Þjóðviljinn - 03.03.1990, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 03.03.1990, Blaðsíða 11
í VIKULOK Krabbamein Til sigurs Krabbameinsfélagið helgar marsmánuð baráttunni gegn krabbameini. Halldóra J. Rafnar stýrir þjóðarátaki gegn krabbameini: Með mark- vissum aðgerðum er þetta viðráðanlegt. Mynd: Kristinn. KrabbameinsfélagiS bauð nokkrum af helstu fyrirmönnum þjóðarinnar tiJ holls morgun- verðar á fimmtudag. Þar með hófst þriðja þjóðarátak félagsins gegn krabbameini. Atakið stend- ur allan marsmánuð og nær há- marki sínu 31. mars og 1. aprfl þegar gengið verður í hvert ein- asta hús á landinu og íslendingar beðnir um að láta fé af hendi rakna til stuðnings Krabbameins- félaginu. „Það var ákveðið að helga marsmánuð baráttunni gegn krabbameini og þess vegna byrj- uðum við á táknrænan hátt með hollum morgunverði. Við feng- um mörg góð fyrirtæki til að leggja okkur til hollustufæði, og það er alveg dæmigert fyrir þann mikla velvilja sem félagið mætir alls staðar," sagði Halldóra J. Rafnar, sem stjórnar herferð Krabbameinsfélagsins. Krabbameinsfélagið efndi til fyrsta þjóðarátaksins 1982 og þá safnaðist fyrir húsinu þar sem starfsemi félagsins fer nú fram. Fjórum árum síðar var aftur leitað til þjóðarinnar um fjár- stuðning. Þá safnaðist fé fyrir rannsóknastofu og einnig var hægt að hleypa af stokkunum að- hlynningu í heimahúsum. Mark- mið hennar er að gera krabba- meinssjúklingum kleift að dvelja sem lengst heima við. Fyrir af- rakstur söfnunarinnar var einnig keypt brjóstamyndatæki, sem gerir það að verkum að hægt er að fara reglulega út á Iand. Og nú vantar fé til að halda allri þessari starfsemi áfram. Morgunverðargestunum á fimmtudag var kynnt veggspjald með tíu heilsuboðorðum og ætl- unin er að aðrir landsmenn kom- ist einnig í kynni við þau. Heilsu- boðorð þessi eru unnin af vís- indamönnum úti í Evrópu og ýmsir þeirra halda þvf fram, að fari menn eftir þeim alla ævi, minnki líkurnar á að viðkomandi fái krabbamein um allt að 50 prósent. Heilsuboðorðin tíu hljóða svo: 1. Reykjum ekki og forðumst reyk frá öðrum. Notum ekki nef- tóbak eða munntóbak. 2. Tak- mörkum neyslu áfengra drykkja. 3. Vörumst óhófleg sólböð. 4. Fylgjum leiðbeiningum um með- ferð efna og efnasambanda, sem sum eru krabbameinsvaldandi. 5. Borðum mikið af grænmeti, ávöxtum og trefjaríku fæði. 6. Drögum úr fituneyslu og forð- umst offitu. 7. Leitum læknis ef við finnum hnút eða þykkildi eða tökum eftir að fæðingarblettur stækkar, breytir um lit eða verður að sári; einnig ef við verðum vör við óeðlilegar blæðingar. 8. Leitum læknis ef við fáum þrá- látan hósta, hæsi eða meltingar- truflanir eða léttumst að tilefnis- lausu. Tvö síðustu heilsuboðorð- in eru sérstaklega ætluð konum: 9. Förum reglulega í legháls- skoðun. 10 Skoðum brjóstin mánaðarlega og förum reglulega í brjóstamyndatöku eftir fertugt. Halldóra J. Rafnar sagði að baráttan gegn krabbameininu hefði gengið vel. Skipulag þessar- tr baráttu á íslandi er einsdæmi í eiminum og erlendar heilbrigð- isstofnanir leita fyrirmynda hing- að. Fjöldi greindra krabbameina er tæplega 900 á ári og hefur fjölgað um eitt prósent að með- altali á undanförnum árum, en árangur í baráttunni gegn þeim hefur á sama tíma orðið miklu meiri. Þannig hefur t.d. legháls- krabbamein þokað úr öðru sæti í það sjöunda meðal greindra krabbameina hjá konum. Og það er m.a. að þakka betri leit og greiningu. En er þá þörf á svona baráttumánuði? „Já,“ sagði Halldóra. „Við för- um fram undir kjörorðinu „Til sigurs“. Það er ekki sigur á morg- un eða hinn, en það er reiknað með að fullnaðarsigur vinnist í fyrirsjáanlegri framtíð. Þessum sjúkdómi verður náttúrlega ekki útrýmt, en með markvissum að- gerðum er þetta viðráðanlegt.“ -Að lokum, Halldóra, ferðu sjálf eftir heilsuboðorðunum tíu? „Ég held ég geti sagt með góðri samvisku að ég geri það, og ég hvet fólk til að gera það og styðja okkur í baráttunni til sigurs," sagði Halldóra J. Rafnar, sem stýrir þjóðarátaki Krabbameins- félagsins gegn krabbameini. -gb Hvar fæ ég höfði hallað? Þegar ég var ungur og smár olli ein hending í heimþráarljóði Jónasar, Ég bið að heilsa, mér ómældum heilabrotum og hugarvfli. Lokaorðin í þessu fagra ljóði eru nefnilega svona: „Þröstur minn góður/það er stúlkan mín“. Hvað á maðurinn við? hugsaði ég. Er hann virkilega að efast um kynferði mitt? Þessi söngur sem hljómaði í öllum óskalagaþátt- um Ríkisútvarpsins greyptist í sinnið og varpaði mér út í það sem á norrænum tungum er nefnt ídentítetskrísa, ritstjórinn vill kalla það sjálfuml- eikakreppu. Allar götur síðan hefur farið drjúgur tími í vangaveltur um það hvað í ósköpunum maður sé eiginlega. Næsta stig þessarar kreppu var þegar ég var lam- inn til að skipta um knattspyrnufélag. Ég hafði fyrir einhvern misskilning látið ánetjast KR á unga aldri en svo flutti ég í hatrammasta hluta Fram-hverfisins og þegar vitnaðist um grugguga fortíð mína á knattspyrnusviðinu var mér hótað daglegum bar- smíðum og útskúfun ef ekki yrði breyting á. Ég lét ekki berja mig lengi heldur gekk í Fram og held ennþá með því ágæta félagi. Og svo kom pólitíkin. Að vísu verð ég að játa að hún olli mér ekki neinum teljandi efaköstum. Ég var alinn upp á góðu og gegnu kommaheimili og gekk því sjálfkrafa inn í Fylkinguna og Flokkinn. Það var ekki fyrr en seinna sem efinn kom... En eitt af því sem blandast inn í pólitískar vanga- veltur ungs manns er afstaðan til þjóðernisins. Auðvitað er maður íslendingur með stórum staf (þótt mér finnist nú betra að skrifa það með litlum á la Magnús Torfi). Á tímum 68-uppreisnar og Víet- namstríðs var þjóðernisstefnan ekkert sérstaklega vinsæl. Þá voru allir sannir vinstrimenn boðberar alþjóðahyggjunnar, amk. þeir sem voru undir þrí- tugu og þeir einir töldust marktækir. Það var tekist á um það hvort maður væri á móti hernum í heiðinni af því hann hefði svívirt fjallkonuna eða af því hann væri partur af því fólskugengi sem myrti saklausa bændur austur í Asíu og víðar um heim. Að sjálf- sögðu tilheyrði ég síðarnefnda hópnum. Allt er í heiminum hverfult og fyrr en varði voru unnendur alþjóðahyggjunnar roknir í hár saman. Alþjóðahyggjan klofnaði í tvennt. Og það sem verra var: þeir sem við hrekklausir mörlandar höfðum stutt við bakið á í bestu meiningu voru allt í einu farnir að slást innbyrðis eða við einhverja enn aðra. Þá var þrautalendingin sú hjá mörgum að líta í eigin barm og rækta garðinn sinn. Enn þvældist þó spurningin fyrir manni: hver er ég og með hverjum ber að halda í þessum flókna knattspyrnuleik sem lífið er? Og þá varð það fyrir mörgum okkar að reyna að leita að sínu hlutabréfi í þjóðarsálinni. Það nægði þó ekki því þjóðarsálin er bara partur af alheimssál- inni og þar þarf maður að finna sér rétta hillu. Menn fóru að leita sér að samhljómi í einhverju landi, td. í Evrópu eða Skandinavíu. Norræn samvinna reyndist mörgum heilladrjúg í þessari leit. Ekki nóg með að þeir fyndu sér ágæta menningu til að bergja af heldur var jafnvel hægt að verða sér úti um ferðastyrki til að heimsækja við- komandi lönd. Síðasta ár sparkaði svo endanlega undan mér fótunum. Fyrst hætti það að jafngilda landráðum að nefna EB og EFTA óbölvandi og svo splundraðist járntjaldið. Nú er eins og norræn samvinna sé að færast inn í EFTA sem er á leiðinni inn í EB með viðkomu í Varsjárbandalaginu sem er að sækja um aðild að Nató. Er það furða þótt ég ruglaður? -ÞH þJÓÐVILIINN fyriröOárum Happdrætti Háskóla íslands. Hvað fá menn meira en happ? Það er rétt að vinna og rækja störf sín, án þess að treysta um of á heppni. En lífið væri grátt og hversdagslegt, ef það geymdi ekki í skauti sér möguleika til happa. „Sveltursitjandi kráka, en fljúgandi fær,“ segirmáltækið. Jafnvel höppin koma varla, nema menn beri sig eftir þeim. Og höppin eru svo margvísleg. Svo kveður Jónas Þór: Hann er ís- lands Háski/ happ og sigur _______________í DAG 3. mars Laugardagur. 62. dagurársins. Jónsmessa Hólabiskups á föstu. 20. vika vetrar byrjar. Sólarupp- rás í Reykjavík kl. 8.29-sólarlag kl. 18.52. Viðburðir Þjóðhátíðardagur Marokkó. Björn Sigurðsson læknirfæddur árið 1913.3. Alþjóðasambandið stofnað í Moskvu (Komintern) árið 1919. þjóðinni,/ happ er skólans happdrætti,/ happið mesta pyngjunni. DAGBÓK APÓTEK Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfjabúöa vikuna 2. mars-8. mars er í Lyfjabúðinni löunni og Garðs Apóteki. Fyrrnef nda apótekiö er opiö um helgar og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til 10 frídaga). Síðarnef nda apótekið er opiö á kvöldin 18-22 virka daga og á laugardögum 9-22 samhliöa hinu fyrr- nefnda. LÖGGAN Reykjavík sími 1 11 66 Kópavogur............sími 4 12 00 Seltj.nes............sími 1 84 55 Hafnarfj.............simi 5 11 66 Garðabær.............sími 5 11 66 Slökkvilið og sjúkrabílar: Reykjavík............sími 1 11 00 Kópavogur............sími 1 11 00 Seltj.nes............sími 1 11 00 Hafnarfj.............sími 5 11 00 Garðabær.............sími 5 11 00 LÆKNAR Læknavakt fyrlr Reykjavik, Sel- tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu- verndarstöð Reykjavikur alla virka daga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi- dögum allan sólarhringinn. Vitj- anabeiönir, símaráöleggingar og tíma- pantanir í síma 21230. Upplýsingar um lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar i sím- svara 18888. Borgarspitalinn: Vakt virka daga kl. 8- 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis- lækni eða ná ekki til hans. Landspít- alinn: Göngudeildin er opin 20-21. Slysadeild Borgarspítalans: opin allan sólahringinn sími 696600. Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan simi 53722. Næturvakt lækna simi 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garöaflöt s. 656066, upplýsingar um vaktlækna s. 51100. Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið- stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s. 22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445. Farsimi vaktlæknis 985-23221. Ketlavik: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s. 1966. SJÚKRAHÚS Heimsóknartimar: Landspítalinn: alla daga 15-16,19-20. Borgarspítalinn: virkadaga 18.30-19.30, helgar 15-18, og eftir samkomulagi. Fæðingardeild Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30- 20.30. Öldrunarlækningadeild Land- spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20 og eftir samkomulagi. Grensásdelld Borgarspítala: virka daga 16-19, helgar 14-19.30. Heilsuverndarstöðin við Barónsstíg opin alla daga 15-16 og 18.30-19.30. Landakotsspítali: alla daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild: heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. St. Jósefsspítali Hafnarfirði: alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps- spitalinn: alladaga 15-16og 18.30-19. Vestmannaeyjum: alla virka daga 15- 16og 19-19.30. Sjukrahús Akraness: alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra- húsið Húsavík: alla daga 15-16 og 19.30-20. ÝMISLEGT Hjálparstöð RKÍ. Neyöarathvarf fyrir ung- lingaTjarnargötu 35. Sími: 622266, opið allan sólarhringinn. Sálfræðistöðin. Ráðgjöf í sálfræðilegum efnum. Sími 687075. MS-félagið Alandi 13. Opiðvirkadagafrá kl.8-17. Síminner 688620. Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum vestur- götu3.Opiðþriðjudagakl.20-22, , fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22, sími 21500, símsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa fyrir sifjaspellum, s. 21500, símsvari. Upplýsingar um eyðni. Sími 622280, beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing ámiövikudögumkl. 18-19, annarssím- svari. Samtök um kvennaathvarf, sími 21205. Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun. Samtökin '78. Svarað er í upplýsinga- og ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á mánudags- ogfimmtudagskvöldum kl. 21- 23, Simsvari á öðrum tímum. Síminn er 91-28539. Bilanavakt rarmagns- og hitaveitu: s. 27311. Raf magnsveita bilanavakt s. 686230. Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt, sími 652936. Vinnuhópur um sif jaspellamál. Simi 21260allavirkadagakl. 1-5. -ögfræðiaðstoð Orators, félags laga- nema, er veitt í síma 11012 milli kl. 19.30 og 22.00 á fimmtudagskvöldum. „Opið hús“ krabbameinssjúklinga Skógarhlíð 8 er „Opið hús" fyrir alla krabb- ameinssjúklinga og aöstandendur þeirra á fimmtudögumkl. 17.00-19.00. Samtök áhugafólks um ainæmisvand- ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra. Hringiö í síma91 - 22400 alla virka daga. GENGIÐ 27. febrúar 1990 Bandaríkjadollar........... 60,62000 Sterlingspund................102,19000 Kanadadollar................. 50,89600 Dönsk króna................... 9,31900 Norsk króna................... 9,30040 Sænsk króna................... 9,91170 Finnskt mark................. 15,25030 FransKur franki.............. 10,58220 Belgískur franki.............. 1,71900 Svissneskur franki........... 40,76660 Hollenskt gyllini............ 31,77570 Vesturþýskt mark............. 35,80730 Itölsk líra................... 0,04844 Austurrískur sch.............. 5,08340 Portúg. escudo................ 0,40740 Spánskur peseti............... 0,55700 Japanskt jen.................. 0,40802 Irskt pund................... 95,18900 KROSSGÁTA Lárétt: 1 dys 4 ró 6 endir7missa9tauga- áfall 12 furða 14 eðli 15 fax16kaka19bindi20 fljótinu 21 tvístra Lóðrétt: 2 sef a 3 f Ijót- ræði4skort5blóm7 Óviljugt8fingur10 maðkana 11 áhaldið 13 bor 17 vafi 18 blekking Lausnásíðustu krossgátu Lárétt:1skro4eldi6 rof 7 ómak 9 laus 12 falin14und15góa16 röska 19 kvef 20 önug 21 pláss Lóðrétt: 2 kám 3 orka 4 efli 5 dóu 7 ólukka 8 afdrep10angans11 slanga13lús17öfl18 kös Laugardagur 3. mars 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.