Þjóðviljinn - 27.06.1990, Qupperneq 12
nSPURNINGIN
Áttu gæludýr?
Þórir Gíslason
leigubílstjóri:
Nei ég á ekki gæludýr og hef aldrei
átt. Mig langar heldur ekkert í það.
Hans H. Scheving
málari:
Já, ég á hund sem heitir Petró. Eg
hef ált hann í sex ár.
Helgi Guðjónsson
tækniteiknari:
Nei, það á ég ekki. Eg hef aldrei átt
gæludýr og hef ekkí hugleitt að fá
mér slíkt. Það væri helst að ég
fengi mér hund ef ég væri að velta
fyrir mér að fá mér gæludýr.
Margrét Runólfsdóttir
húsmóðir:
Nei, ég á ekki gæludýr núna. Eg
hef átt kanarífugl og kött, en ég
ætla ekki að fá mér dýr aftur.
Lilja Sigurðardóttir
skrifstofumaður:
Nei, ekki núna. Eg átti einu sinni
part í hundi, en mig langar ekki í
dýr aftur.
þiómnMiNN
Miðvikudagur 27. júní 1990 —116. tölublað 55. árgangur
Nú stendur yfir á Kópavogs-
hæli hin árlega sumarhátíð
heimilis- og starfsmanna og er
dagskráin fjölbreytt að venju.
Hátíðin hófst sl. sunnudag og
við setningu hennar spilaði
Hornaflokkur Kópavogs og á-
vörp voru flutt. Þá var helgi-
stund séra Arna Pálssonar og
hljómsveitin Upplyfting spilaði
fyrir heimilismenn. Omar
Ragnarsson kom í heimsókn og
sprellaði, sýnt var listflug, kór-
söngur og fleira. A mánudag
var siglt um sundin blá með
Viðeyjarferjunni og þeir sem
geta gengið fóru í gönguferð um
Viðey, meðan hinir sem eru í
hjólastólum sigldu um og skoð-
uðu eyjuna frá ferjunni.
Boccia
Þegar Þjóðviljinn heimsótti
Kópavogshæli í gær, stóð sem
hæst deildakeppni í Boccia, en
það er mjög vinsæl íþrótt hjá fotl-
uðum. Urslit urðu þau að í þriðja
sæti varð deild 5, í öðru sæti deild
10 og í fyrsta sæti varð lið sam-
býlis B, sem fékk í verðlaun for-
Starfsmenn I koddaslag I sundlauginni á Kópavogshæli við mikinn fögnuð heimilismanna. Myndir Ari.
Þroskaheftir
Sumarhátíð á Kópavogshæli
Fjölbreytt dagskrá með skemmtiatriðum, ferðalögum og íþróttum
láta bikar sem Lionsklúbburinn
Muninn gaf. Einnig gaf Muninn i-
þróttafélaginu Hlyn, sem er í-
þróttafélag Kópavogshælis, 20
nýja æfmgagalla fyrir vistmenn.
Ragnheiður Olafsdóttir íþrótta-
fræðingur á Kópavogshæli, sagði
að boccia væri ein vinsælasta í-
þrótt fatlaðra, þrátt fyrir að sumir
vistmenn hælisins skildu ekki al-
veg tilgang leiksins. „Þetta er eig-
inlega eina íþróttin sem nær allir
þroskaheftir og fatlaðir geta tekið
þátt í,” sagði Ragnheiður. Við
starfrækjum hér íþróttafélagið
Hlyn og æfum meðal annars
boccia. Við höfum tekið þátt í ls-
landsmeistaramóti í boccia og
ætlum að taka þátt í Íþróttahátíð
ISI sem verður bráðlega. Þótt bil-
ið hjá þroskaheftum sé mjög mik-
ið, geta næstum allir leikir boccia.
Sumir hafa ekki skilning á til-
gangi leiksins, en það hafa aliir
jafn gaman af honum þrátt fyrir
það,” sagði Ragnheiður.
Ekki voru allir að keppa í
boccia, og margir sátu í kring og
horfðu á og hvöttu sína menn.
Það var augljóst að leikurinn nýt-
ur mikilla vinsælda hjá vistmönn-
um.
Amgrímur Erlendsson er einn
af þeim sem æfa boccia stífl og
hefur keppt á ýmsum mótum. „Eg
hef æft í nokkur ár og finnst þetta
mjög gaman. Ég er að fara til
Skotlands með Iþróttafélagi fatl-
aðra 27. júní og verð i viku og
keppi í boccia. Eg hef líka æft
hlaup og sund og fleiri íþróttir. Á
hátíðinni núna verð ég með í leik-
Sigurliðið i boccia: Gunnar Axelsson, Sigurður Ingimundarson og Amgrímur
Ertendsson.
Mikil spenna rikti í úrslitakeppninni f boccia.
sýningunni og leik Skáldið. Svo
verð ég fimmtugur á morgun (í
dag),” sagði Amgrímur, sem var í
sigurliðinu í boccia.
Koddaslagur
ísundlaug
Eftir að úrslit vom ljós í
boccia, var farið að sundlaug hæl-
isins, þar sem starfsmenn kepptu í
koddaslag. Það var greinilegt að
vistmenn kunnu vel að meta slag-
inn, því gífúrleg fagnaðaróp,
klöpp og köll glumdu við þegar
einhver datt í laugina.
Eitthvað fyrir alla
Kjörorð hátíðarinnar er „Eitt-
hvað fyrir alla” og á dagskránni er
að sjá að svo er. Heimilsmenn
leggja að mestu niður vinnu þessa
viku sem hátíðin stendur yfir og
njóta alls þess sem boðið er upp á.
Sem fýrr segir em skemmtiatriði
fjölbreytt, og m.a. má nefna að
Brúðubíllinn kemur i heimsókn,
Valgeir Guðjónsson, Ari Jónsson,
hljómsveitin Hey á miili og skátar
úr Kópavogi ætla að sjá um
kvöldvöku. Allir þeir skemmti-
kraftar sem koma fram og aðrir
sem aðstoða við hátíðina, gera
það endurgjaldslaust.
En það eru ekki bara utanað-
komandi skemmtikraftar sem
halda uppi fjöri, því leikfélagið
Loki, sem starfrækt er af heimilis-
mönnum, ætlar að vera með leik-
sýninguna Bóndinn og Skáldið.
Þá hefur Heimakórinn æft af
kappi og syngur fyrir gesti og
vistmenn.
Fleiri ferðir verða famar en
Viðeyjarferðin, því farin verður
Fossvogssigling, farið til Hvera-
gerðis og á kvikmyndasýningu í
Háskólabíói. Hátíðin stendur til
laugardagsins 30. júní og endar
með dansleik í Þinghólsskóla. ns.