Þjóðviljinn - 31.10.1990, Page 7

Þjóðviljinn - 31.10.1990, Page 7
MENNING íslensk tónverkamiðstöð „Ung tónskáld í rigningu“ Nýútkominn er hljómdiskur með verkum ungra íslenskra tónskálda Hvað hafa þeir gert við klarí- nettuna hans Guðna? er heiti á hljómdiski sem nýlega var gefinn út af íslenskri tónverkamiðstöð í samvinnu við Ríkisútvarpið. Guðni Franzson klarínettu- leikari og Anna Guðný Guð- mundsdóttir píanóleikari flytja tónverk eftir níu íslensk tónskáld. Diskinum fylgir bæklingur á ís- lensku, ensku og þýsku þar sem Guðni Franzson segir frá verkun- um og höfundum þeirra. Þar segir hann frá hópi ungra manna sem í lok áttunda áratugarins fóru að hafa sívaxandi áhuga á tónsmíð- um. Hittust þeir oft og ræddu sameiginlegt áhugamál sitt, og varð úr að efnt var til tónleika vorið 1981 þar sem fluttar voru ýmsar af frumtónsmíðum þeirra sem eiga verk á hljómdiskinum Guðrún Marinósdóttir myndlistarmaður við verkið Eyðingu, en hún segir náttúruvernd vera sér ofarlega ( huga. Verkin á sýningunni eru unnin með blandaðri tækni og flest á þessu ári. Mynd: Kristinn. Ásmundarsalur Verk ofin úr viðartágum Guðrún Marinósdóttir sýnir verk unnin með blandaðri tækni -Gagnsæi tágaverkanna heilla mig. Verk úr mörgum lögum sem hægt er að sjá inn i höfða til mín, og það er án efa ein af ástæðunum fyrir því, að ég vef verk mín úr viðartágum frekar en fínlegri og hefðbundnari þræði, segir Guðnín Marinósdóttir, sem sýnir í Ás- mundarsal við Freyjugötu. -Mörg verkanna minna á búr eða net. Eg er þar að fjalla um spjöll mannsins á náttúrunni. Hann fangar dýr, fugla og sjávar- dýr í búr og net. Tágamar henta vel til að gera verk slík þrívið búr. Verkin em samt sem áður ofin, en einmitt vegna grófleika efnisins tekst mér að fá fram þrívíddina, sem er meira heillandi fýrir mig en flöt verk uppi á vegg. Eyðingu kalla ég nokkur þeirra, en það er vemdun umhverfisins sem er mér ofarlega i huga nú eins og flestu fólki. Auk viðartáganna nota ég ým- is önnur efni með, eins og t.d. plast. Eg hef aldrei fengist við hefðbundinn vefnað, en unnið mikið með þrykk. Guðrún stundaði nám við text- íldeild Myndlista- og handíða- skóla íslands á ámnum 1973-1977 og er nú stundakennari þar. Hún kennir einnig við myndlistadeild Fjölbrautarskólans í Breiðholti og Heimilisiðnaðarskólann. Sýningin i Ásmundarsal er fyrsta einkasýning Guðrúnar, en hún hefur tekið þátt í allmörgum samsýningum bæði á Islandi og á erlendri grund. Þeir sem hyggjast skoða verk Guðrúnar verða að gera það fyrir 11. nóvember næst- komandi, en salurinn er opinn daglega frá kl. 14-19. BE Miövikudagur 31. október 1990 ÞJÓÐViLJINN — SÍÐA 7 undir yfirskriftinni „Ung tónskáld í rigningu“. Tónskáldin sem eiga verk á hljómdiskinum era: Atli Ingólfs- son, Guðni Franzson, Haukur Tómasson, Hákon Leifsson, Hilmar Þórðarson, Hróðmar I. Sigurbjömsson, Kjartan Ólafs- son, Láms H. Grímsson og Þór- ólfur Eiríksson. Verkin tíu em: Músík fyrir klarínettu eftir Hróðmar I. Sigur- bjömsson, samið árið 1984. Hróðmar er einn þeirra mörgu ungu tónskálda sem fóm í fram- haldsnám til Hollands. Þar nam hann hjá Joep Straesser við Tón- listarháskólann í Utrecht til ársins 1988. Annað verkið á diskinum er eftir Hauk Tómasson og kallast Sjö smámyndir, sem vom samdar árið 1985. Haukur stundaði einn- ig nám í Hollandi, en auk þess í Köln og San Diego. Slúðurdálk- urinn nefhist verk Lámsar H. Grimssonar. Það var samið 1986 og á sér þá forsögu að Grímur lenti milli tannanna á málglöðum vinkonum í Hollandi. Verkið er svar hans við gróusögunum. Sónatínu kallar Guðni Franzson lítið og látlaust verk sem hann á á diskinum. Guðni lauk námi í klarínettuleik, tónfræðum og tón- smíðum frá Tónlistarskólanum i Reykjavík árið 1984. Eftir það nam hann klarínettuleik í Amster- dam og Rotterdam. Þá er næstur leikinn Sporðdrekadans eftir Kjartan Ólafsson. Hann lagði stund á raftónlist í Utrecht, en frá árinu 1986 hefur Kjartan stundað nám í Helsinki. Þá er komið að Flugi Hákonar Leifssonar, sem er upprennandi hljómsveitarstjóri. Verkið var smíðað 1985. Elsta verkið á hljómdiskinum er Verk fyrir klarínettu og píanó frá árinu 1983 eftir Hilmar Þórðarson. Nú stundar Hilmar nám i tónsmíðum Nýútkominn er hljómdiskur meö tónsmfðum n(u ungra tónskálda, sem kallast á (slensku Hvað hafa þeir gert við klarínettuna hans Guðna? Myndskreytingu gerði Er- lingur Páll Ingvarsson. hjá Jacob Dmckman og Martin Bresnick í háskólanum í Yale. Atli Ingólfsson á Tvær Bagatellur á diskinum. Hann sækir um þess- ar mundir einkatíma hjá G. Gris- ey í Parísarborg. Þórólfur Eiríks- son vinnur mest með raftónlist. Hann stundar nám í Hljóðfræði- stofhuninni í Hollandi og Tónlist- arháskólanum í Utrecht eins og Kjartan gerði áður en hann hélt til Finnlands. Tónsmíð hans nefnist Mar, og er fyrir klarínettu og seg- ulband. Guðni Franzson segir í niður- lagsorðum sínum í bæklingnum sem fylgir diskinum: „Það er von okkar sem að þessum hljómdiski stöndum að hann geti orðið ein- hveijum til ánægju eða uppörvun- ar og að þessar æskutónsmíðar óharðnaðra skálda hvetji hlust- andann til að bera eyrun eftir framtíðarhljómum. Vissulega hefur margur stíllinn breyst á þeim fáu árum sem liðin era frá smíði verkanna, en við vonum að þessi samantekt gefi einhveija innsýn í litríkan heim ungra tón- skálda á íslandi." BE Gallerí Borg Olíumálverk og gler Sjöfn Haraldsdóttir opnaði sýningu í galleríinu við Austurvöll síðastliðinn fimmtudag Sjöfn Haraldsdóttir Iistamað- ur opnaði nýlega sýningu á nýjum verkum unnum í olíu og gler í Gallerí Borg við Austurvöll. Sjöfn lauk myndmenntakenn- araprófi frá Myndlista- og hand- íðaskóla íslands árið 1973. Eftir það var hún eitt ár í fijálsri mynd- list við sama skóla, en sigldi síðan til Kaupmannahafhar þar sem hún nam í Det Kongelige Danske Kunstakademi. Á ámnum 1973 til 1987 kenndi Sjöfn við Kvennaskólann í Reykjavík, Víðistaðaskóla í Hafnarfirði, og síðast við áður- nefnda Konunglega listaakadem- íu. Auk samsýninga bæði hér heima og erlendis hefur listakon- an haldið nokkrar einkasýningar, m.a. áður í Galleri Borg, í Djúp- inu og Gallerí Veritas við Nyhavn í Kaupmannahöfh. Sýningin í Gallerí Borg Póst- hússtræti 9 er opin virka daga frá kl. 10 árdegis til kl. 18 síðdegis, en um helgar ffá kl. 14 til 18. Henni lýkur þriðjudaginn 6. nóv- ember. Sjöfn Haraldsdóttir við eitt ollumálverkanna á sýningu sinni í Gallerf Borg. Mynd: Jim Smart. Háskólinn leítað Algengt er að mikið sé fengist við ljóðasmíðar í menntaskólum. Það hefur hins vegar lítið borið á skáldum og listamönnum innan veggja Háskóla Islands. Nú gefst nemendum þar tækifæri til að sýna að þeir em ekki bara teknókratar og skólabókaormar, því að í gangi er ljóðasamkeppni í skólanum. Öllum skráðum nemendum HI leyfist þátttaka. Reglur em þær að menn sendi inn í mesta lagi þijú áð- ur óbirt ljóð fyrir 1. desember næst- komandi í lokuðu umslagi merktu dulnefni. Verðlaun verða veitt íyrir besta innsenda Ijóðið, og fær vinnings- hafi íjörtíu þúsund króna ferða- vinning hjá Ferðaskrifstofu stúd- enta. Auk þess verður gefin út bók með a.m.k. tuttugu ljóðum, og fá skólaskáldin 2.500 krónur í ritlaun fyrir hvert birt ljóð. Dómnefhdina, sem skera mun úr um hvaða ljóð ber sigur úr být- um, skipa rithöfundamir Matthías Johaxmessen, Sigurður Pálsson og Steinunn Sigurðardóttir. Sæmund- ur Norðfjörð heimspekinemi imdir- bjó samkeppnina.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.