Þjóðviljinn - 04.10.1990, Blaðsíða 6
ERLENDAR FRETTIR
Yfirhershöfðingi frá Jamaíku
Komi til stríðs við írak vill Colin Powell að ekkert sé sparað til að brjóta óvininn hið snarasta á
bak aftur
Einn þeirra manna, sem at-
hygli hefur beinst að í sam-
bandi við Persaflóadeilu, er
Colin Poweli, yfirhershöfðingi
Bandarikjanna. Hann er einn
þeirra manna, sem Bush forseti
ráðfærir sig mest við um ástand
og horfur í deilunni og á drjúg-
an þátt í ákvarðanatöku
Bandaríkjastjórnar á þeim
vettvangi.
Að maður sem Powell skuli
hafa komist svo hátt er ljóst dæmi
um það, hversu mjög Bandaríkin
hafa breyst af völdum mannrétt-
indahreyfíngar sjöunda áratugar,
sem vann sinn mesta sigur með
löggjöf er stjóm Johnsons forseta
kom í gildi. Hingað til hafa allir
yfirhershöfðingjar Bandaríkjanna
verið hvítir og flestir af göfugum
ættum með uppmna á Bretlands-
eyjum og í Norður-Evrópu, menn
sem hafa gengið i gegnum virðu-
legustu háskóla.
Vannsig uppí
Víetnamstríðinu
Colin Powell - reynslan frá Vletnam
gerði hann ekki hræddan við stríð.
Hann telur að Bandaríkjamenn
hafi farið halloka í Víetnam í
fyrsta lagi vegna þess, að þeir hafi
hikað of lengi við að senda þang-
að öflugan her eftir að þeir vom
komnir í stríðið þar, og í öðm lagi
vegna þess að stjómmálamenn í
Washington hafi sett hemum
skorður. Af þeim má nefna að
bandaríska flughemum var ekki
leyft að jafna helstu borgir Norð-
ur-Víetnams, Hanoi og hafnar-
borgina Haiphong, við jörðu og
að eyðileggja áveitukerfi það sem
er undirstaða ræktunar á Rauðár-
sléttu, langauðugasta landbúnað-
arhéraðinu í norðurhluta landsins.
Lík í plastsekkjum
Powell er því sagður leggja
áherslu á að ef til stríðs komi við
írak, verði allt kapp lagt á að
brjóta óvininn á bak aftur hið
snarasta. Til þess verði Bandarík-
in að beita hveijum þeim vopn-
um, er þau hafa yfir að ráða
(a.m.k. hefðbundnum), ef líklegt
teljist að þau komi að vemlegum
notum, og vægja engu sem ætla
megi að eitthvert gildi hafi til við-
halds baráttuþreki andstæðings-
ins. Powell og fleiri háttsettir
bandarískir hershöfðingjar kváðu
vera þess mjög ófúsir að leggja til
atlögu við Iraksher, nema því að-
eins að þeir fái þannig frjálsar
hendur.
Víetnamstríðið varð Banda-
ríkjamönnum mikið sálrænt áfall,
bæði fjölmörgum einstaklingum
og þjóðinni sem heild. Fyrir Po-
well, Jamaíkustrákinn frá Harl-
em, varð ófriður þessi hinsvegar
sá vettvangur, sem opnaði honum
leið upp í efsta lag þjóðfélagsins.
A vígvöllunum í Víetnam rættist
hans „ameríski draumur". Hann
hryllir því ekki við stríði á sama
hátt og marga aðra landa hans enn
eftir Víetnamófriðinn, þar á með-
al marga herforingja. „Colin Po-
well er fyrsti yfirhershöfðinginn
frá því að Vietnamstríði lauk, sem
ekki er sýknt og heilagt að vara
okkur við þeim áhrifum sem það
hafi á almenning þegar lík banda-
rískra hermanna eru send heim í
plastsekkjum,“ sagði fyrir
skömmu öldungadeildarþing-
maður einn í flokki repúblíkana.
dþ.
Leipzigbúar
daufir
í dálkinn
Hátíðahöld af tilefhi samein-
ingar Þýskalands héldu áffam þar í
landi i gær og fóru yfirleitt vel og
ffiðsamlega ffam. Hamingjuósk-
um rigndi yfir Þjóðveija hvaðan-
æva úr heimi, en í sumum ummæl-
anna af því tilefni var ekki alveg
laust við kvíða.
Athygli vakti að tiltölulega lít-
ið var um að vera á þriðjudags-
kvöld í Leipzig, og voru íbúar
þeirrar borgar þó öllum öðrum
ffemur í forustu í þeirri friðsam-
legu byltingu, sem kollvarpaði al-
ræði austurþýska kommúnista-
flokksins s.l. ár. Talsmenn kirkj-
unnar þar, sem við þau umskipti
kom mikið við sögu, létu í ljós að
vissulega hefðu ibúar austanverðs
Þýskalands fengið frelsi til að ferð-
ast, tjá sig í fjölmiðlum og til að
gera verkfoll. En andófsfólkið í
fyrra hefði einnig barist fyrir inn-
leiðslu samfélags í anda samstöðu,
þar sem peningar hefðu ekki úr-
slitavaldið. A því samfélagi bólaði
ekki enn.
Powell, sem nú er 53 ára og
gegnt hefúr sínu núverandi emb-
ætti i tæpt ár, er blökkumaður, al-
inn upp í þeim nokkuð þekkta
borgarhluta Harlem í New York.
Foreldrar hans voru innflytjendur
frá Jamaíku. Hann var að vísu i
háskóla, en ekki af fínna taginu,
og þar að auki enginn afbragðs-
námsmaður, var lengi að ná próf-
um og lauk þeim ekki með nein-
um ágætum. Hann gekk heldur
aldrei í herforingjaskólann í West
Point, stórvirðulega stofnun sem
hingað til hefur verið talinn sjálf-
sagður viðkomustaður fyrir þá
Bandarikjamenn, sem ætla sér
verulegan frama í hemum.
Hann var sendur í Víetnam-
stríðið og þar reyndist hann vera í
essinu sínu. Hann hækkaði þar
fljótt í tign og kom sér svo i álit að
eftir það lá leið hans til hæstu
metorða í hemum.
í ráðum með Bush
Talið er að Bush hafi farið
mjög að ráðum Powells um að-
gerðir á Persaflóasvæðinu fyrstu
vikumar eftir innrásina í Kúvæt.
Fyrst eftir innrásina var sú skoð-
un ríkjandi í Bandaríkjastjóm og
yfirstjóm hersins að Irakar
myndu sennilega þá og þegar ráð-
ast inn í Saúdi-Arabíu til að her-
taka olíusvæði hennar, sem em
austur við Persaflóa og þvi í
sæmilegu færi fyrir íraska herinn,
sérstaklega eflir að hann hafði
tekið Kúvæt. Powell lagði til þeg-
ar í byrjun að svo fremi Bandarík-
in beittu sér gegn írak í Persafl-
óalöndum, þá skyldu þau bregð-
ast við þegar í stað og senda á
svæðið svo mikinn og öflugan her
sem þau hefðu möguleika á.
Reynslan úr Vietnamstríðinu
er sögð hafa mótað mjög viðhorf
Powells um hemaðaraðferðir.
Harðnandi ásakanir Mandela
Inkathamenn verkfæri leyniþjónustu
Telur de Klerk ekki hafa fulla stjórn á apartheidsinnum i her og lögreglu
Nelson Mandela, leiðtogi
Afríska þjóðarráðsins
(ANC), sakaði í gær leyniþjón-
ustustofnanir Suður- Afríku-
stjórnar um að hafa komið af
stað átökunum milli ANC og
súlúska flokksins Inkatha í
blökkumannaútborgum Jó-
hannesarborgar, sem staðið
hafa yfir frá því um miðjan ág-
úst og valdið dauða 750-800
manna. Eru þetta harðorðustu
ásakanir Mandela í garð örygg-
isliðs stjórnarinnar til þessa.
I illindunum í útborgunum
hafa einkum ást við stuðnings-
menn ANC og farandverkamenn
ffá byggðum Súlúa í Natal, sem
hlynntir em Inkathaflokknum
undir fomstu Mangosothus But-
helezi. Stjómin heldur því fram
að til átakanna hafi komið vegna
þess að báðir aðilar keppi að því
að ná völdum í útborgunum áður
en fram fari fyrstu kosningamar
með atkvæðisrétti fyrir blökku-
menn.
En i viðtali við japanska sjón-
varpsfréttamenn í gær hélt Man-
dela því fram að leyniþjónusta
ríkisins (National Intelligence
Service, NIS) og fyrrverandi liðs-
menn leyniþjónustu hersins (sem
hefur verið leyst upp) væm aðal-
aflið á bakvið stríðið í útborgun-
um og blökkumenn þeir, sem
teldust liðsmenn Inkatha, aðeins
verkfæri þeirra.
Margir íbúa útborganna segj-
ast hafa séð bregða fyrir í átökun-
um gmnsamlegum mönnum,
grímuklæddum, sem ráðist hafi á
hópa fólks af handahófi með
skothríð og sprengjukasti. Suður-
afríska öryggisþjónustan hefúr
lengi haft fyrir reglu að koma
svörtum flugumönnum inn í and-
stöðusamtök til að hleypa þar af
stað innbyrðis eijum.
NIS er í beinu sambandi við
F.W. de Klerk, Suður-Afríkufor-
seta. Ekki gaf Mandela í skyn að
forsetinn væri samsekur, en hann
og fleiri apartheidandstæðingar
hafa oft áður látið að því liggja að
de Klerk hefði ekki fiilla stjóm á
apartheidsinnum, sem munu vera
fjölmennir í her, lögreglu og
leyniþjónustu.
Tiltölulega lítið hefúr verið
um átök og hryðjuverk í útborg-
unum frá því að her og lögregla
tókust á hendur eftirlit í þeim í s.l.
viku og settu útgöngubann að
næturlagi.
Reuter/-dþ.
Persaflóadeila
Stríðshætta eykst
Líkur benda fil að stjórnir
Japans og Sovétríkjanna ótt-
ist að möguleikar á að koma í
veg fyrir stríð í Persafióalönd-
um fari óðum þverrandi og geri
nú ýtrustu tilraunir til að hindra
ófrið. Jevgeníj Prímakov, sér-
legur sendimaður Gorbatsjovs
Sovétríkjaforseta, ræddi í gær í
Amman við Hússein Jórdaníu-
konung og ætlaði áfram til Bag-
dað til viðræðna við íraska ráða-
menn, þar á meðal Saddam
Hussein.
Toshiki Kaifú, forsætisráð-
herra Japans, er á ferðalagi um
Austurlönd nær og var gert ráð
fyrir að hann ræddi við Taha Yass-
in Ramadan, fyrsta aðstoðarfor-
sætisráðherra íraks, í Amman í
dag.
James Baker, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í gær
að þeim ríkjum færi fjölgandi, sem
hlynnt væru hemaðaraðgerðum
gegn Irak, ef annað dygði ekki til
að koma her þess fiá Kúvæt og ef
Sameinuðu þjóðimar samþykktu
hemaðaraðgerðir. íraksstjóm
stendur sem fyrr við þann ásetning
sinn að sleppa ekki Kúvæt, en að-
alfúlltrúi hennar hjá S.þ. gaf þó í
skyn í gær að ummæli Bush
Bandaríkjaforseta í ræðu á alls-
heijarþingi S.þ. væru athugandi. í
ræðunni lét Bush að því liggja að
til greina kæmi að taka deilur Isra-
els og araba til umræðu í sambandi
við lausn Persaflóadeilu. Ymis ar-
abaríki skomðu í framhaldi af
þessu á Saddam Hussein að sleppa
Kúvæt, þar eð það gæti orðið Pal-
estínumönnum, sem Saddam hef-
ur margsagt sig bera fyrir bijósti,
til hjálpar.
Bílakaup ríkisins 1991
Innkaupastofnun ríkisins áætlar að kaupa um
140 bíla fyrir ríkisstofnanir árið 1991. Lýsingu á
stærðum og útbúnaði bílanna er að fá á skrif-
stofu vorri og þurfa þeir bifreiðainnflytjendur,
sem vilja bjóða bíla sína, að senda verðtilboð og
aðrar upplýsingar til skrifstofunnar fyrir 2. nóv-
ember n.k.
Rúandastjórn bið-
ur Belga hjálpar
Belgíska stjómin tilkynnti í
gær að stjóm Mið-Afríkuríkisins
Rúanda hefði beðið Belgíu um
hemaðarhjálp til að hrinda innrás
herflokks, sem réðist inn á landið
frá Úganda á sunnudag. Belgíska
utanríkisráðuneytið segir að inn-
rásarmenn séu nú um 70 km norð-
ur af höfuðborginni Kigali og eigi
þar í höggi við stjómarlið.
Innrásarmenn munu flestir
vera Tútsar, en sú þjóð réð mestu
í landinu þar til önnur þjóð þar og
stórum fjölmennari, Hútúar, tóku
völdin 1959. Flúðu þá margir
Tútsar til Úganda og Tansaníu og
hafa hafst þar við síðan. Rúanda
var undir yfirráðum Belgíu frá
lokum heimsstyrjaldarinnar fyrri
til 1962, er landið varð sjálfstætt
ríki.
Marlene: blóð
þykkara en vatn
Ein af þeim fjölmörgu, sem
sendu hamingjuóskir og létu í ljós
ánægju af tilefni sameiningar
Þýskalands var Marlene Dietrich,
ein dáðustu kvikmyndadísa
heims á árunum milli heimsstyij-
alda. Hún er þýsk og hóf frægðar-
feril sinn þarlendis en flutti til
Bandaríkjanna er nasistar tóku að
magnast og komst til mikils
frama í Hollywood. Marlene var
eindreginn andstæðingur nasista
og sagði upp hollustu við foður-
landið, er það var komið undir
stjóm þeirra. En í gær kvaðst
kvikmyndastjaman fyrrverandi,
sem nú er 88 ára og býr í París,
samgleðjast löndum sínum og
bætti því við að vissulega væri
blóð vatni þykkara.
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 4. október 1990