Þjóðviljinn - 27.06.1990, Blaðsíða 6
Margaret Thatcher — klúbbur
hennar sprengdur.
Sprenging
í West End-
klúbbi
írski lýðveldisherinn (IRA)
hefur lýst á hendur sér sprengju-
tilræði á mánudagskvöld í
Carlton Club í West End, Lund-
únum. Fjórir menn særðust af
völdum sprengingarinnar, þeirra
á meðal Kaberry lávarður, rúm-
lega áttræður fyrrverandi vara-
formaður íhaldsflokksins breska.
Klúbbur þessi er af fínna taginu
og mikið sóttur af háttsettum
mönnum í íhaldsflokknum.
Margaret Thatcher er þar félagi.
Lögregla telur að þetta geti verið
ábending um að IRA hyggist
auka árásir á óbreytta borgara og
þá sérstaklega forustufólk Ihalds-
flokksins.
Heitrof forseta
Bush Bandaríkjaforseti sagði í
gær að ekki yrði hægt að minnka
hallann á fjárlögum Bandaríkj-
anna, sem er allmikill, nema með
því að tekjur ríkisins af sköttum
hækkuðu. Er talið að þar með sé
Bush að rjúfa það heit um að
leggja ekki á neina nýja skatta,
sem hann marggaf kjósendum í
kosningabaráttunni fyrir forseta-
kosningarnar 1988.
Einhuga
Ungverjaþing
Ungverska þingið samþykkti í
gær með 232 atkvæðum gegn
engu að mæla með því að ríkis-
stjórnin hefji samningaumleitan-
ir með það fyrir augum að Ung-
verjaland gangi úr Varsjárbanda-
laginu. Stjórnin hafði áður gefið
til kynna að hún hefði það í
hyggju.
_______ERLENDAR FRÉTTIR__________________
Mengistu Eþíópíuforseti
Föðuriandið að hruni komið
Unglingar og eftirlaunaþegar kvaddir íherinn. Uppreisnarmenn
nálgast höfuðborgina
ing Eþíópíu samþykkti í gær
að allir karlmenn þarlendir,
sem vettlingi gætu valdið, yrðu án
tafar kallaðir í herinn, væru þeir
ekki þeim mun bundnari við
önnur störf. Meðal þeirra, sem
nú verða kvaddir til þjónustu í
eþíópska hernum eru her- og lög-
reglumenn sem komnir eru á eft-
irlaun. Bendir nú flest til þess að
alger ósigur vofi yfir stjórnar-
hernum í eþíópska borgarast-
ríðinu, sem staðið hefur yfír f
næstum þrjá áratugi.
Mengistu Haile Mariam Eþí-
ópíuforseti, sem þarlendis hefur
ríkt lengst af frá því að keisaran-
um var steypt af stóli, sagði á
þingi í s.l. viku að Eþíópía væri að
hruni komin og hvatti alþýðuna
til að bregðast við föðurlandinu
til bjargar. Þetta er nýtt frá
Mengistu, sem hingað til hefur
yfirleitt borið sig borginmann-
lega og látist vera sigurviss. Fyrri
fregnir hafa hermt að undanfarið
hafi piltar undir 15 ára aldri verið
teknir í herinn.
Stríðið hefur verið mikill hrak-
fallabálkur fyrir Eþíópíustjórn
frá því í ágúst s.l. ár. Síðan þá
hafa uppreisnarmenn í Tígre ver-
ið í sókn suðureftir. Munu þeir nú
hafa norðurhluta landsins mest-
anpart á sínu valdi og vera farnir
að nálgast Addis Ababa, höfuð-
borgina, að norðan. Eritrea er nú
á valdi þarlendra uppreisnar-
manna, að frátalinni Asmara,
höfuðborg þess fylkis, og fá-
einum minni borgum. Um
120.000 manna stjórnarher er í
herkví uppreisnarmanna í Asm-
ara og nágrenni og mun stjórnar-
herinn eiga erfitt með að koma
birgðum til hins umsetna hðs.
Bardagar í stríði þessu hafa marg-
ir verið mjög mannskæðir, og tal-
ið er að stjómarherinn hafi farið
illa út úr átökunum undanfarnar
vikur.
Reuter/-dþ.
EB-leiðtogar
Samþykkja aðstoð
við Sovétríkin
Leiðtogar Evrópubandalags-
ríkja ákváðu á ráðstefnu sinni
í Dublin að veita Sovétríkjunum
drjúga efnahagsaðstoð áður en
langt um liði og er gert ráð fyrir
að undirbúningur og fram-
kvæmdir í því sambandi fari fram
í nánu samráði við sovésk
stjórnvöld. Boðar þetta mestu af-
skipti vestrænna ríkja af efna-
hagsmálum Sovétríkjanna hing-
að til.
Helmut Kohl, sambandskansl-
ari Vestur-Þýskalands, var á ráð-
stefnunni ákafastur talsmaður
þess að Sovétríkjunum yrði veitt
efnahagsaðstoð þegar í stað og án
teljandi skilyrða. Auk Vestur-
Þýskalands éru á þeirri skoðun
Frakkland, Spánn, Ítalía og Hol-
land, en Margaret Thatcher hin
breska vill flýta því hægar og hef-
ur með sér í því Danmörku og
Portúgal. Þeir Kohl og Mitter-
rand Frakklandsforseti lögðu til í
gær að vestræn ríki veittu Sovét-
ríkjunum aðstoð upp á 15 milj-
arða dollara. Teljandi ráðstafana
í framhaldi af samþykkt leiðtog-
anna í Dublin er þó að líldndum
Gorbatsjov - Kohl og Mitterrand
telja að ekki verði seinna vænna
að koma honum til aðstoðar.
ekki að vænta fyrr en í okt. n.k.
Reuter/-dþ.
EB-leiðtogar um umhverfisvernd
Björgum Amazonskógum
A tveimur árum var eyddurþarskógur á stærð við Sviss
Leiðtogar Evrópubandalags-
ríkja, sem s.l. tvo daga voru á
ráðstefnu í Dublin, sendu frá sér
efnismestu yfirlýsinguna um um-
hverfisvernd, sem hingað til hef-
ur komið frá leiðtogaráðstefnum
þeirra. Þykir þetta bera vott um
aukið vægi umhverfismála í al-
þjóðastjórnmálum.
f yfirlýsingunni er sérstök
áhersla lögð á að ráðstafanir
verði án tafar gerðar til bjargar
Amazonskógum og er í henni
hvatt til viðræðna við stjórn Bras-
ilíu um það mál. Að sögn Jose
Goldemberg, vísinda- og tækni-
málaráðherra Brasilíu, eyddu
landnemar skógi á 46.000 ferkfló-
metra svæði í Amazonlöndum
árin 1988 og 1989. Er þetta eydda
svæði heldur stærra en Sviss og
eyðingin hálfu meiri en sú sem
Amazonskógar hafa að meðaltali
orðið fyrir árlega á níunda ára-
tugnum.
Eyðing Amazonskóga með
eldi á sinn þátt í gróðurhússáhrif-
unum, þ.e.a.s. hitnandi loftslagi.
Að sögn Goldembergs fer því þó
fjarri að Brasilía sé mesti skað-
valdurinn hvað þetta snertir.
Hann segir Brasilíu ábyrga fyrir
aðeins 5,1 af hundraði þess koldí-
oxíðs, sem út í andrúmsloftið fer,
en það efni veldur mestu um
gróðurhússáhrifin. Um fimmt-
ungur þessa efnis, sem út í loftið
fer, kemur frá Bandaríkjunum,
eða meira en frá nokkru öðru
ríki, næst eru Sovétríkin með 16
af hundraði og í þriðja sæti Kína
með 14 af hundraði. Reuter/-dþ.
Yunnan
14 eitur-
lyfjasalar
líflátnir
14 menn, sem fundnir höfðu
verið sekir um eiturlyfjasölu,
voru teknir af lífi í gær í Kunm-
ing, höfuðborg kínverska fylkis-
ins Yunnan. Voru þeir leiddir inn
á íþróttalcikvang borgarinnar,
þar sem um 40.000 manns voru
samankomnir á baráttusamkomu
gegn eiturlyfjaplágunni, dómarn-
ir lesnir upp yfir þeim og þeir síð-
an færðir á brott til aftöku.
Sjónvarpað var frá samkom-
unni. Á henni voru brennd um
520 kfló af heróíni og um 480 kfló
af ópíum, sem náðst hefur af
eiturlyfjasölum undanfarið þar í
fylki. He Zhiqiang, fylkisstjóri,
var á samkomunni og hét griðum
þeim eiturlyfjasölum, sem gæfu
sig yfirvöldum á vald og bættu ráð
sitt.
„Gullni þríhyrningurinn"
illræmdi, eitt mesta eiturlyfja-
framleiðslusvæði heims, nær inn í
Yunnan að sunnan og eiturlyfja-
neysla hefur færst þar í vöxt síð-
ustu ár.
í Kína er algengt að dauða-
dæmdir menn séu teknir af lífi
með skammbyssuskoti í hnakk-
ann. Reuter/-dþ.
Óeirðir í Sambíu
Gegn verð-
hækkun
Washington
Borgarstjóri sakaður um nauðgun
Fjórar konur frá Jómfrúareyj-
um vitnuðu í gær í réttarhöld-
unum yfir Marion Barry, borgar-
stjóra í Washington, sem standa
Ungverska dagblaðið Nepszab-
adsag skýrði svo frá í fyrra-
dag að um 13.000 arabar dveldust
nú í landinu í óleyfi stjórnvalda og
fjölgaði þeim með degi hverjum.
Koma arabarnir sem venjulegir
ferðamenn og neita svo að fara
aftur til heimahaga. A frétt blaðs-
ins er svo að sjá að þetta séu eink-
um Líbýumenn, Palestínumenn
og Sýrlendingar.
Flestir þeirra koma til Ung-
yfir þar í borg. Ein þeirra,
tveggja barna móðir að nafni
Linda Maynard, hélt því fram að
borgarstjórinn hefði haft kynmök
verjalands í þeirri trú að þaðan sé
auðvelt að komast til Vestur-
Evrópu, en þar hyggjast þeir setj-
ast að. Ungverjar klipptu niður
sinn hluta járntjaldsins s.l. ár, og
telur talsmaður utanríkisráðu-
neytis þeirra að þegar það fréttist
út um þriðja heim hafi fólk þar
farið að halda að einfalt mál væri
að komast til Vesturlanda þá
leiðina. En reyndin hefur orðið
önnur. Ungverjum er fyrir sitt
við hana nauðuga á hótelherbergi
sínu þar á eyjunum, er hann
dvaldist þar um skeið í mars
1988, og látið eftir hjá henni að
leyti ekkert um þessa gestakomu,
sumpart vegna þess að þar er fyrir
fjöldi flóttamanna frá Rúmeníu,
sem flestir eru ungverskrar ættar,
og öðrum þræði vegna þess að
samlyndið er ekki sem best með
Ungverjum og arabískum komu-
mönnum, að því er talsmaður
utanríkisráðuneytisins gefur í
skyn.
Reuter/-dþ.
skilnaði 50 dollara.
Barry er borinn 14 ákærum í
sambandi við eiturlyf og vofir yfir
honum allt að 1,85 miljón dollara
sekt og 26 ára fangelsisvist, verði
hann sekur fundinn. Jómfrúar-
eysku konurnar segjast hafa
fundið á lyktinni að borgarstjór-
inn hafi reykt krakk og marijú-
ana, meðan hann dvaldist á
eyjunum, en engin þeirra kvaðst
hafa séð það. Sá sem kynnti þær
fyrir Barry var Charles nokkur
Lewis, eiturlyfjasali sem nú hefur
hlotið dóm. Hann hefur borið
fyrir rétti að þeir Barry hafi reykt
kókaín saman nokkrum sinnum.
Barry, sem verið hefur borgar-
stjóri höfuðborgar Bandaríkj-
anna í rúman áratug og vinsæll af
mörgum borgarbúa, tilkynnti
fyrir nokkru að hann ætlaði ekki
að bjóða sig fram til þess emb-
ættis einu sinni enn.
Reuter/-dþ.
á maísmjöli
Óeirðir stóðu í fyrradag og gær
yfir í Lusaka, höfuðborg Afríku-
ríkisins Sambíu, og hermdu
fregnir frá sjúkrahúsum þar í
borg í gær að 14 menn hefðu verið
drepnir og a.m.k. 150 særðir.
Mun flest það fólk hafa orðið
fyrir skotum hermanna, sem
stjórnin sendi gegn mótmæla-
fólki.
Óeirðirnar brutust út þegar
fólk safnaðist saman í mótmæla-
skyni er stjórnin hafði tilkynnt að
verðið á maísmjöli, sem er aðal-
fæða landsmanna, yrði hækkað
um helming. Felst í hækkuninni
mikil kjararýrnun fyrir þorra
fólks þar. Kenneth Kaunda, sem
stýrt hefur Sambíu frá því 1964,
er hún varð sjálfstætt ríki, og ver-
ið mjög svo einráður, ákvað fyrir
skömmu að hætta niður-
greiðslum á maísmjöli og mun
hafa gert svo að áeggjan
Alþj óðagj aldeyrissj óðsins. Stúd-
entar og fleiri eru og farnir að
krefjast innleiðslu fjölflokkak-
erfis en Kaunda, sem styðst við
einsflokkskerfi, hefur ekki tekið
vel undir það. Reuter/-dþ.
Arabar til Ungverjalands
Miðlungi velkomnir
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 27. júní 1990