Þjóðviljinn - 03.08.1990, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 03.08.1990, Blaðsíða 3
Klámbylgja flæðir yfir Austur-Þýskaland Fall Berlínarmúrsins óvænt búbót fyrir klámiðnaðinn. Vestur-þýska klámdrottningin Beathe Uhse segir Austur-Pjóðverja hungra í klám og erótík Vestur-þýski klámiönaöurinn blómstrar aldrei sem fyrr eftir fall Berlínarmúrsins. Forvígismenn þessarar eðlu atvinnugreinar þar í landi hafa ærna ástæðu til að kætast þessar vikurnar. Þeir hafa hreinlega ekki undan að birgja Austur-Þjóðverja upp af tækjum og tólum ástalífsins, enda er vart við öðru að búast en að allar mór- alskar gáttir bresti eftir að hafa búið í tæpa fimm áratugi við boð og bönn þess skírlífissósíalisma sem rekinn var af fyrrum vald- höfum austur þar. - Eftir viðtökunum og eftir- spurninni til þessa að dæma sjáum við fram á að Austur- Þýskaland verði mikilvægt mark- aðssvæði fyrir okkur, segir hin sjötuga Beate Uhse í viðtali við blaðamann „The European" á dögunum. í þessum efnum veit frú Uhse örugglega hvað hún syngur, en hún er eigandi einnar stærstu verslunarkeðju í Vestur- Þýskalandi á sviði hjálpartækja ástalífsins og hvers kyns klámefn- is. Uhse sem hóf kaupmennskuna snemma á sjöunda áratugnum, rekur nú yfir 50 verslanir og 15 kvikmyndahús vítt og breitt um Vestur-Þýskaland. Starfsmanna- fjöldi er um 550 manns og heildarvelta fyrirtækisins á ári er um 107 miljón vestur-þýsk mörk. Það er ekki ofsögum sagt að Austur-Þjóðverja hreinlega hungrar að komast í tæri við þær lífsins lystisemdir sem þeim hefur til þessa verið meinað að njóta öðruvísi en með ærnu erfiði. Að sögn þýska tímaritsins „Der Spi- egel“ voru fyrrverandi valdhafar austur-þýska alþýðulýðveldisins kaþólskari en sjálfur páfinn þeg- ar kom að þeim málaflokki sem fellur undir kynlíf og ástir. Það er því ekki að undra að ritið segir Austur-Þýskaland vera nokkurs- konar einskis manns land fyrir klámiðnaðinn, eða eins og fé- lagsfræðiprófessor frá Bremen, Rudiger Lautmann, segir: - Eftir ALLT fyrirGLUGGANN úrval, gæði, þjónusta Hungraðir íbúar austur-þýsku borgarinnar Halle bítast um auglýsinga- bæklinga þar sem falboðinn er áður forboðinn varningur. Der Spiegel segir að allskyns fólk, virðulegir karlar á miðum aldri, konur með ungabörn ívögnum, unglingar, sovéskirdátar, lögreglumenn og meira að segja eldri frúr hafi safnast saman í um 150 metra langri biðröð til að verða sér úti um eintak. 45.000 eintök voru rifin út á örskömmum tíma. Rimlagluggatjöld í yfir 20 litum. Sérsniðin fyrir hvern glugga eftir máli. Sendum í póstkröfu um land allt. <12 Einkaumboö á íslandi PtaabæF Síðumúla 32 - Reykjavík - Sími: 31870 - 688770. Tjarnargötu 12 - Keflavík - Sími: 92-12061. í vörulista frá verslunarkeðju Beate Uhse kennir margra grasa eins og sjá má. áralanga bælingu kynhvatarinnar af hálfu 'þess opinbera er fólk glorhungrað að fá fýsnum sínum svalað. v Eftir fall Berlínarmúrsins í nóvember sl. hafa Austur- Þjóðverjar átt mun auðveldara um vik að nálgast þennan áður forboðna varning. Algengt er að íbúar austurríkisins hafi tekið sér far vestur yfir gagngert til innkaupa á tólum.og tækjum ást- alífsins. Þá blómstrar póstverslun klámbúllanna aldrei sem fyrr. Beate Ushe segir að fýrirtæki sitt hafi ekki undan að anna pöntunum Austur-Þjóðverja. Daglega berast fyrirtækinu 100.000 bréf að austan; vöru- pantanir, óskir um að fá senda vörulista að ógleymdum þakk- arbréfum frá ánægðum viðskipta- vinum. Frá því um áramót hefur Uhse sent austur fyrir heilar lestir vöru- bfla hlaðna af vörulistum yfir það úrval sem verslanir fyrirtækisins hafa upp á að bjóða og það hefur ekki staðið á viðbrögðum við þessum óvænta glaðningi. Velta póstverslunar fyrirtækisins við Austur-Þjóðverja frá því um síð- ustu áramót nemur um einni milj- ón þýskra marka. Enn sem komið er hefur lögum ekki verið breytt á þann veg í Austur- Þýskalandi að heimili sölu og birtingu kláms. Beathe Uhse, verður því að láta sér nægja um sinn að versla við Austur- Þjóðverja í gegnum póstinn, en hún segist staðráðin í því að færa út kvíarnar og setja upp útibú fyrir austan um leið og lög og reglugerðir heimili slíkt. -rk byggði á Der Spiegel og The European „Undra Wanda", uppblásin lagskona, er á meðal þess sem Austur- Þjóðverjum stendur nú til boða að prófa fyrir 89 vestur-þýsk mörk, eða rúmar 3.200 krónur íslenskar. Vestur-þýski klámkaupmaðurinn Beate Uhse hefur ærna ástæða til að brosa síðustu vikur og mánuði, enda blómstra viðskiptin sem aldrei fyrr. Fyrst var það óttinn við eyðni sem hleypti lífi í viðskiptin, núna eru það Austur-Þjóðverjar sem bæta um betur. Föstudagur 3. ágúst 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.