Þjóðviljinn - 18.08.1990, Side 6

Þjóðviljinn - 18.08.1990, Side 6
ERLENDAR FRETTIR Málið snýst um olíu Saúdi-Arabar meinuðu í annað sinn íröksku olíuskipi að lesta írakska oiíu f höfninni við Muájj- iz á fimmtudag. Sama dag fór olí- uráðherra Saúdi-Arabíu þess á leit að OPEC-ríkin héldu strax fund svo mætti bæta fyrir fram- leiðslutapið þar sem nú berst eng- in olía frá Kúvæt og írak. Olíuráðherra íraks sagði svo í gær að þessi beiðni væri ekki ann- að en yfirskin svo Saúdi-Arabía gæti aukið framleiðslu sína. Hann átaldi einnig Saúdi-Araba fyrir að meina olíuskipum íraka Líbería Sjúkir einir ábát Enginn er eftir í Monróvíu til að sinna sjúkum og særðum Níu spænskir trúboðar sögðu í gær að það væri enginn eftir i Monróvíu, höfuðborg Líberíu, til að sinna særðum og sjúkum. Þeir neyddust til að yfirgefa borgina og spítalann sem þeir ráku vegna borgarastyrjaldarinnar sem hef- ur geisað í átta mánuði. Trúboðarnir yfirgáfu spítalann ásamt 300 særðum einstaklingum en þeir urðu að skilja marga eftir. Við lofuðum að koma aftur en við gátum það ekki, sagði faðir Jose Sebastian í gær. Trúboðarn- ir neyddust til að skilja 14 full- orðna og 60 börn eftir í spítalan- um. Sebastian sagði að herlið skæruliða hefði neytt þá til að yf- irgefa spítalann en að þeim hafi tekist að flytja flesta á sjúkrahús inni í miðju landinu fjarri átökun- um. Vestur-afríska efnahagsbanda- lagið hefur stofnað friðargæslu- sveit sex landa og kallað á hinar stríðandi fylkingar að hefja friða- rviðræður; 2,500 manna herlið frá Ghana, Gíneu, Gambíu, Si- erra Leone og Togo bíður þess að skerast í leikinn og koma á vopn- ahléi. Reuter/gpm aðgang að höfninni við Muájjiz og auka þannig á olíuskort í heiminum, að hans áiiti. Hann benti líka á samþykkt OPEC frá því í síðasta mánuði þess efnis að nauðsynlegt væri að minnka um- frambirgðir Vesturlanda því þær lækkuðu verðið og sköðuðu olíu- framleiðsluríki. Fjármálaráðherra útlaga- stjórnar Kúvæt hvatti olíuríkin einnig til að hittast sem fyrst og var samþykkur framleiðslu- aukningu. Af 13 þjóðum í OPEC eru það helst Saúdi-Arabía og Venesúela sem vilja framleiða meiri olíu. Bæði ríkin eiga miklar umframbirgðir og geta þar að auki framleitt mun meiri olíu en nú án mikilla vandkvæða. Sömu sögu er ekki að segja af öðrum OPEC-ríkjum svo sem Indónesíu sem hefur lýst því yfir að OPEC- ríkin eigi að bíða til loka mánað- arins og skoða málin þá. En Saddam Hussein ír- aksforseti segist munu líta á það sem árás á írak fari önnur OPEC ríki að framleiða meiri olíu en samþykktir samtakanna leyfa. Olíukreppu er ekki farið að gæta að ráði á Vesturlöndum en þau lönd sem fara verst úr Persa- flóadeilunni eru lönd einsog Jór- danía og Tyrkland, fátæk lönd sem hafa haft mikil viðskipti við frak og jafnvel treyst á þau einsog Jórdanía. Það var þessvegna sem Jórdaníukonungur tók fjármála- Blóðug átök áttu sér stað milli Zulu-manna og áhangenda Afríska þjóðarráðsins (ANC) í gær í Soweto, annan daginn í röð. Lögregla lét táragassprengjum rigna yfír miðborgina til að stöðva bardagana sem blossuðu aftur upp í gær. En a.m.k. 24 hafa látið lífið síðan á fímmtudag í bardögum þessara aðila vítt og breitt um Soweto. Barist er með bæði spjótum og byssum. Nelson Mandela, varaforseti ANC, hitti forseta Suður-Afríku F. W. de Klerk á fimmtudag á neyðarfundi um ástandið og lágu átök niðri á meðan. Eftir fundinn blossuðu þó aftur upp átök á milli farandverkamanna af Zulu- ættbálknum og íbúa borgarinnar ráðherra sinn með til Bandaríkj- anna á dögunum, hann vill fá ein- Suður-Afríka sem flestir eru af ættbálki Xhosa en Mandela tilheyrir honum. Lögregla reyndi að fá stríðandi fylkingar til að hittast til að ræða frið á neyðarfundi en ekki er hægt að koma slíkum fundi á fyrir laug- ardag. Mangosuthu Buthelezi höfðingi hinnar hægrisinnuðu hreyfingar Inkatha og Mandela hafa sett skilyrði hvors annars fyrir því að hittast fyrir sig. Afr- íska þjóðarráðið hefur einnig á- sakað lögregluna fyrir að draga taum Inkatha, Zulu-manna, í átökunum en lögreglan hefur staðfastlega neitað því. Mandela hvatti menn til að hætta átökunum því þau stofn- uðu markmiði ANC um að blökkumenn hafi jafnan atkvæð- hverja umbun fyrir að eiga ekki í viðskiptum við írak.Reuter/gpm isrétt á við hvíta í hættu. En But- helezi höfðingi Zulu-manna sagði að ANC væri að halda þeim fyrir utan viðræður um framtíð landsins. Og ásakaði þjóðarráðið þá Inkatha um að spilla fyrir ANC á svæðum Zulu ættbálks- ins. Fólk í Soweto hélt sig mest innan dyra í gær og skólahald lagðist áð mestu niður annan dag- inn í röð. Átökin í Soweto hafa staðið með hléum í fjögur ár og hafa meira en fjögur þúsund manns látið lífið. Átakasvæðið stækkaði í vikunni þegar bardag- ar brutust út í suðurhluta Jóhann- esarborgar, rétt norður af Sow- eto, en 160 manns Iétu lífið í þeim átökum. Reuter/gpm Ættbálkastríð Pýskaland Sameiningin í hættu Leiðtogar Jafnaðarmanna- flokksins í Austur-Þýskalandi hótuðu að koma í veg fyrir sam- einigu þýsku ríkjanna í gær til að hefna fyrir brottrekstur tveggja ráðherra flokksins úr ríkistjórn sem stýrt er af Kristilegum Demó- krötum. Ráðherrar efnahags- og landbúnaðarmála voru reknir á miðvikudag. Forsætisráðherr- ann, Lothar de Maiziere sakaði þá um óhæfni f starfi. Þetta varð til þess að tveir ráð- herrar sögðu af sér. Kristilegir Demókratar hyggjast samt halda áfram að stýra landinu sem á í miklum efnahagsvandræðum auk gífurlegrar aukningar atvinnu- leysis, sem er afleiðing upptöku markaðashagkerf is. Leiðtogi Jafnaðarmanna, Wolfgang Thierse, sagði að flokkurinn styddi ekki lengur ríkistjórnina og myndi greiða at- kvæði gegn sameiningar- samkomulaginu á austur-þýska þinginu bæði af pólitískum ástæð- um og vegna þess að flokkurinn gæti ekki sætt sig við lagalega hlið samkomulagsins. Verði sam- komulagið ekki mikið bætt get- um við ekki annað en hafnað því, sagði hann. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Laugardagur 18. ágúst 1990 Ekki munu Trabant og Golf sameinast, heldur er líklegra að Golfinn leysi Trabantinn af hólmi. Dagblöð í Þýskalandi ásökuðu pólitíska leiðtoga í Austur- Þýskalandi um að vera kauðalega leikmenn og fyrst de Maiziere hefði rekið tvo ráðherra fyrir óhæfni í starfi hefðu margir fleiri mátt fylgja með. Flokkarnir tveir eru sammála um að sameiningin verði að ganga hratt fyrir sig en tilraunir þeirra til að tímasetja samrunann hafa leitt þá í ógöngur. Kristilegir Demókratar vilja lýsa yfir sam- runa ríkjanna um miðjan október og halda síðan alþýskar kosning- ar annan desember. Jafnaðar- mennirnir vilja hraða þessu enn frekar, en de Maiziere tekur það ekki í mál. Helmut Kohl, kanslari Vestur- Þýskalands, segist ekki geta skipt sér af þessu máli en hann hvetur aðilana fyrir austan til að stefna nú ekki samkomulaginu í voða. Á meðan semja utanríkisráð- herrar Sovétríkjanna og Vestur- Þýskalands um framgang mála í Moskvu og bjuggust þeir við því í gær að alþjóðlegt samkomulag um sameininguna yrði tilbúið 12. september. Reuter/gpm Ellilífeyris- þjófar Ekki það að þau steli ellilíf- eyrinum sínum heldur stela þau öllu steini léttara í búðunum. Ellilífeyrisþegar í Kaupmanna- höfn hafa nefnilega fundið sér áhugamál: Búðarþjófnað. Lögreglan í Kaupmannahöfn hóf mikla herferð gegn hnupli í búðum fyrir 10 vikum. Stærsti hópurinn sem gripinn var glóð- volgur við að stela voru ellilífeyr- isþegar. Löggan stóð 106 manns eldri en 65 ára að verki miðað við að 81 á aldrinum 15-25 ára var gripinn við hið ólöglega athæfi. Kólesteról og árásargirni Minnki fólk kólesterólið hjá sér á það frekar á hættu að deyja af völdum ofbeldisverka, segir í bresku læknariti sem kom út á dögunum. Rannsókn sem banda- rískir fræðimenn unnu leiðir í ljós að fólk sem lifði á sérfæði þar sem lítið bar á fituefnum var mun á- rásargjamara en annað fólk. Af hverjum 100 þús. miðaldra hvítum karlmönnum í Bandaríkj- unum árið 1980 létust 62 í bflslys- um, vegna morða og af sjálfs sín völdum. Af þeim sem fórðuðust kólesterólið í fæðunni létust hins- vegar nærri helmingi fleiri eða 107 af hverjum 100 þús. Vann í 19 leikjum Hann byrjaði að tefla fyrir tveimur árum og er bara sex ára en hann varð á dögunum yngsti skákmaður í heimi sem sigrað hefur alþjóðlegan meistara þegar hann mátaði Orest Popovych. Sá er bandarískur skákmaður sem er þekktur fyrir að hafa tapað fyrir Bobby Fischer árið 1956. Bretinn George Hassapis þurfti aðeins 10 mínútur og 19 leiki til að máta Popovych á ris- askákborði úti á götu í London í fyrradag. Grafa göng Bátafólkið frá Víetnam, sem haldið er í búðum í Hong Kong, hefur grafið göng frá búðunum og inn í borgina til að geta keypt mat og brennivín. Fólkið gróf 400 metra löng neðanjarðargöng að klóakgöngum sem leiddi inn í borgina. Steypt var upp í inn- ganginn á klóakgöngunum en bátafólkið gróf þá bara undir þau göng og aftur inn. Hæfileikar fólksins til að grafa göng komu yfirvöldum í Hong Kong í opna skjöldu en þeir telja að fólkið hafi þjálfast í gerð neð- anjarðarganga í Víetnamstríð- inu. Fólkið keypti bjór, kínversk vín og mat á mun hagstæðara verði en innan búðanna. Ekki eins óhagstæður Vöruskiptajöfnuður Banda- ríkjanna við útlönd í júní var ekki eins óhagstæður og menn bjugg- ust við. í maí var vöruskipta- jöfnuðurinn óhagstæður un eina 7,77 milljarði dala en lækkaði í 5,07 milljarði dala í júní. Jöfnuð- urinn hefur ekki verið eins lítið óhagstæður og nú síðan í desemb- er 1983. Þetta er lækkun uppá 34,7 prósent og teljast tíðindi. Ein ástæðan fyrir bættum jöfnuði er að olíuverð var lágt í mánuðinum og eyddu menn 15 prósent færri dollurum til olíukaupa en í mán- uðinum áður. Nú aftur á móti er útlit fyrir að vöruskiptajöfnuður- inn versni vegna Persaflóa- deilunnar nema Bandaríkjamenn minnki til muna áhuga sinn á inn- fluttum varningi.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.