Þjóðviljinn - 24.10.1990, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 24.10.1990, Blaðsíða 9
VIÐHORF Ádrepur til Alþvðubandalagsráðherra: Jöfnuður eða sósíalismi? Á þessum síðustu og bestu tímum þegar verðbólga er ekki lengur til og álbræðsla mun leiða hagsæld yfir þjóðina með orku- sölu, sköttum og margfeldisáhrif- um, þá þykir mér sem ráðherrar Alþýðubandalagsins megi fara að vara sig og gleyma ekki hlutverki sínu í stólunum góðu. Mig langar að minna þá ágætu herra á að hlutverk þeirra í stjómarráðinu er að vinna að ffamgangi stefhumála flokksins í viðkomandi ráðuneytum. Hér á ég ekki við þá stefnu sem ffam kemur í stefnuskrá Flokksins, því Alþýðubandalagið býr við þá ein- kennilegu stöðu að hafa í gildi stefnuskrá sem allir afneita, a.m.k. eftir fall og ffelsun A- Evr- ópu. Ekki mátti þó breyta henni á síðasta landsfimdi vegna þess að núverandi varaformaður opnaði ekki þáverandi póstinn sinn (hann var þá e.t.v. ekki heldur búinn að átta sig á falli kommúnismans ffekar en ýmsir aðrir). Sú stefha sem ég á við varðar jöfnuð, lýðræði, ffelsi og félags- hyggju. Hér eru því um að ræða grundvallarlífsviðhorf alls félags- hyggju- ogjafhaðarfólks. Fræg er orðin gleymska land- búnaðarráðherra á stefnu flokks- ins í landbúnaðarmálum, enda gerðist hann framsóknarmaður um leið og hann hafði eitthvað yf- ir rollum að segja. Þau mál eru efhi í blaðagrein sem undirritaður ætlar ekki að skrifa. Hugstæðari eru málefni sem varða Háskóla Islands og menntamál í víðara samhengi. Skólagjöld Ólafs Ragnars Fjármálaráðherra, sem við Runólfur Agústsson skrifar erfiðar aðstæður hefur á margan hátt staðið sig ffábærlega vel, spilaði út óvæntu trompi á dögun- um: skólagjöldum við Háskól- ann! Við Ólafúr Ragnar, sem báðir teljum okkur jafnaðarmenn, að ég held, hljótum að vera sammála um að jafn réttur til náms er ein hugmyndum ráðherrans hafa ver- ið mjög óljósar og misvisandi. Hann þarf því að gera hreint fyrir sínum dyrum. Það getur ekki ver- ið að ráðherra jafnaðarmennsku vilji skólagjöld. Það sem Thatch- er gerði breskum menntamálum gerir Ólafur Ragnar ekki íslensk- um. Því neita ég að trúa. í september skilaði umboðs- maður alþingis frá sér áliti um kostnað foreldra af skólagöngu bama á skólaskyldualdri. Megin- niðurstaða hans var sú að íslensk lög tryggðu íslenskum bömum ókeypis skólagöngu. Því væri öll gjaldtaka af þeim óheimil. Sam- kvæmt þessu er skólum ekki „Mig langar að minna þá ágœtu herra á að hlutverkþeirra í stjórnarráðinu er að vinna að framgangi stefnumála flokksins í viðkomandi ráðuneytum. Hér á ég ekki við þá stefnu sem fram kemur í stefnuskrá Flokksins, því Alþýðu- bandalagið býr við þá einkennilegu stöðu að hafa í gildi stefnuskrá sem allir afneita " grundvallarforsendan fyrir því þjóðfélagi jafnaðar, réttlætis og þekkingar sem við viljum búa við. Það að böm efnaminni for- eldra skuli eiga jafna möguleika að þessu leyti og böm af ríkara foreldri er í dag sómi íslensks menntakerfis. Öll gjaldtaka af hálfu opin- berra aðila af nemendum í ís- lenskum skólum tel ég vera skólagjöld. Ekki skiptir máli hvað slíkt er kallað, eðli slíkra gjalda stríðir gegn hugsjónum okkar jafnaðarmanna um ókeypis menntun öllum til handa og slíkt viljum við ekkert með hafa. Fréttir fjölmiðla af gjaldtöku- Félagi Svavar... Jóhanna Sigurðardóttir vann sér inn mörg prik með því að leggja höfúðið (og stólinn) að veði fyrir fjármagni til félagslega húsnæðiskerfisins. Fróðlegt hefði verið að sjá annan félagshyggju- ráðherra úr öðmm félagshyggju- flokki leggja sinn stól að veði fyr- ir auknu fjármagni í L.Í.N. Lána- sjóðinn er nú verið að drepa með erlendum lántökum vegna ónógs fjárframlags ríkisins. Fljótlega verða aðalútgjöld sjóðsins ekki lán til námsmanna, heldur afborg- anir og vaxtagreiðslur til erlendra banka. Samræmist slíkt hlutverki sjóðsins og hvað verður þá um jafnrétti til náms? heimilt að taka svokallað efnis- gjald af nemendum (foreldrum), en slíkt gjald hefúr verið innheimt og mun í sumum tilvikum hafa numið nokkrum þúsund krónum. Fyrir bammarga foreldra getur því verið um töluverðar fjárhæðir að ræða, tug eða tugi þúsunda. Jafnffamt kom fram í nefndu áliti að öll þau námsgögn sem bömum væri skylt að nota, ætti hið opinbera að leggja þeim til endurgjaldslaust, þar með talið, að því er virðist, ritfong, stíla- bækur, pappír o.s.frv. ...ertþúsósíalisti? Samkvæmt íslenskum lögum greiða sveitarfélögin allan annan rekstrarkostnað grunnskóla en laun vegna kennslu og stjómunar eða kostnað vegna annarra þeirra rekstrarþátta sem að lögum falla á ríkið. Um slíkt er hér ekki að ræða. Því félli sá kostnaðarauki sem af því hlytist að fara eftir álit- inu að langmestu leyti á sveitarfé- lögin. Hlutur Reykjavíkur yrði þar langstærstur, m.a. vegna þess að þar hafa efnisgjöldin verið hvað hæst. En hvemig brást þá mennta- málaráðherra Alþýðubandalags- ins við umræddu áliti? Hrópaði hann húrra og sagði að auðvitað ættu öll íslensk böm að njóta ókeypis skólagöngu samkvæmt lögum? Svo var ekki. Ráðherrann gerði þvert á móti lítið úr um- boðsmanni og hundsaði álit hans. Sagði m.a. sína menn vera honum ósammála og ffáleitt ætti skóla- ganga bama að vera ókeypis. Svavar Gestsson, ég kalla mig jafhaðarmann, þú kallar þig sósí- alista. Ekki skiptir máli hvað menn kalla sig, heldur hvað menn em. Af hverju ert þú á móti því að farið sé að lögum í þessu efni? Hvaða hagsmuni hefúr þú af því að hundsa álit umboðsmanns? Hvaða hagsmuni hefúr þú af því að spara Davíð Oddssyni þá fjár- muni sem það myndi kosta að fara að lögum? Samræmist þessi afstaða þínum lífsskoðunum? Svavar Gestsson, ert þú sósíal- isti? Höfundur er laganemi, fyrrver- andi framkvæmdastjóri Stúd- entaráðs Háskóla íslands og á sæti í miðstjórn Alþýðubanda- lagsins. Hann er félagi í Birt- ingu. AUGLÝSINGAR AUGLÝSINGAR AUGLÝSINGAR AUGLÝSINGAR Verkakvennafélagið Framtiðin Hafnarfirði ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Aðalfundur miðstjórnar Alþýðubandalagsins Akureyri 26.-28. október Tillögur stjórnar og trúnaðarráðs félagsins um stjórn og aðrar trúnaðarstöður fyrir árið 1990 liggja frammi á skrifstofu félagsins að Strand- götu 11 frá og með þriðjudeginum 23. október til föstudagsins 26. október kl. 17.00. Öðrum til- lögum ber að skila fyrir kl. 16.00 föstudaginn 26. október og er þá framboðsfrestur útrunn- inn. Alþýðubandalagið Kópavogi Spilakvöld Spilakvöld verður f Þinghóli, Hamraborg 11, 3. hæð, mánu- daginn 29. október kl. 20.30. Allir velkomnir. Stjórnin Opnunartími skrifstofunnar SkrifstofaABR, Hverfisgötu 105, verðuropinþriðjudaga, miðviku- daga og fimmtudaga á milli kl. 9 og 11. Tillögum þurfa að fylgja meðmæli fimmtíu fullgildra félagsmanna. VERKAKVENNAFÉLAGIÐ FRAMTÍÐIN STRANDOOTU II ■ SlMI 50307 . PÓSTH. 166 - 222 HAFNARFIRÐI Námsgagnastofnun Námsgagnastofnun óskar eftir að ráða starfs- mann við sérpöntunarþjónustu. Um er að ræða starf hálfan daginn. Starfið felst í að annast og hafa umsjón með erlendum sér- pöntunum á vegum Skólavörubúðar. Einnig að veita viðskiptavinum faglega ráðgjöf og aðstoð við öflun sérhæfðra gagna. Leitað er að áhuga- sömum starfsmanni með kennaramenntun og reynslu af skólastarfi. Nánari upplýsingar veitir skrifstofustjóri í síma 28088. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist Námsgagnastofnun, Lauga- vegi 166, 105 Reykjavík, eða í pósthólf 5192, 125 Reykjavík, fyrir 1. nóvember næstkom- andi. Alþýðubandalagið í Kópavogi Haustferð í Landmanna- laugar 27. októ- ber1990 'Laugardaginn 27. október fér ABK haustferð I LandmannalaUgar. Farið verður frá Þinghóli klukkan 9 að morgni og ekið austur Hellisheiði. Farið verður um Ölfus og Flóa, austur yfir Þjórsá, upp Landveg að Tröllkonuhlaupi við Búrfell. Með viðkomu í Foss- brekkum verður farið um Sölvahraun á Landmannaleið. Skammt' frá Landmannahelli verður ekið upp á Mógilshöfða og yfir í Hrafntinnusker og skoðaður íshellirinn þar sem jarðhitinn bræðir íshelluna án afláts. Allt um kring eru spúandi hverir á þessu mikla háhitasvæði. Þaðan verður aftur haldið á Dómadalsleið og hjá Frostastaðavatni í Landmannalaugar þar sem gist verður í skála Ferðafélags íslands eftir kvöldvöku og söng. Á sunnudeginum verður árdegis gengið á Bláhnjúk en sumir taka sér styttri göngu eða baða sig í lauginni Ijúfu. Laust eftir hádegið verður haldið af stað heimleiðis. Þá verður ekið hjá Hófsvaði á Tungnaá, niður með Vestur-Bjöllum, hjá Sigölduvirkjun og Hrauneyjarfossvirkjun, yfir Þjórsá hjá Sandafelli, niður Hrossa- tungur að Gjánni og Stöng í Þjórsárdal. Þaðan verður svo ekið að Hjálparfossi og heim um Gnúpverjahrepp og Skeið. Heimkoma er áætluð klukkan 20 að kvöldi sunnudagsins. Gistigjald í skála er kr. 550 og fargjald er kr. 2.500. Hálft fargjald er fyrir eftirlaunaþega og ófermda og ókeypis fyrir börn átta ára og yngri. Skráið ykkur sem allra fyrst hjá fararstjóranum Gísla Ólafi Pét- urssyni í síma 42462. ATHUGIÐ að þátttaka er ÖLLUM velkomin!! Ferðanefnd ABK Aðalfundur miðstjórnar Alþýðubandalagsins verður haldinn á Akureyri dag- ana 26.-28. október í Alþýðuhúsinu. Dagskrá: Föstudagur 26. október Kl. 17.00 Setning. Ávarp - gestir boðnir velkomnir til bæjarins. Formaður miðstjórnar kynnir viðfangsefni fundarins. Almennar stjórnmálaumræður Framsögumaður: Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalags- ins. Umræður Undir þessum lið verða einnig ræddar fyrirliggjandi til- lögur á sviði landbúnaðarmála, stóriðju o.fl. Laugardagur 27. október Kl. 09.00 Framhald almennra stjórnmálaumræðna Kl. 12.00 Hádegismatur/heimsóknlr Kl. 14.00 Flokksstarflð Skýrsla flokksstarfsnefndar - afgreiðsla tillagna Kosnlngaundlrbúnlngur Vinna að kosningastefnuskrá Kl. 15.30 Alþýðubandalagið í ríklsstjórn Ráðherrar flokksins kynna málefni ráðuneyta sinna og sitja fyrir svörum Kl. 17.00 Starfshópar Kl. 20.00 Kvöldverður/vaka Sameiginlegt borðhald ásamt léttri dagskrá í umsjá heimamanna Sunnudagur 28. október Kl. 09.00 Starfshópar Kl. 10.30 Umræður/afgreiðsla móla Kl. 15.00 Fundarsllt Þátttökutilkynningar: Ferðaskrifstofan Nonni á Akureyri tekur við skráningum á fund- inn, bókar far með flugi og sér um að panta gistingu fyrir mið- stjórnarmenn. Tilkynnlð þátttöku strax: Vegna þess stutta tíma serm er til stefnu verða fulltrúar sem mæta á miðstjórnarfundinn að hafa samband við ferðaskrifstofuna nú þegar og eigi síðar en þriðjudaginn 23. október. Sfmarnir eru 96-27922 og 96-27923. Formaður miðstjórnar Miðvikudagur 24. október 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.