Þjóðviljinn - 29.03.1990, Blaðsíða 6
Hvað kostar fermingin?
Fermingarriar nálgast nú óð-
fluga eins og jafnan á vorin. Þær
og sauðburðurinn hafa haldist í
hendur í áraraðir. Það fer í sjálfu
sér ekki illa á því þar sem annað
er endurnýjun lífs en hitt endur-
nýjun sáttmála og upphaf nýs
tímabils í lífi unglinga.
En fermingarnar gera fleira en
marka tímamót, þeim fylgja
veisluhöld, gjafir og ný föt. Til-
standið í kringum fermingarnar
vex á hverju ári og nú er svo kom-
ið að mörgum þykir nóg um.
Menn tala um að ferming sé nú
orðið meira í ætt við Mammons-
blót en kristilega athöfn. Til-
gangur, tilefni fermingarinnar
týnist í eyðslukapphlaupi sem
oftar en ekki leiðir foreldra í stór-
skuldir þegar ósköpin eru afstað-
in. En hvað sem öllum skyn-
semissjónarmiðum líður heldur
efnishyggjan velli og blómstrar í
ár eins og ævinlega í ótal
fermingarveislum. En hvað
skyldu svo herlegheitin kosta
meðalforeldra í dag? Þjóðviljinn
kannaði málið í nokkrum versl-
unum og fyrirtækjum og reiknaði
meðaltalið. Allsstaðar var tekið
milliverð, ekki það dýrasta og
ekki það ódýrasta.
Byrjunin er ævinlega ferm-
ingarfötin en þar reyndist heldur
ódýrara að eiga stelpu en strák.
Meðalverð á fötum á stráka með
skóm reyndist vera um 19.000,00
kr. en meðalstelpan gat komist af
með 17.000,00 kr. Flestir sem tal-
að var við vildu þó hafa fyrirvara
á þeirri tölu sem gefin var upp því
þeir töldu að stelpurnar þörfnuð-
ust ýmissa fylgihluta sem ekki
væru teknir með í dæmið. Hér var
um að ræða skartgripi, slæður,
hanska og allskonar skraut í hár-
ið. Það er þá kannski óhætt eftir
nánari skoðun að ákvarða að það
ríki jafnrétti á þessu sviði og
fermingarstelpan sé jafn
kostnaðarsöm og stallbróðir
hennar.
Maturinn
40-50.000
Næsta skref er svo veislan því
einhverju verða veislugestir að
nærast á. Nú, nú þar er um tvennt
að velja, annað hvort að bjóða
upp á mat eða kaffi. Mörg
veitingahús og veislumiðstöðvar
hafa til sölu kaffihlaðborð. Þessi
kaffihlaðborð eru með eða án
kransaköku, með bóktertu, sér-
stakri rjómafermingartertu að ó-
gleymdum snittum og brauð-
Kransakökur
fýrir ferminguna
m ® ** **
&
lalZarkmeistarinru
SUÐUR-V-IvR-I
“íi SAHYOll
14"„Hitt“sjónvarpstækiö
CEP 3011
NYTT
ÁRGERÐ’90
MMinii
v
iíÍIsp®
VERÐ:
29,800 stgr-.
JAPÖNSK
FRAMLEIÐSLA
<2\
• Fullkomin fjarstýring með 32 aðgerðum
og skjátexta sem sýnir framkvæmd vals
• Svefnstilling ”Sleep timer” 30/60/90 mín.
• Videorás, tenging fyrir heyrnatæki og ”Av”
• Örlampi ”quick start picture tube” ofl.
• Heyrnartæki
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 • Sími 680780
tertum. Verðið er að sjálfsögðu
misjafnt eftir því hvort kransa-
kakan eða bóktertan er vinsælli
hjá væntanlegu fermingarbarni.
Svo eru líka ýmiskonar tilboð í
gangi sem veita afslátt fyrir á-
kveðinn tíma ef staðgreitt er, eða
ef greitt er með greiðslukorti. En
að öllum þessum þáttum athug-
uðum reynist meðalkaffiborð í
fermingarveislu fyrir 30 manns
kosta 25.500,00 kr.
En það er líka hægt að halda
matarveislu og þá er ekki síður úr
ýmsu að velja. Það er hægt að
kaupa kalt borð og fá sent heim,
sumir bjóða allan borðbúnað að
auki. Svo er líka til eitthvað sem
kalla mætti volgt borð en þá er
boðið upp á einn eða tvo heita
rétti með þeim köldu. Verðið fer
svo að sjálfsögðu eftir því hversu
margir heitur réttirnir eru og
hvað fylgir af meðlæti svosem
brauði, salati og allskonar sósum.
En þar með er ekki allt talið, því
það er hægt að bjóða upp á heita
máltíð á veitingahúsi og þá er
bara valinn matseðillinn og allt
annað kemur af sjálfu sér. Að
sögn taka veitingahúsin ekki sér-
staka leigu fyrir húsnæðið en
maturinn er að sönnu heldur dýr-
ari ef veislan er haldin á veitinga-
stað, en það að meðaltali
50.000,00 kr. fyrir 30 manna hóp,
ef valinn er þríréttaður matseðill.
Heimsent hlaðborð kostar hins
vegar um 43.000,00 kr. að með-
altali fyrir þessa þrjá tugi manna.
Vissulega má svo spara
eitthvað með því að halda veis-
luna heima, balca sjálfur eða elda
en hætt er við að nútíma foreldrar
svitni við tilhugsunina um að
eyða kvöldunum eftir að komið
er heim úr vinnu í látlítinn bak-
stur og endalausa eldamennsku.
Það er þá mun þægilegra að eyða
kvöldunum frá miðjum mars og
fram að fermingu í eftirvinnu svo
hægt sé að borga hlaðborðið.
INN-
VÍGSLA
PéturGunnarsson segirfrá
fermingu Andra í bókinni Ég
um mig frá mér til mín. Andra
verðurekki síðuren Þórbergi
tíðhugsað um Guð og eðli
hans, en gefum þá Pétri orðið:
Ferming er til í öllum þjóð-
félögum og táknar innvígslu í
samfélagið. Þeim var sagt að at-
höfnin væri endurnýjun á samn-
ingnum við Guð. Ha? Þau komu
af fjöllum. Það hafði verið gerður
samningur fyrir þeirra hönd með-
an þau voru hvítvoðungar og nú
var þeim í sjálfs vald sett að stað-
festa hann eða rifta. Úlfur var
ekki einusinni skírður og þurfti
að vinda bráðan bug að því að
gera þennan samning svo hægt
yrði að staðfesta hann. Úr, prím-
us og tjald eru einnar messu virði.
Hver var hann þessi Guð sem
var verið að gera samning við?
„Guð er hið góða“, sagði prestur-
inn. Andri hafði einusinni lesið
tvær blaðsíður í Biblíunni, og sá
ekki betur en Guð væri algjör
brjálæðingur. Öfundsjúkur,
nískur og hefnigjarn. Brjálaðist
þegar Adam og Eva átu af
skilningstrénu af því hann var svo
hræddur um að þau yrðu jafn klár
og hann. Var alveg á nálum um
að þau ætu af lífstrénu og yrðu
eilíf. Endaði með því að reka þau
úr aldingarðinum, af því að þau
vildu ekki ganga allsber. Seinna
lét hann sig ekki muna um að
drekkja hverju einasta kvikindi á
jörðinni - börn, konur og gamal-
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
FERMI í
Meðalverð á köldu borði fyrir 30 manns er 43
menni meðtalin. Meiraðsegja
Hitler fölnaði við hliðina á þessu
mikilmenni...
Kirkjan var ein af þessum í
nýju hverfunum, heil ósköp af
börnum og fermingin fyrir bragð-
ið með færibandasniði, prestur-
inn lét þau krjúpa eitt og eitt,
hafði yfir einhverja þulu og gaf
þeim málshátt. Andri kveið fyrir
því að roðna þegar röðin kæmi að
honum. Vonaði að málshátturinn