Þjóðviljinn - 19.04.1988, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 19.04.1988, Qupperneq 1
IÞROTTIR Fótbolti KSÍ semur við SL Pýskaland með sér samning og mun íslands- mót 1. deildar í sumar heita „ís- landsmót SL-deild“. Par sem Samvinnuferöir- Landsýn eiga 10 ára afmæli á þessu ári hefur fyrirtækið ákveð- ið að sýna í verki vilja sinn og veita nú á 5. miljón til þessa sam- starfs sem mun fara í kynninga á íslandsmóti SL-deildar, verð- launaveitingu, SL-leik fyrir áhorfendur og í Bráðabana SL- deildar 1988. SL mun leggja fram 25.000 krónur í hvern leik í l.deild og hlýtur það lið sem vinnur upphæðina en vinningur fellur niður ef jafntefli verður. Einnig leggur SL undir 12.000 krónur, sem renna til þess félags er skorar 4 mörk eða fleiri í leik. Tvær nýjungar líta einnig dags- ins ljós: önnur er sú að haldnir verða SL- leikir og geta áhorf- endur keypt seðla og getið sér til um úrslitin. Þeir sem hafa rétt fyrir sér geta síðan vitjað vinn- inga strax eftir leikinn en helm- ingur upphæðarinnar fer í vinn- inga og hinn til félaganna. Seðl- arnir gilda einnig sem happd- rættismiðar og verður dregið við lok mótsins. Hin nýjungin er sú að í leikhléi 1. deildar keppir 6. flokkur í bráðabana og eru tveir leikmenn í hvoru liði en SL mun veita sigurvegurum verðlaun við lok mótsins. Helgi Jóhannson hjá Samvinnuferðum-Landsýn segir að vegna kvartana yfir nafngift íslandsmótsins í fyrra hafi verið ákveðið að breyta til og skíra nú l.deildina SL-deild. Fordæmi eru fyrir slíku víða erlendis. Einnig var ákveðið að veita peninga í hvern leik sem þykir sanngjarn- ara fyrirkomulag en í fyrra. Besta handknattleiksfólk á Islandi í dag, Þorgils Óttar Mathiesen og Kolbrún Jóhannsdóttir hampa verð- launum sínum i lokahófi handknattleiksmanna um helgina. Handbolti Þorgils og Kolbnín best í lokahófi handknattleiks- manna á föstudagskvöldið voru veitt fjölmörg verðlaun. Þorgils Óttar Mathiesen FH var kosinn handboltamaður ársins og Kol- brún Jóhannsdóttir handknatt- leikskona ársins en hún var einn- ig kosin markvörður ársins í kvennaflokki. Efnilegust voru: Héðinn Gilsson FH og Ragn- heiður Stephensen Stjörnunni, bestu markverðir Einar Þorvarð- arson Val og Kolbrún Jóhanns- dóttir Fram, bestu varnarleik- menn Geir Sveinsson Val og Erna Lúðvíksdóttir Val, bestu sóknarleikmenn Sigurður Guni arsson Víkingi og Guðríður Gui jónsdóttir Fram. Kosið voi besta dómarapar ársins og koi engum á óvart að félagarnir £ norðan, Ólafur Haraldsson c Stefán Arnaldsson, skyldu verc fyrir valinu. Kristján nálgast titilinn Lemko-Milbertshofen 22- 22 (13-11) Þetta var bullandi fallbaráttu- leikur og ef Lemko hefði tapað væri liðið í fallhættu. Sigurður Sveinsson var markahæstur og skoraði 7 mörk. f Kicker er grein um Sigurð þar sem segir að hann sé á heimleið og hversu slæmt sé fyrir Lemko að missa hann. Gummersbach-Hofweier 20-16 (7-9) Kristján stóð sig vel í leiknum, skoraði 4 mörk og var næst mark- ahæstur. Það skal einnig bent á að 3 leikmanna Gummersbach skoraði 5 mörk hver, svo að Kristján var einnig næst markalægstur. Þeir færðust nær titlinum og eru nú í efsta sæti deildarinnar. Grosswaldstadt- Göppingen 20-24 (12-11) Það var ekki fyrr en Klempel gamli setti allt á fullt í síðari hálf- leik að hlutirnir fóru að ganga. Hann skoraði 10 mörk sem dugði Göppingen til sigurs. Kiel-Dormagen 20-22 (8- 10) Þjálfari Dormagen var búinn að lofa Gummersbach því að hann skyldi hjálpa þeim að ná titlinum með því að stöðva Kiel og hann stóð svo sannarlega við það. Schwabing-Dusseldorf 17- 18 (7-12) Lið Páls vann þarna nauman sigur yfir einu af botnliðum deildarinnar og heldur sér því í næst efsta sætinu. Essen-Wallaum Massen- heim 19-26 (10-14) Dortmund-Niirnberg 17-22 (3-11) Þar með var Dortmund slegið niður í 2. deild. Sigurinn hefði getað orðið miklu stærri, en leik- menn Nurnberg slökuðu of mikið á í síðari hálfleik eftir að hafa kennt leikmönnum Dortmund handbolta í fyrri háifleik. Haukar fagna innilega eftir aö hafa unnið Njarðvíkingana á sunnudagskvöldið. Það tryggði þeim 3. leik sem verður í Njarðvík í kvöld. Sjá nánar um leikinn á bls.10 England Réttarhöld að lokum í kvöld Nú standa yfir í Belgíu réttar- höld vegna Heysel slyssins 1985. Þar eru á sakborningabekk 26 Bretar ákærðir fyrir manndráp, en lögmenn þeirra hafa reynt að fá réttarhöldunum frestað til að kynna sér dómskjölin betur en þau munu vera um 30.000 blað- síður. Að auki eru á sakborninga- bekknum 3 belgískir lögreglu- menn og fulltrúar knattspyrnus- ambandsins en þeir eru einnig ákærðir fyrir drápin 39 sem áttu sér stað á leikvanginum. Karfa Njarðvík kl.20.00 leika Njarðvík og Haukar sinn þriðja leik um íslands- meistaratitilinn. Njarðvík vann fyrsta leikinn á föstudag en Haukar unnu annan á sunnudaginn. Fótbolti Gervigras kl.20.30 leika Leiknir og Valur i Reykjavíkurmótinu. Fótbolti Skíði Andrés Önd á Akureyri Á miövikudaginn hefjast á Ak- ureyri Andrés Andar leikarnir. Mótsetning fer fram í Akur- eyrarkirkju og standa leikarnir fram á laugardag en þá vercður verðlaunaafhending. Stóni liðin sigra Nokkrir leikir voru í Reykja- víkurmótinu um helgina. Á föstudagskvöldið léku Valur og Fylkir og sigraði Valur með 2 mörkum gegn 1. Það voru Valur Valsson og Hilmar Sighvatsson sem gerðu mörk Vals en Baldur Bjarnason mark Fylkis. Fram tók á móti Ármanni og hafði sigur 2-0. Pétur Ormslev gerði fyrra markið í fyrri hálfleik og Guðmundur Steinsson það seinna í síðari hálfleik. Knattspyrnusamband íslands, Samvinnuferðir-Landsýn og Samtök l.deildar félaga hafa gert Fótbolti Rússi til Húsavíkur Völsungar á Húsavík eru að öllum líkindum búnir að fá sovét- mann til að þjálfa knattspyrnulið sitt í sumar. Kappinn heitir Ivan Varlanov og hefur meðal annars þjálfað stórliðið Spartak Moskva en er nú hjá Knattspyrnusambandi So- vétríkjanna. Júdó Bjami meðgull Lenti í2. sœti í opnumflokki Bjarni Friðriksson gerir það ekki endasleppt í júdóinu. Um helgina keppti hann í Norður- landamótinu sem haldið var í Osló. Hann náði þar að vinna gullverðlaun í -95 kílóa flokki og er það í þriðja sinn í röð, en hon- um gekk einnig vel í opnum flokki þar sem hann náði 2. sæti. Umsjón: Þorfinnur Ómarsson og Stefán Stefáns son Þriðjudagur 19. apríl 1988 ÞJÓÐVILJiNN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.