Þjóðviljinn - 26.01.1989, Síða 9
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
AB Selfossi og nágrenni
Almennur
félagsfundur
Almennur félagsfundur verð-
ur haldinn að Kirkjuvegi 7,
Selfossi, mánudaginn 30. jan-
úar kl. 20.30.
Ólafur R. Grímsson fjármála-
ráðherra og Margrét Frí-
mannsdóttir alþm. mæta á
fundinn og ræða stöðuna í
stjórnmálunum.
Nýir félagar velkomnir. Fjöl-
mennið. Stjórnin
Alþýðubandalagið á Suöurlandi
Þorrablót
Þorrablót kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Suðurlandi verður haldið í
félagsheimili Ölfusinga laugardaginn 4. febrúar og hefst klukkan 20.
Miðaverð er krónur 1800 og þátttökutilkynningar þurfa að hafa borist eigi
síðar en 30. janúar til Ingibjargar í síma 34259, Björns s: 34389 og Inga s:
31479. Kjördæmisráð
20 ára afmælishappdrætti
Alþýðubandalagsins
Drætti frestað fram yfir mánaðamót svo allir geti gert skil.
Munið greiðslukortaþjónustuna í síma 91-17500.
AB Hveragerði
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Hveragerði verður haldinn í hótel
Ljósbrá, miðvikudaginn 1. febrúar kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf.
Margrét Frímannsdóttir alþm. mætir á fundinn.
Félagar fjölmennið. Nýir félagar velkomnir. AB Hveragerði
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Morgunkaffi
Morgunkaffi verður haldið hjá Alþýðubandalaginu í
Kóþavogi laugardaginn 28. janúarfrá klukkan 10-12
í Þinghóli Hamraborg 11. Valþór Hlöðversson bæjar-
fulltrúi hellir uþþá könnuna. Ennfremur mæta þeir
Pétur Már Ólafsson og Björn Ólafsson í morgunkaff-
ið og taka þátt í umræðum.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Stjómin.
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Þorrablót
Þorrablót Alþýðubandalags-
ins í Kópavogi verður haldið
laugardaginn 4. febrúar í
Þinghóli Hamraborg 11. Hús-
ið opnað klukkan 18 með
óvæntri uppákomu en borð-
hald hefst klukkan 20. Ræðu-
maður kvöldsins verður Guð-
rún Helgadóttiralþingismaður
og forseti Sameinaðs Alþing-
is. Veislustjóri verður Heimir
Pálsson. Að loknu borðhaldi
mun hljómsveitin Haukar Heimir Guðrún
leika fyrir dansi. Miðaverð
krónur 2500.
Miðaþantanir og Uþþlýsingar hjá Lovísu í síma 41279 og hjá Birnu í síma
40580 á kvöldin. Miðar verða seldir miðvikudaginn 1. febrúar í Þinghóli frá
klukkan 17 - 19 og frá 20,30 - 22.
Tryggið ykkur miða tímanlega.
Stjórnin.
Félagsfundur ABR
Minnihlutinn í
Reykjavík -
AA-flokkarnir
Samvinna -
samfylking -
sameining?
Stuttar framsögur flytja Álf-
heiður Ingadóttir Birna Þórð-
ardóttir, Kristín Á. Ólafsdóttir
og Svanfríður Jónasdóttir.
Fundurinn verður haldinn að
Hverfisgötu 105
fimmtudaginn 26. janúar
klukkan 20.30. Félegar fjöl-
mennið, hér eru mál sem þarf
að ræða.
Stjórnin
AB Suðurlandi
Opinn fundur
Hveragerði
Alþýðubandalagið á Suður-
landi boðar til opins fundar í
hótel Ljósbrá, Hveragerði,
þriðjudaginn 31. janúar kl.
20.30.
Steingrímur J. Sigfússon
landbúnaðar- og samgöngu-
ráðherra og Margrét Frím- Steingrímur Margrét
annsdóttir alþm. mæta á
fundinn, sem er sérstaklega helgaður málefnum garðyrkjubænda.
Fjölmennið. AB-Suðurlandi
Álfheiður
Svanfríður
Birna
Kristín
Galopið bréf til Guðmnar Helga
frá gersamlega óbreyttum kontórista
Þegar ég var menntskælingur
varð ég fyrir þeirri lífsreynslu, að
Jón Baldvin kenndi mér
stjórnmála- og hagfræði, eða
hvað hann nú kallaði pensúmið.
Viðurkennist fúslega, að Nonni
hefur oft haft betri hagfræði-
nema, en ég bætti það upp með
stjórnmálaáhuga. Lengi vel hélt
ég að við Nonni værum sammála,
eða þar til hann stal glæpnum frá
Willy Brandt, og upplýsti okkur
um það, að fertugur (og eldri)
sósíalisti væri bara hlægilegur.
Þar með gerði ég það, sem
Bryndís gat ekki; ég skrúfaði fyrir
ástina á Jóni. Þess í stað festi ég
stjórnmálalegar ástir á öðrum
þeim, sem ég hélt að stæðu hjarta
mínu - sem og pólitískri vitund
nær.
Þar í flokki stóðst þú í eina tíð,
Guðrún mín Helgadóttir, en nú
hefur þú svikið mig, sem og aðra
bláeyga, með því að mæla því
bót, að laun og bitlingar ráðherra
og þingmanna séu þau sem þau
eru. Þú segir, að þið séuð búin að
vinna margfalt fyrir þessu.
Ekki ætla ég að efast um það,
en minni á hitt, að flokkurinn
sem þú ert kosin fyrir, hefur fleiri
skjólstæðinga að umsorga, sem
líka vinna fyrir kaupinu sínu og
gott betur, og það kaup er ekki
nema brot af launum þínum.
(Jafnrétti, hvað?) Þú segir, að ís-
lenska þjóðin geti ekki verið svo
skyni skroppin, að vilja láta þing-
menn sína éta pulsur úti á götu og
búa í kytrum á erlendri grund, -
virðingar íslands vegna.
Jæja.
Það er nú svo með virðingu ís-
lands, að ég held það breyti sára-
litlu hvort kjörnir eða sjálfskip-
aðir fulltrúar hennar snæði á Ritz
eða MacDonalds, - hvort þeir
búa á forsetasvítum eða í KFUM-
kytrum. Ég trúi því, að það sé allt
annað sem heldur uppi áliti ann-
arra þjóða á okkur. Gott ef ekki
er dálítið horft með aðdáun á þá,
sem halda aftur af sér, þegar þeir
eru að spila með peninga þjóðar
sinnar.
Og ef ég leyfi mér að vera virki-
lega grimm, þá held ég það sé
einmitt ágætt að búa ekki of vel
að opinberum starfsmönnum á
flakki sínu um allar trissur, næg
er nú ásóknin í utanlandsferðir
samt. Spurning hversu margir
yrðu yfirleitt eftir hér heima, til
að sinna verkum sínum, ef enn
yrði bætt við risnur, laun og dag-
peninga. Nema það væri ekki svo
galið að losna við ykkur öll til
útlanda, - það væri bara dálítið
dýrt.
Auðvitað er hér skrifað í ýkj-
ustfl, en það er vegna þess, að
stfllinn á ummælum þínum í DV
19.1. er alveg ótrúlega ýktur (til
hægri), og ólíkur því sem ég taldi
þig venjulega viðhafa.
Auðvitað þurfa íslendingar að
fara utan og fylgjast með, en
margt má þar skera niður sem
algeran óþarfa, pjatt og bruðl.
Dæmi (ef sönn eru):
- Hvers vegna fá makar ráð-
herra dagpeninga þó þær/þeir
tosist aftan í til útlanda? Hver
bauð þeim? Eða ber að skilja það
svo, að ráðherrar séu ósjálf-
bjarga erlendis, séu þeir þar
makalausir. Eru hér á ferðinni
forvarnaragerðir landlæknis, svo
ég segi ekki meira?
- Af hverju þarf Vigdís að fara
að jarða Hirohito? Dugir ekki að
senda samúðarskeyti?
- Því í ósköpunum fá sumir
ráðherrar frímiða á Ólympíuleik-
ana? Hvaða þjóðþrifamál leysa
þeir undir kúrekahöttunum?
- Er full nauðsyn að senda all-
an þennan fjölda fólks á hvaða
smáráðstefnu sem vera skal?
(- Þeir sem eru betur að sér í
fjármálum ríkisins geta vafalaust
bætt við þennan lista).
- Og hvar og hvenær fær al-
þýða manna að sjá einhvern ár-
angur af öllu þessu brölti?
Nú er búið að viðurkenna af
flestum, að samdráttur sé í aðsigi
í íslensku þjóðfélagi. Við, sem
erum venjulegt launafólk
(óbreyttir kontóristar!) erum
hrædd með því, að nú þurfi að
draga saman seglin; lækka laun,
minnka opinbera þjónustu. En
hvergi fáum við að sjá hið opin-
bera skera í nokkru niður sín út-
gjöld, a.m.k. til persónulegra
þarfa gæðinga sinna eða fánýtra
gæluverkefna. Þetta er dálítið
svekkjandi, að ekki sé meira
sagt, en þó tekur steininn úr, þeg-
ar þeir, sem við héldum samherja
okkar í lífsins ólgusjó, taka upp
málsvörn stéttaróvinarins. Það er
fyrir neðan virðingu þína, Guð-
rún og fyrir ofan skilning minn,
að slíkt geti gerst.
Reykjavík 24. janúar 1989
Hanna Lára Gunnarsdóttir
FLOAMARKAÐURINN
ísskápur til sölu
ITT ísskápur, stór og mjög vel farinn
til sölu. Upplýsingar í síma 30227.
Ibúð óskast
2ja herbergja íbúð óskast til leigu.
Tvennt fullorðið í heimili. Upplýs-
ingar í síma 32101.
Pelsar til sölu
Hálfsíður pels nr. 12 og síð pels-
kápa nr. 12 til sölu. Upplýsingar í
síma 32101.
Til sölu
Pressa-stansari, skatthol, sófa-
borð, frístandandi hillur, svefnbekk-
ur, Ijós og lampar, bastgardínur,
tekkspegill, vinnuborð 1,20x1.40 til
sölu. Verð frá 200-1500 kr. Upplýs-
ingar í síma 36767.
Til sölur er
Takkaharmonikka, sem ný, skíði,
lengd 1,40, skór, bindingarog hvítir
skautar nr. 36. Allt mjög gott. Einnig
lítill svefnstóll. Selst allt á hálfvirði.
Upplýsingar í síma 685331.
Vantar þig tíma í hljóðstúdíói?
Þá skaltu lesa þetta!
Af sérstökum ástæðum eru til sölu
150 timar í góðu 12 rása, digital
hljóðstúdíói. Innifalið í verðinu er
tæknimaður og gilda tímarnir til 1.
nóvember nk. Tímarnir seljast á al-
veg ótrúlega góðu verði. Upplýs-
ingar í síma 33301 á daginn og
10154 á kvöldin, Guðmundur.
Líflaust hár? Skalli?
Vöðvabólga? Offita? Hrukkur?
Sársaukalaus og skjótvirk hárrækt
með akupunktur, rafmagnsnuddi
og laser, viðurkennt af alþjóða
læknasamtökum. Vítamíngreining,
orkumæling, ofnæmisprófun, and-
litslyfting, svæðanudd, megrun.
Hringdu og fáðu nánari upplýsing-
ar. Hágæða snyrtivörur, GNC og
BANANA BOAT, úr kraftaverkajurt-
inni Aloa Vera. Komdu og fáðu
ókeypis upplýsingabækling á ís-
lensku. Póstsendum út á land.
HEILSUVAL, Laugavegi 92, við
Stjörnubíóplanið, sími 11275.
Silver Cross barnavagn
til sölu. Lítur mjög vel út. Upplýsing-
ar í síma 687838 í dag og næstu
daga.
2ja-3ja herbergja íbúð óskast
Erum 3 í heimili og vantar íbúð ná-
lægt Kennaraháskólanum. Skilvís-
um greiðslum og reglusemi heitið.
Fyrirframgreiðsla ef óskað er. Upp-
lýsingar í síma 688601 í kvöld og
föstudagskvöld.
Herbergi til leigu
sem geymsla undir búslóð og ann-
að. Upplýsingar í síma 79446 á
kvöldin.
Bernina saumavél
í sæmilegu ásigkomulagi til sölu á
hálfvirði. Upplýsingarísíma21835.
Einstaklingsrúm
Til sölu hvítlakkað einstaklingsrúm
frá IKEA. Stærð: 1,05x2 m. Spring-
dýna fylgir. Hvorttveggja sem nýtt.
Verð kr. 12.000. Upplýsingar í síma
54572 á kvöldin.
Tanzaníukaffið fæst aftur
Upplýsingar í síma 675809.
Atvinna óskast
Ég er ungur og reglusamur maður
og mig vantar vinnu. Margt kemur til
greina. Er með bílpróf. Upplýsingar
í síma 12007 og 72353.
3 ódýrir bílar til sölu
MMC Galant ’77, heillegur og góður
bíll. Skoðaður ’88, verð 50 þús. Dai-
hatsu Charade ’80,3 dyra, verð 25-
30 þús. Cortina 1600 '71, verð 20
þús. Skoðaður '88. Upplýsingar í
síma 45196.
Óska eftir
ísskáp og þvottavél ódýrt eða gef-
ins. Upplýsingar í síma 45196.
Til sölu rafmagnsorgel
Yamaha FC 20 2ja borða með fót-
bassa og trommuheila. Verð kr.
25.000. Upplýsingar í síma 43492.
Barnavagn
Til sölu Emmaljunga barnavagn.
Selst ódýrt. Sími 37482.
Sá sem ók framan á bíl
á horni Nesvegar og Kaplaskjóls-
vegar kl. 7 að kvöldi sl. sunnudags
er vinsamlega beðinn að hafa sam-
band við Hannes Tómasson í síma
18070.
íbúð óskast
4 manna fjölskylda óskar eftir 3ja
herbergja íbúð helst í Vesturbæn-
um eða á Seltjarnarnesi. Upplýs-
ingar í síma 77339.
Ódýrt eða gefins
Þvottavél og strauvél til sölu fyrir
lítið eða ekkert. Upplýsingar í síma
38785.
Dagmamma í Fossvogi
getur bætt við sig börnum. Aldur og
tími samkomulagsatriði. Nánari
upplýsingar í síma 31884.
Tónlistarnema
bráðvantar hljómflutningstæki í
góðu ástandi. Upplýsingar í síma
30227.
íbúð óskast
Starfsmann Þjóðviljans vantar 2-3
herbergja íbúð fyrir 1. mars. Upp-
lýsingar í síma 681333 og 14567,
Þorgerður.
Einstæðar mæður athugið!
Mig vantar meðleigjanda að góðri 3
herbergja íbúð. Er sjálf með lítinn
strák. Upplýsingar í síma 39536.
Unglingaskrifborð
úr eik með 2 skúffum, 110x55 sm, til
sölu. Upplýsingar í síma 621689.
Lítið skrifstofuherbergi
óskast í miðbæ Reykjavíkur. Upp-
lýsingar í síma 30055 á daginn og
51817 á kvöldin.
Bassi til sölu
4 strengja Aria Pro rafmagnsbassi
til sölu. Upplýsingar í síma 10342.
Tanzaníukaffið fæst aftur
Upplýsingar í síma 675809.
Ný fótaaðgerðastofa
Fjarlægi líkþorn, meðhöndla inn-
grónar neglur, almenn fótsnyrting
o.fl. Tímapantanir alla virka daga
frá 9.30-10.30. Guðríður Jóels-
dóttir, med. fótaaðgerðasér-
fræðingur Borgartúní 31, 2. h.h.,
sími 623501.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9