Þjóðviljinn - 27.06.1990, Side 7
MENNING
Myndlist
Skeljar og Plastkúreki
Guðbjörg Hjartardóttir sýnir í FÍM-salnum við Garðastræti
ar eru, aðrir hafa sagt myndir
mínar vera það. Það er án efa
erfitt að mála algjörlega óper-
sónulegar myndir. En oftast er
ekki hægt að dæma um slíkt sjálf-
ur. Að vissu leyti er mér illa við
að tala of mikið um myndirnar.
Það er svo margt í þeim. Segi ég
eitthvað í dag gæti hent að ég
uppgötvaði síðar eitthvað annað
við myndina. Oft tekur það mig
ár að átta mig á myndunum og
hvað ég var að pæla þegar ég mál-
aði þær.
Guðbjörg nam við nýlistadeild
Myndlista- og handíðaskólans,
þaðan útskrifaðist hún vorið
1987, og þá um haustið hélt hún
til náms til Lundúna. Hún stund-
aði málaranám við Slade School
of Fine Arts í tvö ár, og útskrifað-
ist í fyrra. Hún segist hafa valið
málun af því að það var það form
sem henni líkaði best. I nýlista-
deildinni hafði hún reynt alls
konar tækni og aðferðir en mest
fengist við að mála.
Lundúnir urðu fyrir valinu af
því að Guðbjörgu langaði til að
prófa að búa í stórborg, en hún
viðurkennir að það komi fyrir að
hún sakni náttúrunnar. Þá er
hægt að fara í lystigarðana í borg-
inni, en það eru aðrir hlutir sem
bæta upp vöntun á náttúru í
Lundúnum, þar er margt að sjá
og gera, en einnig er hægt að vera
út af fyrir sig og vinna án þess að
nokkuð trufíi.
Ég er skorpumanneskja til
vinnu. Ef ég er ekki í skapi til að
vinna en reyni það samt sem áður
kemur sjaldan eitthvað út úr því.
Þá er best að hætta að mála og
safna hugmyndum og byrja ekki
að vinna aftur fyrr en maður er
tilbúinn til að einbeita sér.
Vonandi get ég haldið áfram
að mála. Til að geta málað þurfa
menn fyrst og fremst tíma, til að
hafa tíma verða menn einnig að
eiga peninga. Ef vel gengur get ég
kannski byrjað að lifa á listinni
eftir tíu ár eða svo. Á sýningu
Guðbjargar eru fjórtán málverk,
á efri hæð eru stærri verk, en
minni í kjallara. Sýningin í FÍM-
salnum er opin daglega frá kl. 14-
18, og lýkur 10. júlí næstkom-
andi.
BE
Guðbjörg Hjartardóttir við málverkið Kex, sem mun vera Cadburys barnakex og allt annað en gott á
bragðið. Guðbjörg segir hugmyndirnar að verkum sínum koma alls staðar að, úr daglega lífinu, sögum og
kvikmyndum. Oft eigi hún erfitt með að gera sér grein fyrir hvernig viðkomandi hugmynd eða hugmyndir
kviknuðu í upphafi. Mynd: Ari.
Listasafn íslands
Vettvangur listumræöu
Árbók Listasafnsins kemur út öðru sinni
Þetta verk Errós frá árinu 1932 er meðal gjafa listamannsins til Lista-
safns islands og prýðir kápu Árbókarinnar að þessu sinni.
Kex,
Mér finnst sjálfsagt að mynd-
list þurfi ekki alltaf að vera hræði-
lega alvarleg og hátíðleg, þótt
hún geti verið það líka, segir lista-
maðurinn Guðbjörg Hjartardótt-
ir sem opnaði málverkasýningu á
laugardaginn í FÍM-salnum við
Garðastræti.
Hvað viðfangsefni mín varðar
þá vinn ég út frá hugmyndum sem
ég fæ, hugmyndum úr daglega líf-
inu, sögum sem ég hef lesið, kvik-
myndum og hverju sem er.
Myndirnar eru yfirleitt blandað-
ar, ég reyni að tengja margar
hugmyndir saman í hverri mynd.
Ég á oft erfitt með að vita ná-
kvæmlega hvaðan hugmyndirnar
og áhrifin koma. Og áhrifin eru
alls ekkert frekar úr myndlist en
daglega lífinu eða einhverju allt
öðru, gjörsamlega ótengdu
myndlist.
Ég á erfitt með að segja sjálf
hversu persónulegar myndir mín-
Ferðaleikhúsiö
Light Nights
Nú eru enn á ný hafnar sýning-
ar Ferðaleikhússins á Light
Nights fyrir erlenda ferðamenn í
Tjarnabíói. Verða haldnar sýn-
ingar fjórum sinnum í viku í allt
sumar.
Ferðaleikhúsið hefur sýnt
Light Nights í rúmlega tuttugu ár,
en sýningarnar eru nokkuð
breytilegar frá ári til árs. Allt efni
er íslenskt og flutt á ensku, ferða-
mönnum til fróðleiks um land og
þjóð. Meðal efnis eru þjóðsögur
af huldufólki, tröllum og
draugum, gamlar gamanfrásagn-
ir og einnig eru atriði úr Egils-
sögu sviðsett.
Sögumaður sýningarinnar er
Kristín G. Magnús. Hún er ásamt
Halldóri Snorrasyni og Magnúsi
S. Halldórssyni jafnframt eigandi
Ferðaleikhússins.
Sýningarnar í sumar verða á
fimmtudags- til sunnudags kvöld-
um kl. 21. Hver sýning er u.þ.b.
tveir tímar, síðasta sýning verður
2. september næstkomandi.
Ásgrímssafn
Sumarsýning
Skipt hefur verið um sýningu f
Safni Ásgríms Jónssonar að
Bergstaðastræti 74. Þar eru nú til
sýnis 26 verk, unnin í olíu og
vatnsliti á árunum 1905-1930.
Flest verkanna á þessari
sumarsýningu eru unnin á Suður-
landi þar sem Ásgrímur málaði
mikið fyrstu starfsár sín eftir að
hann settist að á íslandi árið
1909. Meðal verka sem sjá má á
þessari sýningu er mvndin Hái-
múli í Fljótshlíð, Á bökkum
Þjórsár, og ævintýramyndin
Fljúgðu, fljúgðu klæði. Fyrr-
nefndar myndir eru í vinnustofu
listamannsins, en á heimili hans
hefur aðallega verið komið fyrir
vatnslitamyndum. Það eru mest
landslags- og þjóðsagnamyndir
m.a. Álfarnir í Tungustapa.
Safnið er opið alla daga nema
mánudaga frá kl. 13.30 til 16.
Sumarsýningin stendur til ágúst-
loka.
Árbók Listasafns fslands 1989
er nýkomin út. Ritstjóri hennar
er forstöðumaður safnsins Bera
Nordal, hún ritar jafnframt for-
mála bókarinnar.
í Árbókinni er greint frá að-
föngum safnsins á árinu, og birtar
myndir af þeim. Auk skýrslu
safnsins eru einnig nokkrar grein-
ar er lúta að listum og listasögu í
landinu í bókinni.
Júlíana Gottskálksdóttir skrif-
ar greinina „Að efla þekkingu og
áhuga íslendinga á fögrum list-
um...“, Hrafnhildur Schram
skrifar um Sturluhlaup í túlkun
Ásgríms Jónssonar, Viktor Smári
Sæmundsson ritar grein undir
yfirskriftinni Aldursgreining
málverka og Rakel Pétursdóttir
um Samspil bóknáms og sjón-
rænnar reynslu barna.
í formála bókarinnar segir
Bera Nordal m.a. að Árbókin sé
vettvangur iistasögurannsókna
og umræðu um listmál. Á næstu
árum sé ákveðið að leggja
áherslu á mótunarár íslenskrar
myndlistar á fyrstu áratugum
þessarar aldar, og er grein Júlí-
önu Gottskálksdóttur fyrst
greina þess efnis. Júlíana fjallar
um sögu og starf Listvinafélags-
ins.
Skýrsla Viktors Smára Sæ-
mundssonar segir frá aldurs-
greiningu á verkum sem mikið
voru til umræðu í fjölmiðlum
fyrir skömmu, þ.e. myndunum
tveimur af Ara Magnússyni í Ögri
og konu hans Kristínu Guð-
brandsdóttur. Önnur myndin er í
eigu Þjóðminjasafnsins en hin í
einkaeign.
Listasafnið keypti og fékk að
gjöf samtals rúmlega sextíu verk
á síðasta ári. Ber þar hæst stór-
gjöf Errós til safnsins. Nokkur
verk voru keypt eftir listakonuna
Rósku, og einnig keypti safnið
verk fjölda ungra íslenskra
myndlistarmanna. Meðal verka
erlendra listamanna sem safnið
festi kaup á eru verk eftir
Austurríkismanninn Franz Graf
og Hollendinginn Kees Visser.
Tvo verk færði Graf safninu að
gjöf-
I skýrslu safnsins segir að gestir
á síðasta ári hafi verið rúmlega
áttatíu þúsund, og bendir Bera
Nordal á í formála sínum að safn-
ið hafi eflst mjög í hinum nýju
húsakynnum í miðborginni. Enn-
fremur segir Bera að safnið hafi
þegar sprengt af sér allt bakrými,
og það vanti sýningarsali fyrir
nútímaverk sem krefjast meira
rýmis en safnið hefur til umráða.
Eins og áður sagði er þetta í
annað sinn sem Árbókin kemur
út. Áðurnefndum greinum bók-
arinnar fylgir flestum samantekt
á ensku og annaðist Aðalsteinn
Ingólfsson listfræðingur þýðingu
þeirra.
BE
Miðvikudagur 27. júní 1990 ÞJÓÐVILJINN - SiÐA 7