Þjóðviljinn - 18.08.1990, Side 3
FRÉTTIR
Vetnisframleiðsla
Reyðarfjörður álitlegur kostur
Verði tilraunaverksmiðja reist hér á landi til aðframleiða vetni verður að telja líklegast að Austfirðir séu heppilegur
staður vegnanálœgðar við væntanleganotendur. GarðarIngvarsson: Vænlegrikostur enað leggja sœstreng til Evrópu
Reyðarfjörður sem og aðrir
firðir á Austlandi hljóta að
vera vænlegastir hvað varðar
staðsetningu vetnisverksmiðju.
Komi til þess að við hér á landi
hefjum framleiðslu á vetni til
notkunar sem eldsneyti í Evrópu
hlýtur staðsetning að ráðast af
því hve skipin eru lengi að sigla á
milli staða, sagði Garðar Ing-
varsson, framkvæmdastjóri
Markaðsskrifstofu iðnaðarráð-
uneytisins og Landsvirkjunar.
Eins og kom fram í blaðinu í
gær taka Islendingar nú þátt í við-
ræðum um hvort hægt sé að fram-
leiða umtalsvert magn af vetni
hérlendis til notkunar í Ham-
borg. Þar er ætlunin, ef af verður,
að nota vetnið m.a. til að húshit-
unar, á strætisvagna Hamborgar
og til að framleiða rafmagn.
Hugmyndir um að íslendingar
komi inn í þetta rannsóknaverk-
efni voru í gær kynntar fyrir dr.
Martin Bangemann einum af var-
aforsetum Evrópubandalagsins,
en hann er staddur hérlendis í
boðið iðnarráðherra. Dr. Bange-
mann fer með iðnaðarmál á veg-
um Evrópubandalagsins, en það
greiðir hluta kostnaðarins við
þessar rannsóknir.
- Mér finnst þessi hugmynd ál-
itlegur kostur. Ég tel að við ætt-
um að einbeita okkur að því að
kanna hann enn frekar, sagði
Garðar. Hann tók þátt í fundi
með hópi sérfræðinga sem komu
til landsins nýlega til viðræðna
um það, hvort hagkvæmt yrði að
reisa tilraunaverksmiðju hér á
landi í stað Kanada eins og nú er
áformað.
- Það var ákveðið að hittast
aftur í október til að fara yfir
þessar hugmyndir. Það hefur ver-
ið ákveðið að sinna þessu verk-
efni af kostgæfni hér á markaðs-
skrifstofunni, því það er aldrei að
vita nema þarna séu möguleikar
fyrir okkur til að nýta þá orku
sem við þurfum ekki á að halda,
sagði Garðar og benti á að vetni-
sframleiðsla myndi skapa meiri
atvinnu hér á landi en ef ráðist
yrði í að leggja sæstreng til Evr-
ópu, sem þó væri einnig álitlegur
kostur.
-sg
Kjarasamningar
Ósáttir við
samninginn
Þjóðarsáttarsamningur undirritaður í gœr.
Svanhildur Kaaber formaður Kennarasam-
bands íslands: Treystum okkur ekki til að
brjótast undan því ægivaldi sem launþegar
búa við. Svanfríður Jónasdóttir aðstoðar-
maður fjármálaráðherra: Mjög ánægð með
þennan samning
Igær var undirritaður kjara-
samningur Kennarasambands
íslands og fjármálaráðherra fyrir
hönd ríkissjóðs og er hann í anda
þjóðarsáttarinnar svokölluðu.
Samningurinn byggir á sömu for-
sendum og samningar ASI og
BSRB frá því í febrúar og gildir til
31. ágúst 1991. Svanhildur Kaa-
ber formaður KÍ segir að hún sé
ekki sátt við þennan samning.
„Ég hef aldrei tekið þátt í að
gera kjarasamning sem ég hef
verið fyllilega sátt við. Ég er
sennilega ósáttari við þennan
samning en marga aðra. Hins
vegar varð niðurstaðan sú hjá
samninganefnd KÍ að við hrein-
lega treystum okkur ekki til að
brjótast undan því ægivaldi sem
launafólk í þessu landi býr við.
Þess vegna var sú ákvörðun tekin
að skrifa undir samninginn,"
segir Svanhildur
Svanhildur segir að KÍ hafi ver-
ið í vonlausri samningsaðstöðu
vegna þess að þrátt fyrir að bráð-
abirgðalögin sem voru sett á dög-
unum, hafi ekki átt að ná yfir þau
félög sem voru með lausa samn-
inga, var augljóst að KÍ myndi
ekki ná lengra.
Svanhildur Kaaber og Svanfríður Jónasdóttir skrifa undir kjarasamning Kenn-arasambands (slands og ríkisins.
Mynd: Kristinn.
Svanfríður Jónasdóttir aðstoð-
armaður fjármálaráðherra skrif-
aði undir samninginn fyrir hönd
fjármálaráðherra. Hún segir að
þessi kjarasamningur falli inn í
þjóðarsáttina að þvf leyti að hann
byggi á sömu forsendum og er
með sömu kauphækkanir og ASÍ
og BSRB-samningarnir. „Kenn-
arasamband íslands fær sína eigin
launanefnd samkvæmt samn-
ingnum og einnig er í honum
ákvæði um að á samningstíman-
um skuli verða áframhaldandi
vinna að skilgreiningu kennara-
starfsins og skólastjórnun," segir
Svanfríður.
Að sögn Svanfríðar er hún
mjög ánægð með þennan samn-
ing. „Það voru ekki neinir erfið-
leikar í samningsgerðinni aðrir en
þeir að vegna ýmissa breytinga
sem eiga sér stað í skólakerfinu,
þurfti að huga að býsna mörgum
atriðum sem kennarar vildu
ræða. Þau atriði verða rædd
áfram, en koma ekki til með að
leiða til neinna launabreytinga,“
segir Svanfríður.
ns.
Nýtt álver
Rangfærslum andmælt
Héraðsnefnd Eyjafjarðar: Engin gögn staðfesta að dýrara sé að reisa
álver við Eyjafjörð en á Keilisnesi. Öfullnœgjandi upplýsingar rugla
skoðanamyndun
Héraðsnefnd Eyjafjarðar and-
mælir þeim fullyrðingum sem
komið hafa fram í fjölmiðlum,
um að kostnaðurinn við að reisa
álver á Dysnesi í Eyjafirði sé 5-6
milljöðrum hærri en ef álver yrði
reist á Keilisnesi. Kostnaðarút-
reikningar liggi ekki fyrir í þessu
sambandi. Héraðsnefndin segir
að þessi fullyrðing ásamt fleirum
styðjist ekki við staðreyndir, eða
byggi á gömlum forsendum sem
orðnar séu úreltar.
Fullyrðingar um að 50-60 bú í
Eyjafirði verði að leggja niður
búskap með tilkomu álvers,
byggja á gögnum frá árinu 1985,
sem ekki eru í samræmi við þau
gögn sem nú liggja fyrir, segir
héraðsnefndin. Það sé hins vegar
bagalegt á margan hátt, að
skortur sé á nauðsynlegum upp-
lýsingum, sem valdi því að af-
staða margra byggi á ófullnægj-
andi vitneskju.
Héraðsnefnd hefur falið hér-
aðsráði að koma fram fyrir hönd
sveitarfélaga við Eyjafjörð í við-
ræðum við Atlantsál og íslensk
stjórnvöld. Ráðið hefur skrifað
iðnaðaráðherra bréf og leggur
þar til að birt verði álitsgerð um
áhrif loftmengunar samkvæmt
nýrri dreifingarspá. Einnig
leggur ráðið til að haldnir verði
fundir í Arnarneshreppi, Glæsi-
bæjarhreppi og á Akureyri, þar
sem umhverfisáhrif álvers verði
upplýst. Þá verði haldinn fundur
með mengunarsérfræðingum
Atlantsáls, þar sem þeir skýrðu
út framleiðslutæknina sem Atl-
antsál ætlar sér að nota við ál-
framleiðsluna. Þetta segir hér-
aðsráðið nauðsynlegt að gerist
áður en ákvörðun um staðarval
er tekin, en þá ákvörðun á að
taka í næsta mánuði. -hmp
Höfn
Þokkaleg humarvertíð
Af þeim ellefu bátum sem hér
lögðu upp humarafla eru níu
búnir með sinn kvóta. Við gætum
selt miklu meira magn af humri
en það magn sem við vinnum,
sagði Sverrir Aðalsteinsson hjá
Fiskiðju Kaupfélags
Austur-Skaftfellinga á Höfn í
Hornafirði.
Á humarvertíðinni sem senn
lýkur höfðu 66 bátar leyfi til að
stunda veiðar. Heildarkvótinn
var 2100 tonn, sem var 10%
skerðing frá því í fyrra. - Við
erum nokkuð ánægðir með það
verð sem nú fæst fyrir humarinn.
Við höfum unnið í tvenns konar
pakkningar, annars vegar fer 1,5
kg pakkningar, í þær humar sem
frystur er með köfnunarefni. Sú
aðferð er ný hjá okkur og hefur
gefist vel. Síðan pökkum við í 12
kg. pakkningar sem fara aðallega
til Ítalíu.
Sverrir sagði að það hafi aðal-
lega verið unglingar sem unnu í
humrinum og þegar mest var
höfðu um fimmtíu manns atvinnu
af vinnslunni í landi.
-SR
HELGARRUNTURINN
BERJ ATÍNSLUTÍMINN er runninn upp og Ferðafélag íslands efnir til
berja- og fjölskylduferðar á morgun kl. 13. Gengið verður frá Svartagili
að Skógarhólum. Þeir sem heldur vilja klífa tinda en búa til krækiberj-
asultu eiga þess kost að fara með sama félagi upp á Skjaldbreið, og
verður lagt af stað kl. 10 á sunnudagsmorgni. Utivist býður útiveru-
fólki dagsferð í Mörkina á morgun, rútan fer kl. 8. Morgunsvæfir geta
skellt sér i göngu á Keili kl. 13.
SUM ARTÓNLEIKAR í Skálholtskirkju verða í síðasta sinn i dag og á
morgun. Að þessu sinni leikur Manuela Wiesler á flautu gestum til
ánægju, bæði ein og með orgel- og sellóleikurunum Herði Áskels-
syni og Ingu Rós Ingólfsdóttur. Tónleikarnir hefjast báða dagana kl.
15, síðdegistónleikar eru í dag kl. 17, og á sama tíma á morgun verður
messa þar sem leikin verða atriði úr dagskrá helgarinnar. Vestur á
fjörðum eru þeir félagar Sigurður Halldórsson og Daníel Þorsteins-
son staddir, og leika fagra tónlist á selló og píanó fyrir Bolvíkinga í dag
kl. 16, en Isfirðinga á morgun á sama tíma. Geir Lystrup kallast
norskur vísnasöngvari sem skemmtir fólki í Norræna húsinu á morgun
kl. 16. Þeir sem meira eru gefnir fyrir sveifluna en klassíkina ættu að
mæta í Heita pottinn í Duus-húsi. Þar leikur Árni Scheving ásamt
kvintett sínum djass frá árunum 1935-1985 kl. 21.30 annað kvöld. í
Hafnarborg verður boðið upp á síðdegistónleika kl. 16.30 á morgun.
Mun þar fjórtán ára drengur að nafni Halli Cauthery, sem á ættir að
rekja hingað til lands, leika á fiðlu ásamt píanóleikaranum Nínu Mar-
gréti Grímsdóttur verk eftir Massenet, Árna Björnsson og Manuel de
Falla. Enn eru ótaldir gítartónleikar Olle Olson og Þórólfs Stefáns-
sonar í Dillonshúsi á Arbæjarsafni í dag kl. 16.
MYNDLISTARRÚNTURINN er fjölbreyttur að vanda. Inga Sólveig
heitir ung kona sem sýnir þessa dagana Ijósmyndir á Veitingastaðn-
um 22, að Laugavegi með sama númeri. A morgun eru síðustu forvöð
að sjá fjölkynngisýningu Nínu Gautadóttur á Kjarvalsstöðum og
skúlptúra Sigrúnar Ólafsdóttur í gryfju og forsal Nýlistasafnsins.
Fimmtugur varð í gær Eyjólfur Einarsson listmálari og af því tilefni
opnaði hann sýningu á nýjum málverkum í Gallerí Nýhöfn við Hafnar-
stræti. í bogasal á annarri hæð verslunar Sævars Karls við Banka-
stræti sýnir Halldóra Emilsdóttir litlar myndir unnar með gvasslitum á
pappír. Ungur og sjálfmenntaður fatahönnuður að nafni Sverrir Sv.
Sigurðsson sýnir í dag og á morgun samkvæmisjakka saumaða úr
handmáluðu silki fyrir fágaðar nútímakonur í Gallerí 15 í kjallara við
Skólavörðustíg 15.
ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 3