Þjóðviljinn - 10.05.1988, Qupperneq 1
IÞROTTIR
Noregur
íslendingaliðin
enn án stiga
íslendingarnir enn stigahœstir
Moss-Djerv 1919 0-1
Gunnar Gíslason og félagar
áttu leikinn og voru stöðugt í
sókn. Leikmenn Djerv pökkuðu í
vörn og áttu Moss í mestu vand-
ræðum að komast í gegnum vörn-
ina. En á 83. mínútu náðu Djerv
skyndisókn sem þeir skoruðu úr
og unnu óverðskuldaðan sigur.
Gunnar var stigahæstur í liðunum
og fékk hæstu einkunn hjá stór-
blaðinu VG.
Kongsvinger-Brann 1-0
Tapið varð „aðeins“ 1-0 og
hefði verið stærra ef Bjarni hefði
ekki sýnt stórkostlega mark-
vörslu. Hann var valinn maður
leiksins og fékk 7 í einkunn en
næsti maður fékk aðeins 5.
Kongsvinger var stöðugt í sókn
og var mun betra lið. Það hefur
komið talsvert á óvart hversu
Brann gengur illa þar sem þeir
eru með dýrasta liðið og marga
góða menn.
-bp/ste
Strömmen-Rosenberg 0-3
Tromsö-Bryne 3-0
Molde-Sogndal 1-1
England
Liveipool þægast
Það er ekki nóg með að Liverp-
ool sé besta lið Englands og eigi
besta fótboltamanninn, John
Barnes heldur fengu þeir einnig
verðlaun fyrir prúðastan leik.
Það voru samtök atvinnufót-
boltamanna sem sæmdu þá
heiðrinum því enginn leikmaður
Liverpool var rekinn af velli á
tímabilinu og þeir frömdu aðeins
35 agabrot. Næstir í röðinni var
Nottingham Forest með engan
mann útaf og 61 agabrot og í
þriðja sæti urðu 2.deildarliðið
Blackburn með 76 brot.
„Þetta eru ný verðlaun og hluti
af tilraunum okkar til að bæta
hegðun leikmanna“ sagði ritari
samtakanna, Gordon Taylor.
Alfreð Gíslason varð bikarmeistari um helgina. Þjóðverjar gráta sárt
yfir að missa Alfreð heim því hann er talinn einn besti leikmaðurinn í
Þýskalandi.
Pýskaland
Alfreð
bikarmeistarí
íslandi bættist enn ein
skrautfjöður í handboltahattinn
þegar Alfreð Gíslason varð þýsk-
ur bikarmeistari með Essen um
helgina.
Þeir léku við Wallaum-
Massenheim í seinni leik liðanna
og unnu nokkuð auðveldlega 28-
21 eftir að staðan var jöfn í hálf-
leik 10-10. Alfreð stóð sig mjög
vel bæði í vörn og sókn og var
næst markahæstur með 7 mörk en
Fraatz gerði 8.
Einn leikur var um sæti í 1.
deildinni á næsta keppnistíma-
bili. Fredenbeck sem er að
norðan lék gegn Schutterwald
sem eru að sunnan í fyrri leik lið-
anna og unnu þeir fyrrnefndu 25-
20 en staðan í leikhlé var 12-11.
-jgh/ste
Kampakátir KR-ingar hampa Reykjavíkurmeistarabikarnum að leikslokum. Þeir unnu Fram nokkuð örugg-
lega 2-0 á gervigrasinu á sunnudagskvöldið. Frammarar áttu frekar dapran leik. Pétur Pétursson skoraði
bæði mörkin. Nánar um leikinn á síðu 10.
Karfa
Engir útlendingar
næsta vetur
Kolbeinn kosinn formaður Körfuknattleikssambandsins á
þinginu um helgina
Ársþing KKÍ var haldið um
helgina í húsakynnum ISI í
Laugardal. Mættir voru um 54
þingfulltrúar af landinu sem er
með því fjölmennara. Þingfull-
trúar voru mjög ánægðir með
þingið enda voru umræður mikl-
ar og málin skoðuð ofan í kjölinn.
Mörg mál voru tekin fyrir og ber
þar helst hvort leyfa skuli erlenda
leikmenn hér á landi næsta vetur
og breytingu á skipulagi úrvals-
deildarinnar.
Kolbeinn Pálsson var einróma
kosinn formaður og tekur við af
Birni Björgvinssyni sem gaf ekki
kost á sér. Fjölgað verður úr 5 í
aðalstjórn og 2 í varastjórn í 7 í
aðalstjórn og 3 til vara. Aðrir í
aðalstjórn eru Sigurður Hjör-
leifsson, Kristinn Albertsson,
Ingvar Kristinsson og Einar
Bollason sem kemur nýr inn. í
varastjórn sem fer inn í aðal-
stjórn þegar ÍSÍ hefur samþykkt
lögin eru Gunnar Þorvarðarson
og Kristinn Stefánsson en þeir
voru hvorugur í stjórn áður. Enn-
fremur voru kosnir þrír í vara-
stjórn: Eiríkur Sigurðsson, Frið-
rik Jónsson og Kolbrún Jónsdótt-
ir. Sigríður Guðbjörnsdóttir gaf
ekki kost á sér í áframhaldandi
setu í stjórninni.
Samþykkt var með 28 at-
kvæðum gegn 14 að leyfa ekki
útlendinga næsta vetur. Helstu
rök þeirra sem felldu tillöguna
voru þau að frekar ætti að ráða
góða þjálfara og sinna unglingun-
um, frekar en andstæðingar
þeirra sögðu að erlendir leik-
menn myndu færa nýtt líf í körf-
una. Handboltamenn væru að fá
nýja menn og körfuboltamenn
yrðu að gera eitthvað fyrir sína
áhangendur. Ennfremur sögðu
leikmenn að gæðin myndu aukast
og það myndi hjálpa mönnum að
bæta sig.
Leikjafyrirkomulagið í úrvals-
deildinni er einnig breytt og lið-
unum fjölgað úr 9 í 10. Spilað
verður í tveimur riðlum og eru 5
tapað
Leikmaður í hinu margfræga
knattspyrnuliði Víkverja varð
fyrir óskemmtilegri reynslu um
daginn þegar hann klæddi sig í
takkaskóna fyrir leik. Hann fann
einhverja fyrirstöðu sem reyndist
vera tönn.
Þjálfari liðsins ákvað að hafa
manninn á bekknum þar til leik-
maðurinn hefði gefið einhverja
lið í hvorum riðli þannig að UBK
og ÍS leika um aukasæti í úrvals-
deildinni. Efstu liðin leika síðan
saman í úrslitakeppni.
Aldursskiptingu var breytt.
Bætt var við einum aldursflokki
og einnig er búið að breyta flokk-
unum þannig að leikmaður er í
hverjum flokki í eitt ár í stað
tveggja. Þetta er gert til að auka
breiddina og gefa fleiri leikmenn
möguleika á að spila.
Jafnframt var ákveðið að fram-
vegis skuli úrvalsdeildarfélög út-
vega 3 dómara hvert en 1 .flokkur
skal koma með 2.
-ste
tönn?
skýringu en viðkomandi leik-
maður mundi ekki eftir að hafa
lent í alvarlegum “tæklingum"
uppá síðkastið.
Ef einhver hefur tapað tönn
eða hefur einhverja skýringu á
fundinum, þá vinsamlegast hafið
samband við Vilhjálm þjálfara
Víkverja.
-fáni
Tapað-fundið
Hefur einhver
Umsjón: Þorfinnur Ómarsson og Stefán Stefáns son
Þrlðjudagur 10. maí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9