Þjóðviljinn - 18.08.1990, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 18.08.1990, Blaðsíða 2
FRETTIR Kaugmáttur Fimmtán prósent rýmun Kaupmáttur launa hefur , minnkað um 15 af hundraði síðan í ágúst árið 1988. Ef miðað er við síðustu tólf mánuði nemur kaupmáttarrýrnunin 4,3 af hundraði. Þetta kemur í Ijós þeg- ar borin er saman hækkun launa- vísitölu annars vegar og fram- færsluvísitölu hins vegar. Á tíma- bilinu ágúst 1987 til ágúst 1988 jókst kaupmáttur hins vegar nokkuð og nú á síðustu mánuðum hefur mjög kaupmáttar. dregið úr rýrnun Hagstofan sendi í gær frá sér tilkynningu um að launavísitala hafi hækkað um 0,3 af hundraði frá síðasta mánuði. Þessi hækkun kemur eingöngu til vegna 4,5 prósent hækkunar sem félags- dómur dæmdi félagsmönnum í BHMR. BHMR nýtur þeirrar hækkunar hins vegar aðeins út þennan mánuð, en 1. september verður hækkunin tekin af með bráðabirgðalögum. Sé miðað við síðustu tólf mán- uði, hefur launavísitala hækkað um aðeins 9,5 af hundraði. Á sama tíma hefur framfærsluvísi- talan hækkað um 14,2 prósent. Kaupmáttarrýmunin nemur því rúmlega fjómm af hundraði. En sé miðað við síðast liðin tvö ár nemur rýmun kaupmáttar 15 af hundraði. Það þýðir í raun að nær sjötta hver króna hefur verið tekin af launafólki á þessu tveggja ára tímabili. Mjög hefur þó dregið úr rým- un kaupmáttar á undanförnum misserum. Miðað við mismun á hækkun launavísitölu og fram- færsluvísitölu síðan í febrúar, nemur kaupmáttarrýrnun nú 0,6 af hundraði á heilu ári. -gg Lœknafélag íslands Laga- setningu mótmætt Stjórn Læknafélags íslands mótmælir harðlega setningu bráðabirgðalaga sem nema úr gildi kjarasmning ríkisvaldsins við Bandalag háskólamanna, segir í tilkynningu frá Lækanafé- laginu. Þar segir einnig að það sé siðferðislegt grundvallaratriði við samingsgerð, að samningsað- ilar geti treyst því að samningur verði haldinn. „Tilhliðrun samningsaðila sem endanlega leiðir til samkomulags byggist á þessu trausti," segir í tilkynningunni. Það sé óþolandi þegar þriðji aðili grípi inn í samn- inga með lagasetningu sem ógilda samninga, en þegar annar aðili gerðs kjarasamnings grípi inn í með lögum, sé um hreina vald- níðslu að ræða. Bein og óbein afskipti annarra samtaka launafólks af kjara- samningi BHMR, bera einfeldn- inni vitni og eru sorgleg, að mati stjórnar Læknafélagsins. Af- skipti vinnuveitenda á frjálsum vinnumarkaði af samningnum séu siðlausari en svo að þau séu umræðu verð. Stjórn Læknafélagsins segir meginþorra þjóðarinnar sam- mála um að ríkið hljóti að reka að mestu eða öllu leyti heilbrigðis- og menntakerfið ásamt því að sjá um margvísleg öryggsmál. Ríkið hljóti því áfram að vera vinnu- veitandi sem geri samninga við sína starfsmenn. „Það er verulegt áhyggjuefni jafnt fyrir fastráðna sem lausráðna opinbera starfs- menn, að þurfa að gera samninga við vinnuveitanda sem ekki hefur til að bera lágmarksskilning á þeirri ábyrgð sem honum eru lagðar á herðar,“ segir orðrétt í tilkynningu Læknafélagsins. -hmp Skálholtskirkja Lokahelgi tónleika Lokahelpi sumartónleika í Skálholtskirkju er runnin upp. Manuela Wiesler flautuleikari heldur einleikstónleika í dag, en hún mun einnig koma fram ásamt Herði Áskelssyni orgelleikara og Ingu Rós Ingólfsdóttur selló- leikara. Tónleikarnir hefjast kl. 15 í dag með dagskrá tileinkaðri tón- list Johanns Sebastians Bachs. Kl. 17 hefjast síðan einleikstón- leikar Manuelu Wiesler, og mun hún flytja verk eftir Claude De- bussy, Jacques Ibert og André Jolivet. Á morgun verða aftur flutt verk eftir Bach og frönsk flaututónlist. Messa hefst kl. 17, og verða að vanda flutt atriði úr efnisskrá helgarinnar. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. BE Framkvaemdir við endurreisn Þjóðleikhússins ganga vel og má segja að hluti hússins hafi verið færður í fokhelt ástand. Nú er niðurrif á lokastigi og vinna iðnaðarmanna við uppbyggingu hafin af fullum krafti. Mynd Jim Smart. Þjóðleikhúsið MúHirati lokið Verksamningur við ístak upp á 150 miljónir. Nýir stólarfrá Stálhús- gögnum fyrir 15 miljónir Framkvæmdir við endurreisn Þjóðleikhússins ganga vel og er múrbroti vegna lagfæringa og endurbygginga nær lokið. Menntamálaráðherra og Páll Sig- urjónsson, forstjóri ístaks, hafa undirritað verksamning upp á um 150 miljónir króna og samið hefur verið við Stálhúsgögn um smíði stóla fyrir liðlega 15 miljón- ir króna. Búið er að slá upp mótum fyrir nýjar svalir og verða þær steyptar á næstu dögum. Þá er búið að panta ýmsan búnað sem þarf að endurnýja. Stólamir sem Stál- húsgögn munu smíða verða eins útlits og þeir gömlu og með eins áklæði, nýofnu. Að jafnaði vinna um 30 manns daglega að endurreisn Þjóðleik- hússins í húsinu sjálfu en verða um 70 þegar líða tekur á haustið. Áætlað er að ljúka fram- kvæmdum við sal, ganga á ann- arri hæð og Kristalssal þann 15. febrúar á næsta ári og þá hefst leikstarfsemi í húsinu á ný. í sumarlokun næsta sumar verður síðan m.a. lokið við frá- gang á göngum á jarðhæð, and- dyri og í Leikhúskjallaranum, en gert er ráð fyrir því að hann geti opnað aftur í næsta mánuði eftir lokun í sumar vegna framkvæmd- anna. Árni Johnsen hefur nú tekið við formennsku í Bygginganefnd Þjóðleikhússins en Skúli Guð- mundsson fráfarandi formaður sinnir sérstaklega framkvæmda- þáttum á vegum framkvæmda- deildar Innkaupastofnunar ríkis- ins, sem hann veitir forstöðu. -vd. Kópasel Atvinnuleysi Algert met í júlí Atvinnuleysi hefur ekki verið meira í júlímánuði i tvo áratugi. í síðasta mánuðu voru skráðir 44 þúsund atvinnuleysisdagar á landinu öllu, sem jafngildir að tvö þúsund manns hafi verið án at- vinnu í þeim mánuði. Síðasta virkan dag júlímánaðar voru tvö þúsund og níutíu manns atvinnu- lausir. Sem hlutfall af heildar- mannafla á vinnumarkaði er atvinnuleysið 1,5%. Eins og fyrr er atvinnuleysi mun meira á meðal kvenna en karla. Alls voru skráðir 26 þús- und atvinnuleysisdagar hjá kon- um í júlímánuði, en 18 þúsund hjá körlum. Á landsvísu var atvinnuleysi hjá konum 2,1% en á einstökum svæðum var atvinnu- leysi almennt mest á Vesturlandi og Norðurlandi eystra þar sem það var 2%. Þó skráðum atvinnuleysis- dögum Vinnumálaskrifstofu fé- lagsmálaráðuneytisins hafi fækk- að um tvö þúsund frá júnímánuði til júlímánaðar, hefur þeim fjölg- að um fimm þúsund miðað við júlí í fyrra, eða um 13%. Meðal- tal skráðra atvinnuleysisdaga síð- ustu fimm árin er sautján þúsund og fimm hundruð atvinnuleysis- dagar. A höfuðborgarsvæðinu voru að meðaltali 1,045 manns atvinnulausir í júlímánuði eða 1,4% . Heldur fleiri konur voru án atvinnu en karlar, 1,9% á móti 1%. Heildaratvinnuleysi á Vest- fjörðum var 0,6%, 1,7% á Norð- urlandi vestra, 1,1% á Austur- landi, 1,8% á Suðurlandi og 1,5% á Suðurnesjum. Atvinnu- leysi er mest hjá konum á Vestur- landi, 3,7%. -hmp Tíska Sjálfmeniftaður hönnuður Sverrir Sv. Sigurðsson er ung- ur sjálfmenntaður tfskuhönnuð- ur sem sýnir þessa helgi og næstu handmálaða samkvæmisjakka úr silki og tískuteikningar í Gallerí 15 að Skólavörðustíg 15 kjallara. Jakkarnir, sem allir eru unnir á þessu ári, eru hannaðir fyrir fág- aðar nútímakonur, og eru litir og mynstur jakkanna undir áhrifum frá formum og litum náttúru landsins. Höfundur segist einnig vera undir áhrifum listmálanna Klimts, Kjarvals og Dérains. Sýningin verður eins og áður segir opin um þessa helgi og þá næstu frá kl. 13-18. Foreldrar bíða eflir viðræðum Það sem mér finnst verst er að það virðist vera búið að á- kveða að Waldorf-hópurinn yfir- taki Ieikskólann án þess að nokk- ur opinber aðili hafi tekið form- lega ákvörðun. Það er alveg sama hvaða leiðir við bendum á aðrar og alveg sama þó við getum hrak- ið fullyrðingar um kostnað og barnafæð, það er bara farið í hringi, sagði Hallveig Thordar- son, eitt foreldra barna á leikskól- anum Kópaseli, en hann ætla bæjaryfirvöld í Kópavogi að einkavæða 1. desember nk. eins og Þjóðviljinn skýrði frá í gær. Foreldrar hafa fundað í tvígang síðan um mánaðamót þegar þeim voru færðar þessar fréttir og einn- ig hafa þeir fundað með starfs- fólki. Bréf frá fundunum 7., 13. og 15. ágúst hafa verið send bæj- arstjóra, félagsmálaráði og nú síðast bæjarráði og því lýst yfir að vilji foreldra sé að rekstri Kópa- sels verði haldið áfram óbreyttum. Jafnframt segjast for- eldrar vera tilbúnir til viðræðu hvenær sem er, því fyrr því betra. „Við höfum engar upplýsingar fengið um þessa Waldorf- uppeldisstefnu en mér skilst að Waldorf-hópurinn vilji funda með okkur í næstu viku,“ sagði Hallveig. „Ég hef búið í Svíþjóð þar sem þessi stefna er rekin í sérskólum og ég kæri mig ekki um að hafa mitt barn í Kópaseli þegar þetta tekur við.“ Bæjarráði Kópavogs barst fundarbeiðni frá foreldrum í gær- morgun en hún var ekki tekin fyrir á fundi ráðsins í gær. Ekki tókst að ná tali af Sigurði Geirdal bæjarstjóra til að fá upplýsingar um hverju það sætti að bréfum og óskum foreldra um fundi hefur enn ekki verið svarað. -vd. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN BSRB Spamaöur bttnar á sjúkum Bandalag starfsmanna ríkis og bæja krefst þess að bætt verði úr neyðarástandi á sjúkrahúsum þegar í stað og að velferðakerfið verði eflt en ekki veikt og brotið niður. í tilkynningu frá BSRB segir að niðurskurður í heilbrigð- iskerfinu bitni nú með margvís- legum hætti á sjúklingum. „Sjúkt og gamalt fólk er sent heim eða búnar óviðunandi að- stæður þegar heilum deildum er lokað í „sparnaðarskyni," segir í tilkynningunni. Á sama tíma og þetta viðgangist komi í Ijós að ríkisvaldið hafi svo ríkan skilning á vanda fyrirtækja, að hægt sé að losa milljarða til þeirra eins og gert hafi verið varðandi íslenska Aðalverktaka. Að mati BSRB er óviðunandi að stórfyrirtækjum sé liðið að draga til sín milljarða í eigin sjóði, á meðan laun al- mennings eru skorin við nögl og gömlu fólki og sjúku bókstaflega vísað á dyr. -hmp

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.