Þjóðviljinn - 08.05.1990, Síða 16
—SPURNINGIN'
Hvað finnst þér um ár-
angur Stjórnarinnar í
Evrópusöngvakeppn-
inni?
þlÖÐVILIINN
Þriðjudagur 8. maí 1990 83. tölublað 55. örgangur
SÍMI 681333
SÍMFAX
681935
Bjarni Sveinbjörnsson
hljómlistarmaður
Mér finnst árangurinn frábær.
Reyndar bjóst ég viö góöum ár-
angri af Grétari Orvarssyni og fé-
lögum hans.
Svanberg Hjelm
verkamaður
Mór fannst þetta mjög góður ár-
angur. Ég bjóst ekki viö aö við
næðum upp fyrir 10. sætið.
Stjórnin kom íslandi vel á blað í Zagreb. Frá vinstri eru Þorsteinn Gunnarsson, Grétar Örvarsson, Sigríður Beinteinsdóttir, Einar Bragi Braga-
son, Eiður Arnarsson og Jón E. Hafsteinsson. Mynd: Kristinn.
HrLJ % f f/rm
pJ /T * . t % \ -WIMglllllgptHP ® s&m fg£ 1 mk o* Æ
Þórný Björnsdóttir
iðnverkakona
Ég var mjög ánægð með þetta.
Ég vonaðist til að við lentum í
miðju en bjóst ekki við þessu.
Björgvin Þóroddsson
og Brynjar Óðinsson
Þetta var alveg frábært, að ná að
fara úr neðsta sæti í fjórða sæti.
Jónsi gítarleikari var rosalega
góður.
Hilmar Sigurðsson
viðskiptafræðingur
Þetta var alveg til fyrirmyndar. Ég
hafði reiknað þeim í eitt af fyrstu
átta sætunum.
Evrópusöngvakeppni
Þegar þjoðin stóð á öndinni
Sigríður Beinteinsdóttir: Fékk sting í magann þegarfyrsta landið gaf
okkur 12 stig. Stjórnin varðí4. sæti Evrópusöngvakeppninnar á
laugardag. Margir möguleikar hljómsveitinni opnir
að er óhætt að segja að hjart-
að í íslensku þjóðarsálinni
hafi tekið kipp á laugardags-
kvöldinu síðasta þegar hljóm-
sveitin Stjórnin náði þeim ágæta
árangri að lenda í 4. sæti Söngv-
akeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva í Zagreb í Júgóslavíu. Sig-
ríður Beinteinsdóttir söngkona
hfjómsveitarinnar segist hafa ver-
ið afslöppuð í upphafi stigagjaf-
arinnar en þegar stigin hafi safn-
ast upp strax í upphafi, hefði hún
farið að fá sting í magann. Full-
trúi Ítalíu varð í fyrsta sæti með
lag sitt um sameinaða Evrópu
1992.
Meðlimir Stjórnarinnar hafa
staðið í ströngu undanfama daga
en það aftraði þeim ekki frá að
hitta blaðamenn og fleiri í gær-
dag. „Þegar fyrstu tólf stigin
komu fór maður fyrst að fá í mag-
ann,“ sagði Sigríður Beinteins-
dóttir. En það voru Bretar sem
gáfu okkur 12 stig ásamt Portúg-
ölum. Stemmningin var góð í
salnum þar sem flytjendur fylg-
dust með framvindunni og allir
klöppuðu fyrir því landi sem fékk
tólf stig hverju sinni, að sögn Sig-
ríðar.
Það kom að því að Sigríður og
félagar hennar hugsuðu hvað
gerðist ef Stjórnin sigraði í
keppninni. „Við vorum lengst af í
3.-5. sæti og oftast í fjórða en við
fómm einu sinni í annað sætið og
þá fékk maður fiðring,“ sagði
Sigríður, „en við erum fyllilega
ánægð með fjórða sætið.“
Fólk hefur verið misjafnlega
ánægt með þessa söngvakeppni í
gegnum árin. Sigríði finnst
keppnin hafa farið aðeins upp á
við í gæðum. Eftir keppnina í
fyrra hefði hún verið komin ansi
neðarlega og fólk jafnvel haft á
orði hvort nokkuð ætti að vera að
taka þátt í henni, við hefðum ekki
tungumálið í þetta og svo fram-
vegis. En keppnin virtist hafa
meiri meðbyr nú en oft áður, að
mati Sigríðar.
„Það em fyrst og fremst lögin
sjálf sem ráða velgengni í þessari
keppni, fluttningurinn á þeim og
sviðsframkoman hugsa ég líka,“
sagði Sigríður. Hún telur að dans
hennar og Grétars Örvarssonar
meðsöngvara hennar hafi haft sitt
að segja. Þá spillti það ekki fyrir
að hafa reynslu af því að koma
fram í tónlistarsýningum hér
heima og í sönglagakeppnum, en
Stjómin sigraði einmitt í Lands-
laginu þegar það var haldið í
fyrsta skipti 1989. „Maður er því
ekki alveg með sama sviðs-
skrekkinn ogí upphafi, hefur lært
að vera í einhverju hlutverki og
með því hugarfari fór maður inn á
sviðið,“ sagði Sigríður. Hún
hefði þó stressast upp rétt áður en
hún fór inn á sviðið, eftir að hafa
setið í rólegheitum inni í búnings-
herberginu. Þá hefði hún dregið
andann djúpt og sagt við sjálfa sig
að þetta mætti ekki og gengið inn
á svið.
Hún sagðist ekki hafa hugleitt
það á sviðinu í Zagreb að hún
væri að syngja fyrir einn milljarð
manna, það hefði svo mikið verið
að gerast í kring að enginn tími
hefði verið til slíks. En þegar
komið var út af sviðinu hefði
stressið fyrst komið.
Sigurður Öm Amgrímsson var
fararstjóri íslenska liðsins í Zag-
reb. Hann sagði að ítalir hefðu
kannski unnið keppnina en
Stjómin hefði unnið partýið. Þar
vísar hann til þess að Stjórnin lék
í samkvæmi sem haldið var flytj-
endum og aðstandendum að lok-
inni keppni og náði að heilla alla
viðstadda með leik sínum. Pétur
Kristjánsson útgáfustjóri Skíf-
unnar sagði tvo umboðsmenn
hafa komið til Stjómarinnar á
eftir og boðið henni að fara í tón-
leikaferðalag um Noreg og Dan-
mörku í ágúst í sumar. Þá náðist
höfundaréttarsamningur við
Warner Chapell og dreifingar-
samningar em í burðarliðnum.
„Eitt lag enn“ kemur út í
Skandinavíu í þessari viku að
sögn Péturs, og stóra platan sem
hljómsveitin hefur þegar tekið
upp kemur út í Skandinavíu þeg-
ar lokið er við þýðingu textanna.
Stjómin kemur einnig fram á tón-
leikum í Noregi í sumar á vegum
norska Rauða krossins, þar sem
Tina Tumer verður á meðal gesta
ásamt ítalanum Toto Cotugno,
sem sigraði keppnina með lagi
sínu „Insieme: 1992“. Þegar hef-
ur verið ákveðið að „Eitt lag enn“
komi út með sænskri poppstjömu
í sumar.
-hmp