Þjóðviljinn - 19.04.1988, Qupperneq 3
Pýskaland
Stórtap Stuttgart
Werder Bremen svo til öruggtmeð titilinn eftir að Bayern
Miinchen tapaði
Fritz Walter, sem dregur hér Matthias Shipper á eftir sér, gekk illa
gegn Bochum.
NBA-karfa
Leikir um helgina
Föstudajíur
Cleveland Cavaliers-Boston Celtics.................... 120-109
Chicago Bulls-New Jersey Nets...........................100-99
Atlanta Uawks-Philadelphia 76ers...................... 103-101
Detroit Pistons-Milwaukee Bucks..........................92-91
Washington Bullets-New York Knicks......................106-97
San Antonio Spurs-Sacramento Kings.................... 116-112
DenverNuggets-Houston Rockets........................ 132-125
Los AngelesLakers-PhoenixSuns.........,............... 117-114
PortlandTrail Blazers-Golden State Warriors........... 147-113
Seattle Supersonics-Dallas Mavericks....................105-88
Laugardagur
New York Knicks-Atlanta Hawks............................95-93
DetroitPistons-NewJerseyNets............................114-96
IndianaPacers-Phi!adelphia76ers.........................126-92
Utah Jazz-San AntonioSpurs..............................107-82
PhoenixSuns-SeattleSupersonics........................ 121-119
Golden State Warriors-Los AngelesClippers............. 113-110
Austantjalds
Bochum-Stuttgart 5-1
Ásgeir og félagar voru gersam-
lega yfirspilaðir. Þeir höfðu
aldrei möguleika gegn Bochum
sem hefðu átt að skora að
minnsta kosti 10 mörk fyrir
leikhlé en tókst á einhvern furðu-
Iegan hátt að klúðra færunum.
Ásgeir byrjaði með en varð að
fara útaf á 54. mínútu vegna
meiðsla í nára. Bochum gerði
fyrsta mark sitt úr aukaspyrnu
langt utan af velli og var þar Pól-
verjinn Iwan á ferð. Annað
markið gerði Kree og Schafer
skaut boltanum í eigið mark
þannig að staðan í hálfleik var
3-0. Buchwald náði að minnka
muninn í 3-1 en Leifeld og Nehl
bættu við sínu hvor markinu fyrir
Bochum.
Werder Bremen-Homburg
3-0
Bremen nálgast titilinn hægt og
örugglega með þessum sigri.
Þetta var mjög auðvelt fyrir þá
því Homburg sýndi lélegan leik
og fékk ekki eitt einasta færi í
leiknum. Bremen gekk samt illa
að skora og var staðan í hálfleik
aðeins 1-0 og gerði Neubarth
markið á 36. mínútu. Sauer og
Riedle gerðu mörkin í síðari hálf-
leik en sá síðarnefndi var kosinn
besti maður vallarins.
Hanover-Bayern Munchen
2-1
Petta var sannarlega óverð-
skuldaður sigur. Leikmenn Bay-
ern voru í sókn mestallan tímann
og þrumuðu ýmist í stöng eða slá.
Þeir óðu í færum og Pfluegler
náði loks að skora fyrsta markið
fyrir þá 0-1. Þeir héldu áfram að
sækja en öllum á óvart jafnaði
Hobday fyrir Hanover á 58. mín-
útu. Enn sóttu Bæjarar af krafti
en enn kom Hanover á óvart með
því að skora annað mark sem
Grillemeier gerði. Bæjurum
tókst ekki að minnka muninn en
með þessum ósigri missa þeir að
öllum líkindum af meistaralest-
inni.
Köln-Nurnberg 3-1
Kölnarar voru miklu betri aðil-
inn í leiknum og átti Daninn
Povlsen stórleik, fékk 1 í eink-
unn, skoraði tvö mörk sjálfur og
lagði hið þriðja upp. Núrnberg
voru slakir og lék líklega sinn lél-
egasta leik í vetur.
Frankfurt-Gladbach 2-0
Gladbach hefur ekki unnið leik
í Frankfurt í 11 ár og þó að það
næði góðum leik núna tókst því
ekki að vinna. Binz gerði fyrsta
markið og Torowski annað en
besti maður vallarins var Stein í
marki Frankfurt. Beckenbauer
sagði í viðtali eftir leikinn að
Stein væri líklega einn besti
markvörður í Þýskalandi en það
væri ómögulegt að hafa hann í
landsliðinu því hann spilaði sig
alltaf úr því með slagsmálum og
alls kyns veseni.
Bayer Uerdingen-Hamburg
1-1
Atli var með allan leikinn og
stóð sig nokkuð vel, hann fékk 3 í
einkunn eins og allir hinir leik-
menn Uerdingen en liðið lék
mjög vel í þessum leik og kom sér
aðeins frá fallinu. Prytz skoraði
fyrsta markið úr víti en Bein náði
að jafna fyrir Hamburg.
Schalke-Mannheim 1-1
Þetta var hörku barátta hjá
Schalke á botninum. Þeir voru
betri aðilinn í leiknum en gekk
herfilega fyrir framan markið.
Mörkin komu ekki fyrr en 10
mínútur voru til leiksloka þegar
Bultner skoraði 0-1 fyrir Mann-
heim en Tohn jafnaði aðeins 2
mínútum síðar.
Kaiserslautern-Bayer Le-
verkusen 1-3
Þetta var erfitt tap fyrir Kais-
erslautern því liðið á í mikilli bar-
áttu á botninum. Leverkusen átti
aftur á móti góðan leik og sigur-
inn skilinn. Kohr skoraði fyrsta
mark Leverkusen en Waas jafn-
aði. Tauber bætti þá einu við fyrir
Leverkusen og Götz bætti einu
um betur.
Karlsruhe-Dortmund 0-0
A'norfendur púuðu stanslaust á
liðin sem sýndu ferlega lélegan
leik. Karlsruhe átti einu sókn
leiksins en tókst ekki að skora úr
henni.
Markhæstir
16 Jurgen Klinsmann, Stuttgart
14 Karl-Heinz Riedle, Werder Brem-
en
14 Fritz Walter, Stuttgart
13 Franz Ordenewitz, Werder Brem-
en
13 Siegreied Reich, Hanover
13 Lothar Mattheus, Bayern Munc-
hen
13 Dieter Eckstein, Nurnberg
Staðan
WerderBremen 28 19 7 2 53-15 45
Bayern Munch 28 18 3 7 69-37 39
Köln 28 14 11 3 47-23 39
Stuttgart 28 15 6 7 58-38 36
Nurnberg 28 12 9 7 40-30 33
Gladbach 28 13 3 12 46-40 29
BayerLeverk 28 9 10 9 43-46 28
Hamburg 28 9 10 9 46-55 28
Frankfurt 28 10 6 12 44-42 26
Hanover 27 10 5 12 44-45 25
Karlsruhe 28 8 8 12 30-48 24
Borussia Dort... 28 7 9 12 37-42 23
Mannheim 28 6 11 11 29-42 23
Bochum . 27 7 7 13 39-44 21
BayerUerd . 27 7 7 13 38-50 21
Kaiserslautern 28 7 7 14 40-53 21
Schalke . 27 8 4 15 42-68 20
Homburg .28 5 9 14 30-57 19
er farið að bera á ólátum svipuðum
og í Vestur-Evrópu þó að í minna
mæli sé. Knattspyrnuyfirvöld í
Austur-Þýskalandi hafa fyrirskipað 2.
deildarliðinu Lokomotive Stendal að
leika næsta heimaleik sinn á hlut-
lausum velli vegna óláta sem urðu á
síðasta leik liðsins. Áhorfendur rudd-
ust þá inná völlinn rétt fyrir leikslok og
hentu flöskum og dollum í dómara og
leikmenn. Stendal þarf þvi að ferðast
heila 100 kílómetra fyrir næsta leik.
Frá vinstri: Gísli Halldórsson fyrrverandi forseti ÍSÍ, Vilhjálmur Einarsson, Birgir ísleifur Gunnarsson
menntamálaráðherra, Bjarni Friðriksson, Sveinn Björnsson forseti ÍSÍ.
Alþjóðaólympíunefndin heiðrar
Badminton
Sumardagsmót
unglinga
Fimmtudaginn 21. apríl
kl. 10.00 hefst í TBR-húsunum
Sumardagsmót unglinga í bad-
minton.
Keppt verður í eftirtöldum
flokkum ef næg þátttaka næst:
Piltar-Stúlkur, Drengir-Telpur,
Sveinar-Meyjar, Hnokkar-
Tátur. Þátttökutilkynningar
skulu hafa borist til TBR eða í
síma 82266 í síðasta lagi miðviku-
daginn 20. apríl fyrir kl. 12.00.
Hlaup
Víðavangshlaup
Hafnarfjarðar
Sumardaginn fyrsta 21. apríl
fer fram í Hafnarfirði Víðvangs-
hlaup Hafnarfjarðar og hefst
hlaupið við bæjarskrifstofurnar.
Keppt er í flokkum 7 ára og
yngri drengir og stúlkur, 8-9 ára
drengir og stúlkur, 10-14 ára
drengir og stúlkur, 15-18 ára
drengir, 15-29 ára konur, 19-29
ára karlar, 30 ára og eldri karlar
og konur.
Skráning fer fram á staðnum
en keppendur eru beðnir að
mæta tímanlega og allir eru vel-
komnir.
Alþjóðaólympíusambandið
IOC hefur ákveðið að heiðra þá
íþróttamenn sem hafa komist á
verðlaunapall á Ólympíuleikum
með sérstöku heiðursmerki.
Tveir íslendingar hafa náð
þessu takmarki, þeir Vilhjálmur
Einarsson sem vann silfurverð-
laun á Ólympíuleikunum í Mel-
bourne Ástralíu 1956 og Bjarni
Friðriksson sem náði bronsi í Los
Angeles 1984.
A fundi Ólympíunefndar fyrir
skömmu afhenti menntamála-
ráðherra, Birgir ísleifur Gunn-
arsson, þeim heiðursmerkin í
umboði Alþjóðaólympíunefnd-
arinnar.
Handbolti
B-stigs
námskeið
Fræðslunefnd HSÍ gengst fyrir
B-stigs þjálfaranámskeiði dagana
21. til 24. nk. og stendur nám-
skeiðið í 40 tíma.
Rétt til þátttöku hafa allir sem
hafa lokið A-stiginu, íþrótta-
kennarar og þjálfarar og leik-
menn með margra ára reynslu af
þjálfun og nietur fræðslunefnd
umsækjendur.
HSÍ vill minna á eftirfarandi
tillögu sem samþykkt var á síð-
asta ársþingi: „Allir keppnis-
flokkar skulu hafa þjálfara og/
eða liðsstjóra í leikjum á vegum
HSÍ og skal viðkomandi hafa lok-
ið B-stigi þjálfaramenntunar.
Þjálfarar meistaraflokka skulu
hafa lokið D-stigi þjálfarani-
enntunar."
Námskeiðið hefst í fundarsal
ÍSÍ í Laugardal miðvikudaginn
20. apríl kl.17.00 en væntalegar
þátttökutilkynningar skulu hafa
borist skrifstofu HSÍ ekki síðar
miðvikudaginn 20.00 ásamt 1000
króna staðfestingargjaldi.
40 féllu
í hjólreiðakeppni í Belgíu. Þeir voru
búnir að hjóla 108 kílómetra af 260
þegar óhappið skeði en ekki var
mikið um meiðsli. Belgíumaðurinn
Van Der Poeí vann keppnina þegar
hann seig fram úr keppinautum sín-
um er aðeins voru eftir 200 metrar en
hann var fimm klukkustundir og 42
mínútur á leiðinni.
Þriðjudagur 19. apríl 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11