Þjóðviljinn - 03.03.1990, Side 9

Þjóðviljinn - 03.03.1990, Side 9
Æðahnútar... Framhald af bls. 7 að eyjabúum Norðuratlantshafs- ins. fslendingar þar á móti manna montnastir af þjóðerni sínu, út- koman varð dálítið taugastríð. Ef íslendings var að góðu getið í þar- lendum blöðum skoruðum við nokkra punkta. Listamenn okkar unnu til viðurkenninga, Jón L. og Helgi rúlluðu öllum upp á mótum í Danmörku; að maður tali nú ekki um þegar landslið okkar í handbolta var að koma út og velgja þeim dönsku undir uggum, þá rigsuðu nú mörlandar harla roggnir um götur Hafnar. En þess í milli hrundi allt sem þannig hafði verið upp byggt með miklum bresti,en það var þegar íslenskar sjónvarpsmyndir voru sýndar í danska eða sænska. Hví- líkt reiðarslag! Þeir íslendingar sem sóttu skóla eða vinnustaði lærðu fljótt að halda sig heima fyrstu dagana eftir að „islandsk tv-drama“ hafði verið á dag- skránni. En ekkert komst þó í hálfkvisti við það þegar „Snorri Sturluson“ var á dagskrá danska sjónvarps- ins. Skreytnin og háðsglósurnar sem íslendingar í Danmörku máttu þola eftir þá hörmung urðu mörgum næstum óbærilegar; til var fólk sem hreinlega flúði land eftir þau ósköp. Áðurnefnd mynd var einsog flestum er í beisku minni hreint ótrúlega löng, og þegar hún var sýnd úti átti hún að leggja undir sig lung- ann úr dagskránni tvö kvöld í röð. Þegar langt var liðið á seinna kvöldið varð hinsvegar bilun; þetta mun hafa verið í eitt af þeim fáu skiptum á eftirstríðsárunum sem rafmagnið fór af Kaup- mannahöfn. Allt fór á annan endann; fólk sat fast í lyftum, vindubrýr stöðv- uðust, umferðarljós slokknuðu með tilheyrandi öngþveiti og á- rekstrum, málmbræðslur kóln- uðu og járnblendi stirðnaði í kerjum. Blöðin voru uppfull af svona voveiflegum fréttaskýrsl- um næstu daga. Samt voru nær allir háðfuglar pressunnar, dálkahöfundar og fjölmiðlagagnrýnendur, á þeirri skoðun að hörmulegasta af- leiðing rafmagnsleysisins hefði þó verið sú að danska þjóðin þurfti af völdum þess að afbera íslensku kvikmyndina um Snorra Sturluson þriðja kvöldið í röð. Auðvitað er þetta bara fyrst og fremst spaugilegt þegar maður lítur til baka. Hinsvegar eru á þessu máli alvarlegar hliðar, sér- staklega fyrir íslenska kvik- myndagerðarmenn. Ég er nefni- lega ekki í nokkrum vafa um að hin bitra reynsla annarra Norður- landabúa af þessum sjónvarps- verkum hefur stórspillt mögu- leikum á að fá íslenskar bíómynd- ir sýndar í þessum löndum. Sjálf- ur þekki ég fullt af fólki, aðallega í Danmörku og Svíþjóð, sem er mjög áhugasamt um flest sem ís- lenskt er; les bækur sem eru þýddar héðan og vill fá senda ís- lenska tónlist og myndlist. En ís- lenskar bíómyndir segir það, nei takk því miður og þú verður að fyrirgefa; við höfum séð meira en við kærum okkur um af því tagi í sjónvarpinu. Það er reynsla margra hér- lendra listamanna að bestir og nærtækastir möguleikar til að koma verkum sínum á framfæri utan landsteinanna séu í þessum nágrannalöndum okkar. Svo hef- ur reynst fólki úr öllum listgrein- um, nema kvikmyndum. Hin norrænu löndin virðast einu stað- irnir í heiminum þarsem áhuginn á íslenskum ræmum er alveg við frostmark, velgengni Hrafnsins í Svíþjóð er þar alger undantekn- ing. I ofangreindu viðtali við Þráin Bertelsson lumar hann á einni bjartsýnni nótu; hann segir að mynd hans Magnús sé „sú fyrsta síðan Hrafninn flýgur var sem á möguleika á einhverri verulegri dreifingu erlendis". Guð láti gott á vita, ég óska Þráni af heilum hug velfarnaðar í að selja mynd- ina nágrannaþjóðunum. En í öllum bænum Þráinn, ef það á að takast máttu alls ekki fyrir nokk- urn mun láta spyrjast út hver hafi verið leikstjóri hinnar frægu sjón- varpsmyndar um Snorra Sturlu- son. 28. febrúar 1990 Einar Kárason Sjúkrastöð SÁÁ Aldrei meiri aðsókn Eittárfrákomu bjórsins „Það er Ijóst að bjórinn hefur farið illa með marga og þá kann- ski sérstaklega ungt fólk sem misst hefur fótanna með tilkomu hans. Hér hjá okkur hefur til dæmis aldrei verið meiri aðsókn en á síðasta ári,“ sagði Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Vogi. I gær var eitt ár liðið frá því bjórinn var lögleiddur á ný hér á landi en þá hafði landið verið bjórlaust samkvæmt lögum í 76 ár. Á þessu fyrsta ári bjórsins nam neysla íslendinga 6.946.656 lítrum eða 27,5 lítrar á mann. Af einstökum bjórtegundum hefur mest selst af Löwenbrau og því- næst af Tuborg og Budweiser. Þórarinn sagði að með tilkomu bjórsins hefði hann aukið á þá þróun sem fyrir var sem er sú að sífellt verður auðveldara að verða sér úti um áfengi. í því sam- bandi hefur útsölustöðum áfengis fjölgað auk þess sem boðið er upp á áfenga drykki á mörgum veitingahúsum. Þetta hefur haft þær afleiðingar að drykkjumun- stur landans hefur breyst mjög mikið. Frá því að drekka aðeins um helgar eða taka túra í það að drekka dagsdaglega. -grh Leiðrétting Bókmenntahópur MAÍ kemur saman í Hlaðvarpanum, Vestur- götu 3 í dag kl. 13, en ekki kl. 15 einsog misritaðist í Nýju Helgar- blaði í gær. ALÞÝPUBANDALAGIÐ AB Hafnarfirði, Garðabæ og Bessastaðahreppi Kvöldskemmtun í Gaflinum Alþýðubandalagsfélögin í Hafnarfirði, Garðabæ og Bessastaða hreppi halda sameiginlega kvöldskemmtun í Gaflinum föstudaginn 9. mars kl. 20. Léttur kvöldverður og skemmtiatriði. Ræðustúfa flytja Magnús Jón Árnason og Hilmar Ingólfsson. Miðaverð kr. 1300. Félagar og stuðningsmenn fjölmennið. Stjórnirnar Alþýðubandalagið Ólafsvík Almennur félagsfundur Alþýðubandalagið Ólafsvík heldur almennan félagsfund í Mettubúð sunnudaginn 4. mars kl. 14. Dagskrá: 1. Tillaga uppstillingarnefndar á framboðslista. 2. Kosning í blaðstjórn. 3. Kynning á fjárhagsáætlun fyrir 1990. Stjórnin Æskulýðsfylkingin Sameiginlegur stjórnarfundur Sameiginlegur stjórnarfundur Æskulýðsfylkingar Alþýðubanda- lagsins og Æskulýðsfylkingar Reykjavíkur verður haldinn sunnu- daginn 4. mars kl. 16.00 á Hverfisgötu 105. Athugið breytta dagsetningu. Á dagskrá er m.a. norðurlandþing æskunnar og málefni EFTA og EB, auk æskulýðsstarfs Alþýðubandalagsins. Oddviti Tilboð óskast í ýmsar gerðir af röntgenfilmum ásamt framköllunarefni fyrir ríkisspítala og nokkur sjúkrahús. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu Innkaupa- stofnunar ríkisins, Borgartúni 7, Reykjavík. Tilboðsfrestur er til kl. 11.00 f.h. þann 23. apríl n.k. ll\ll\IKAUPASTOFI\IUI\l RÍKISIIMS _________BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK Skip til sölu Kauptilboð óskast í Vitaskipið Árvakur, þar sem það liggur við suðurhöfnina í Hafnarfirði, í því ásigkomulagi sem skipið er nú. Skipið verður til sýnis eftir nánara samkomulagi við forstöðumann Vitamálastofnunar og gefur hann jafnframt allar nánari upplýsingar: Sími 27733. Tilboð leggist inn á skrifstofu vora eigi síðar en 14. mars n.k. kl. 11.00 f.h. og verða þá opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS Boraartúni 7. sími 26844 /Sjfs TRÉSMIÐJAN STOÐ • Smíðum hurðir og glugga í ný og gömul hús. • Önnumst breytingar og endurbætur á gömlum húsum úti sem inni. • Smíðum sumarbústaði og seljum sumarbústaðalönd. Trésmiðjan Stoð Reykdalshúsinu Hafnarfirði Sími 50205, kvöldsími 41070. FRÁ MENNTAMÁLA- RÁÐUNEYTINU: Staða deildarstjóra í handritadeild Landsbókasafns Islands er laus til umsóknar. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfs- feril sendist menntamálaráðuneytinu fyrir 20. mars n.k. Fyrri auglýsing um stöðuna, dags. 19. febrúar s.l. sem birtist í dagblöðum og sem lesin var í útvarpi er hér með afturkölluð. Menntamálaráðuneytið, 26. febrúar 1990 OAGVIST BARIVA Forstaða dagheimilis Dagvist barna auglýsir stöðu forstöðumanns við dagheimilið Austurborg lausa til umsóknar. Fóstrumenntun áskilin. Umsóknarfrestur er til 17. mars næstkomandi. Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og deildarstjóri fagdeildar dagvistar barna í síma 27277. Starfsleiðbeinandi Vinnu- og dvalarheimili Sjálfsbjargar óskar að ráða starfsleiðbeinanda í hlutastarf til starfa í vinnu- og föndurstofu Vinnu- og dvalar- heimilisins. íbúar dvalarheimilisins sækja þang- að vinnu eftir hádegi 5 daga vikunar. Æskilegt er að umræddur starfsmaður hafi starfað með fötluðum, eigi auðvelt með að um- gangast fólk, geti starfað sjálfstætt og hafi starfsreynslu á þessu sviði. Nánari uppl. veitir Hildur Jónsdóttir alla virka daga frá kl. 1 -4 í síma 29133. Umsóknir skulu berast Vinnu- og dvalarheimili Sjálfsbjargar Hátúni 12, Reykjavík fyrir 16. mars n.k. merktar „Starfsleiðbeinandi". *■» «■»* 'V Frá Borgarskipulagi Reykjavíkur Lóðirnar 6A, 6B og 8 við Há- tún, staðgr.r. 1.235.3, sem markast af Hátúni, Laugarnes- vegi og Laugavegi Hér með er auglýst samkv. 17. og 18. gr. laga nr. 19/1964 nýtt hámark nýtingar á ofan- greindum reit og flokkast reiturinn samkv. Aðal- skipulagi Reykjavíkur 1984-2004 þannig: Blönduð athafnahverfi miðsvæðis 0,70- 1,10. Er þessi breyting einnig samræmd aðliggjandi reit sem er með viðmiðunar nýtingu 0,70-0,89. (Lóðirnar Hátún 6 og Nóatún 17). Nánari upplýsingar eru veittar á Borgarskipu- lagi Reykjavíkur, Borgartúni 3,3. hæð alla virka daga frá kl. 09.00-16.00 til 17. apríl 1990. Athugasemdum, ef einhverjar eru, skal skila skriflega á sama stað eigi seinna en 2. maí 1990. ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.