Þjóðviljinn - 03.08.1990, Blaðsíða 16
Kyn-
þokka-
fyllstu
knatt-
hetj-
umar
Kvenkyns lesendum enska
knattspyrnukjaftablaösins Match
gefst um þessar mundir tækifæri
til að láta það í Ijós í skoðana-
könnun, hvaða knatthetja á HM á
Ítalíu hafi heltekið hjörtu þeirra.
Ritstjórar blaðsins treysta hins
vegar stúlkunum ekki til að velja
úr þeim aragrúa kynbomba sem
sprungu út á Ítalíu og tilreiddu því
„matseðil" fyrir stúlkurnar. Lítum
á aðalréttina og umsagnir ritstjór-
anna:
Claudio Caniggia - Hin ljós-
hærða og leiftrandi argentíska
elding fékk allar stelpur til að
snúa sér við og hrífast af ljósum
lokkum sínum.
Gary Lineker - Tottenham leik-
maðurinn snyrtilegi og vel
greiddi snerti viðkvæma strengi í
brjóstum kvenna með drengja-
legu útliti sínu.
Ally McCoist - Kynþokkafyllsti
framherji Skota.
Roberto Baggio - „Herra græn
augu“. Kynþokkafull augu hans
kveiktu í hjörtum stúlkna. ftalsk-
ar konur kusu hann myndarleg-
asta leikmann keppninnar.
Giuseppe Giannini - Kraftmikill
og svalur, ólgandi orka hans
flæddi yfir leikvöllinn og púls
stúlknanna sló hraðar.
John Barnes - Kvenfólkið gapir
af undrun og ánægju þegar hann
sveiflar mjöðmunum og spennir
íturvaxin læri sín.
Lothar Matthaus - Vestur þýski
herforinginn hreif marga stúlk-
una með öruggri og háttvísri
framkomu sinni.
Enzo Scifo - „Babyface" sjarmi
belgíska undradrengsins hertók
hjörtu knattspyrnuaðdáenda af
kvenkyni. el
IÞROTTIR
Oflugasti öldukleyfirinn. Frakkinn Pascal Maka hefur hraðast manna stýrt seglbretti yfir öldutoppa
úthafanna. Þessi mynd var tekin af honum fyrir utan Kanaríeyjar fyrir skömmu er hann tók þátt í móti sem
var liður í heimsmeistarakeppni atvinnumanna. Rúmlega tvítugur garpur er nefndur er Björn Dunkerbeck
(og er ekki Svíi heldur Spánverji) hefur veitt heimsmethafanum harða keppni í sumar og systir Björns, Britt
Dunkerbeck leiðir stigakeppnina í kvennaflokki.
Johnny
Be Good
Englendingar hafa aldrei get-
að skilið af hverju sóknarmaður-
inn snjalli John Barnes hefurekki
sýnt jafn snjallan leik með enska
landsliðinu og með þeim félags-
liðum sem hann hefur leikið með,
Watford og Liverpool.
Eftir að fyrrum framkvæmda-
stjóri Barnes hjá Watford, Gra-
ham Taylor var ráðinn landsliðs-
þjálfari Englendinga hafa þar-
lendir gert sér vonir um að Jón
taki heldur að hressast. Barnes
hefur haldið því fram að hann
hafi ekki fengið nógu ákveðið
hlutverk undir stjórn Bobby
Robson en það kann að breytast
eftir að Taylor tekur við, því dag-
skipun hans við leikmenn sína hjá
Watford var mjög einföld: Kom-
ið bara boltanum til Barnes eins
fljótt og mögulegt er.
Gula pressan í Englandi tók
Barnes í gegn eftir dapra frammi-
stöðu hans á HM á Ítalíu. Nú
vænta menn betri tíðar með
blómum í haga og erlendum bak-
vörðum í skógarferð eftir illa
meðferð Barnes. Match orðaði
óskina á einfaldan hátt: Nonni
vertu góður eða Johnny be
Good.
el
Þróttarar í rífandi uppsveiflu
Knattspyrnufélagið Þróttur
hefur undanfarin ár verið í tal-
sverðri lægð. Bæði handknatt-
leiks- og knattspyrnulið félagsins
voru fyrir áratug eða svo í fremstu
röð á landinu en lækkuðu flugið
all hressilega þegar tók að líða á
tíunda áratuginn. Nú virðast þó
Þróttarar vera að lifna hressilega
við, félagsaðstaða þeirra við Sæ-
viðarsund jafnast á við það besta
sem gerist á landinu og knatts-
pyrnulið félagsins trónir nú á
toppi 3. deildar og árangurinn er
ekkert slor: 11 sigrar og aðeins
eitt tap.
Á miðvikudagskvöldið báru
Þróttarar sigurorð af nöfnum sín-
um frá Neskaupstað, 5-2, og
tróna nú langefstir í deildinni
með 33 stig að loknum 12 um-
ferðum. Eina tap Þróttar hingað
til var gegn ÍK í Kópavogi en ÍK
er í harðri baráttu við Hauka um
annað sætið í deildinni og eru lið-
in 5 og 6 stigum á eftir Þrótturum.
Knattspyrnuþjálfarinn kunni
Magnús Jónatansson hefur hald-
ið um stýrið á hinni hraðsigldu
Þróttaraskútu. Nýtt Helgarblað
spjallaði við Magnús á dögunum.
Ertu ánægður með árangur
liðsins? - Já, það verð ég að
segja. Mikill uppgangur er á
öllum sviðum í félaginu og von-
andi náum við að klára dæmið og
fara upp í 2. deild. Ef Þrótturber
gæfu til þess að fara upp er ég
ekki í minnsta vafa um að félagið
á eftir að standa sig vel í annarri
deildinni.
Nú var fyrirkomulaginu á 3.
deildinni breytt talsvert fyrir
þetta keppnistímabil, liðum
Nemendur!
Stórkost/egtti/boð tí/ykkar.
CST 386 SX tölva.
1. Mb. innra minni.
40. Mb. harður diskur, 25 ms.
2. samhliðatengi.
1. raðtengi.
1. stýripinnatengi.
1. "5 1/4 diskadrif.
1. "3 1/2 diskadrif.
"14 Einlitaskjár.
(Hægt að fá VGA litaskjá)
MS-DOS 4,01 & GW-BASIC.
Kr. 158,500.-
fækkað um helming og riðlaskipt-
ing aflögð, hafa þessar breytingar
verið til góðs?
- Deildin er miklu sterkari
náttúrlega, breiddin jókst til
muna. Það sem mælir gegn þess-
um breytingum er mikill ferða-
kostnaður sem oft er þungur
baggi að bera fyrir lið í neðri
deildunum sem ekki geta státað
af miklum áhorfendafjölda. Það
væri þannig minni ferðak-
ostnaður fyrir Þrótt að vera í 2.
deild.
En eru neðri deildirnar sterk-
ari nú en fyrir áratug eða svo?
- Breiddin er meiri, það eru
fleiri frambærilegir leikmenn sem
leika í neðri deildunum nú en
áður og leikmenn æfa ekkert
minna en 2. deildar leikmenn. Ég
hef lengi haldið því fram að bestu
liðin í 3.deild gætu verið í 2. deild
og bestu liðin í 2.deild gætu
reyndar vel verið í l.deild. Þetta
sést best á því að við Þróttarar
slógum efsta liðið í 2.deild, Fylki
út úr bikarnum og ÍBK sem er
neðarlega í 2.deild komst í und-
anúrslit. En þó breiddin hafi
aukist er því miður ekkert meira
framboð af virkilega góðum
knattspyrnumönnum, það má
segja að meiri flatneskja ríki.
Hvaða lið fer með Þrótti upp?
- Ef að Þróttur fer upp...þá
verður sennilega hreinn úrslita-
leikur milli ÍK og Hauka í seinni
umferðinni. Þessi þrjú lið bera
nokkuð af öðrum liðum í
deildinni, einfaldlega vegna legu
sinnar. Onnur lið sitja alls ekki
við sama borð hvað varðar undir-
búningstímabilið sem er lengra
og betra hjá sunnanliðunum.
Þessi lið náðu þarafleiðandi for-
skoti strax í upphafi og það hefur
haldist. Það er nefnilega þannig
að lið hætta frekar í neðri
deildunum ef þau eiga ekki
möguleika.
Er Þróttur gott félag?
- Já, svo sannarlega. Hér hef-
ur orðið alger bylting á tveimur
árum. Ég hef til dæmis ekki kom-
ið inn í neitt félagsheimili á
landinu þar sem jafn vel er haldið
utan um hlutina og í Þrótt-
heimum. Aðstaðan hefur batnað
til muna sem og öll stjórnun á
félaginu. Stjórnarmeðlimir og
leikmenn gerðu sér grein fyrir því
að þeir þyrftu að staldra við og
endurskoða ýmislegt í sambandi
við félagið. Menn gerðu sér grein
fyrir því að eitthvað þyrfti að gera
til að rífa félagið upp. Meiri virð-
ing er nú borin fyrir öllu í sam-
bandi við félagið.
Kemst Þróttur aftur í fremstu
röð?
- Haldi þetta skipulag áfram er
ég ekki í vafa um það. Þetta er
vinna og aftur vinna en hefst allt
með þolinmæðinni, sagði harð-
jaxlinn Magnús Jónatansson,
þjálfari Þróttar.
el
Þetta einstæða verð er í tilefni af 5. ára afmæli Pegasus hf. og gert í samvinnu við
CST. verksmiðjurnar. Tilboðið gildir til 15. ágúst, eða á meðan þetta takmarkaða
magn endist, því er nauðsynlegt að hafa snör handtök og staðfesta pöntun strax.
Pegasus hf. Ármú/a 38 105 fívk. Sími 91-688277.
Hver var bestur?
Umsjónarmanni íþróttasíðu er ekki
kunnugt um að nokkur leikmaður hafi
enn verið útnefndur besti leikmaður HM
á Ítalíu.
Það kemur varla á óvart, enginn leik-
maður stóð upp úr. Og eins og áður þegar
Þjóðverjar bera sigur úr býtum vilja menn
ekki tala meira um keppnina en þörf kref-
ur. Þó er bót í máli að sigur Þjóðverja í
úrslitaleiknum var verðskuldaður og eng-
inn snillingur féll óverðskuldað í valinn,
eins og Cruyff 1974 og Puskas 1954.
el
Myndin af Ferenc Puskas er birt í minn-
ingu sannrar snilldar. Amen.