Þjóðviljinn - 08.05.1990, Side 7

Þjóðviljinn - 08.05.1990, Side 7
X-Hveragerði Talið frá vinstri: Gísli Garðarsson, Magnea Ásdís Ámadóttir, Hjörtur Már Benediktsson og Ingibjörg Sigmundsdóttir. Þau þurfa öll að komast inn ef fella á meirihluta Sjálfstæðisflokksins. Tr »• H-listinn Stefnum að meirihluta Ingibjörg Sigmundsdóttir, oddviti H-listans: Gagnrýnum starfsað ferðir meirihlutans ogfjárhagsstöðuna. Ætlum að lagfœra skuldastöðuna verulega á tveimur tilþremur árum. Gerum okkar góðar vonir um meirihluta Við leggjum áherslu á að koma á lýðræðislegri stjórnunar- háttum, að greiða niður skuldir bæjarins, að gera úrbætur i um- hverfísmálum og efla félagslega þjónustu. Við gerum okkur góða von um að ná meirihluta og geta hafíst handa við þessi verkefni að kosningum loknum, segir Ingi- björg Sigmundsdóttir, garð- yrkjubóndi og efsti maður á H- listanum í Hveragerði, í samtali við Þjóðviljann. Alþýðubandalag, Framsókn- arflokkur, Alþýðuflokkur og óháðir standa sameiginlega að H- listanum, sem býður einn fram gegn lista Sjálfstæðismanna. Framkvæmdir í lágmarki Fjárhagsstaða Hveragerðis er mjög erfið og jafngilda skuldir bæjarsjóðs nú árstekjum hans. Þriðja hver króna fer í fjármagns- kostnað, en framkvæmdir eru í algjöru lágmarki. Heildartekjur bæjarins í ár eru áætlaðar um 150 miljónir króna, en þar af fara 139 miljónir í rekst- ur. Það verður því óvenjulega lítið afgangs til framkvæmda. Rúmlega níu miljónir fara í gjald- færða fjárfestingu, gatnagerð og þess háttar, en aðeins innan við miljón í eignfærða fjárfestingu. „Við höfum sett okkur að leggja áherslu á að minnka fjár- magnskostnaðinn verulega á næstu tveimur til þremur árum. Það er ljóst að við verðum að halda framkvæmdum í lágmarki á þessum tíma, en jafnframt er nauðsynlegt að hagræða í rekstri fyrirtækja og stofnana bæjarins. Með þessu teljum við okkur geta lagfært fjárhaginn verulega," segir Ingibjörg við Þjóðviljann. Gagnryna starfsaðferðir Hún segir yfirstjórn bæjarins H-listinn fékk liðsauka Oddvitaskipti hjá D-listanum sem hefur haft meirihluta síðastliðin tvö kjörtímabil. Ingibjörg og Gísli höfðu sœtaskipti á H-listanum Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft meirihluta í bæjarstjórn Hveragerðis undanfarin tvö kjörtímabil. I kosningunum 1982 slógust bæði Framsóknarflokkur og Alþýðubandalag við Sjálf- stæðisflokkinn um hylli kjósenda, en 1986 voru aðeins tveir listar í boði, D-listi og H-listi félags- hyggjufólks. Sá fyrrnefndi fékk fjóra bæjarfulltrúa en H-listinn fékk þrjá. H-listanum hefur nú borist liðsauki óflokksbundinna. Hafsteinn Kristinsson fram- kvæmdastjóri var oddviti Sjálf- stæðisflokksins í síðustu kosning- um, en Hans Gústafsson garð- yrkjubóndi hefur nú tekið við fyrsta sætinu. Hans var þriðji á lista flokksins síðast. Alda Andrésdóttir bankafull- trúi verður áfram í öðru sæti D-listans, en Marteinn Jóhannes- son byggingameistari skipar nú þriðja sætið. Hann var áður í fjórða sæti. Fjórða sætið nú skipar Ólafur Óskarsson bygg- ingameistari og hefur hann fært sig upp um eitt sæti síðan síðast. Erla Alexandersdóttir sölumað- ur er í fimmta sæti D-listans. Sætaskipti Gísli Garðarsson kjötiðnaðar- maður leiddi H-listann í kosning- um 1986 og Ingibjörg Sigmunds- dóttir garðyrkjubóndi var þá í öðru sæti. Þau hafa nú haft sæta- skipti, enda hafði Ingibjörg sigur í prófkjöri. Nýtt fólk skipar þriðja og fjórða sæti. Hjörtur Már Bene- diktsson garðyrkjustjóri er ó- flokksbundinn og skipai þriðja sæti listans. Magnea Ásdís Áma- dóttir húsmóðir er í fjórða sætinu og þar með í baráttusætinu. Aðrir á H-listanum em: 5. Stefán Þórisson vélfræðing- ur, 6. Björn Pálsson skrifstofu- stjóri, 7. Gísli Rúnar Sveinsson vélfræðingur, 8. Gróa Frið- geirsdóttir hjúkrunarfræðingur, 9. Sæmundur Skúli Gíslason byggingameistari, 10. Gunnar Hrafn Jónsson vélstjóri, 11. Úlf- ur Björnsson ráðgjafi, 12. Sig- urður Eyþórsson verkamaður, 13. Auður Guðbrandsdóttir, 14. Valdimar Ingi Guðmundsson garðyrk j ufræðingur. gg hafa verið mjög slaka á kjörtím- abilinu, upplýsingar hafi borist seint og því hafi bæjarfulltrúar ekki haft nægilega glöggar upp- lýsingar um fjárhagsstöðuna þeg- ar teknar vom ákvarðanir um lántökur og útgjöld. Hún nefnir sem dæmi að á kjörtímabilinu var tekið 45 milj- óna króna erlent lán þegar árs- tekjur námu 70 miljónum króna. Lánið var tekið án þess að bæjar- fulltrúar vissu hver raunvemleg staða bæjarsjóðs var og án þess að fyllilega væri vitað hvernig átti að ráðstafa fénu. Þetta lán er bænum nú mjög þungt í skauti. „Meirihluti Sjálfstæðisflokks- ins hefur gert sig sekan um mjög gagnrýniverðar starfsaðferðir á kjörtímabilinu og það hófst strax í upphafi þess þegar sveitarstjóri var ráðinn. Bæjarfulltrúar voru látnir kynna sér umsóknir fimmtán aðila, en þegar kom að því að fjalla um þær kom í ljós að meirihlutinn hafði ákveðið að ráða mann sem sótti um löngu eftir að umsóknarfresturinn var útranninn. Okkur var ekki gefinn nokkur kostur á að bregðast við því. Annað hefur verið eftir þessu,“ segir Ingibjörg. Óánægja með meirihlutann H-listinn hyggst stofna bæjar- málaráð, þar sem sæti munu eiga bæjarfulltrúar og varamenn þeirra, fulltrúar listans í nefndum og aðrir þeir sem láta sig bæjar- málin varða. Þannig ætlar H- listinn að virkja fleiri til áhrifa á málefni bæjarins. „Við höfum verið með vísi að bæjarmálaráði á þessu kjörtíma- bili og það hefur gefist mjög vel,“ segir Ingibjörg. H-listinn segist leggja mikla áherslu á umhverfismál, fegmn bæjarins og endurbætur í holræs- amálum. „Við leggjum mikið upp úr fé- lagslegri þjónustu, hlýlegu og Ingibjörg Sigmundsdóttir: Ætlum að laga fjárhagsstöðuna veru- lega á næstu tveimur til þremur árum. Myndir gg. mannlegu umhverfi. Leikskólinn er orðinn allt of lítill, enda em biðlistar mjög langir. Dagheimili vantar okkur alveg hér í Hvera- gerði. Atvinnumálanefnd var stofnuð fyrir atbeina okkar í minnihlutan- um, en hún hefur aðeins einu sinni komið saman. Við viljum gera hana virka og beita okkur fyrir því að laða hingað fyrirtæki með því að kynna þá kosti sem Hveragerði hefur upp á að bjóða fyrir atvinnurekstur. Við finnum það greinilega að Hvergerðingar em óánægðir með störf Sjálfstæðismanna í bæjar- stjórn og teljum að við eigum raunhæfa möguleika á að ná hér meirihluta,“ segir Ingibjörg. -gg Þriðjudagur 8. maí 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.