Þjóðviljinn - 27.11.1990, Blaðsíða 12
þiómnuiNN
Þriðjudagur 27. nóvember 1990 224. tölublaö 55. árgangur
■ SPURNINGIN ■
Hvernig heldur þú að
fslendingar muni standa sig á
Ólympíumótinu í skák?
Ragnar Einarsson
lampasmiður:
Mjög vel. Ég spái (slendingum
1. sæti. Kannski er það
óskhyggja en ég vona að þeir
lendi í því sæti.
Edda Ottadóttir
húsmóðir:
Ábyggilega ágætlega, þó ég
hafi ekki hugmynd um í hvaða
sæti þeir koma til með að
lenda.
Sigurður Tómasson
kominn á eftirlaun:
Það er nú það. Ætli þeir verði
ekki í 12. sæti - til að vera
bjartsýnn.
Jón Gestur Sortveit
veitingastjóri:
Þeir standa sig mjög vel. Það
er erfitt að segja til um í hvaða
sæti þeir lenda, en ég held þeir
lendi í 10. sæti.
RAFRÚN H.F.
Smiðjuvegi 11 E
Alhliða
rafverktakaþjónusta
Leiðbeiningarit sent til þeirra sem eiga að nota sjóðvélar.
Ólöglegar sjóðvélar í viðskiptum eiga nú að
heyra sögunni til. Þessa dagana eru sjóðvélar-
skyldir aðilar að fá í hendur leiðbeiningarit þar
sem meðal annars eru ítrekuð þau skilyrði sem
löglegir peningakassar verða að uppfylla. Þeir
sem enn hafa skráningu sína í ólagi eru ein-
dregið hvatlir til að koma viðskiptaháttum
sínum strax í löglegt horf.
Horfur eru á að viðurlög við brotum á reglum
urn tekjuskráningu verði hert verulega á næst-
unni. Lögleg og rétt notuð sjóðvél er allra hag-
ur og tryggir öryggi í viðskiptum. Það er því
mikilvægt að bæði neytendur og notendur
sjóðvéla taki höndum saman um að stuðla að
heiðarlegum og traustum viðskiptum.
Glugginn verður
að sjást
Viðskiptavinurinn
á að fá kassa-
kvittunina
í hverjum kassa
verður að vera
innri strimill og
einnig dagsölu- og
uppsöfnunarteljari
Kassanum á
að loka
Leiðbeiningaritið Sjóðvélar. Hafðu þín viðskiptiá
hreinu! veróur sent til sjóðvélarskyldra aðila í
þessari viku. Ritið liggur frammi hjá skattstjórum
og fjármálaráðuneytinu.
FfÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Símí641012
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA