Þjóðviljinn - 26.01.1989, Side 3
FRÉTTIR
Miðstjórn ASÍ
Einróma gegn launavísitölu
Asmundur Stefánsson: Léttir ekki vaxtabyrðar almennings en torveldar
samningsgerð. Birna Þórðardóttir: Hengingaról um háls verkafólki
sú að kaupmáttur sé nú í lágmarki
og samningaviðræður hefjist
bráðlega. Þótt við ramman reip
verði að draga sé útilokað annað
en kaupmáttur vaxi og því stand-
ist það ekki að nýja vísitalan sé
skuldugu fólki til hagsbóta.
í ályktun miðstjórnarinnar
segir ennfremur: „Þá er óhjá-
kvæmilegt að minna á að launa-
vísitalan samkvæmt því frum-
varpi sem kynnt hefur verið tekur
ekki tillit til breytinga á vinnu-
tíma og yfirborganir mælast að
fullu í vísitölunni. Launavísitalan
getur því hækkað á sama tíma og
tekjur minnka vegna minni yfir-
vinnu og minni yfirborgana.“
-ks.
Frá miðstjórnarfundinum í gær. Frá v. Guðrún Ólafsdóttir, Lára V. Júlíusdóttir og Ásmundur Stefánsson. Mynd Jim Smart
Lánskjaravísitala
SAL óttast um sinn hag
Vill að fjármálaráðherra taki aföll tvímœli. Benedikt Davíðsson: Oheppileg aðgerð
Sambandsstjórn almennra lff-
eyrissjóða óttast um sinn hag
vegna ákvörðunar ríkisstjórnar-
innar um að breyta útreikningi
lánskj ar a vísitölu.
í fréttatilkynningu minnir SAL
ráðamenn á samninga frá því í
desember siðastliðnum þess efnis
að skuldir ríkisins við lífeyris-
sjóðina vegna Húsnæðisstofnun-
ar, fyrir fyrsta ársfjórðung 1989,
skuli verðtryggðar með þeirri
lánskjaravísitölu sem í gildi var
við undirritun.
Vill SAL að fjármálaráðherra
eyði öllum vafa um þetta samn-
ingsatriði. Komi hinsvegar í ljós
að ríkisvaldið hyggist reikna vexti
af eldri skuldum með nýju láns-
kjaravísitölunni felur sambands-
stjórnin „framkvæmdastjórn
SAL að hafa forgöngu um laga-
lega athugun á gildi umræddrar
breytingar og láta þá á málið
reyna fyrir dómstólum, ef þurfa
þykir.“
Benedikt Davíðsson, stjórn-
arformaður SAL, sagði þessa að-
gerð ríkisstjórnarinnar afar
óheppilega. Hann hefði talið að
ekki væri hægt að breyta forsend-
um lánskjaravísitölu með þessum
hætti. Þetta væri ugglaust vafa-
samt mjög út frá iagalegu sjónar-
miði.
„Viðskiptaráðherra réttlætir
þessa breytingu m.a. með því að
byggingavísitala hafi hækkað
öllum að óvörum. Staðreyndin er
sú að byggingavísitala hækkaði
vegna þess að ríkisstjórnin hækk-
aði vörugjald. Ráðherrann
breytir mælikvarðanum eftir því
sem honum hentar og slíkt heitir
á ísiensku hentistefna.“
-ks.
ísafjörður
Deilt um íbúðir aldraðra
Kostnaðarhlutdeild bæjarsjóðs vex úr2 miljónum Í66 miljónir. Bœjarfulltrúi Sjálfstœðisflokksins
skipaðisonsinnframkvæmdastjórasemseinnasat báðum megin samningaborðs
Miðstjórnarmenn Alþýðusam-
bands íslands sátu á rökstól-
um í gær og ræddu þau boðuðu
tíðindi úr búðum rfldsstjórnar-
innar að innan skamms verði far-
ið að reikna lánskjaravísitölu út
með nýjum hætti. I stað þess að í
forsendum hennar vegi fram-
færsluvísitala 2/3 og byggingavís-
itala 1/3 einsog verið hefur muni
framfærsluvísitala vega þriðj-
ung, byggingarvísitala þriðjung
og kaupgjalds- eða launavísitala
þriðjung. Er skemmst frá því að
segja að miðstjórnin er samstiga í
algerri andstöðu við þessi ný-
mæli:
„Miðstjórn ASÍ mótmælir
þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinn-
ar að tvöfalda vægi launa í láns-
kjaravísitölunni,“ segir í upphafi
ályktunar fundarins. Staðreyndin
er sú, þótt margir átti sig ekki á
því, að laun liggja að hluta til
grundvallar bæði byggingar- og
framfærsluvísitölu. Ef nýja vísi-
talan verður að veruleika, segir
Ásmundur Stefánsson, mun
kaup vega 55 af hundraði við út-
reikning hennar. Sem sé: hækki
kaup um 10% hækkar vísitalan
um 5,5%, hækki kaup um 10%
hækkar miljónarskuld íbúðar-
kaupandans í miljón og 55 þús-
und krónur.
Bæði Ásmundur og Birna mið-
stjórnarmaður Þórðardóttir eru á
sama máli um að nýmælin muni
þyngja róður verkafólks í kjara-
baráttunni. Ásmundur bendir á
að hálfu erfiðara verði eftir en
áður að sækja gull í greipar
vinnuveitenda sem bæði sjái fram
á að þurfa að greiða hærra kaup
og hærri vexti af bankaskuldum
fari verkalýðshreyfingin með
sigur af hólmi. Birna tók svo
djúpt í árinni að segja að ríkis-
stjórnin hefði „brugðið henging-
aról um háls verkafólki fyrir
næstu kjarasamninga."
Ásmundur segir í sjálfu sér rétt
hjá ríkisstjórninni að hin nýja
vísitala stuðli að því að saman
dragi með kaupi og vöxtum, sé sú
forsenda gefin að kaup haldist
jafn lágt og verið hefur að undan-
förnu. Staðreyndin sé hinsvegar
Strandið
Sjópróf
ídag
Innsigli á vínbirgðum
rofin. Kostnaðarsöm
olíuhreinsun
Sjópróf í strandmáli danska
kaupfarsins Mariane Danielsen
hefjast í dag kl. 10. Dómsforseti
verður Sigurður H. Stefánsson
héraðsdómslögmaður.
Yfirvöld á Suðumesjum voru
þögul sem gröfin þegar þau vom
innt eftir gangi rannsóknarinnar
á orsökum óhappsins í gær. Orð-
rómur var hins vegar á kreiki um
að skipverjar hefðu rofið lög-
sagnarinnsigli vínbirgða sinna en
slíkt er sem kunnugt er með öllu
óheimilt fyrr en skip hefur siglt út
úr landhelgi.
í gær var síðustu smurolíulítr-
unum dælt upp úr Mariane. Að
sögn Jóns Gunnars Stefánssonar,
bæjarstjóra í Grindavík, hefur
verið afar kostnaðarsamt að
hreinsa skipið olíu. Ljóst væri að
bæjaryfirvöld myndu krefja
tryggingarfyrirtæki útgerðarinn-
ar um bætur „... fyrir vinnu við að
koma í veg fyrir stórfellt tjón“.
Því yrði ennfremur gertiað eyða
vegsummerkjum en það ér kunn-
ara en frá þurfi að segja að
strandflak er til mikillar óprýði.
Og lík Mariane marar afar nærri
mynni Grindavíkurhafnar. -ks.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Deilur hafa staðið á milli bæj-
arsjóðs ísafjarðar og fram-
kvæmdastjómar Samvinnufélags
um byggingu íbúða fyrir aldraða,
um kostnaðarhluta bæjarins við
bygginguna. Bæjarstjórn sam-
þykkti árið 1985 að verða eignar-
aðili að byggingunni og átti fram-
lag bæjarins að felast í eftirgjöf á
gatnagerðargjöldum og var
metið á bilinu 1-2 miljónir. Fram-
kvæmdastjórn Samvinnufélags-
ins segir eignarhlut bæjarins hins
vegar vera um 66 miljónir, en
bæjarstjórn sættir sig ekki við
hærri hlut en 40 miljónir.
Allt frá því að bærinn sam-
þykkti að gerast aðili að Sam-
vinnufélaginu, hafa samningar
ekki tekist á milli hans og Sam-
vinnufélagsins. En framkvæmdir
hófust við byggingu 42 söluíbúða
og þjónustubyggingar, sem
stendur á milli Hlífar I og Hlífar
II, en þar eru leiguíbúðir fyrir
aldraða sem bærinn rekur. For-
sendur bæjarsjóðs fyrir aðild
vom að framkvæmdasjóður aldr-
aðra fjármagnaði 80% bygging-
arkostnaðar.
Á eina almenna félagsfundin-
um sem haldinn hefur verið í
Samvinnufélaginu var kosin þrig-
gja manna stjórn. í henni áttu
sæti Guðmundur H. Ingólfsson,
þáverandi bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, Ágúst Guð-
mundsson og Snorri Hermanns-
son, bæjarfulltrúi Alþýðuflokks-
ins, og var hann formaður. Árið
1985 óskaði stjórnin eftir því að
ráðinn yrði framkvæmdastjóri og
samþykkti bæjarstjórn að Hall-
dór Guðmundsson, forstöðu-
maður Hlífar I, tæki við þeirri
stöðu, en hann er sonur Guð-
mundar H. Ingólfssonar. í kosn-
ingunum 1986 varð Halldór síðan
bæjarfulltrúi fyrir Alþýðuflokk-
inn.
Að sögn Smára Haraldssonar,
bæjarfulltrúa Alþýðubandalags-
ins, bárust litlar upplýsingar til
bæjarsjóðs um framkvæmdir og
kostnað. í maímánuði 1987
komst bæjarstjórn fyrst að því að
framkvæmdasjóður aldraðra
muni ekki greiða nema 35%
byggingarkostnaðar í stað 80%
og í febrúar 1988 barst bréf frá
Halldóri, þar sem hlutur bæjar-
sjóðs var sagður vera 16-17 milj-
ónir. Þá var skipuð viðræðunefnd
við stjórn Samvinnufélagsins en
þær viðræður báru engan árang-
ur. Stjórn Samvinnufélagsins
sagði hlut bæjarsjóðs meiri en
bærinn gat sætt sig við, sem fólst í
því að kostnaðurinn við kjallara
byggingarinnar væri allur bæjar-
ins.
Halldór varð formaður bæjar-
ráðs árið 1987 og hélt áfram að
vera framkvæmdastjóri Sam-
vinnufélagsins og sat því báðum
megin borðs í þessu máli. Hann
átti einnig að vera formaður
bæjarráðs 1988 en flutti þá um
vorið úr bænum. í nóvember
1988 kom skýrsla frá
innkaupadeild Framkvæmda-
stofnunar ríkisins um stöðuna. Þá
kom í ljós að fjárhagsstaða fé-
lagsins var miklu verri en áætlað
var, og vantaði um 142 miljónir í
reksturinn og hlutur bæjarins var
sagður vera 66 miljónir. Bæjar-
stjórinn á ísafirði fékk eftir þetta
lögfræðilegt álit á því hver gæti
orðið lágmarkshlutur bæjar-
sjóðs, og í áliti Andra Árnasonar
lögfræðings segir að hann sé 40
miljónir. Stjórn Samvinnufélags-
ins hafnar þessu og stendur fast
við að hlutur bæjarins sé 66 milj-
ónir, en Smári segir bæjarstjórn
vera einhuga í sinni afstöðu.
Á bæjarstjórnarfundi á
fimmtudag var afstaða bæjar-
stjórnar ítrekuð og lögð áhersla á
að samningar næðust sem fyrst.
Smári segir bæjarsjóð ósköp ein-
faldlega ekki geta tekið meira á
sig en umræddar 40 miljónir, þótt
málið sé bæði erfitt og viðkvæmt
leyfi fjárhagsstaða bæjarsjóðs
ekki hærra framlag. Því verði að
brúa bilið öðruvísi en með fram-
lagi hans.
- hmp
I