Þjóðviljinn - 26.01.1989, Page 7
Vestur-Pýskaland
Böndin berast
að fyrirtækjum
Saksóknari telur að þrjú vesturþýskfyrirtœki hafi hjálpað
Gaddafi að byggja efnaverksmiðju
Vesturþýska lögreglan gerði í
gær fyrirvaralaust húsleit í
húsnæði þriggja þarlendra fyrir-
tækja, sem grunuð eru um að
hafa verið Gaddafi Líbýuleiðtoga
hjálpleg við að koma upp efna-
verksmiðju, og á heimilum 12
starfsmanna fyrirtækjanna. Síð-
ar um daginn sagði Werner Botz,
saksóknari er hefur málið með
höndum, að við húsleitirnar
hefðu fundist gögn, sem bentu
eindregið til þess að fyrirtækin
hefðu átt hlut að ólöglegum út-
flutningi til Líbýu.
Eitt fyrirtækjanna þriggja er
Imhausen-Chemie í Baden-
Wúrttemberg, en stjórnarfor-
maður þess, Júrgen Hippenstiel-
Imhausen, harðneitaði því fyrr í
mánuðinum, þegar efnaverk-
smiðjumálið kom á daginn, að
fyrirtæki hans hefði þar nærri
komið. Síðan hafa fréttamenn
ekki náð í hann. Klaus Hesse,
Helmut Kohl, sambandskanslari
Vestur-Þýskalands - vont mál
fyrir stjórn hans.
tækniteiknari hjá Imhausen,
skýrði þeim, sem hafa rannsókn
málsins með höndum, svo frá í
Tadsjikistan
Næni 300 fonist
Að sögn sovéskra talsmanna er
vitað með vissu að 274 menn létu
lífið af völdum jarðskjálftans,
sem varð í fjallahéraði nálægt af-
gönsku landamærunum í sovét-
lýðveldinu Tadsjíkistan á sunnu-
dagsnótt. Gennadíj Gerasímov,
talsmaður sovéska utanríkis-
ráðuneytisins, sagði að verið gæti
að fleiri hefðu farist, en þó ekki
yfir 300.
Áður hafði verið óttast að 1000
manns að minnsta kosti hefðu
látið lífið er aurskriður, sem jarð-
skjálftinn kom af stað, féllu á
þrjú þorp. En síðan hefur komið í
ljós að mörgum íbúa tveggja
þorpanna tókst að forða sér. 207
fórust í þorpinu Sharora, enda
skall aurskriða á því aðeins fá-
einum sekúndum eftir jarð-
skjálftann. Einnig varð mikið
manntjón í þorpinu Okulibolo.
Reuter/-dþ.
s.l. viku að nokkrir starfsmanna
fyrirtækisins hefðu farið til Líbýu
til að hjálpa til við að byggja
verksmiðjuna, sem er að Rabta
suður af Trípólis. Hesse á einnig
að hafa gefið upp að teikningar,
sem vesturþýska ríkisfyrirtækið
Salzgitter Industriebau lét í té,
hafi verið notaðar við téðar fram-
kvæmdir. Salzgitter hefur viður-
kennt að hér sé rétt með farið, en
talsmenn þess fullyrða að þeir
hafi staðið í þeirri trú að byggja
ætti umrædda verksmiðju í
Hongkong.
Botz saksóknari sagði enn-
fremur, að lögregla hefði náð
vörubíl hlöðnum skjölum, sem
væntanlega eru málinu viðkom-
andi, í Lahr í Baden. Er svo að
heyra á orðalagi fréttar um þetta
að þar hafi verið um að ræða til-
raun til að koma skjölunum
undan yfirvöldum.
Svo sem alkunna er, telja
Bandaríkjamenn að til standi að
framleiða eiturgas í líbýsku efna-
verksmiðjunni, en Gaddafi full-
yrðir að þar verði ekkert fram-
leitt skaðlegra en lyf. Málið
komst í fréttirnar á nýársdag, er
bandaríska blaðið New York
Times hafði það eftir bandarísk-
um embættismönnum, að verk-
smiðja til að framleiða efnavopn
væri í byggingu í Líbýu. Vestur-
þýska stjórnin hefur sætt miklu
ámæli fyrir það hve viðbragða-
sein hún var í málinu, þrátt fyrir
að leyniþjónusta hennar hefði
fyrir mörgum mánuðum gefið
henni upplýsingar sem bentu til
.hlutdeildar vesturþýskra fyrir-
tækja í framkvæmdum þessum.
Reuter/dþ.
Manndráp atvinna
s
Iran
Eitur-
smyglarar
hengdir
unnvöipum
Teheranútvarpið skýrði svo frá
í gær, að fyrr um daginn hefðu
verið hengdir 16 menn, er fundn-
ir hefðu verið sekir um að smygla
inn í Iran næstum níu smálestum
af heróíni, morfini og ópíum.
Voru sumir mannanna líflátnir í
Teheran, en aðrir í Varamin, bæ
þar nálægt, og í Bakhtaran í vest-
urhluta landsins. Um ein milj-
ón manns af um 50 miljónum
íbúa írans er sjúk af völdum
eiturlyfja- og fíkniefnaneyslu, að
því er stjórnvöld telja. Hafa þau
því lýst yfir herferð gegn eiturl-
yfjum og fíkniefnum og taka
brotlega engum vettlingatökum,
fremur en vænta mátti af þeim.
Fyrir níu dögum voru 56 eiturlyfj-
asmyglarar hengdir þarlendis og
dauðarefsing liggur við ef maður
er staðinn að því að hafa 30
grömm og þaðan af meira af her-
óíni eða morfíni í fórum sínum.
Eiturlyfjunum er einkum smygl-
að inn í landið frá Afganistan.
Reuter/-dþ.
Guillermo Plazas Alcid,
dómsmálaráðherra Kólombíu,
komst svo að orði í vikunni að þar
í landi væru manndráp orðin
atvinnugrein og mætti segja að
þeir, sem legðu þau fyrir sig,
væru metnir á við t.d. lækna,
blaðamenn og lögfræðinga.
Ráðherrann sagði þetta í tilefni
þess, að í s.l. viku var 12 manna
rannsóknarnefnd á vegum dóms-
yfirvalda strádrepin í héraði um
Kaþólskur byggingaverka-
maður var skotinn til bana af
tveimur mönnum i gær, er hann
var að vinnu sinni í Lisburn, um
25 kflómetra suður af Belfast.
Talið er að öfgasinnaðir mótmæl-
endur hafi verið þar að verki.
í s.l. viku drápu öfgasinnaðir
mótmælendur ungan kaþólikka í
miðborg Belfast, er hann var þar
að störfum í verslun í eigu móður
sinnar. Talið er að menn þessir
báðir hafi verið drepnir til hefnda
eftir landbúnaðarverkamann
175 kílómetra norður af höfuð-
borginni Bogotá. Var nefndin
þar vegna fjöldamorða, sem fyrir
skömmu höfðu verið framin á
þeim slóðum. Talið er að „dauða-
sveit“ á vegum hers eða lögreglu
hafi ráðið lögfræðingana af
dögum. Um 16.000 manns voru
drepnir í Kólombíu s.l. ár, þar af
að minnsta kosti 3600 af pólitísk-
um orsökum.
Reuter/-dþ.
mótmælendatrúar, sem liðsmenn
írska lýðveldishersins (IRA)
skutu til bana fyrir augum vin-
stúlku hans, kaþólskrar. Óttast
er nú að hefndardráp milli trú-
flokkanna séu að verða faraldur,
eins og borið hefur við áður síðan
óöldin Jrarlendis hófst fyrir 20
árum. A þeim tíma hafa næstum
3000 manns verið drepnir í viður-
eign IRA annarsvegar og
mótmælenda og breska hersins
hinsvegar.
Reuter/-dþ.
Norður-írland
Hefndardráp á víxl
Tveir kaþólikkar drepnir til hefnda eftir
mótœlanda
IÐNTÆKNISTOFNUN
Eftirtalin námskeið verða haldin á næstunni
hjá Iðntæknistofnun:
Fræðslumiðstöð iðnaðarins:
30. jan. Þök og þakfrágangur. Námskeið ætlað
byggingamönnum bæði meisturum
4. febr. og sveinum 30-40 kennslustundir. Virka
daga kl. 15-19, laugardag kl. 8.30-16.
6. -10. febr. Steypuskemmdir. Námskeið ætlað iðn-
aðarmönnum, verkfræðingum og tækni-
fræðingum í byggingariðnaði. 60 kennslu-
stundir. Dagl. kl. 9-15.30
7. -11. febr. Gluggar og glerjun. Námskeið ætlað
húsasmiðum. 18 kennsiustundir 7., 8. og
9. febr. kl. 16-20, 11. febr. kl. 9-12.
13. -15.febr.Hljóðeinangrun. Námskeið ætlað iðnað-
armönnum, nönnuðum og öðrum áhuga-
mönnum. 18 kennslustundir. Dagl. kl. 13-
17.
Verkstjórnarf ræðslan:
30. jan. Öryggismál. Farið yfir ábyrgð stjórn-
enda, viðhald öryggismála, gott húsnæði,
kostnað vegna slysa o.fl. Námskeiðið er
haldið á Vesturlandi.
3. febr. Stjórnun breytinga og samskipta-
stjórnun. Fjallar um stjórnun breytinga,
starfsmannaviðtöl, hegðunarvandamál,
virkni starfsmanna o.fl.
6. febr. Innkaupa- og lagerstjórn. Skipulapning
innkaupa og lagerstjórnunar, mat a lág-
marksbirgðum, birgðaskráning, just-in-
time kerfið o.fl.
10. febr. Tíðniathuganir og hópafköst. Farið yfir
hvernig meta má afköst hópa, hagræð-
ingu vinnustaða, afkastahvetjandi launa-
kerfi o.fl.
15. febr. Vöruþróun. Helstu þættir vöruþróunar,
hlutverk verkstjóra, hugmyndaleit og mat
hugmynda, þróun frumgerðar og mark-
aðssetning.
17. febr. Multiplan-forrit og greiðsluáætlanir.
Farið yfir undirstöður áætlanagerðar með
PC-tölvu, kennt að nota MULTIPLAN,
greiðsluáætlanir o.fl. Námskeiðið er hald-
ið á Akureyri.
17. febr. Verkefnastjórnun. Farið er yfir undir-
stöðu verkefnastjórnunar, hlutverk verk-
efnisstjóra, undirbúningur og skipulag
helstu verkefna o.fl.
Rekstrartækni:
30. jan. Stefnumótun - skapið fyrirtækinu
bjartari framtíð.
1. febr. Námskeið ætlað stjórnendum er bera
ábyrgð á rekstrarlegri afkomu fyrirtækja.
16 kennslustundir.
6.-11. febr. Stofnun og rekstur fyrirtækja. Nám-
skeið ætlað þeim sem hyggjast stofna fyr-
irtæki, hafa þegarstofnaðfyrirtæki. Einnig
haldið sérstaklega fyrir konur.
9. febr. Staðlar - betri samkeppnisaðstaða.
Mikilvægi staðla fyrir fyrirtæki í útflutningi,
lækkun framleiðslukostnaðar, bætt gæði
o.fl.
14. febr. Strikamerki. Námskeið ætlað mönnum
sem hafa umsjón með umbúðum í
dreifingar- og framleiðslufyrirtækjum,
prenturum og umbúðahönnuðum.
Önnur námskeið:
í febr.lok Ál og álblöndur - vinnsla, hönnun og
efnisval.
(2 dagar) Námskeið ætlað verk- og tæknifræðing-
um og öðrum sem fást við efnisval tengt
hönnun og vöruþróun.
23. febr. Val og innkaup á stáli. Námskeið ætlað
verk- og tæknifræðingum og öðrum sem
fást við stálinnkaup.
Námskeið í Reykjavík eru haldin í húsakynnum Iðn-
tæknistofnunar.
Nánari upplýsingar og innritun hjá stofnuninni í síma
68 7000.
:
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA!
Fimmtudagur 26. janúar 1989 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7