Þjóðviljinn - 27.06.1990, Side 5
Við útsýnisskífuna á Þingvöllum. Elísabet drottning og Steingrímur forsætisráðherra glöggva sig á kenni- Ejísabet drottning og Vigdís forseti gróðursetja sína björkina hvor í
leitum á meðan Filipus hertogi horfir hugfanginn út yfir vellina. Vináttuskógi í landi Kárastaða.
FRETTIR
Annar dagur opinberrar heim-
sóknar Elísabetar II Englands-
drottningar hófst með heimsókn
hennar og hertogans, ásamt Vig-
dísi Finnbogadóttur, forseta Is-
lands, á hrossabúið í Dal. Það
vakti athygli að drottningin kaus
að ferðast með rútu í þetta skiptið
og óku límósínur á eftir. Töldu
breskir blaðamenn þetta vera í
annað skiptið sem Elísabet hefði
þennan háttinn á, á sínum langa
ferli, og voru að vonum svolítið
hissa. í Dal fór fram reiðsýning og
voru drottningu sýndir tólf ís-
lenskir hestar, allt verðlauna- og
kynbótahross.
Meðal annars sýndu knaparnir
hinum konunglegu gestum að
knapi getur haldið á bjórglasi og
látið íslenska hestinn tölta hring-
inn án þess að missa svo mikið
sem einn dropa niður. Hvasst var
í veðri en drottning lét það lítt á
sig fá og sýndi hestunum mikinn
áhuga. Einhvers staðar í hópi
landa hennar úr fjölmiðlastétt
voru þau orð látin falla, að það
hefði nú verið í lagi þótt höfuðfat-
ið haggaðist í rokinu, svona til að
skapa svolitla tilbreytingu frá
hinni fastmótuðu dagskrá.
En þeim til nokkurrar gremju
gekk allt samkvæmt áætlun að
venju og að lokinni reiðsýning-
unni skoðaði drottningin nokkra
íslenska hunda. Að því búnu
sýndu Gunnar Dungal og Þórdís
Sigurðardóttir, eigendur hrossa-
búsins í Dal, drottningu og fylgd-
arliði hennar hesthúsin.
Frá Dal var haldið að Nesja-
völlum þar sem Gunnar Kristins-
son hitaveitustjóri skýrði gestun-
um frá hvernig hitaveitukerfið
virkar.
Frá Nesjavöllum var ekið til
Þingvalla þar sem Steingrímur
Hermannsson og Edda Guð-
mundsdóttir heilsuðu hinum
konunglegu gestum og fylgdu
þeim niður Almannagjá ásamt
Heimi Steinssyni þjóðgarðs-
verði.
Úr Almannagjá var gengið
fram á útsýnispallinn á Lögbergi
og þar skýrði þjóðgarðsvörður í
stuttu máli frá sögu Þingvalla.
Síðan snæddu drottningin og
hertoginn af Edinborg hádegis-
verð í sumarbústað forsætisráð-
herrahjónanna.
Að honum loknum var Þing-
vallakirkja skoðuð og raskaðist
tímaáætlun nokkuð þar eð gest-
unum dvaldist þar lengur en áætl-
að var.
Klukkan rúmlega þrjú kom
rúta drottningarinnar að Kára-
stöðum þar sem nú er hafin rækt-
un svokallaðs Vináttuskógar.
Þann 16. júní síðastliðinn gróður-
settu fulltrúar allra sendiráða á
íslandi fyrstu plönturnar þar og
er markmiðið að erlendir gestir
haldi verkinu áfram í framtíðinni.
Elísabet og Vigdís settu niður
eina birkiplöntu hvor með aðstoð
frá starfsfólki Skógræktarfélags
íslands. Ekki var laust við að
nokkurs undrunarsvips gætti á
andlitum fylgdarliðs gestanna
þegar það svipaðist um eftir skóg-
inum íslenska og brostu sumir
vandræðalega þegar málið var út-
skýrt.
Rútan ók síðan áleiðis til
Reykjavíkur og bílalestin á eftir
að Höfða þar sem haldin var mót-
taka í boði borgarstjórahjónanna
í Reykjavík.
f gærkvöld héldu Elísabet
drottning og Philip hertogi svo
kvöldverðarboð til heiðurs Vig-
dísi Finnbogadóttur forseta um
borð í snekkjunni Brittaniu og
lauk því um kl. 23.00 með leik
herlúðrasveitar.
í dag er síðasti dagur
heimsóknarinnar og mun drottn-
ingin hefja hann á því að
heimsækja stríðsgrafreit breska
samveldisins í Fossvogskirkju-
garði. Þaðan verður farið að
Bessastöðum og síðan til Krísu-
víkur. Um kl. 13.00 fer Philip
prins og hertogi af Edinborg til
Bretlands með þotu krúnunnar
en Elísabet drottning heldur til
Kanada með flugvél kanadíska
flughersins. -vd.
Gunnar Kristinsson hitaveitustjóri skýrir fyrir gestunum hvernig hita- Drottningin dáist að glæstum töltara.
veitukerfið virkar. Myndir: Kristinn. _ . . , . ,,
Opinber heimsokn
Drottning í rútu
Elísabetskoðaði íslenska hesta og hunda, Nesjavelli og Þingvelli
Miðvikudagur 27. júní 1990 , ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5