Þjóðviljinn - 23.01.1990, Síða 9

Þjóðviljinn - 23.01.1990, Síða 9
FRETTIR Aldraðir brosa líka Öldrunarráð íslands með ráðstefnu um viðhorftil aldraðra. Sigurður Helgi Guðmundsson: Fordómar ríkjandi í garð ellinnar Oldrunarráð íslands stóð fyrir ráðstefnu að Hótel Sögu um viðhorf til aldraðra. Sigurður Helgi Guðmundsson formaður Öldrunarráðs sagði ráðstefnuna ekki hvað síst hafa fjallað um for- dóma gagnvart öldruðum. Það væri kannski einkenni á okkar tímum að setja aldraða á sérstak- an bás og menn óttuðust gjarnan ellina. Sigurður Helgi sagði þennan ótta að hluta til stafa að því að menn ræddu ekki mikið um ævina sem eitt samfellt skeið heldur um ákveðinn þátt þess fyrst og fremst. Fram undir þrít- ugt væru menn að búa sig undir að sinna einhverju ákveðnu starfi sem lyki á tilteknum tíma, en byggju sig ekki undir að þá væru ef til vill 30 ár eftir af ævinni. Það virðast vera ríkjandi for- dómar varðandi ellina, menn líta nánast á hana sem sjúkdóm, sagði Sigurður Helgi. Ekki þyrfti annað en líta á auglýsingar, sem væru mikið ríkjandi í okkar samfélagi, til að sjá að ekki væri gert ráð fyrir öldruðum. Hvenær sjáum við til dæmis tannbursta- bros hjá öldruðum manni, hve- nær sjáum við sápu eða sjampó- auglýsingar með öldruðu fólki, hvenær sjáum við auglýsingu þar sem gert er ráð fyrir að aldraðir fari í sólarlandaferð eða kaupi sér föt?, sagði Sigurður Helgi. Það væri fyrst og fremst stflað á einn hóp sem litið væri á sem neytend- ur, jafnvel þótt aldraðir væru kannski stærsti neytendahópur- inn þegar upp væri staðið. Þetta sýnir okkur einfaldlega að við útilokum aldraða og þá hugsun að við eigum eftir að verða eldri, að mati Sigurðar Helga. Hann sagði áreiðanlega ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið Akureyri Félagsfundur Almennur félagsfundur verður haldinn í Alþýðubandalaginu Akur- eyri fimmtudaginn 25. janúar kl. 20 í Lárusarhúsi. Fundarefni: 1. Undirbúningur framboðs. 2. Staða bæjarmála og kosningabaráttan. 3. Önnur mál. Alþýðubandalagið ísafirði Félagsfundur Félagsfundur verður haldinn sunnudaginn 28. janúar kl. 16 á Hótel ísafirði. Dagskrá: 1. Undirbúningur bæjarstjórnarkosninga. 2. Önnur mál. Félagar mætum öll. Stjórnin Alþýðubandalag Selfoss og nágrennis Félagsfundur Fólagsfundur verður haldinn að Kirkjuvegi 7 laugardaginn 27. janúar kl. 14. Dagskrá: Bæjarstjórnarkosningar í vor. Uppstillingarnefnd Miðstjórnarfundur Sveitarstjórnarmenn serstaklega hvattir til að sitja fundinn Boðað er til fundar í miðstjórn Alþýðubandalagsins dagana 9. - 11. febrúar 1990 í Þinghóli, Kópavogi. Nánari tímasetning verður auglýst síöar. Fundarins bíða mörg mikilvæg verkefni, en aðalefni nanss verða: 1. Stjórnmálaástandið. 2. Sveitarstjórnarmálefni 3. Undirbúningur sveitarstjórnarkosninganna í vor. Fundarboð og dagskrá verða send miðstjórnarmönnum í næstu viku. Mikilvægt er að miðstjórnarmenn mæti sem best. Stjornin AB Kópavogi Þorrablót Hið vinsæla þorrablót Alþýðubandalags Kópavogs verður haldið í Þinghóli Hamraborg 11, laugardaginn 3. febrúar kl 19 Nánar auglýst síðar. Laugardagsfundir ABR Alþýðubandalagið í Reykjavík heldur opinn umræðufund laugar- daginn 27. janúar, kl. 11 að Hverfisgötu 105, efstu hæð Atburðirnir í Austur-Evrópu og barátta sósíalista. Málshefjendur: Árni Bergmann, ritstjóri Jórunn Sigurðardóttir, leikari Sveinn Rúnar Hauksson, læknir Eftir stuttar framsögur verða fyrirspurnir og umræður. Umræðustjóri verður Ragnar Stefánsson, Alþýðubandalagið í Reykjavík Árni Bergmann Jórunn Sigurðar- dóttir Sveinn Rúnar Hauksson Sigurður Helgi Guðmundsson formaður Öldrunarráðs (slands. Mynd: Kristinn. rétt að tengsl aldraðra við fjöl- skylduna hefðu minnkað með breyttum þjóðfélagsháttum. Þessu fylgdi sú hætta að við glöt- uðum miklu af þeim verðmætum sem framundir þetta hefði verið á hendi þeirra eldri að miðla áfram. Sigurður Helgi sagðist ekki vera maður til að svara því hvernig mætti snúa þessari þróun við. En hann vonaði að við fynd- um leið til þess okkar vegna og líka vegna þeirra sem eldri væru, svo þeir litu ekki á sig sem þiggj- endur heldur aftur sem veitend- ur. Ef sú leið fyndist ekki væri hætt við að stór hluti af okkar menningu glataðist. Sigurður Helgi ságði ekki nokkurn vafa á að Félag eldri borgara skapaði vettvang fyrir fólk til að tala saman og skemmta sér saman. En það leysti ekki tengslaleysið á milli þeirra öldr- uðu og hinna yngri. Öldrunarráð gerir á hverju hausti áætlun um á hvað skuli lögð áhersla á komandi ári. Með- al verkefna eru ráðstefnur af því tagi sem haldin var í gær. Öldrun- arráð er samsett af margs konar stofnunum og félögum eins og Húsnæðisstofnun, Trygginga- stofnun, Þjóðkirkjunni, Rauða krossinum, Stéttasambandi bænda, Alþýðusambandinu og Forsœtisráðherra byggðastefna Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra hefur skipað tvær nefndir um byggðamál. Önnur nefndin á að gera tillögur um nýj- ar áherslur og langtímastefnu í byggðamálum á grundvelli skýrslu sem Byggðastofnun skilaði frá sér í aprfl í fyrra, með það að markmiði að byggð dafni í öllum landshlutum. í tilkynningu frá forsætisráðu- neytinu segir að nefndin eigi að gera tillögur um aðgerðir sem geti komið sem fyrst til fram- kvæmda. Nefndinni er einnig ætl- að að leita samstarfs við sem flesta aðila, félagasamtök, stofn- anir og einstaklinga sem' hagsmuna eiga að gæta í sam- bandi við byggðamál. í tillögu- num skal lögð áhersla á sjálfstæði sveitarfélaga, héraðs- eða landshluta til að ráða þeim mál- efnum sem þau hafa tök á. Jón Helgason alþingismaður er for- maður nefndarinnar. Hin nefndin sem forsætisráð- herra skipaði hefur það hlutverk að gera tillögur um skipulag Byggðastofnunar og fyrstu að- gerðir í byggðamálum á grund- velli skýrslu stofnunarinnar frá því í apríl. Stefán Guðmundsson alþingismaður er formaður nefndarinnar. -hmp Vinnuveitendasambandinu. Sig- urður Helgi sagði þessa aðila eiga það sameiginlegt að þeir þyrftu að horfast í augu við það sem fylgdi hækkandi aldri. -hmp Athugasemd við Pétur Það er auðvitað fjarri mér að vilja gera Pétri Gunnarssyni upp skoðanir. Þess vegna tók ég upp orðrétt ummæli hans um íslensku bókmenntaverðlaunin í DV 11. janúar í grein minni hér í blaðinu á þriðjudaginn og lét lesendum eftir að meta að hve miklu leyti hann ætti þau sjónarmið sem ég deildi á þar. Hins vegar get ég ekki séð annað en hann geri skáldverkum hærra undir höfði en fræðiritum þegar hann segir að bókmenntalegt gildi verkanna eigi að ráða úrslitum. Ef orðin bókmenntalcgt gildi merkja eitthvað sérstakt, eitthvað annað en hvers konar gildi bóka, þá hljóta þau að eiga við það gildi sem einnkennir bókmenntir í hinni þrengri merkingu, nefni- lega skáldrit. Með því er sagt að einhvers konar listrænt gildi standi ofar fræðilegu gildi eða hagnýtu notagildi. Þannig er fræðiritum vissulega skipað skör lægra en skáldritum, þótt auðvit- að geti fræðirit líka haft listrænt gildi. Gunnar Karlsson Starfslaun handa lista- mönnum árið 1990 Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun til handa íslenskum listamönnum árið 1990. Umsóknir skulu hafa borist úthlutunarnefnd starfslauna, Mennta- málaráðuneytinu, Sölvhóli, 150 Reykjavík, fyrir 25. febrúar n.k. Umsóknir skulu auðkenndar: Starfslaun listamanna. í umsókn skulu eftirfarandi atriði tilgreind: 1. Nafn og heimilisfang, ásamt kennitölu. 2. Upplýsingar um náms- og starfsferil. 3. Greinargerð um verkefni, sem liggur umsókn til grundvallar. 4. Sótt skal um starfslaun til ákveðins tíma. Verða þau veitt til þriggja mánaða hið skemmsta, en eins árs hið lengsta, og nema sem næst byrjunar- launum menntaskólakennara. 5. Umsækjandi skal tilgreina tekjur sínar árið 1989. 6. Skilyrði fyrir starfslaunum er að umsækjandi sé ekki í föstu starfi, meðan hann nýtur starfslauna, enda til þess ætlast að hann helgi sig óskiptur verkefni sínu. 7. Að loknu verkefni skal gerð grein fyrir árangri starfslauna til úthlutunaranefndar. Tekið skal fram að umsóknir um starfslaun árið 1989 gilda ekki í ár. Menntamálaráðuneytið, 18. janúar1990 ÞJÖÐVIUINN - SÍÐA 9 PÓST- OG SÍMAMÁLA STOFNUNIN Útboð Tilboð óskast í fullnaðarfrágang á nýbygg- ingu Pósts og síma í Gufunesi. Um er að ræða 370 m2 viðbyggingu við núverandi fjarskiptastöð. Húsið er nú fokhelt og nær útboð þetta til fullnaðarfrágangs að utan og innan. Verkinu skal lokið 15. júlí 1990. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu fast- eignadeildar Pósts og síma, Pósthússtræti 5, 3. hæð gegn skilatryggingu kr. 20.000,- Tilboð verða opnuð á skrifstofu umsýslu- deildar Pósts og síma, Landsímahúsinu v/ Austurvöll fimmtudaginn 8. febrúar 1990 kl. 11 árdegis. Póst- og símamálastofnunin

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.