Þjóðviljinn - 23.01.1990, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 23.01.1990, Blaðsíða 2
FRÉTTIR Pjóðleikhúsið Efri svölunum fargað Menntamálaráðherra hefur ákveðið að fara að tillögum byggingarnefndar. Starfseminflyst íHáskólabíó. Starfsmenn reikna úthvernig niðurskurði framlaga skuli mætt Nú fer hver að verða síðastur að kaupa sig inn á efri svalir Þjóðleikhússins til að fylgjast þaðan með leiksýningum á stóra sviðinu. Húsinu verður lokað eftir um það bil einn mánuð og hafist handa við breytingar og endurbætur. Svavar Gestsson menntamálaráðherra hefur ákveðið að í því efni skuli farið að tillögum byggingarnefndar Þjóð- leikhússins. Þar er m.a. gert ráð fyrir að í húsinu verði aðeins ein- ar svalir. Gísli Alfreðsson Þjóðleikhús- stjóri sagði í samtali við Þjóðvilj- ann að hann væri mjög ánægður með ákvörðun menntamálaráð- herra. „Ég er alveg sannfærður um að þetta verður betri bygging og að aðstaðan verði betri,“ sagði hann. Á þessu ári er gert ráð fyrir að leggja um 350 miljónir króna í breytingarnar. Vegna þeirra verður stóra sviðið lokað fra- mundir jól, þegar sýningar hefj- ast að nýju. Leikarar Þjóðleik- hússins verða þó ekki aðgerða- lausir á meðan því verið er að leggja lokahönd á samning um leigu eins af þremur nýjum sölum sem Háskólabíó er að ljúka við að byggja. Sá salur tekur 335 manns í sæti. Gísli Alfreðsson vonast til að sýningar geti hafist þar í marsmánuði. Gísli Alfreðsson sagði að starfsfólki Þjóðleikhússins yrði ekki fækkað vegna lokunar aðal- sviðsins. „Hins vegar varð veru- legur niðurskurður á framlagi til leikhússins og við þurfum að mæta honum. Hvort það þýðir fækkun á starfsliði eða ekki, liggur ekki ljóst fyrir. Við erum að reikna og reikna til að skoða hvernig við mætum þessum nið- urskurði, svo hann verði okkur sem léttbærastur,“ sagði Gísli. Niðurskurðurinn á framlaginu til Þjóðleikhússins nemur um þriðjungi miðað við framlag ríkisins á síðasta leikári. Jóhann Sigurðarson, formaður leikarafélags Þjóðleikhússins, segir að leikarar hafi rætt minnkandi fjárveitingar til húss- ins sín í milli. Hann vill hins vegar ekkert tjá sig um það þar sem málið sé á viðkvæmu stigi, eins og Umhverfismálaráðuneyti Komið á fyrir mánaðamót Alþingi kom saman í gœr eftir jólaleyfi Þjóviljinn Gátu- verðlaun Dregið hefur verið úr réttum lausnum á jólakrossgátu Þjóðvilj- ans og verðlaunamyndagátu, en mikill fjöldi svara barst við báð- um gátunum. Aðalheiður Arnfinnsdóttir, Einigrund 3, Akranesi, var sú heppna í jólakrossgátunni. Hún fær senda íslands handbókina, sem Tómas Einarsson og Helgi Magnússon ritstýrðu, en mynda- stjóri var Örlygur Hálfdanarson. Örn og Örlygur gáfu út. Anna Björgvinsdóttir, Akur- hóli II, Hellu, var hinsvegar sú heppna í verðlaunamyndagát- unni. Hún fær senda íslenska orðsifjabók, eftir Ásgeir Blöndal Magnússon, sem Orðabók Há- skólans og Mál og menning gáfu út. Við óskum þeim Aðalheiði og Önnu til hamingju og þökkum öðrum þátttöku í leiknum. _Sáf Alþingi íslendinga kom saman í Eitt stærsta málið sem þingið gæreftirjólaleyfiþingmanna. mun afgreiða á fyrstu starfs- Júlíus Sólnes er bjartsýnn á að umhverfismálaráðuneyti taki til starfa um eða upp úr mánaðamótum. Mynd: Kristinn. dögum sínum eru frumvörp um umhverfismáiaráðuneyti. Júlíus Sólnes verðandi umhverfismála- ráðherra telur að ráðuneytið ætti að geta hafið starfsemi sína um eða eftir mánaðamót. Til þess að umhverfismála- ráðuneytið geti orðið að veru- leika þarf að samþykkja tvö frumvörp sem liggja fyrir Al- þingi. Það er von Júlíusar að Al- þingi nái að afgreiða fyrra frum- varpið seinnipartinn í þessari viku eða í þeirri næstu, en það er frumvarp um breytingu á lögum um stjórnarráðið. Þannig segir Júlíus að ráðuneytið ætti að geta tekið til starfa um mánaðamótin, hafið undirbúningsvinnu og ef til vill ráðningu í störf. En það er gert ráð fyrir því að í hinu nýja ráðuneyti starfi um 10 manns, að ráðherra meðtöldum. Seinna frumvarpið sem liggur fyrir þinginu er frumvarp um til- flutning á verkefnum á milli ráðu- neyta og segist Júlíus halda að það ætti að geta fengið afgreiðslu um miðjan febrúar. Töluverð nefndavinna er að baki varðandi það frumvarp en ekki er endan- lega ljóst hvaða stofnanir heyra á endanum undir umhverfismála- ráðuneytið. Stjórn Hollustu- verndar ríkisins hefur þó nýlega skilað áliti sínu og samþykkti að stofnunin yrði færð undir um- hverfismálaráðuneytið. -hmp Haustannarslit í Flensborg Haustannarslit í Flensborgarskóla fóru fram laugardaginn 13. janúar sl. í Hafnarborg, menningarmiðstöð Hafnfirðinga. Þá voru brautsk- ráðir 30 stúdentar og einn nemandi með verslunarpróf. Bestum árang- ri á stúdentsbraut náði Selma Þórunn Káradóttir sem brautskráðist af náttúrufræðibraut. Þýðingar á tölvuöld Þýðingar á tölvuöld er yfirskrift ráðstefnu sem Orðabók Há- skólans og IBM á íslandi efna til á morgun, miðvikudaginn 24. jan- úar, í tilefni þess að rúmlega fimm ár eru liðin frá upphafi sam- starfs þessara aðila. Ráðstefnan er haldin í framhaldi af málrækt- arátaki því sem staðið hefur yfir að undanförnu að frumkvæði menntamálaráðherra. Ráðstefn- an fer fram í AKOGES-salnum í Sigtúni 3, og hefst kl. 10 árdegis en lýkur kl. 16.45. Fræðslukvöld um Hjálparstofnunina Sigríður Guðmundsdóttir fram- kvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar mun kynna starfsemi stofnunarinnar og hlutverk henn- ar, á fræðslukvöldi Kársnessafn- aðar í Safnaðarheimilinu Borg- um annað kvöld kl. 20.30. Þá mun Magnús Torfi Óláfsson spjalla um umbrotin í Austur- Évrópu síðustu misseri og áhrif kirkjunnar á þróunina þar, á fræðslukvöldi miðvikudaginn 14. febrúar. Allir eru hjartanlega velkomnir að hlusta og taka þátt í umræðum og þiggja kaffiveiting- ar. FBA-samtökin Um síðustu áramót fluttu þær deildir FBA-samtakanna (Samtök fullorðinna barna alk- óhólista), sem voru í Þverholti 20, í annað húsnæði. Þriðjudags- deildin og fimmtudagsdeildin fluttu í Langagerði 1 og hefjast fundir sem fyrr kl. 21. Laugar- dagsdeildin sem var í græna hús- inu fellur niður en aðrar deildir eru óbreyttar sem hér segir: Mið- vikudagsdeildin kl. 21 í kjallaran- um Fríkirkjuvegi 11 og sunnu- dagsdeildin kl. 11 í félagsmið- stöðinni í kjallara Bústaðakirkju. Bílskúrsbanda- kvöld í Vitanum Félagsmiðstöðin Vitinn í Hafnar- firði mun standa fyrir bílskúrs- bandakvöldum næstu miðviku- dagskvöld. Þegar hafa hljóm- sveitirnar Júlíus og Ber að ofan komið fram og voru undirtektir frábærar. Hægt er að bæta við hljómsveitum en upplýsingar gefa starfsmenn Vitans í síma 50404. Bandaríkin burt úr Panama Bandaríkin burt úr Panama er yfirskrift umræðufundar sem haldinn verður í húsakynnum Pathfinder bóksölunnar að Klapparstíg 26, annarri hæð, annað kvöld kl. 20.30. Frummæl- endur verða Högni Eyjólfsson, vinnuliði á vegum Alþjóðlegra ungmennaskipta í Nicaragua 1988, Kristina Björklund, sjálf- boðaliði á Grenada 1982, Ólafur Grétar Kristjánsson járniðnaðar- Birting Foimenn í nýju Ijósi Ólafur Ragnar Grímsson for- maður Alþýðubandalagsins og Jón Baldvin Hannibalsson for- maður Alþýðuflokksins sitja fyrir svörum á opnum umræðufundi um ný stjórnmálaviðhorf, sem Birting efnir til á Hótel Sögu í kvöld. Yfirskrift fundarins er „Kalda stríðið búið - hvað tekur við?“ og er ætlunin að ræða um splunkuný stjórnmálaviðhorf á breyttum tímum heima og erlendis einsog segir í fréttatilkynningu frá Birt- ingu. Meðal umræðuefna eru ný tækifæri og nýjar skyldur jafnað- armanna eftir atburðina í Áustur- Evrópu, samvinna félagshyggju- afla og lýðræðissinna og fram- boðsmál í Reykjavík. Afstaðan til hersins og margt fleira sem brennur á landsmönnum um þessar mundir. Fundurinn hefst kl. 20.30 í Ársal Hótel Sögu og er Ævar Kjartansson fundarstjóri. -Sáf Jarðgöng Öflug viðspyma Héraðsnefnd ísafjarðarsýslu fagnar mjög þeim hugmyndum sem samgönguráðherra hefur kynnt í ríkisstjórninni að flýta gerð jarðganga á Vestfjörðum um þrjú ár. Jafnframt hvetur Héraðs- nefndin ríkisstjórn og Alþingi til þess að bregðast vel og skynsam- lega við þessum hugmyndum og vinna þannig Vestfjörðum það gagn er skipta myndi sköpum fyrir fjórðunginn. í ályktun Hér- aðsnefndarinnar, sem send hefur verið ríkisstjóm, Alþingi, sam- gönguráðherra, fjárveitinga- nefnd, þingmönnum kjördæmis- ins og þingflokkunum segir „... að aðgerð af þessu tagi væri ein öflugasta viðspyrna gegn frekari byggðaröskun á norðanverðum Vestfjörðum sem hugsast gæti.“ -grh maður og Þorkell Ingólfsson vinnuliði á vegum Vináttufélags fslands og Kúbu 1988. Almennar umræður, sala bóka og vegg- spjalda og kaffiveitingar. 50 kr. fyrir námsmenn og atvinnulausa, 100 kr. fyrir aðra. Lánskjara- vísitalan Lánskjaravísitala febrúarmánað- ar er 1,26% hærri en í janúar. Vísitalan umreiknuð til árshækk- unar hækkaði því um 16,3% í síð- asta mánuði, 17,9% síðustu 3 mánuði, 20,4% síðustu 6 mánuði og 21,1% síðustu 12 mánuði. Menningarsjóður nýtist kvikmyndum Stjórn Kvikmyndasjóðs íslands skorar á menntamáíaráðuneytið að breyta reglugerð þeirri er gild- ir um úthlutanir úr Menningar- sjóði útvarpsstöðva, þannig að sjóðurinn nýtist sjálfstæðri ís- lenskri kvikmyndagerð, og að kvikmyndagerðarmönnum verði gert kleift að sækja beint um framlög úr sjóðnum. 2 SlÐA — ÞJOÐVILJINN Þriðjudagur 23. janúar 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.