Þjóðviljinn - 03.10.1990, Síða 9
FRETTIR
Mógilsármálið
Úttektin á Mógilsá
umdeild enn
Ríkisendurskoðun: Ráðuneytin segja okkur ekki fyrir verkum. Landbún-
aðarráðuneyti:Hvorki annarleg sjónarmið né persónubundið mál. Jón
Gunnar: Einkennilegur laugardagstitringur
Landbúnaðarráðuneyti
mótmælti því í fréttatilkynn-
ingu á iaugardaginn, að annar-
leg sjónarmið eða persónuleg
aðfor að Jóni Gunnari Ottós-
syni, fyrrum forstöðumanni,
hafi verið forsendur þeirrar út-
tektar sem Ríkisendurskoðun
gerði að beiðni ráðuneytisins á
fjárhag Rannsóknastöðvar
Skógræktar ríkisins á Mógilsá.
Þetta hafi verið venjubundin
úttekt við slíkar aðstæður.
Rikisendurskoðun lýsir því
yfir í íféttatilkynningu á laugar-
dag, að við úttektina hafi hún ein-
ungis verið að sinna lögboðnu
hlutverki sínu og hvorki tilefni né
gerð skýrslunnar séu sérstök eða
óvenjuleg. Rikisendurskoðun sé
óskylt að sinna fyrirmælum eða
tilmælum frá ráðherrum um rann-
sóknir og athuganir.Hins vegar
hafi úttektin á Mógilsá greinilega
verið innan hins lögboðna hlut-
verks.
Landbúnaðarráðuneytið segir
að tilefhið fyrir beiðninni hafi
verið þrískipt, í fyrsta lagi vegna
þess að forstöðumannsskiptin
fóru fram á miðju ári, í öðru lagi
hafi fjárreiður Mógilssárstöðvar-
innar eingöngu verið í höndum
forstöðumanns og í þriðja lagi
hafi henn tekið með sér sjóð og
bókhaldsgögn stofnunarinnar
þegar hann lét af starfi.
Rikisendurskoðun bendir á að
Jóni Gunnari hafi verið gefinn
kostur á að gera bæði við endur-
skoðunarvinnuna og í skýrslunni
sjálfri grein fyrir hveiju málsat-
viki „sem hann telur vera til rétt-
lætingar á afgreiðslu einstakra
mála“.
Jón Gunnar Ottósson sagðist í
gær telja það vísbendingu um
óvenjulegan titring þessara stofh-
ana vegna málsins og óróatilfinn-
ingu að standa í fféttatilkynninga-
smíð um það samtimis á laugar-
degi. Þversögn fælist í því að taka
Rannsóknastöðina út sem sjálf-
stæða stofnun en dæma hana og
störf sín þar sem væri hún deild
innan Skógræktarinnar. Hann
teldi margt til einsdæma í allri
málsmeðferðinni, svona úttekt
eigi sér engin fordæmi nema þeg-
ar veruleg fjármunaumsýsla sé á
könnu manna, eins og þegar
sýslumenn og fógetar láti af störf-
um. Ekki sé farið í fundargerðir
og aðrar heimildir en látið nægja
að vísa í álit ráðuneytisstjóra
landbúnaðarráðuneytis. Ein-
kennilegt sé að vera ásakaður um
að hafa notað 170 þús. kr. af
starfsfé stofhunarinnar í eigin
þágu, þegar um sé m.a. að ræða
stöðumælasektir starfsmanna.
Ekki sé hins vegar minnst á að
Rannsóknastöðin hafi verið innan
allra íjárlagaheimilda. Halldór V.
Sigurðsson ríkisendurskoðandi
gerst svo innheimtumaður fyrir
ríkið með bréfi til sín varðandi
170 þús. kr. endurgreiðsluna.
Óskum sínum um ákveðna þætti
sem ætti að hafa til hliðsjónar í út-
tektinni hafi ekki verið sinnt, t.d.
samanburði á starfskjörum yfir-
manna innan Skógræktarinnar.
Sagðist Jón Gunnar ekki sjá
betur en kerfið titraði vegna þessa
litla máls, og bæri það með sér
hve aðfarimar væru óvenjulegar.
OHT
Borgaraflokkurinn
Fram í öllum kjördæmum
Júlíus Sólnes: Stuðn-
ingsmenn Borgara-
flokksins í felum.
Flokkurinn á meiri
möguleika í vorkosn-
ingum en haustkosn-
ingum
Aðalstjóm Borgaraflokksins
samþykkti á laugardag að flokk-
urinn bjóði ffam í öllum kjör-
dæmum landsins við næstu Al-
þingiskosningar. Júlíus Sólnes,
formaður flokksins, segir flokk-
inn eiga hljómgmnn þrátt fyrir
fylgisleysi í skoðanakönnunum,
en stuðningsmenn flokksins séu
nánast ofsóttir og hafi því hægt
um sig.
í samþykkt Borgaraflokksins
segir að ástandið í þjóðmálum sé
með þeim hætti, að meiri og vax-
andi þörf sé fýrir stjómmálaafl
sem Borgaraflokkinn. Flokkurinn
vilji laða frarn skynsamlegar
breytingar á íslensku þjóðfélagi,
þar sem dregið verði úr ofurvaldi
miðstýringar, landshlutum færð
meiri völd og þeir beri jafnffamt
fulla fjárhagslega ábyrgð á sam-
neysluverkefnum innan þess
ramma sem rikisvald og Alþingi
setji.
Júlíus Sólnes sagði Þjóðvilj-
anum, að hann skammaðist sín
ekki fyrir að endurtaka það sem
hann hefði sagt oft áður, að
stuðningsfólk flokksins flíkaði
ekki stuðningi sínum, vegna þess
að það hefði orðið fyrir alls konar
óþægindum og hreinum ofsókn-
um þegar það opinberaði stuðn-
ing sinn. Stuðningurinn væri
meiri en kæmi ffam í könnunum.
„Hins vegar gerum við okkur
grein fyrir því, að það verður á
brattann að sækja og við reiknum
ekki með að þetta verði auðvelt,“
sagði Július.
Formaðurinn sagðist ekki ótt-
ast að erfitt yrði að manna fram-
boðslista. Þá kallaði hann hóp
óákveðinna í könnunum „næst
stærsta flokk þjóðarinnar" og
sagði Borgaraflokkinn ma. ætla
sér að ná fylgi í þeim hópi. „Ef
það verður kosið seint í haust,
sem sumir eru að tala um, þá er
alveg ljóst að Sjálfstæðisflokkur-
inn græðir mest á því. En ef kosið
verður í vor, tel ég að hægt verði
fyrir stjómarflokkana að ná betri
árangri," sagði Júlíus. -hmp
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Steingrímur Sigfússon,
Ragnar Arnalds og
Gunnlaugur Julíusson
mæta á almennum opnum fundi á Húnavöllum, sunnudaginn 7.
október n.k. Fundurinn hefst kl. 15.00.
Hvað líður gerð búvörusamnings? Verður landinu skipt í
framleiðslusvæði - eða miðað við landkosti hverrar jarðar? Á að
leyfa sölu fullvirðisréttar? Hver verða áhrif nýs álvers á Reykjan-
esi á byggðaþróun? Er hætta á að opnað verði fyrir innflutning
landbúnaðarvara? Eru blikur á lofti í efnahagsmálum? Eða bjart-
ari tíð framundan?
Alþýðubandalagið
Már
Alþýðubandalagið
í Kópavogi
Félagsfundur
verður haldinn í
Þingholi, Hamra-
borg 11, mánudag-
inn 8. október og
hefst kl. 20.30.
Dagskrá: _. —
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Kosning uppstillingamefndar fyrir aðalfund félagsins.
3. Samningur um nýtt álver.
Frummælendur verða þau Sigurbjörg Gísladóttir, efnaverk-
fræðingur og Már Guðmundsson, hagfræðingur.
4. Önnur mál.
Stjórn ABK
Steingrímur Sigfússon,
Ragnar Arnalds og
Gunnlaugur Júlíusson
mæta á almennum opnum fundi í Ásbyrgi, Laugarbakka sunnu-
daginn 7. október n.k.
Fundurinn hefst kl. 20.30.
Hvað líður gerð búvörusamnings? Verður landinu skipt í fram-
leiðslusvæði - eða miðað við landkosti hverrar jarðar? Á að leyfa
sölu fullvirðisréttar? Hver verða áhrif nýs álvers á Reykjanesi á
byggðaþróun? Er hætta á að opnað verði fyrir innflutning land-
búnaðarvara? Eru blikur á lofti í efnahagsmálum? Eða bjartari tíð
framundan?
Alþýðubandalagið
Alþýðubandalagið á Suðurlandi
Aðalfundur kjördæmlsráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Suðurlandi
verður haldinn á Hvolsvelli 13. og 14. október.
Dagskrá:
Aðalfundarstörf og undirbúningur kosninga.
Stjórn kjördæmlsráðs
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Félagsfundur um álmálið
verður haldinn að
Hverfisgötu 105
miðvikudaginn
10. október kl. 20.30.
Samningur um
nýtt álver Hjörlelfur
Miðvikudaginn 10. október n.k. kl. 20.30 verður Hjörleifur gutt-
ormsson alþingismaður frummælandi á félagsfundi A.B.R. um
álmálið.
Félagar! Fjölmennum á fundlnn og tökum þátt f umræðum.
Stjórn ABR
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Haustferð í
Landmanna
laugar
27. októ-
ber1990
Laugardaginn 27. október fer ABK haustferð í Landmannalaugar.
Farið verður frá Þinghóli klukkan 9 að morgni og ekið austur
Hellisheiði. Farið verður um ölfus og Flóa, austur yfir Þjórsá, upp
Landveg að Tröllkonuhlaupi við Búrfell. Með viðkomu í Foss-
brekkum verður farið um Sölvahraun á Landmannaleið. Skammt
frá Landmannahelli verður ekiö upp á Mógilshöfða og yfir í
Hrafntinnusker og skoðaður íshellirinn þar sem jarðhitinn bræðir
fshelluna án afláts. Allt um kring eru spúandi hverir á þessu mikla
háhitasvæði. Þaðan verður aftur haldið á Dómadalsleið og hjá
Frostastaðavatni í Landmannalaugar þar sem gist verður í skála
Ferðafélags íslands eftir kvöldvöku og söng.
Á sunnudeginum verður árdegis gengið á Bláhnjúk en sumir taka
sér styttri göngu eða baða sig í lauginni Ijúfu. Laust eftir hádegið
verður haldið af stað heimleiðis. Þá verður ekið hjá Hófsvaði á
Tungnaá, niður með Vestur-Bjöllum, hjá Sigölduvirkjun og
Hrauneyjarfossvirkjun, yfir Þjórsá hjá Sandafelli, niður Hrossa-
tungur að Gjánni og Stöng í Þjórsárdal. Þaðan verður svo ekið að
Hjálparfossi og heim um Gnúpverjahrepp og Skeið. Heimkoma er
áætluð klukkan 20 að kvöldi sunnudagsins.
Gistigjald í skála er kr. 550 og f argjald er kr. 2.500. Hálft fargjald er
fyrir eftirlaunaþega og ófermda og ókeypis fyrir börn átta ára og
yngri.
Skráið ykkur sem allra fyrst hjá fararstjóranum Gísla Ólafi Pét-
urssyni í síma 42462.
ATHUGIÐ að þátttaka er ÖLLUM velkominl! Ferðanefnd ABK
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Opnunartími skrifstofunnar
Skrifstofa ABR, Hverfisgötu 105, verðuropin þriðjudaga, miðviku-
daga og fimmtudaga á milli kl. 9 og 11.
ABR
----------------------------------^---------------
Borgarmálaráð Alþýðubandalagsins
í Reykjavík
Fundur í borgarmálaráði ABR miðvikudaginn 3. okt. kl. 17.15 að
flokksmiðstöoinni Hverfisgötu 105.
Alþýðubandalagið Keflavík og Njarðvík
Aðalfundur
Aðalf.undur Alþýðubandalagsfélags Keflavíkur og Njarðvíkur
verðurhaldinn laugardaginn 6.október nk. í Iðnsveinahúsinu
Keflavík og hefst kl. 15.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Stjórnarkjör.
3. Kosning fulltrúa á aðalfund kjördæmisráðs AB í Reykjanes-
kjördæmi.
4. Önnur mál.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin
Margrét Ragnar Arnalds
Alþýðubandalagíð Vestmannaeyjum
-'élagsfundur
élagsfundur Alþýðubandalagsins í Vestmannaeyjum verður
haldinn fimmtudaginn 4. október kl. 20.30.
Fundarefni:
Staðan í stjórnmálunum.
Margrét Frímannsdóttir og Ragnar Arnalds mæta á fundinn.
Stjórnin
Alþýðubandalag Selfoss og nágrennis
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalags Selfoss og nágrennis verður hald-
inn miðvikudaginn 3. október að Kirkjuvegi 7 kl. 20.30.
Dagskrá:
. 1. Inntaka nýrra félaga.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Önnur mál.
Margrét Frímannsdóttir mætir á fundinn.
__ Stjórnin