Þjóðviljinn - 18.08.1990, Page 12

Þjóðviljinn - 18.08.1990, Page 12
þlÓÐVIUINNl Laugardagur 18. ágúst 1990 153. tölublað 55. árgangur! Stoltar mæður meö börn sín, Gróa Hafsteinsdóttir og Bryndís Guðmundsdóttir. Gróa meö stelpu en Bryndís með strák. Myndir: Kristinn. Fœðingarheimili Reykjavíkur Þrjátíu ára afmæli fagnað Mikil hátíðahöld vegna 30 ára afmælis Fœðingarheimilisins. Guðjón Guðnason yfirlæknir: Gefandi og skemmtilegt starf Guðjón Guðnason yfirlæknir Fæðingarheimilis Reykjavíkur: Það sem við tókum upp fyrir 30 árum eru sjúkrahús á Norðurlöndum að taka upp núna. —SPURNINGIN- Ert þú tíl í að greiða hærri skatta tíi að stuðla að um- hverfisvemd? Sigurður Bjarnason bílstjóri Mér finnst satt að segja að ég greiði nóg í skatta nú þegar. Oddný Helgadóttir ellilífeyrisþegi Eru ekki allir tilbúnir til þess? Það er nú svo með okkur gamal- mennin að við greiðum sem bet- ur fer litla skatta. Þorsteinn Karlsson brunavörður Já, ég væri tilbúinn að greiða eitthvað smávegis. Ég er sam- mála þeirri hugmynd að leggja á sérstakan skatt til umhverfis- mála. Rúnar Sighvatsson starfsmaður Pósts og síma Nei, mér finnst skattheimta hér á landi vera nóg fyrir. Elín María Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur. Ég sé ekki ástæðu til að setja á neinn sérstakan umhverfisskatt. Það gæti verið spurning hvort ekki ætti að eyrnamerkja ein- hvern hluta af þeim skatti sem við borgum í dag, umhverfismálum. Idag er haldið upp á 30 ára af- mæli Fæoingarheimilis Reykjavíkur við Þorfinnsgötu. Margt verður til gamans gert og m.a. verður boðið uppá afmælis- kaffi kl. 14.30. Guðjón Guðnason yfirlæknir gerir grein fyrir starfi Fæðingarheimilisins frá upphafi, en hann hefur einmitt starfað þar frá því það var opnað. Yfir 20 þúsund börn hafa fæðst á Fæð- ingarheimili Reykjavíkur frá byrjun. Starfið mjög gefandi „Ég hefði nú ekki haldist í þessu í 30 ár ef þetta væri ekki gefandi og skemmtilegt starf. Þrátt fyrir mótlæti og þrengingar gegnum árin hefur þetta verið yndislegt,“ segir Guðjón. „Við á Fæðingarheimilinu höfum alveg frá byrjun verið langt á undan öðrum með nýjungar. Það er náttúrlega fyrst og fremst að kon- um er boðið upp á að fæða í heim- ilislegu og notalegu umhverfi og einnig vorum við fyrst með að bjóða feðrunum að fylgjast með fæðingunni. Við vorum auðvitað mikið gagnrýnd fyrir það og feng- um skömm í hattinn. Núna þykir þetta sjálfsagður hlutur. Ymis- legt sem við byrjuðum með fyrir 30 árum er verið að taka upp núna á Norðurlöndum,“ segir Guðjón. Heimilislegt og notalegt Á Fæðingarheimilinu hittum við fyrir tvær nýbakaðar mæður, þær Gróu Hafsteinsdóttur og Bryndísi Guðmundsdóttur. Gróa er 23 ára gömul og var að eiga sitt fyrsta barn. Hún segir að það sem hafi ráðið því að hún fæddi á Fæð- ingarheimilinu hafi verið hvatn- ing frá öðrum. „Mér var sagt að hér væri notalegt og heimilislegt og starfsfólkið frábært. Það hefur líka verið raunin. Þetta er mjög persónulegt allt og það er öruggt að ef ég eignast annað barn þá kem ég hingað," segir Gróa. Bryndís er aðeins reyndari í móðurhlutverkinu, því hún var að eiga sitt fjórða barn. Bryndís sem er 31 árs gömul hefur átt öll sín börn á Fæðingarheimilinu. „Ég hef átt öll mín hér og er hreykin af og fæðingamar hafa allar gengið mjög vel. Móðir mín mælti með Fæðingarheimilinu, en hún átti tvö yngstu systkini mín hér. Það er mjög gott að vera hérna, þetta er heimilislegt og al- veg einvala starfsfólk. Ég held að konur geti ekki fengið betri kosf á hvíld eftir fæðingu en hér,“ segir Bryndís. Sem fyrr segir verður afmælis- hóf í dag og eru allir Reykvíking- ar velkomnir og sérstaklega börn sem fædd em á heimilinu, for- eldrar þeirra og fyrrverandi starfsmenn. Guðjón Guðnason segir frá starfi heimilisins, og Ása Hlfn Svavarsdóttir leikkona mun flytja ljóð eftir Benedikt Sveins- son lækni. Davíð Oddsson borg- arstjóri verður meðal gesta og börn frá Furuborg syngja sumar- lög. Sólveig Þórðardóttir yfirljós- móðir mun stýra kaffiboðinu og Árni Sigfússon borgarfulltrúi og formaður stjórnar sjúkrastofn- ana Reykjavíkur býður gesti velkomna. Þess má geta að Árni er eiginmaður Bryndísar Guð- mundsdóttir sem nú liggur á Fæð- ingarheimilinu. í afmælistjaldi sem sett verður upp verða súlurit og myndir sýndar til skýringa á starfinu. ns.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.