglu-
menn og fulltrúar knattspyrnus-
ambandsins en þeir eru einnig
ákærðir fyrir drápin 39 sem áttu
sér stað á leikvanginum.
Karfa
Njarðvík kl.20.00 leika Njarðvík og
Haukar sinn þriðja leik um íslands-
meistaratitilinn. Njarðvík vann fyrsta
leikinn á föstudag en Haukar unnu
annan á sunnudaginn.
Fótbolti
Gervigras kl.20.30 leika Leiknir og
Valur i Reykjavíkurmótinu.
Fótbolti
Skíði
Andrés Önd
á Akureyri
Á miövikudaginn hefjast á Ak-
ureyri Andrés Andar leikarnir.
Mótsetning fer fram í Akur-
eyrarkirkju og standa leikarnir
fram á laugardag en þá vercður
verðlaunaafhending.
Stóni liðin sigra
Nokkrir leikir voru í Reykja-
víkurmótinu um helgina. Á
föstudagskvöldið léku Valur og
Fylkir og sigraði Valur með 2
mörkum gegn 1. Það voru Valur
Valsson og Hilmar Sighvatsson
sem gerðu mörk Vals en Baldur
Bjarnason mark Fylkis.
Fram tók á móti Ármanni og
hafði sigur 2-0. Pétur Ormslev
gerði fyrra markið í fyrri hálfleik
og Guðmundur Steinsson það
seinna í síðari hálfleik.
Knattspyrnusamband íslands,
Samvinnuferðir-Landsýn og
Samtök l.deildar félaga hafa gert
Fótbolti
Rússi til
Húsavíkur
Völsungar á Húsavík eru að
öllum líkindum búnir að fá sovét-
mann til að þjálfa knattspyrnulið
sitt í sumar.
Kappinn heitir Ivan Varlanov
og hefur meðal annars þjálfað
stórliðið Spartak Moskva en er
nú hjá Knattspyrnusambandi So-
vétríkjanna.
Júdó
Bjami
meðgull
Lenti í2. sœti í
opnumflokki
Bjarni Friðriksson gerir það
ekki endasleppt í júdóinu. Um
helgina keppti hann í Norður-
landamótinu sem haldið var í
Osló. Hann náði þar að vinna
gullverðlaun í -95 kílóa flokki og
er það í þriðja sinn í röð, en hon-
um gekk einnig vel í opnum
flokki þar sem hann náði 2. sæti.
Umsjón: Þorfinnur Ómarsson og Stefán Stefáns son
Þriðjudagur 19. apríl 1988 ÞJÓÐVILJiNN - SÍÐA 9